Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Qupperneq 41
PRESSAN 4127. september 2019
Það sama á við þá rannsókn
og verk Hart, sem var nefnt til
sögunnar hér að ofan; ekki var
gert ráð fyrir hreyfingu sólkerf-
anna í Vetrarbrautinni. Má þar til
dæmis nefna að sólkerfið okkar
fer einn hring um Vetrarbrautina
á 230 milljón árum. Ef vitsmuna-
samfélög hafa orðið til fjarri öðr-
um slíkum samfélögum gætu þau
gert ferðir sínar styttri með því
að bíða eftir hagstæðri afstöðu
stjarna og pláneta í öðrum sól-
kerfum. Þegar þær væru búnar að
koma sér fyrir í nýju sólkerfi gætu
þær beðið aftur eftir hagstæðum
fjarlægðum áður en þær halda
ferðalagi sínu áfram. Ef þetta er
rétt þá eru þessar vitsmunaverur
ekki að þjóta um Vetrarbrautina,
þær gefa sér góðan tíma og bíða
eftir að pláneta þeirra komi nógu
nálægt næsta áfangastað áður en
þær leggja upp í ferðalag.
„Ef milljarður ára er nægilega
langur tími þá er það ein lausn
á Fermi-þversögninni. Heimar,
sem henta til búsetu, eru svo
sjaldgæfir að þú verður að bíða
lengur en hægt er að vænta þess
að nokkurt samfélag endist áður
en annað slíkt samfélag kemur
nærri,“ sagði Carroll-Nellenback.
Hugsanlega fjölmörg
menningarsamfélög
Til að skoða mismunandi sviðs-
myndir notuðu vísindamennirn-
ir stærðfræðimódel til að líkja eft-
ir dreifingu menningarsamfélaga
um Vetrarbrautina. Þeir settu fjöl-
breytta möguleika inn í módelið
um fjarlægð ímyndaðra menn-
ingarsamfélaga frá nýjum sólkerf-
um, fjarlægð og hraða geimfara
og hversu oft geimförum er skotið
á loft. Ekki var reynt giska á hvað
ræki geimverurnar áfram eða
hvernig stjórnmál í heimi þeirra
væru en sumir stjörnufræðingar
telja þessa þætti hafa dregið úr
trúverðugleika annarra lausna á
Fermi-þversögninni.
„Við reyndum að setja saman
módel sem fæli í sér eins lítið af
ályktunum um félagsfræði og
hægt var,“ sagði Carroll-Nellen-
back.
En það er stórt vandamál við
gerð módels um dreifingu menn-
ingarsamfélaga um Vetrarbraut-
ina að aðeins sé unnið út frá ein-
um viðmiðunarpunkti, okkur
sjálfum. Allar spár eru því byggð-
ar á hegðun okkar mannanna.
En jafnvel þótt þetta setji rann-
sókninni ákveðin takmörk
komust vísindamennirnir að því
að í Vetrarbrautinni sé hugsan-
lega fjöldamörg sólkerfi, þar sem
menningarsamfélög er að finna,
sem við vitum ekki um. Þetta
var einnig niðurstaðan þegar
þeir notuðust við mjög íhalds-
samt mat á hraða og tíðni geim-
ferða vitsmunaveranna. Carroll-
Nellenback sagði að hugsanlega
séu vitsmunaverur í öllum sól-
kerfum Vetrarbrautarinnar en
þær hafi ekki heimsótt okkur því
þær séu ekki nógu nálægt okkur.
Hann lagði einnig áherslu á að
þótt þetta væri hugsanlegt þýði
það ekki að þetta sé líklegt.
Við höfum nú fundið um 4.000
plánetur utan sólkerfis okkar og
engin ummerki um líf hafa fund-
ist á þeim. En við höfum eiginlega
ekki leitað mjög vel eða ítarlega.
Það eru að minnsta kosti 100
milljarðar stjarna, á borð við sól-
ina, í Vetrarbrautinni og miklu
fleiri plánetur. Niðurstöður ný-
legrar rannsóknar benda til að
hugsanlega séu allt að 10 millj-
arðar pláneta í sólkerfinu svip-
aðar og jörðin okkar. Höfundar
hennar segja að það að komast að
þeirri niðurstöðu að ekkert líf sé á
neinni þessara pláneta sé sé eins
og að horfa á sundlaug fulla af sjó
og sjá enga höfrunga og draga þá
ályktun að engir höfrungar séu í
heimshöfunum.
Hafa hugsanlega komið til
jarðarinnar
Annað lykilatriði í umræðunni
um vitsmunalíf utan jarðarinnar
er það sem Hart kallaði „Stað-
reynd A“ en í henni felst að engar
geimverur séu á jörðinni núna
og það séu engar sannanir fyrir
að geimverur hafi komið hingað
til jarðarinnar. En höfundar nýju
rannsóknarinnar segja að þetta
þýði ekki að þær hafi aldrei kom-
ið hingað. Ef vitsmunaverur hafi
komið hingað til jarðarinnar fyrir
milljónum ára, jörðin er um 4,5
milljarða ára, þá séu hugsanlega
engin ummerki um heimsókn
þeirra. Þeir benda á niðurstöður
eldri rannsókna sem benda til að
við séum hugsanlega ekki fær um
að finna ummerki um heimsókn-
ir vitsmunavera hingað til jarðar-
innar. Það sé jafnvel hugsanlegt
að geimverur hafi komið mjög
nálægt jörðinni eftir að mann-
kynið kom til sögunnar en hafi
ákveðið að koma ekki í heimsókn.
Þá sé ekki útilokað að
geimverur vilji ekki heimsækja
plánetur þar sem líf er þegar til
staðar. Að gera ráð fyrir að þær
vilji heimsækja slíkar plánetur sé
„barnaleg spá“ út frá mannlegri
tilhneigingu. n
PINNAMATUR
V e i s l u r e r u o k k a r l i s t !
Bjóðum uppá fjölda tegunda
PINNAMATS OG TAPASRÉTTA
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
„Hvar eru
allir?“
MYNDIR: GETTY IMAGES
Sífelld leit Vísindamenn þreyt-
ast ekki á að kanna geiminn.
Vetrarbrautin Hulin dulúð.