Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Síða 19
KYNNING
Fyrsti Joe & The Juice-staðurinn á Íslandi var opnaður í Kringlunni 2013 og festi sig
rækilega í sessi sem einn vinsælasti
morgun- og hádegisverðarstaður
Reykvíkinga. Vörumerkið Joe & The
Juice er danskt að uppruna en það
má finna staði úti um allan heim, í
fjórum af sjö heimsálfum. Staðurinn
er frægastur fyrir ferska, meinholla
og bragðgóða safa en býður einnig
upp á girnilegar samlokur og
unaðslegt kaffi.
Gæði, bragð og ferskleiki
„Vörumerkið Joe & The Juice er
einstakt á svo marga vegu. Fyrst og
fremst er varan náttúrlega alveg
geggjuð. Einföld, næringarrík, fersk og
lítið sem ekkert unnin. Samlokurnar og
djúsarnir gerðir einungis sekúndum
eftir að kúnninn leggur inn pöntun og
lífrænt dökkristað kaffið sömuleiðis
sérbruggað fyrir hvern viðskiptavin.“
Joe & The Juice gerir ætíð út á
einstakan starfsanda, en þar liggja
töfrar staðarins. „Starfsfólkið,
andinn og stemmingin er það
sem gerir vörumerkið að því sem
það er í dag. Sem aftur gerir
það að verkum að Joe & The
Juice skarar fram úr,“ segir
Rúnar Kristmannsson,
markaðsstjóri Joe & The
Juice á Íslandi.
Joe & The Juice á
Hafnartorgi.
Glænýtt og glæsilegt útibú
á Hafnartorgi
Nýlega var nýtt og glæsilegt
útibú Joe & The Juice opnað í
miðbæ Reykjavíkur, fyrir neðan
læk. „Við opnuðum nýjustu perluna
okkar á Hafnartorgi í lok júlí. Það er
einstaklega fallegur og flottur staður
með glænýrri hönnun og opnum
sætasal. Við erum mjög montnir af
staðnum enda er hann gullfallegur
og passar fullkomlega í skandinavíska
stílinn sem er á þessu svæði!“
Glæsileg hönnun
Staðir Joe & The Juice hafa vakið
verðskuldaða athygli fyrir afar
fallega og skemmtilega hönnun.
„Staðirnir eru virkilega flottir og
skemmtilegir með nútímalegri
hönnun og notalegu andrúmslofti.
Við höfum fengið til liðs við okkur
marga rómaða innanhúss- og
húsgagnahönnuði. Þar má helst
nefna Gubi, &Tradition og Norr11.“
Við elskum fjölmenninguna
Neðst við Laugaveginn er að
finna eitt af vinsælustu útibúum
Joe & The Juice á Íslandi. „Það er
frábært
að vera með stað við Laugaveginn
en miðbærinn iðar af lífi þessa
dagana. Kaffihúsastemmingin
á Joe & The Juice heillar
miðbæjargesti mjög enda bjóðum
við upp á fljótlegan og hollan
skyndibita auk þess að vera með
grænmetis og vegan valkosti.
Við eigum mikið af fastakúnnum
á Laugarveginum og sömuleiðis
myndar alþjóðlegt umhverfið
alveg einstakt andrúmsloft sem
við elskum að eiga þátt í á Joe &
The Juice.
Í dag er að finna nítján ferska safa
og sex sjeika á matseðlinum sem
eru hver öðrum betri. Í gegnum
tíðina hafa djúsar komið og farið
af matseðlinum og eiga margir
fastakúnnar sér uppáhaldssafa
sem er horfinn af seðlinum. Að
sjálfsöðgu gerum við þó þessa
djúsa og sjeika enn fyrir fólk ef
við eigum innihaldsefnin. Þá
setjum við saman „signature“
safa og sjeika samkvæmt óskum
viðskiptavinarins. Í nýjustu
herferðinni okkar, „Okkar Pikk“,
höfum við svo valið nokkrar vörur
sem ekki eru á matseðli heldur
koma frá starfsfólkinu okkar. Við
mælum mjög með því að fólk prófi
þær vörur því hér er um að ræða
virkilega bragðgóðar nýjungar
sem koma skemmtilega á óvart!“
Sívinsælir safar og sjeikar
„Það er svakalega mismunandi
eftir aldurshópum og straumum
og stefnum þjóðfélagsins hvað
er vinsælast hverju sinni. Power
Shake á gríðarlega sterkan
aðdáendahóp sérstaklega á
meðal yngri kynslóðarinnar!
Avocado-djúsarnir okkar,
eins og t.d. Fibre Active,
hafa líka verið mjög vin-
sælir frá fyrsta degi. Við
höfum svo fengið að
heyra að rauðrófu-
djúsarnir okkar, þá
sérstaklega Heart-
beet, séu í uppáhaldi
hjá mjög mörgum.“
JOE & THE JUICE:
Glæsilegt útibú á
Hafnartorgi
Nánari upplýsingar má nálg-
ast á vefsíðunni
joeandthejuice.is
Hafnartorgi, Keflavíkurflugvelli,
Kringlunni, Smáralind, Laugavegi
10, Lágmúla 7 og Laugum Spa.
Vefpóstur: info@joeandthejuice.is
Fylgstu með á Facebook: Joe &
The Juice
Instagram: Joeandthejuiceiceland