Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 34
Rafiðnaðarblaðið 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ
Viðhaldsfríar Protektor-
þakrennur og laufgildrur sem
koma í veg fyrir skemmdir
Protektor-þakrennur eru þýsk hágæðavara og þær beyglast hvorki né ryðga. Þær eru
framleiddar úr pvc-plasti og láta
ekki á sjá í rysjóttri, íslenskri veðráttu.
Þessar viðhaldsfríu þakrennur þola
UV-geisla og eru höggþolnar, þær
hafa verið þolprófaðar. Rennurnar eru
framleiddar samkvæmt DIN-staðli og
passa því inn í flest gömul rennustæði.
Þ.Þorgrímsson hefur selt
Protektor-þakrennur í um tíu ár en
þessi vara hefur verið á markaðnum
í Þýskalandi í um þrjá áratugi. „Þær
líta bara út eins og nýmálaðar hvítar
rennur og eru alltaf fallegar að
sjá,“ segir Þorgrímur Þór
Þorgrímsson hjá Þ.
Þorgrímsson.
Protektor-rennurnar eru til sölu í
verslun fyrirtækisins að Ármúla 29.
Verslunin er opin virka daga frá kl.
8 til 18. Protektor-þakrennur eru á
hagstæðu verði og ávallt til á lager.
Laufgildrur koma í veg fyrir skemmdir
„Við erum með sýningarrennu hér á
staðnum og því geta viðskiptavinir
séð alla fylgihluti. Þar ber hæst
laufgildrur sem eru mikið þarfaþing.
Það er hvimleitt vandamál varðandi
þakrennur í dag að þær fyllast af
laufi sem fýkur á
haustin. Svo
liggja laufin í
skjóli rennunnar sem fyllist af þeim,
síðan frýs í þessu og skemmdir verða
á rennunni, blikkrennur beyglast og
plastrennur brotna. En laufgildran
liggur á rennunni eins og net yfir
henni, þar lendir laufið, það þornar
í fyrstu sólarupprás og fýkur síðan
burtu. Rennan er því alltaf hrein og
fín,“ segir Þorgrímur.
Laufgildrurnar er hægt að kaupa
sér fyrir Protektor-rennur en þær
er geta mögulega passað á aðrar
þakrennur með sama sniði og
Protektor-rennurnar. Er gildran þá
einfaldlega klippt til svo hún passi á
viðkomandi þakrennu en breidd á
rennum er mismunandi.
Sjá nánar á vefsíðunni thco.
is. Komdu við í Þ. Þorgrímsson
að Ármúla 29, fáðu faglega
ráðgjöf og nánari upplýsingar
um framúrskarandi Protektor-
þakrennur og laufgildrur.