Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2015, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 31.10.2015, Qupperneq 60
| AtvinnA | 31. október 2015 LAUGARDAGUR14 Starfsmaður óskast í almennt skrifstofustarf. Meðal verkefna eru: Tollskjalagerð, skráning gagna, símsvörun, samskipti við viðskiptavini og önnur tilfallandi störf. Umsækjandi þarf að hafa stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í tollskjala- gerð og hafi gott vald á Navision ásamt góðu valdi á enskri tungu, rituðu sem mæltu. Mikilvægt er að viðkomandi sé jákvæður og með góða þjónustu- lund. Aldurstakmark er 22 ár. Vinsamlega sendið inn umsókn í gegnum heimasíðu okkar express.is fyrir 9. nóv. 2015. UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim. Vilt þú vinna á einum skemmtilegasta vinnustað á Suðurnesjum? ERT IpÚ STARFSKRAFTUR? Fyrir nánari upplýsingar og til að skila inn umsóknum hafið samband við birkir@10-11.is Óskum eftir hressu og harðduglegu fólki, bæði í 100% vinnu og hlutastarf. Starfssvið: · Afgreiðsla · Aðstoð í eldhúsi · Önnur tilfallandi störf á veitingastaðnum Menntunar- og hæfniskröfur: · 18 ára eða eldri · Hæfni í mannlegum samskiptum · Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega · Reynsla af verslunarstörfum kostur en ekki skilyrði VIĐ VESTURLANDSVEG Störf á heimilum fatlaðs fólks Stuðningsfulltrúar óskast til starfa á heimilum félagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. Um er að ræða full störf og hlutastörf í vaktavinnu. Hlutverk starfsfólks í búsetu er fyrst og fremst fólgið í því að aðstoða íbúa í daglegu lífi og efla sjálfstæði þeirra. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og eru störfin laus nú þegar. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags við SFR. Einnig vantar starfsmenn í vaktavinnu til að aðstoða fatlað fólk sem býr í eigin húsnæði. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Frekari upplýs- ingar veitir Hrafnhildur Þórðardóttir í síma 859-5912. Atvinnuumsókn sendist á hrafnhildur@styrktarfelag.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Eflingar. Nánari upplýsingar um laus störf og atvinnuumsókn má finna á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is. Einnig getur Þórhildur Garðarsdóttir veitt upplýsingar í síma 414 0500.Starfatorg.is Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna Starf Stofnun Staður Nr. á vef Lektor í fæðinga- og kvensjúkd.l Heilbrigðisvísindasvið HÍ Reykjavík 201510/1118 Hjúkrunarfræðingar Skurðlækningadeild LSH Reykjavík 201510/1117 Starfsmenn í ræstingu Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri 201510/1116 Stjórnun í túlkaþjónustu Samskiptamiðstöð heyrnarlausra Reykjavík 201510/1115 Lektor í lífefnafræði Raunvísindadeild HÍ Reykjavík 201510/1114 Sviðsstjóri miðlunarsviðs Listasafns Íslands Reykjavík 201510/1113 Vinna með flóttafólki Velferðarráðuneytið Reykjavík 201510/1112 Verkefnisstjóri í reikningshaldi Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ Reykjavík 201510/1111 Lektor í sagnfræði Sagnfræði- og heimspekideild HÍ Reykjavík 201510/1110 Verkefnisstjóri Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands Reykjavík 201510/1109 Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Miðbær Reykjavík 201510/1108 Framhaldsskólakennari Menntaskólann á Ísafirði Ísafjörður 201510/1107 Lektor við iðjuþjálfunarfræðideild Heilbrigðisvísindasvið HA Akureyri 201510/1106 Læknastöður við HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstaðir 201510/1105 Yfirlæknir hjartarannsókna LSH Röntgendeild Reykjavík 201510/1104 Sjúkraliði Skurðlækningadeild SAk Akureyri 201510/1103 Sjúkraliði LSH Dag- og göngud. augnlækninga Reykjavík 201510/1102 Lögfræðingar Úrsk.nefnd í umhv.-og auðl.málum Reykjavík 201510/1101 Sérkennsluráðgjafi Þjónustu- og þekkingarmiðstöð Reykjavík 201510/1100 Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduós 201510/1099 Deildarlæknar kvennasviðs LSH Aðstoðarlæknar kvennadeilda Reykjavík 201510/1098 Vélamaður Vegagerðin Þórshöfn 201510/1097 Hjúkrunarfræðingur Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestm.eyjar 201510/1096 Reiðkennari og yfirumsjónar- Landbúnaðarháskóli Íslands Hvanneyri 201510/1095 maður hestamiðstöðvar Leitum að öflugum einstakling til að gegna starfi þjónustustjóra fyrirtækisins. Spennandi starf í skemmtilegu umhverfi með nýjum og öflugum fyrsta flokks tækjabúnaði til stafrænnar prentunar. ARTPRO Prentþjónusta er prentþjónustufyrirtæki sem þjónustar fyrirtæki og stofnanir. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 4 manns, auk fleiri við tímabundin verkefni. ARTPRO Prentþjónusta I Háholti 14 I Mosfellsbæ I www.artpro.is PRENTÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTUSTJÓRI STARFSLÝSING: • Yfirumsjón með samskiptum og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins. • Dagleg verkstjórn og verkskipulag. • Tilboðsgerð og sala. • Móttaka og vinnsla verkefna. • Hönnun, umbrot og prentvinnsla. • Stafræn prentun, frágangur og eftirvinnsla, sem og önnur störf tengd þjónustu okkar og framleiðslu. HÆFNISKRÖFUR: • Metnaðarfullur einstaklingur, 30 ára eða eldri. • Lipur þjónustulund og góðir eiginleikar í mannlegum samskiptum. • Starfsreynsla úr prentiðnaði er skilyrði. • Reynsla af stafrænni prentun er kostur. • Góð kunnátta og reynsla af hönnun og vinnslu prentskjala. • Góð tölvukunnátta og notkun InDesign, Photoshop, Illustrator og annarra Adobe forrita er algjört skilyrði. • Reynsla í notkun sölukerfis og góð tilfinning fyrir verðútreikningum. Umsóknir sendist með tölvupósti á netfangið gudni@artpro.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ekki eru veittar upplýsingar í síma. Sérnámsstaða í heimilislækningum við Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands er að fara af stað skipulagt sérnám í heimilislækningum sem byggir á marklýsingu Félags íslenskra heimilis- lækna um sérnám í heimilislækningum. Sérnámslæknir hefur sinn aðalleiðbeinanda sem fylgir honum eftir allt námið sem alls tekur 4 1/2 ár. Námið fer fram á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi, Sjúkrahúsinu á Akranesi og öðrum sjúkrahúsum samkvæmt reglugerð um sérnám í heimilislækningum. Námið er í samvinnu við kennslustjóra sérnáms í heimilislækningum sem starfar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi fer fram fjölbreytt starfsemi en auk almennrar heilsugæsluþjónustu eins og móttöku, ungbarnaverndar, skólaheilsugæslu og mæðraverndar er þar teymisvinna í kring um vaktþjónustu að deginum, sykursýkismóttöku og lífstílsmóttöku. Upptökusvæði stöðvarinnar er víðfeðmt og nær yfir 5500 ferkílómetra svæði, þar eru u.þ.b 4000 íbúar auk tveggja háskóla með nemenda- görðum og ríflega 2000 sumarbústaða. Hæfnikröfur Almennt lækningaleyfi. Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði. Stéttarfélag er Læknafélag Íslands. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100% Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísindaog rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2015. Upplýsingar gefa: Þórir Bergmundsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 432 1000, netfang thorir.bergmundsson@hve.is og Linda Kristjánsdóttir, sviðstjóri lækninga í heilsugæslu HVE, netfang linda.kristjansdottir@hve.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.