Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Qupperneq 21
JÓLA- OG VILLIBRÁÐAHLAÐBORÐ
KYNNINGARBLAÐ
27. september 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
KOLABRAUTIN:
Eitt glæsilegasta jólahlaðborð
landsins með gullfallegt útsýni
Jólahlaðborðið hjá Kolabrautinni verður sífellt vinsælla með hverju árinu
sem líður. „Á hverju ári höfum
við verið að bæta hlaðborðið og
lagt síaukinn metnað í að allir fái
matarupplifun við sitt hæfi. Árið
í ár verður engin undantekning,“
segja Guðni Hrafn Grétarsson og
Laufar Sigurður Ómarsson hjá
Kolabrautinni.
Gómsætur jólamatur
„Grafinn lax, tvíreykt sauðarlæri,
jóla-sashimi, purusteik og svo
margt fleira. Einnig verður úrval
af réttum fyrir grænkera svo sem
hnetusteik, saltbökuð rauðrófa,
falafel-bollur og fleira.“ Þessi
girnilega upptalning er bara
toppurinn á ísjakanum og er
víst að borðið hjá Kolabrautinni
verður hlaðið ýmsum lystisemdum
sem gaman er að smakka í
aðdraganda jólanna.
Jólahlaðborð og
villibráðarhlaðborð
Jólahlaðborðið byrjar þann 14.
nóvember og lýkur þann 23.
desember. „Einnig verðum við
með glæsilegt villibráðarhlaðborð
fyrstu tvær helgarnar í nóvember.
Það er um að gera að bóka
sem fyrst þar sem nú þegar eru
nokkrir dagar orðnir fullbókaðir í
hlaðborðin hjá okkur.“
Gullfallegt útsýni
Kolabrautin er staðsett á efstu
hæð í tónlistarhúsinu Hörpu og
er þar af leiðandi með eitt besta
útsýnið í bænum. „Staðurinn hentar
sérlega vel fyrir stóra sem smáa
hópa. Einnig hefur það færst í
aukana hjá okkur að vera með
móttöku fyrir hópa og fyrirtæki fyrir
framan barinn hjá okkur á fjórðu
hæðinni, þar sem boðið er upp
á skemmtilegan og fjölbreyttan
jólapinnamat fyrir jólaviðburði.“
Fjöldi skemmtilegra viðburða
er í boði í Hörpu svo sem
sinfóníutónleikar, ópera og
jólatónleikar. „Við munum að
sjálfsögðu vera með tilboð fyrir
tónleika- og viðburðargesti
Hörpunnar sem ætla að gera sér
glaðan dag í Hörpu um jólin.“
Borðapantanir fara í gegnum
vefsíðu Kolabrautarinnar:
kolabrautin.is, í síma 519-9700
eða í vefpósti:
info@kolabrautin.is
Kolabrautin er staðsett á 4. hæð
í Hörpu, Austurbakka 2, 101
Reykjavík.