Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Síða 11
27. september 2019 FRÉTTIR 11
Alicante og Valencia-hérað hafa
orðið verst úti, þar ríkir mikið
öngþveiti og fólk er varað við að
vera utandyra sökum flóðahættu.
Fjöldi fólks hefur jafnframt slas-
ast við björgunaraðgerðir, þar af
nokkir lögreglumenn. Það hefur
því orðið mikil röskun á daglegu
lífi og skólahald legið niðri síð-
an 12. september þegar úrhellið
hófst, almenningssamgöngur
liggja sömuleiðis enn víða niðri.“
Forsætisráðherrann flaug yfir
svæðið í herþyrlu
Arna nefnir sem dæmi að rign-
ing í þorpinu Gaianes hafi á fyrstu
sólarhringum úrhellisins mælst
um 490 millimetrar en til saman-
burðar er úrkomumet á Íslandi
83 millimetrar. Það er því ljóst að
mikil vinna er fram undan til að
meta tjón og lagfæra skemmdir
sem orðið hafa af völdum flóðs-
ins. „Þegar Pedro Sanchez, for-
sætisráðherra Spánar, heimsótti
Orihuela nú fyrir skömmu, ferð-
aðist með herþyrlu því aðgeng-
ið er ekkert. Hann sendi frá sér
yfirlýsingu þar sem fram kom að
ástandið væri skelfilegra en fólk
gæti gert sér í hugarlund.“
Spurð hvar fjölskyldan hefði
verið stödd þegar ósköpin dundu
yfir segir Arna þau ótrúlega hepp-
in að hafa sloppið ómeidd. „Við
vorum stödd í Orihuela til að
sækja um landvistarleyfi á lög-
reglustöðinni þegar þetta byrj-
aði allt saman. Það var eins og
hellt væri úr fötu, bókstaflega, og
við brunuðum eins hratt og við
gátum út úr bænum. Göturnar
voru fljótar að fyllast af vatni svo
við urðum að keyra uppi á gang-
stétt. Við vorum auðvitað logandi
hrædd með börnin okkar í bíln-
um. Þegar heim var komið forum
við ekki út úr húsi í þrjá daga. Ég
get ekki þakkað nægilega fyrir að
hafa sloppið ómeidd og með allt
okkar óskemmt, en þess þá heldur
finnur maður þörfina til að hjálpa
þeim sem voru ekki svo heppnir
á allan mögulegan hátt. Við erum
í æðislegum hópi á Facebook, Ís-
lendingar á Spáni, þar sem við í
sameiningu finnum leiðir til að
veita fólki í neyð hjálparhönd.“
Vatnið farið að lykta
Guðmundur Guðmundsson, for-
sprakki hópsins, staðfestir að
ástandið sé verra en fólk geri sér
grein fyrir. „Í bænum Los Alcáz-
ares, sunnan við Torrevieja
við Mar Menor-lónið, varð til
að mynda mikið tjón þar sem
flæddi inn í bílakjallara og skól-
ar skemmdust mikið,“ segir Guð-
mundur og heldur áfram. „Börn-
in í bænum skortir því skóladót
en íbúa vantar í raun allar helstu
nauðsynjar hvort sem það er
matur eða klósettpappír. Bæjar-
félagið brást fljótt við og hefur
nú sett upp söfnunaraðstöðu þar
sem fólk og fyrirtæki koma með
vörur, mat, drykki, fatnað, hrein-
lætisvörur og fleira. Sjálfboðalið-
ar standa vaktina ásamt lögreglu
og hermönnum sem sjá um að
safna og fylla bíla af nauðsynja-
vörum fyrir fólk sem hefur verið
fast og ekki komist neitt. Bara á
meðan við vorum þarna kom fólk
fótgangandi margra kílómetra
leið, skítugt og blautt upp að mitti
eftir að hafa þurft að vaða í flóð-
inu með börnin sín á herðunum
til að sækja vörur. Þetta var al-
veg skelfileg sjón. Við náðum tali
af bæjarstjóranum í Los Alcaz-
ares og spurðum hann nokkurra
spurninga. Hann sagði okkur að
ástandið væri skelfilegt og vatns-
hæðin víða allt að tveir metrar.
Ekki bætir úr að borgin er enn í
sárum síðan síðasta flóð lék bæ-
inn grátt, en þá þurftu tæplega
fimm hundruð manns að yfir-
gefa heimili sín og ríflega hund-
rað sem enn eru heimilislausir
í kjölfar þess. Þrátt fyrir að rign-
ingin sé á enda er óvíst hvort
hún muni taka sig upp aftur og
vatnshæðin hefur haldist óbreytt
í langan tíma. Vatnið er farið að
lykta illa og því óhætt að segja
að hér ríki algjört neyðarástand
og mikil þörf á að aðstoða sem
flesta, bæði með hlutum, mat og
fjárframlögum.“ Fyrir Íslendinga
sem vilja leggja sitt af mörkum
bendir Guðmundur á að hægt sé
að leggja frjáls fjárframlög inn á
Rauða krossinn á Spáni. n
aðrir útsölustaðir
Epal - Laugavegi 70
EPAL - Harpa
Airport fashion - Leifsstöð
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Nauðþurftir sóttar Hjónin hafa lagt sitt af mörkum til
að koma bágstöddum til aðstoðar.
„Fólk kom fótgangandi margra kíló-
metra leið, skítugt og blautt upp að
mitti með börnin sín á herðunum.