Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Side 46
46 FÓKUS - VIÐTAL 27. september 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
K
vikmyndaframleið-
andinn og listakonan Katja
Adomeit er stöðugt á hött-
unum eftir nýjum hug-
myndum og ólíkum aðferðum við
þróun og framleiðslu, sem gefa
nýja og óvænta niðurstöðu. Hún
hefur dálæti á þeirri hlið fram-
leiðslunnar sem snýr að sköp-
un, fjármögnun og leggur sérs-
taka áherslu á að vinna með ungu
kvikmyndagerðarfólki frá öllum
heimshornum.
Á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík (RIFF) í ár verða
sýndar þrjár myndir hennar: The
Orphanage, sem keppir í Vitrun-
um, Team Hurricane og Resin,
en framleiðandinn er sérstakur
heiðursgestur hátíðarinnar.
Katja er af þýskum ættum og
búsett í Danmörku. Hún hefur
sérstakt dálæti á þeirri hlið fram-
leiðslunnar sem snýr að sköpun
og fjármögnun og hefur það að
markmiði að gera listrænar kvik-
myndir að afþreyingarefni. Hún
er meðal annars þekkt fyrir mynd-
irnar The Weight of Elephants,
Loving Pia, The Square og hina
marglofuðu Force Majeure, auk
fjölda annarra. Árið 2011 stofn-
aði Katja sitt eigið framleiðslu-
fyrirtæki, Adomeit Film, og seg-
ist framleiðandinn ekki framleiða
kvikmyndir sem fara eftir hefð-
bundnum handritsreglum, það
sé meira prinsipp en staðreynd.
„Það er mikil þráhyggja hjá
mér að koma að kvikmyndagerð
með ýmsum óhefðbundnum að-
ferðum til þess að úr verði óhefð-
bundnar og öðruvísi niðurstöður.
Ég vil ekki gera sömu kvikmynd-
irnar aftur og aftur. Aðferðafræði
mín gengur út á það að ögra form-
inu og í raun verkferlum sem eru
venjubundnir í kvikmyndagerð,
jafnvel ögra kvikmyndasögunni
ef svo má að orði komast,“ segir
Katja.
„Að fjármagna öðruvísi eða
frumleg verkefni getur verið algjör
höfuðverkur. Margir hugsa um og
notast við aðferðir sem hafa verið
til í hundrað ár og sjá ekki mikla
ástæðu til að breyta þeim. Fólk
er vant ákveðnum verkferlum og
dæma fjármögnunaraðilar oft
verkefni út frá einhverju sem þeir
sjá fyrir í hausnum á sér, en hafa
ekki alveg tilfinninguna fyrir því
sem við viljum gera. Þetta er bar-
átta á hverjum degi.“
Spenna og áreiti í
Mið-Austurlöndunum
Katja segir hvert verkefni vera
krefjandi á sinn hátt enda kvik-
myndagerð í eðli sínu krefjandi,
þar sem vandamál koma upp við
hvert horn, og góður framleið-
andi sér um að finna réttu lausn-
irnar. Þá rifjar hún upp reynslu á
tökustað sem kenndi henni ýmis-
legt sem hún mun aldrei gleyma.
„Ég gerði mynd með af-
gönskum leikstjóra og afgönsku
tökuliði. Við skutum myndina í
Tadsíkistan vegna þess að það
er allt of hættulegt að taka upp
í Afganistan. Við þurftum samt
að flytja allt liðið yfir talíbana-
svæði, þar sem kvikmyndaiðnað-
ur er ekki til. Enginn á svæðinu
var vanur tökuliði, þannig að
við fengum alls konar leiðindi
sem fylgja venjulega ekki starf-
inu,“ segir hún, en kvikmyndin
sem Katja ræðir þar um er The
Orphanage. Sú mynd segir frá
fimmtán ára gömlum dreng sem
býr á götum Kabúl í Afganistan.
Fljótlega er hann fluttur á sové-
skt munaðarleysingjahæli en á
meðan stjórnmálaástandið tek-
ur miklum breytingum í Kabúl
neyðast drengurinn og hin börn-
in til að verja heimili sitt.
Katja segist hafa verið snortin
af þessari sögu og hún hikaði
ekki við að gerast framleiðandi
eftir að hún kynntist leikstýrunni
Shahrbanoo Sadat. Sögurnar á
bak við tjöldin voru hins vegar
miður ánægjulegar. „Við þurft-
um meðal annars að kljást við
rasisma og mikil afskipti lög-
reglu. Í ofanálag komu þessar
hefðbundnu hindranir sem fylgja
svona vinnu,“ segir Katja.
„Allt evrópska tökuliðið snerist
gegn leikstjóranum og mér, sök-
um þess að fáir vissu í rauninni
hvað við vorum að gera. Enginn
vissi hvað var að gerast. Í kjöl-
farið á þessu varð mórallinn afar
dapurlegur. Tökuliðið áleit mig
vera slæman framleiðanda, fólk
hvorki heilsaði né talaði við leik-
stjórann eftir því sem á leið. Það
„Þetta er
barátta á
hverjum
degi“
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Katja slysaðist í kvik-
myndagerð – Lýsir áreiti á
tökustað - Markmiðið að
sameina list og afþreyingu
Force Majeure (2014)