Fréttablaðið - 22.10.2015, Page 50
Fólk| tíska
Madeline er átján ára gömul áströlsk fyrirsæta með Downs-heil-
kenni. Hún vakti fyrst athygli á síðasta ári þegar fallegar myndir
af henni fóru að birtast á Facebook en móðir hennar hefur alla tíð
lagt áherslu á að sýna heiminum jákvæðar hliðar þess að vera með
Downs.
Í kjölfarið hafa Madeline og móðir hennar Rosanne vart undan
að bóka verkefni um allan heim. Madeline kom fram á tískuvikunni
í New York í haust. Hún gekk fyrst á svið á sýningu suðurafríska
hönnuðarins Hendriks Vermeulen þar sem sýnd var vor- og sumar-
línan fyrir 2016. Hún fetaði þannig í fótspor Jamie Brewer, leikkonu
sem varð fyrr á þessu ári fyrsta manneskjan með Downs-heilkenni til
að sýna á tískuvikunni í New York.
Madeline heillaði alla með glæsileik og glaðlegri framkomu enda
gaf hún áhorfendum fimmu á leið sinni út af pallinum. Madeline
hefur nærri 80 þúsund Instagram-fylgjendur, yfir 3.300 áhangendur
á Twitter og tæplega fimm hundruð þúsund vini á Facebook.
Engir fordómar
madeline stuart er nýtt nafn í fyrirsætubransanum
Pantone gaf út tíu lita lista yfir liti vorsins fyrr í haust en
yfir þeim efstu á listanum er róandi pastelblær. Leatrice
Eiseman, framkvæmdastjóri Pantone, segir sálfræðilegar
skýringar liggja að baki valinu. „Tækniframfarirnar í heiminum
eru orðnar svo yfirþyrmandi að fólk hefur þörf fyrir að hægja á
ferðinni og róa nærumhverfið.“
Margir tískuhönnuðir
virðast taka mið af listanum
en 22 prósent þeirra notuðu
litinn í vor- og sumar-
línum sínum sem
kynntar voru fyrr í
haust. Peach Echo var
í öðru sæti á lista Pan-
tone og mátti greina hann
hjá tæplega fimmtungi
hönnuða.
Að sögn Eiseman hentar
liturinn bæði körlum og kon-
um og gefur húðinni fallegan
ljóma.
Litur
vorsins
Er róandi
BurBErry
rósakvars
PastELvor Litur vorsins að mati
sérfræðinga Pantone, sem er leiðandi
í litafræðum í heiminum, er rose quartz
eða rósakvars en hann dregur nafn sitt
af ljósbleikri steintegund. 22 prósent
tískuhönnuða notuðu litinn í vor- og
sumarlínum sínum.
rochas
gucci
ZimmErmann