Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Page 45
MATUR 4527. september 2019 n Stuðlað að heilbrigðri hjartastarfsemi og bætir ónæmiskerfið n Stutt heila-, húð-, lið-, vöðva- og augnheilbrigði n Verndað frumur gegn oxunarskemmdum Astaxanthin Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt hágæða bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt við kjöraðstæður sem tryggja að innhaldið skili sér til neytenda. Astaxanthin er unnið úr örþörungum. Þetta öfluga andoxunarefni getur dregið úr bólgum og verndað gegn sterkum útfjólubláum geislum sólar en aðrir góðir kostir eru m.a. að það getur: Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna endurgert í eldhúsinu heima Snickers- súkkulaði Betra en keypt Heimagert Snickers er rosalegt! Mynd: Sunna Gautadóttir Botn – Hráefni: n 1 1/4 bolli súkkulaðibitar n 1/4 bolli hnetusmjör Núggat – Hráefni: n 56 g smjör n 1 bolli sykur n 1/4 bolli „evaporated“ mjólk* n1 dós sykurpúðakrem („marshmallow creme/ fluff“) n 1/4 bolli hnetusmjör n 1 tsk. vanilludropar n 1 1/2 saxaðar salthnetur Karamella – Hráefni: n 400 g rjómakaramellur n 1/4 bolli rjómi Toppur – Hráefni: n 1 1/4 bolli súkkulaðibitar n 1/4 bolli hnetusmjör Aðferð: Byrjum á botninum. Takið til form að eigin vali, ekki stærra en 20 sentimetra. Smyrjið það vel. Setjið súkkulaði og hnetusmjör í skál og bræðið saman í örbylgjuofni en passið að hræra alltaf í blöndunni með 20 sekúndna millibili. Dreifið blöndunni í botninn á forminu og setjið inn í ís- skáp. Svo er það núggat. Bræðið smjörið yfir meðal- hita. Bætið sykri og mjólk saman við og blandið vel saman. Hrærið stanslaust þar til blandan fer að sjóða. Látið sjóða í 4–5 mínútur og hrærið reglulega í blöndunni svo hún brenni ekki. Bætið sykurpúðakreminu, hnetusmjörinu og vanillu- dropum saman við. Hrærið þar til blandan er silkimjúk. Takið af hitanum og blandið hnetun- um saman við. Dreifið þessu jafnt yfir botninn og setjið aftur inn í ísskáp. Því næst karamellan. Blandið karamellum og rjóma saman í skál sem þolir örbylgjuofn. Hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur í senn þar til allt er bráðnað saman. Dreifið karamellunni yfir núggatið og setjið formið aftur inn í ísskáp. Og loks toppurinn. Setjið súkkulaði og hnet- usmjör í skál og bræðið saman í örbylgjuofni en passið að hræra alltaf í blöndunni með 20 sekúndna millibili. Dreifið blöndunni ofan á karamelluna og setjið aftur inn í ísskáp þar til súkkulaðið hefur storknað. Skerið í bita og njótið. * ATH – Þessa mjólk er hægt að kaupa í asískum matvöruverslunum og er hún þykk dósamjólk en nokkru af vatni hefur verið náð úr henni með uppgufun. Auðvelt er að búa þessa mjólk til sjálf- ur. Til að búa til 1 bolla af „evaporated“ mjólk þarf að sjóða 2 1/4 bolla af nýmjólk niður þar til 1 bolli er eftir. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.