Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 2

Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 2
Stakar sálir flykkjast samanVeður Útlit er fyrir hæglætisveður á landinu. Það má búast við skúrum austanlands og með suðurströndinni. Á Norður- og Vesturlandi verður hins vegar þurrt og bjart - sannkölluð haustblíða. Sjá Síðu 54 VITA Skógarhlíð 12 Sími 570 4444 Flogið með Icelandair Skíðaferðir til Austurríkis Vikuferðir til Saalbach Verð frá 145.900 kr.* og 12.500 Vildarpunktar Á mann m.v. 2 í herbergi með hálfu fæði á hótel Sport Aktiv 23. Janúar í 1 viku. *Verð án Vildarpunkta 155.900 kr. Hörður Björnsson hefur verið týndur í 17 daga, leit að honum hefur engan árangur borið. Samfélag „Við erum ekki hættir, við leitum enn eftir sterkum vís­ bendingum,“ segir Ágúst Svans­ son, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst hefur nú yfirumsjón með leitinni að Herði sem hefur enn engan árangur borið. „Það hafa engar haldgóðar vísbendingar borist,“ segir hann, en Harðar hefur verið leitað síðan 14. október. Ágúst segir vísbendingar hafa borist um ferðir hans en þær hafi leitt til manna líkra honum í útliti. Nú hafa björgunarsveitarmenn dregið sig í hlé þar til haldbetri vís­ bendingar berast. Ágúst segir það vitanlega erfitt aðstandendum. „Við bregðumst strax við ef sterk vísbending berst, það er búið að leita rosalega vel og margir hafa tekið þátt í leitinni. Hún hefur ein­ faldlega ekki borið árangur. Þetta er auð vitað erfitt aðstandendum að það sé ekki lengur víðtæk leit en við gerum allt sem við getum.“ Hann biðlar áfram til almenn­ ings að hafa augun hjá sér. Síðast sást til Harðar fyrir sautján dögum á Laugarásvegi í Reykjavík. Hörður er ekki talinn hættulegur. – kbg Horfinn í 17 daga Reykjavík Þríhliða samkomulag milli Reykjavíkurborgar, Samtaka ferðaþjón­ ustunnar og lögreglunnar á höfuðborg­ arsvæðinu um öruggari og ofbeldislausa skemmtistaði í miðborginni verður undirritað um miðjan nóvember. Í samkomulaginu eru meðal annars ákvæði um gæði dyravörslu og bætta lýsingu á skemmtistöðum. „Skemmtistaðirnir munu þurfa að uppfylla ákveðnar kröfur. Þeir geta svo fengið vottun um að staðurinn sé öruggur,“ segir Pétur Ólafsson, aðstoðarmaður borgarstjóra, og bætir við að aðalatriðið sé að fá alla þrjá hagsmunaaðilana sem standa að sam­ komulaginu til þess að koma sér upp verkaskiptingu og leggja sitt af mörk­ um til þess að útkoman verði öruggari skemmtistaðir. – ngy Samkomulag um öruggari skemmtistaði lögReglumál „Við höfum haft miklar áhyggjur í mánuð. Það er hrikalegt að fá engin svör og hafa ekki hugmynd um hvar sonur manns er niðurkominn, sérstaklega því hann er greindarskertur og með andlega fötlun,“ segir Gea Uyle­ man, móðir 27 ára hollensks manns sem er í gæsluvarðhaldi á Litla­Hrauni, vegna gruns um að hafa smyglað um 23 kílóum af sterkum fíkniefnum til lands­ ins síðastliðinn september. Þrír aðrir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins, tveir Íslendingar og einn Hol­ lendingur. „Ég heyrði síðast í honum þann 28. september þegar hann hringdi í mig og sagði að hann væri lentur í Reykja­ vík. Eftir það náðist ekki í hann meir,“ segir Gea og bætir við að þegar sonur hennar hafi ekki komið til Hollands þann 4. október eins og áætlað var hafi áhyggjurnar byrjað af alvöru. Í kjölfarið tilkynnti fjölskyldan lögreglu um að hans væri saknað, viðbrögðin voru lítil en fjölskyldan hélt áfram árangurslaust að leita upp­ lýsinga um ferðir hans. „Frændi hans sá svo frétt af íslenskum fréttamiðli um að fjórir væru í gæsluvarðhaldi á Íslandi. Þá fór okkur að gruna að hann væri einn þeirra. Áfram fengum við þó engin svör,“ segir Gea en fjölskyldan hafði samband við lögregluyfirvöld á Íslandi, sendiráð Íslands í Brussel, sendiráð Hollands í Ósló og utanríkis­ ráðuneyti Hollands án nokkurra svara. „Einu upplýsingarnar sem við fengum voru að hann hefði ekki notað miðann sem hann átti heim til Hollands.“ Um miðjan septembermánuð náði fjölskyldan tali af íslenskum lögreglu­ þjóni sem sagði að maðurinn væri í gæsluvarðhaldi. „Þetta var allt mjög óljóst og lögreglumaðurinn sagði að hann mætti ekki segja okkur neitt og að þetta væri leyndarmál.“ Gea segir að óvissan hafi reynst sér­ staklega erfið í ljósi andlegra veikinda sonar sínar. „Ég var svo hrædd um að hann skildi ekki réttarstöðu sína og að enginn útskýrði fyrir honum að hann mætti hafa samband við fjölskyldu sína.“ Í vikunni komst Gea loks í samband við verjanda sonar síns á Íslandi sem kom af fjöllum við þær fréttir að hún hefði ekki verið látin vita. Hún komst í samband við hann með eigin leiðum og enn hafa yfirvöld á Íslandi og í Hol­ landi ekki veitt fjölskyldu mannsins neinar upplýsingar um stöðu mála. „Hann vildi að móðir hans yrði látin vita og strax eftir handtöku var óskað eftir því. Ég beindi því til lögreglu, það er alveg klárt,“ segir Ómar Örn Bjarn­ þórsson, verjandi mannsins, og bætir við að það sé skýlaus réttur handtekins manns að fjölskyldu hans sé tilkynnt um hvar hann sé niðurkominn. Ómar segist ekki geta tjáð sig um heilsufar skjólstæðings síns að svo stöddu. „Það á þó auðvitað að taka tillit til heilsu­ fars fólks þegar það er úrskurðað í einangrun.“ „Fjölskyldan reyndi að hafa sam­ band en samkvæmt reglum megum við ekki gefa vandamönnum upplýsingar nema lögreglan heimili það. Við verð­ um að fara varlega í þessum málum. Þetta eru reglurnar og þær eru til þess að það sé ekki verið að gefa misvísandi upplýsingar,“ segir Bjarni Finnsson, ræðismaður Hollands á Íslandi. Ekki náðist í lögregluna við vinnslu fréttarinnar.  nadine@frettabladid.is Greindarskertur í haldi án vitneskju fjölskyldu Þroskahamlaður hollenskur maður er í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni vegna gruns um fíkniefnasmygl. Fjölskylda mannsins fékk ekki upplýsingar um hvar hann var í heilan mánuð. Verjandi óskaði eftir að móðirin yrði látin vita strax við handtöku. Lýst var eftir manninum á vefnum Reddit fyrir þremur vikum. Þar sagði að hann hefði verið týndur í marga daga. Stefnumótastaður á Laugavegi Ungt fólk virðir fyrir sér hraðstefnumótastað við Laugaveg þar sem stökum hönskum er stillt upp á hliði. Fólk sem er stakt og leitar að félaga, líkt og hanskarnir, er hvatt til að koma að hliðinu og gá hvort það kynnist sálufélaganum. fRéttaBLaðið/anton BRink Ég var svo hrædd um að hann skildi ekki réttarstöðu sína og að enginn útskýrði fyrir honum að hann mætti hafa samband við fjölskyldu sína. Gea Uyleman, móðir mannsins 3 1 . o k t ó b e R 2 0 1 5 l a u g a R D a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.