Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Qupperneq 36
Rafiðnaðarblaðið 27. september 2019KYNNINGARBLAÐ
KYNLÍFSDROTTNINGAR OG ÓJARÐNESKUR UNAÐUR:
Og já! G-bletturinn
er ekki goðsögn
Hermosa.is tók við glænýju umboði fyrir sölu á Zalo-kynlífstækjum í júlí síðastliðinn,
en vörurnar hafa heldur betur
slegið í gegn úti í heimi, og ekki
að ástæðulausu. „Zalo er afar
framarlega þegar kemur að
framleiðslu kynlífstækja fyrir konur og
tókum við í sölu nokkrar vinsælar vörur
frá þeim. Tvær af þessum vörum,
Zalo Hero og Zalo Queen innihalda
báðar alveg glænýja PulseWave™
unaðstækni sem hefur aldrei áður
sést á markaðnum. Um er að ræða
sérstaka mótortromlu sem hreyfir
við og ýtir á G-blettinn. Og nei, G-ið
stendur ekki fyrir „goðsögn“ heldur
guðdómlegan unað!“ segir Kristín
Björg Hrólfsdóttir, annar eigenda
vefverslunarinnar Hermosa.is.
Hermosa er besta vinkona þeirra
sem langar að kynna sér unað
kynlífstækjanna á þægilegan,
auðveldan og síðast en ekki síst
skemmtilegan máta. „Markmiðið
er að það sé einfalt að kaupa
kynlífstæki á netinu. Reglan er
því sú að bjóða upp á mest fjórar
tegundir í hverjum vöruflokki.
Það nennir enginn að skoða 300
dildóa sem gera allir nákvæmlega
það sama. Frekar leggjumst við í
rannsóknarvinnu til að finna góð
kynlífstæki sem eru vinsæl erlendis
og hafa gott orðspor. Þannig
kynntumst við Zalo.“
Gullfalleg kynlífstæki
Það er engin ástæða til þess
að fela Zalo vörurnar ofan í
náttborðsskúffunni enda eru
vörurnar gullfallegar og sóma sér
sem stáss uppi á hvaða náttborði
sem er. Að öllu gamni slepptu
er hönnunin hjá Zalo fyrirtækinu
fullkomin. Margar vörur frá þeim
eru skreyttar með Swarovski-kristal
og fengu Zalo-vörurnar verðlaun
fyrir bestu umbúðirnar. „Við hjónin
fengum tvær vörur til prófunar
frá Zalo áður en við ákváðum að
taka við umboðinu. Tilfinningin að
fá pakkann í hendurnar og opna
umbúðirnar var næstum því jafn
unaðsleg eins og að nota vörurnar.“
Þess má geta að öllum Zalo-
vörum fylgir tíu ára ábyrgð
frá framleiðanda. „Komi upp
framleiðslugalli á tækinu innan tíu
ára fær kaupandinn 50% afslátt af
næstu keyptu vöru frá fyrirtækinu.
Ábyrgðin kemur beint frá
framleiðandanum og er ekki bundin
við seljandann.“
Drottning titraranna
Zalo Queen-titrarinn er miklu meira
en bara titrari! „Drottningin er líklega
fjölbreyttasta kynlífstækið sem
við seljum. Hún er hvort tveggja
hefðbundinn titrari og inniheldur
PulseWave™ tæknina. Þá er um að
ræða tvo mismunandi mótora sem
virka saman eða hvor í sínu lagi.
Einnig inniheldur hún forhitara sem
eykur unað. Hægt er að stjórna
Zalo Queen með snjallforriti og
búa til titringsmynstur eða láta
drottninguna dansa í takt við tónlist.“
Hermosa býður upp á sett með
Zalo Queen sem inniheldur sérstakt
hylki sem má klæða drottninguna
í, og þá virkar hún eins og sogtæki.
Zalo Queen var valið besta
kynlífstækið fyrir konur árið 2019,
besta lúxus-kynlífstækið og besta
pakkningin.
Hetja á hvítum hesti
Zalo Hero er afar fjölhæfur titrari
sem virkar í grunninn eins og egg.
„Hetjan inniheldur PulseWave™
tæknina sem gerir tungu hetjunnar
kleift að hreyfast allt að 75 sinnum
á sekúndu. Hetjan er til þess hönnuð
að veita ójarðneskan unað enda
hreyfist engin mennsk tunga svona
hratt. Titringsstillingarnar eru fjórar
og PulseWave™ stillingarnar líka sem
gefur möguleika á 16 mismunandi
samsetningum. Einnig má nota
hverja stillingu eina og sér.“
Hermosa.is selur einnig afar
vandað Zalo FanFan paratæki.
Um er að ræða kraftmikinn en
hljóðlátan titrara. Mjórri endinn fer
inn í leggöngin og örvar G-blettinn
á meðan sá stærri liggur á snípnum
og örvar hann. Báðir aðilar finna fyrir
titringnum og því er tækið fullkomið
í paraleikinn og hentar vel í flestum
stellingum. Hermosa er einnig með
til sölu Confidence nuddvendi,
Corage titrara og kitlfjaðrir til sölu
frá Zalo svo eitthvað sé nefnt.
„Við ætluðum aldrei að opna
kynlífstækjaverslun“
Upphaflega byrjuðu Vilhjálmur
og Kristín að flytja inn
kynlífstækjadagatöl fyrir ein jólin,
en þetta vatt fljótt upp á sig,
sérstaklega þegar þau upplifðu
verðósamræmið á þessum vörum
hér heima. „Það var oft hátt í
50% verðálagning hjá íslenskum
heildsölum ofan á það sem varan
kostar á til dæmis Amazon með
flutningi. Við sáum fjótt að við
gátum auðveldlega boðið upp
á miklu betra verð en aðrir og
höfum haft það að markmiði alla
tíð síðan. Einnig bjóðum við upp
á fría sendingu burtséð hvað
varan kostar.“ Umsagnirnar frá
viðskiptavinum hafa verið fram
úr hófi jákvæðar en það er ekkert
skrítið að fólk sé ánægt að versla
við aðila sem ber hag kúnnans fyrir
brjósti. „Við bjóðum upp á lægra
verð en samkeppnisaðilarnir á sömu
vörum, fría heimsendingu og betri
skilafrest. Svoleiðis viðskiptahættir
geta ekki klikkað.“
Fram til 4. október næstkomandi
er 15% afsláttur af öllum vörum
hjá Hermosa. Það er því ekki seinna
vænna að næla sér í hágæða
hjálpartæki ástarlífsins á enn
betra verði!
Kíktu við í hermosa.is
og skoðaðu úrvalið.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland