Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Qupperneq 30
Rafiðnaðarblaðið 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Tengdu þig við 100% græna
orku með Bílahleðslunni
Við höfðum verið fengnir í verkefni við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla og
tvinnbíla áður en við fórum sjálfir
að flytja inn hleðslustöðvar. Oft
var um að ræða grannar lagnir
og afkastalitlar hleðslustöðvar og
sjaldan verið að hugsa mikið um
framtíðina. Í dag eru rafhlöður
rafbílanna orðnar töluvert öflugri og
með þessum gömlu hleðslustöðvum
getur tekið marga sólarhringa að
hlaða bílana. Þetta er meginástæða
þess að við ákváðum að fara inn
á bílahleðslumarkaðinn. Þegar
við sáum svo hversu vel EVBox
var að leysa vandamál tengd tíðri
notkun, álagsdreifingu á hleðslu
og umsýslu hleðslukostnaðar var
orðið ljóst að þetta væri fyrirtækið
sem við vildum tengja okkur við,“
segir Magnús Jaró Magnússon,
framkvæmdastjóri Bílahleðslunnar,
sem er systurfyrirtæki Rafvirkni ehf.,
en það síðarnefnda hefur starfað í
35 ár á rafverktakamarkaði.
Ert þú örugglega að hlaða
rafbílinn rétt?
Það er afar mikilvægt að hlaða
rafbílana rétt. Mannvirkjastofnun,
æðsta vald yfir rafmagnsmálum
á Íslandi, gaf nýlega út bækling
þar sem tilgreindar eru fjórar
mismunandi hleðsluaðferðir.
Sérstaklega er varað við að stinga
bílnum í samband við venjulegan
tengil í heimahúsi þar sem sú leið
hentar ekki til hleðslu rafbíla nema
í mjög takmarkaðan tíma. „Það
hefur jafnvel kviknað í tenglum
og húsum í kjölfarið, út frá rangri
hleðsluaðferð. Eina rétta aðferðin
við að hlaða rafbíla er að notast
við hleðslustöð með fasttengdri
raflögn, líkt og það sem við bjóðum
upp á,“ segir Magnús.
Skínandi græn orka
EVBox er leiðandi
framleiðandi hleðslustöðva og
hleðslustjórnunarhugbúnaðar í
heiminum og hafa verið settar
upp yfir 75.000 hleðslustöðvar í
meira en 55 löndum. Samanlagt
hafa hleðslustöðvar þeirra hlaðið
36M kWh á ári, sem jafngildir
um 900.000.000 kílómetra
akstursvegalengd á rafbíl. EVBox
kemur því í veg fyrir losun um 18.450
tonna af útblæstri koltvísýrings
árlega. EVBox rekur alla starfsemi
sína á grænni orku, flokkar allan
úrgang og prentar eins lítið og
hægt er. Hleðslustöðvarnar eru þar
að auki úr polycarbonate og 100%
endurvinnanlegar. Innan skamms
mun fyrirtækið enn fremur nýta
sólarorku í störfum sínum. „Þessi
skínandi umhverfisvitund var önnur
ástæða þess að við vildum fara í
samstarf við EVBox. Einnig erum
við nýbúin að gera starfssamning
við Orku heimilanna. Þau hafa verið
ódýrust á markaðnum og notast enn
fremur við 100% græna orku.“
Lausnir fyrir einstaklinga,
fjölbýlishús og vinnustaði
Bílahleðslan býður upp á lausnir fyrir
einstaklinga, fjölbýlishús, fyrirtæki
og stofnanir. EVBox býður upp
á allt að 350 kw hleðslustöðvar
með fullkominni álagsstýringu,
sem tryggir að rafmagnið í húsinu
fari ekki yfir það sem er í boði.
Hleðslustöðvarnar henta í ýmiss
konar aðstæðum; bílakjöllurum,
sérmerktum stæðum eða heilum
bílaplönum. „Það á að vera þægilegt
og einfalt að hlaða rafbílana heima
sem og í vinnunni. Í flestum tilfellum,
þegar um er að ræða fjölbýlishús,
eru ekki allir íbúar að nota
hleðslustöðvarnar. Það eiga ekki
allir rafbíla og enn fremur eiga ekki
allir bíl. Því væri ósanngjarnt að láta
alla borga fyrir hleðslustöðina og
rafmagnsnotkunina sem fylgir. Við
bjóðum upp á fyrirtaks lausn á þessu
vandamáli. Þá komum við á staðinn
og í samstarfi við húsfélagið, útbúum
við lagnaleiðir í bílakjallaranum
eða á planinu, setjum upp töflu og
tengjum hana. Þeir íbúar sem nota
rafbíla borga sjálfir fyrir lögn að sínu
stæði og kaupa hleðslustöð. Þannig
er enginn neyddur til að borga fyrir
stöð sem hann notar ekki.“
Bílahleðslan býður upp á fjölbreytt
úrval af hleðslustöðvum sem
henta í mismunandi aðstæðum.
„Fyrir fjölbýlishús mælum við með
BusinessLine og Elvi. Fyrrnefndi
kosturinn hentar vel fyrir bílaplön
fjölbýlishúsa og vinnustaða þar sem
eru ómerkt stæði. Allir notendur
geta hlaðið rafbílana og opnað
stöðvarnar fyrir gesti. Elvi hentar
fyrir bílakjallara og plön með
merktum stæðum. Þá hefur hver og
einn aðgang að sinni hleðslustöð.
Bílahleðslan býður einnig upp á
PublicLine og DC-hraðhleðslustöð
sem henta sérstaklega fyrir fyrirtæki.
PublicLine eru útbúnar kortalesara
og geta hlaðið tvo bíla á sama tíma.
DC-hraðhleðslustöðvarnar geta
hlaðið allt að þrjá bíla samtímis.
Þær geta hlaðið upp að 125 km á
30 mínútum miðað við 50kw stöð,
og upp í 400 km á 15 mínútum með
350kw stöð.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni bilahledslan.is
Akralind 9, 201 Kópavogur
Sími: 519-4488
Fylgstu með á Facebook:
Bílahleðslan ehf.