Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Síða 51
FÓKUS 5127. september 2019
YFIRHEYRSLAN
Eva María
Mattadóttir
Eva María Mattadóttir starfar sem þjálfari hjá Dale
Carnegie ásamt því að halda úti hlaðvarpinu Normið. Hana
þyrstir að eigin sögn endalaust í fróðleik um mannlega
hegðun og leiðir til þess að komast í „hamingjuzone-ið“ og
hugarró. Eva María er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best?
Við sjó, það er einhver klikkuð orkuuppspretta. Náttúran er alger endurhleðsla og best er að vera þar með krökkunum að
leika og hlæja.
Hvað óttastu mest?
Að það kvikni í mér! Svo er eins og ég breytist í villisvín þegar geitungar eru nálægt.
Hvert er þitt mesta afrek?
Að vera edrú í bata og uppskera alvöru hugarró. Jú, og líka að hafa náð að ýta manneskjum út úr mér!
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Að vera extra í amerískum „sit-coms“. Fyndið að þykjast tala og hlæja en mega ekki gefa neitt
hljóð frá sér allan daginn!
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
„Hæ, ég heiti Eva og er alkóhólisti.“ Einu sinni þoldi ég ekki þegar fólk sagði „ég er
þakklátur alkóhólisti“ því ég var enn að berjast í hrokanum. En í dag þarf ég að
kyngja því að ég er einn hrikalega þakklátur alkóhólisti.
Hvernig væri bjórinn Eva María?
Óáfengur og sá allra ferskasti.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
If you don’t ask, you don’t get.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Að skrapa storknaðan mat af gólfinu undir barnastólunum.
Besta bíómynd allra tíma?
The Green Mile, nær mér í hvert einasta skipti!
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég myndi vilja vera klár fjárfestir. Er að hlusta mikið á svoleiðis hlað-
varpsþætti þessa dagana.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Sennilega að fara á svið í Hard Rock-kjallaranum með Norminu og
Siggu Dögg að tala um kynlíf.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Ég get þetta ekki.“
Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert
góð í að réttlæta að veita þér?
Sjávarsaltssúkkulaðiplötu frá Nóa Síríus, ég stúta henni á
innan við fimm mínútum.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Tveggja vikna frí á Sikiley, verkefnastýring hjá Dale Carnegie
og framþróun hjá Normið Podcast! Virkilega spennandi verkefni
framundan!
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
„Hæ, ég heiti Eva
og er alkóhólisti“