Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2019, Síða 52
52 FÓKUS 27. september 2019
Fylgjendur á Instagram: 16.200
B inni Glee skaust upp á stjörnuhimininn á Snapchat árið 2016. Það voru helst förðunarmyndböndin hans sem vöktu hvað mesta athygli, en hann er
mikill áhugamaður um tísku og förðun. Þá ræddi hann
einnig opið um kynhneigð sína þegar hann var nýkominn
út úr skápnum sem samkynhneigður.
„Mig langar bara svo að sýna það að strákar geta mál-
að sig. Og mega það ef þeir vilja. Það eiga allir að vera þeir
sjálfir. Það eru skilaboðin sem ég vil senda,“ sagði Binni í
viðtali við hun.is. Í þáttunum Snapparar, sem sýndir voru á
Stöð 2 árið 2017, sagðist Binni eiga ofboðslega marga aðdá-
endur.
„Ég er hættur að fara í Kringluna og Smáralind svona til að hanga þar … Af því ég
er svo hræddur um að það komi geðveikt mikið af fólki og ég muni ekki höndla það
en mér finnst samt alltaf gaman að hitta fylgjendur mína,“ sagði hann í þáttunum.
Uppruni áhrifavaldanna
Sitt sýnist hverjum um starfsheitið áhrifavaldur, en það er ekki
hægt að loka augunum fyrir því að sú atvinnugrein hefur vaxið
jafnt og þétt síðustu ár og velta vinsælir áhrifavaldar mörgum
milljónum á ári vegna auglýsingasamninga af ýmsu tagi. En hvað-
an kemur þetta fólk allt saman? Fókus kíkti á sögu nokkurra vin-
sælustu áhrifavalda landsins og skoðaði uppruna vinsælda þeirra.
Fylgjendur á Instagram: 37.000
L andsmenn fengu fyrst að kynnast Sólrúnu Diego og hennar þrifnaðaræði síðla árs 2014 þegar blogg-síðan Mamie.is var opnuð. Mamie.is var stofnuð
af nokkrum ungum mæðrum, en við stofnun var Sólrún í
fæðingarorlofi með yngra barn sitt, dótturina Maísól. Þegar
Mamie.is var opnuð stofnuðu mæðurnar samhliða því
Snapchat-reikning sem þær skiptust á að halda úti. Fimmtu-
dagar voru dagarnir hennar Sólrúnar og deildi hún þar ýmsum
töfraráðum er varða þrif. Svo fór að henni fannst ekki nóg að snappa bara einu sinni í viku
og opnaði sinn eigin Snapchat-reikning stuttu síðar. Þá fyrst reis frægðarsól hennar.
„Það var svo sjúklega mikið af fólki sem kom inn fyrstu nóttina að ég fékk næstum
hjartaáfall. Mér fannst svo skrýtið að fólk hefði svona mikinn áhuga á að fylgjast með því
sem ég var að gera. En ég ákvað að taka bara einn dag í einu og sjá hvert þetta myndi leiða
mig,“ sagði Sólrún í viðtali við Fréttatímann árið 2016. Hún sagði síðar skilið við Mamie.is
og stofnaði sína eigin bloggsíðu, sem er enn lifandi í dag. Í viðtali við Fréttatímann sagði
Sólrún að þessi vinna á samfélagsmiðlum hafi gert hana sterkari.
„Ég var líka mjög feimin. En það hefur styrkt mig mjög mikið að vera með bloggið og
snappið, eins og ég átti ótrúlega erfitt með þetta fyrst. Nú vita allir hvernig ég er og ég þarf
ekki að hafa áhyggjur af því sem hinir og þessir halda um mig. Ég er komin með ágætlega
breitt bak gagnvart gagnrýni og ef ég sé eitthvað um mig þá reyni ég bara að hlæja að því.“
Það var nánast lyginni líkast að fylgjast með vinsældum Sólrúnar á Snapchat á þess-
um tíma og varð hún hvað þekktust fyrir edikblönduna sína sem hún þreif nánast allt
með. Allt í einu seldist edik sem aldrei fyrr og tóku verslanir upp á því að selja sérstaka
brúsa með blöndunni. Árið 2017 kom síðan út bókin Heima eftir Sólrúnu þar sem hún
miðlaði öllum sínum bestu ráðum. Sólrún tilkynnti í byrjun þessa árs að hún væri hætt á
Snapchat, mörgum til undrunar, og einbeitir hún sér nú að blogginu sínu og Instagram.
Fylgjendur á Instagram:
19.000
B irgitta Líf Björnsdóttir fékk sviðsljósið nánast í vöggugjöf þar sem hún
er dóttir einna frægustu hjóna
Íslands; Bjössa og Dísu í World
Class. Hún rataði því oft á síð-
ur blaðanna áður en hún varð
áhrifavaldur, til dæmis árið 2009
þegar Séð og Heyrt sagði frá því
að Birgitta hefði fengið glæsilega
Audi TT-bifreið í sautján ára af-
mælisgjöf frá foreldrum sínum.
Birgitta Líf byrjaði á Instagram
árið 2012 en fylgjendum hennar
fór ekki að fjölga af alvöru fyrr en
hún byrjaði með Rúrik Gíslasyni,
landsliðsmanni í knattspyrnu. Þegar að
ástin slokknaði héldu fylgjendur tryggð
við Birgittu og hefur þeim fjölgað jafnt og
þétt síðan árið 2017.
Fjöldi fylgjenda: 23.000
E skfirðingurinn Guðrún Veiga Guðmundsdóttir stofnaði Blogspot-blogg árið 2012 sem
varð gríðarlega vinsælt ári síðar. Í kjölfar-
ið byrjaði hún með matreiðsluþættina
Nenni ekki að elda á isTV sem var og
hét. Þessir matreiðsluþættir voru harla
óhefðbundnir, enda Guðrún Veiga ekki
þekkt fyrir mikla snilldartakta í eldhús-
inu, en í þáttunum eldaði hún með ýms-
um stjörnum, til dæmis Geir Ólafs og
Ásgeiri Kolbeins. Þessir þættir á sjón-
varpsstöð sem fáir horfðu á ollu ansi
miklum usla árið 2014 þegar forláta viðtal
við Guðrúnu Veigu um þættina birtist í
Fréttablaðinu. Á þeim tíma voru Frétta-
blaðið og Vísir sama fyrirtækið, 365, og
því birtist viðtalið einnig á Vísi. Út-
gefanda Fréttablaðsins, Krist-
ínu Þorsteinsdóttur, misbauð
viðtalið svo mikið, þar sem
það fjallaði um manneskju
á samkeppnismiðli, að hún
lenti upp á kant við þáver-
andi ritstjóra blaðsins,
þá Mikael Torfason
og Ólaf Stephensen.
Viðtalið var tekið úr
birtingu á Vísi .Svo
fór að Mikael og Ólafur hættu sem rit-
stjórar Fréttablaðsins og Kristín tók við
skútunni. Þessi usli kom Guðrúnu Veigu
algjörlega í opna skjöldu, eins og hún
sagði frá í viðtali við mbl.is.
„Ég bara veit ekki alveg hvað ég get
sagt um þetta allt saman. Ég kom heim
um kvöldmat, opnaði tölvuna og sá að
Fésbókin mín logaði. Ég tel mig ekki eiga
nokkra aðild að þessu máli. Ég svaraði í
símann í síðustu viku, ræddi um lífið og
tilveruna við fréttamanninn og sjón-
varpsþáttinn minn,“ sagði Guð-
rún Veiga. Sama dag og viðtalið
örlagaríka var tekið árið 2014
skrifaði áhrifavaldurinn undir
bókasamning, en matreiðslu-
bókin Nenni ekki að elda kom
út í nóvember árið 2014. Síð-
an þá hefur Guðrún Veiga
átt góðu gengi að fagna á
Instagram.
Fylgjendur á Instagram: 13.100
Þ órunn Ívarsdóttir útskrifaðist sem fatahönnuður frá Fashion Institute of Design and Merchand-ising í Los Angeles árið 2012. Samhliða nám-
inu stofnaði Þórunn lífsstílsbloggsíðuna Double Pizz-
azz ásamt Önnu Völu, frænku sinni. „Á þeim tíma var ég
í skemmtilegum „internship“ hjá fyrirtæki sem hannar
skartgripalínur fyrir Kim Kardashian og Nicole Ritchie.
Íslenskum stelpum fannst gaman að fylgjast með og sagði
ég oft frá vinnuvikunni minni og verkefnum. Fljótlega fór
ég að fá fyrirspurnir um hitt og þetta,“ sagði Þórunn í við-
tali við Vísi árið 2014. Þegar dagar Double Pizzazz voru
taldir hélt Þórunn áfram á sinni eigin bloggsíðu sem er
enn virk í dag. Það var svo ástin sem dró Þórunni heim til
Íslands árið 2013 þegar hún féll fyrir sínum heittelskaða,
Harry Sampsted. Þau eiga saman dóttur sem kom í
heiminn í september í fyrra, eins og fylgjendur Þórunn-
ar á Instagram vita. Þórunn hefur ekki farið varhluta af
skuggahliðum þess að vera vinsæll áhrifavaldur og var
afar ósátt við umfjöllun Kastljóss árið 2016 um lífsstíls-
bloggara. Í þættinum bað hún lesendur og fylgjendur
um að halda í gagnrýna hugsun og ekki kaupa allt sem
hún mælir með. „Fullorðnir þroskaðir einstaklingar eiga
auðvelt með að sía út hver er vitleysingur og hver ekki,
en ungar stelpur eiga erfiðara með það oft á tíðum og ég
þarf að hugsa um það sem ég er að skrifa, ég vil ekki gefa
neinum rangar hugmyndir og þær taki eitthvað inn á sig
eða byrji að líða illa út af einhverju af því þær eiga ekki
eitthvað, aldrei,“ sagði hún.
Sólrún Diego Bókin Heima sem kom út árið 2017.
Þórunn Ívarsdóttir
Þórunn Ívars
státar af
ansi löngum
ferli sem
áhrifavaldur.
Mynd: Skjáskot
Instagram @
thorunnivars
Birgitta Líf Björnsdóttir
Brynjar Steinn (Binni Glee)
Binni Glee í
dag. Mynd:
Skjáskot
Instagram
@binniglee
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir
Guðrún
Veiga og
Geir Ólafs í
þáttunum
sem gerðu
allt vitlaust.
Rúrik og Birgitta.
Mynd: Skjáskot
Instagram @
birgittalif
Með fyrstu myndum
Birgittu á Instagram. Mynd:
Skjáskot Instagram @
birgittalif
Nýleg mynd
af Birgittu
í ræktinni.
Mynd: Skjáskot
Instagram @
birgittalif