Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Síða 50
50 27. september 2019STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 . sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir Gildir 29. september – 5. október
Það opnast ný ástargátt í þessari viku
og þurfa lofaðir hrútar að gæta sín á því.
Ef þú ert laus og liðug/ur þá er þetta
spennandi tækifæri í átt að farsælu ást-
arsambandi. Lofaðir hrútar þurfa að vara
sig. Auðvitað er ekkert að saklausu daðri
en þú verður að varast að láta daðrið ekki
hlaupa með þig í gönur.
Það er búið að vera mikill ys og þys í kring-
um þig undanfarið en í þessari viku róast
allt niður og þú nærð að slaka á og melta
allar upplýsingarnar sem þú hefur fengið
úr hinum ýmsu áttum. Það eru einhver
óskýrð veikindi búin að vera að hrjá þig
og þú ættir að hlusta betur á líkamann.
Breyttu matarvenjum þínum og farðu í
kvöldgöngu – það gæti hresst þig við.
Þú fyllist nýjum krafti og svo virðist sem
þú sért að hefja nýtt líf eftir erfiða tíma.
Þú færð skyndilega áhuga á efnislegum
hlutum og þráir fátt meira en að breyta
um hárgreiðslu, endurnýja fataskápinn
og jafnvel kaupa þér snyrtivörur. Láttu
það eftir þér – nýtt upphaf krefst nýrra
áherslna og áhugamála.
Í þessari viku hefst langt tímabil þar
sem þú meðvitað einbeitir þér meira að
fjölskyldunni og þínum innsta hring, sem
þú hefur vanrækt undanfarið. Auknum
gæðastundum fylgir mikil framtaksgleði
og þú nærð að koma ótrúlega miklu í verk
á stuttum tíma. Þetta eykur þína lífsgleði
og þú skalt halda í þá tilfinningu.
Nú þarf ljónið að hætta að tala um allt
sem það ætlar að gera og bara henda sér
í djúpu laugina – fara út á meðal fólks,
hitta gamla kunningja og létta af sér öll-
um heimsins áhyggjum. Þú ert nefnilega
ekki mjög hrifin/n af því að kvarta og
kveina en stundum þarftu bara öxl til að
gráta á eða vinalegt eyra sem hlustar.
Hagur meyjunnar vænkast ansi mikið og
veskið hefur aldrei verið þykkara. Þú nýtir
tækifærið og gleður fólkið í kringum þig,
enda er þér slétt sama um peninga og vilt
helst eyða þeim í fólkið sem þú elskar.
Þú sérð vinnuna líka skýrar og nærð að
taka ákvörðun um hvort þú eigir að halda
puðinu áfram eða hverfa á vit þess sem
þig langar í raun og veru.
Það er gríðarlega spennandi kafli að
hefjast hjá voginni. Þú ert tilbúin/n til að
loka erfiðum kafla fortíðarinnar og hefja
glænýjan og skemmtilegan kafla – laus
við gamla drauga og óþarfa áhyggjur. Þig
dreymir um ákveðinn hlut og einsetur þér
að eignast hann. Þessi hlutur þarf ekki að
vera efnislegur en þegar þú færð hann í
hendurnar verður líf þitt margfalt betra.
Nú er kominn fullkominn tími fyrir sporð-
drekann til að slaka á eftir annasamt
sumar. Það síðasta sem þig langar að
gera er að ferðast eða fara í partí. Þig
langar miklu fremur að slaka á með góða
bók eða sjónvarpsþátt og jafnvel gera
þér dagamun með einhverjum sætindum.
Þér líður vel í eigin skinni og framtíðin er
mjög björt.
Þú hefur verið að fara á kostum í vinnunni
og hefur náð miklum árangri á þínu sviði.
Svo miklum að þér finnst þú vera komin/n
á endastöð og núna þarftu frekari ábyrgð
og meiri áskoranir. Því sækist þú eftir
tilteknu starfi sem á eftir að vera mikið
gæfuspor fyrir þig þegar þú færð það. Og
já, ég segi þegar því það er bókað mál að
þú færð þetta starf.
Það hefur mikið mætt á þér undanfarið
en þú nærð að tækla það eins og þér
einni/einum er lagið – með jafnaðargeði
og hjartað á réttum stað. Fólk leitar til
þín til að létta af sér og þú geymir svo
mikið af leyndarmálum og áhyggjum fyrir
aðra að þú hefur ekki pláss fyrir þínar
eigin langanir og drauma. Spáðu aðeins í
það. Er það hollt?
Þú ert ein af þeim manneskjum sem er
sífellt í leit að æðri tilgangi. Þú spáir mikið
í það daginn út og daginn inn hvernig
þú öðlast þennan tilgang og nú er
fullkominn tími fyrir þig að fara í ferðalag
um völundarhús sálarinnar. Það þýðir
ekki að þú þurfir að leggja land undir fót
því þú getur einbeitt þér að andlegum
málefnum heima í stofu.
Þú hefur verið eitthvað illa fyrir kölluð/
kallaður og hefur ekki fundið neistann
þinn. Nú verður hins vegar breyting á og
þú ert gjörsamlega óstöðvandi. Lofaðir
fiskar þurfa að setjast niður með maka
sínum og tala um framtíðarplön. Nú er
tíminn til að leggja línurnar fyrir framtíð-
ina og ákveða næstu skref í mjög gjöfulu
sambandi.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 29. september Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona, 29 ára
n 30. september Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 52 ára
n 1. október María Heba Þorkelsdóttir leikkona, 45 ára
n 2. október Pálmi Gestsson leikari, 62 ára
n 3. október Tolli listmálari, 66 ára
n 4. október Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, 77 ára
n 5. október Hugleikur Dagsson listamaður, 42 ára
Lesið í tarot Nönnu Kristínar
Júlíana og Andri fljúga á vængjum
ástarinnar – Svona eiga þau saman
N
ýlega voru fluttar fregn-
ir af því að leikkonan
Júlíana Sara Gunnars-
dóttir og þyrlu- og
hljóðmaðurinn Andri Jóhann-
esson hefðu fellt hugi saman.
DV fannst því tilvalið að rýna
í stjörnumerki parsins og
athuga hvernig það á saman.
Júlíana er krabbi en Andri
er hrútur. Þegar að þessi tvö
merki dragast að hvort öðru
þá sannast hið forkveðna –
að andstæður laðast að hvor
annarri. Hrúturinn er frakkur
og hvatvís en krabbinn er mjög
viðkvæmur og tilfinningarík-
ur. Þegar hrúturinn sýnir til-
finningar á hann til að gera það
á mjög ruddalegan hátt sem
kemur krabbanum úr jafn-
vægi. Hrúturinn laðast hins
vegar að viðkvæmni krabbans
og finnst það gott mótvægi við
eigin hispurslausu hreinskilni.
Það geta skapast vanda-
mál í sambandi krabba og
hrúts ef ofstopi hrútsins sær-
ir krabbann. Því verða bæði
þessi merki að hlusta á þarfir
hvort annars og skilja hve ólík
þau eru í raun og veru. Aðeins
þá ná þau klingjandi sam-
hljómi.
Þótt merkin séu ólík eiga
þau eitt sameiginlegt – þau
vernda þá sem þau elska, hvað
sem það kostar. Krabbinn not-
ar sína þykku skel til að vernda
ástvini sína og hrúturinn notar
styrk sinn og hugrekki. Krabb-
inn getur stundum virkað of
yfirgangssamur að mati hrúts-
ins en hrúturinn þarf að gæta
þess að fullvissa krabbann
reglulega um að hann sé elsk-
aður og það sé hlustað á til-
finningar hans. n
Andri og Júlíana.
Mynd: Skjáskot
Instagram @
jsgunnarsdottir
Brúðkaup eða flutningar í vændum
L
eikkonan Nanna Kristín
Magnúsdóttir framleiðir,
skrifar, leikstýrir og leikur
aðalhlutverkið í sjónvarps-
þáttunum Pabbahelgum sem
verða sýndir á RÚV í haust, en
fyrstu tveir þættirnir verða sýndir
á kvikmyndahátíðinni RIFF sem
hófst í gær. Nanna Kristín státar
af glæsilegum ferli á sviði leik-
listar og því fannst DV þjóðráð að
lesa í tarotspil hennar. Lesendur
geta einnig valið sér tarotspil á
vefsíðu DV.
Finnst eitthvað vanta
Fyrsta spilið sem kemur upp í
tarotlesningu Nönnu Kristínar er
8 bikarar. Það táknar það öryggi,
jafnvægi og frið sem hefur ein-
kennt umhverfi listakonunnar að
undanförnu, sem þýðir einnig að
hún hefur notið sín tilfinninga-
lega og líkamlega. Henni finnst
þó eitthvað vanta og leitar nú log-
andi ljósi að nýju verkefni sem
fyllir í það tómarúm. Næsta ver-
kefni Nönnu Kristínar verður af
allt öðrum toga en við höfum
séð áður frá henni og mun
hún einbeita sér að því
að vinna að verk-
efni þar sem nú-
tímanum, með
öllu hans böli,
verða gerð stórkost-
leg skil. Þetta verkefni
gleypir Nönnu Kristínu
á góðan máta og hún nær
ekki að snúa við úr nýrri og
spennandi vegferð.
Tímamót ástarinnar
Næst er það Bikarriddarinn sem
táknar persónuleika listakon-
unnar sem og einkalífið. Nanna
Kristín er viðkvæm en afar hug-
myndarík þegar kemur að ásta-
lífinu. Hún er uppátækjasöm og
ástríðufull, einnig áhrifagjörn og
dul. Hún nefnilega fer leynt með
það sem hún þráir og stefnir að,
heldur því fyrir sig. Nanna Kristín
er í sambandi með Gauta Sturlu-
syni og það virðast vera bjartir
tímar framundan í því sambandi,
jafnvel brúðkaup í vændum, eða
annars konar tímamót ástarinn-
ar. Nanna Kristín fær bráðum
tækifæri sem hún á erfitt með að
hafna, sem gæti þýtt flutninga á
milli landa.
Einstakur vinahittingur
Loks eru það 6 bikarar. Nanna
Kristín hittir gamlan vin á
næstunni sem mun gefa
henni mikla gleði og
ánægju. Þessi vinur
gerði listakonunni eitt sinn stór-
an greiða og ómeðvitað launar
hún honum greiðann þegar þau
hittast nú. Þessi vinahittingur
hefur ófyrirséðar afleiðingar í för
með sér þar sem Nanna Kristín
dregst í góðgerðarstarf þar sem
hún hrindir af stað hringrás
gleðinnar. Hún lærir að ef hún
gefur af sér til náungans þá eykst
sjálfsöryggi hennar sjálfrar. n
Júlíana Sara
Fædd 21. júlí 1990
krabbi
n hugmyndarík
n trygg
n fastheldin
n heillandi
n svartsýn
n óörugg
Andri
Fæddur: 22. mars 1981
hrútur
n hugrakkur
n ákveðinn
n öruggur
n hreinskilinn
n óþolinmóður
n hvatvís
Nanna Kristín Magnúsdóttir. Mynd:
Getty Images