Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 83

Fréttablaðið - 31.10.2015, Page 83
Elskulegur faðir okkar, Páll H. Dungal garðyrkjufræðingur, lést þann 22. október síðastliðinn á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Nanna S. Dungal Pálmi Dungal Halldór Dungal Bróðir minn og frændi okkar, Guðmundur Þorkelsson bókbindari, Barmahlíð 51, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2 að morgni fimmtudagsins 29. október. Útförin verður auglýst síðar. Helgi Gunnar Þorkelsson Kolbrún Guðmundsdóttir Gunnar Þorsteinsson Ingveldur Þorkelsdóttir Sigríður Helga Þorsteinsdóttir Jón Ingi Guðmundsson Hjartkær sonur minn, faðir og afi, Ásgeir Ragnar Bragason varð bráðkvaddur í Kaupmannahöfn 1. október 2015. Jarðarför hefur þegar farið fram. Bragi Magnússon Bjarni Már Ásgeirsson Frans Guðni Ásgeirsson Jax Osho Ásgeirsson Dunia Randy Ásgeirsdóttir Kenda Leila Ásgeirsdóttir og barnabörn. Ástkær sonur okkar, faðir okkar, bróðir okkar og vinur okkar, Ágúst Finnsson rafmagnstæknifræðingur, lést 20. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð barna hans, reikn.nr. 0313-13-050733, kt. 0705683579. Finnur Guðmundsson Margrét Sveinbjörnsdóttir Sveinbjörn Finnsson Kolbrún Finnsdóttir Logi Ágústsson Andrea Ágústsdóttir Guðjón Ingason Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og tengdafaðir, Hreinn Edilonsson til heimilis að Hólabergi 84, áður Brávallagötu 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 20. október síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildar fyrir alúðlega umönnun og til ættingja og vina fyrir auðsýnda hlýju og samúð. Stefanía Jenný Valgarðsdóttir Edilon Hreinsson Ragnhildur Ísaksdóttir Heiða Jenný Hreinsdóttir Jóhanna Vídalín Hreinn Vídalín og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Friðþjófur Max Karlsson Suðurlandsbraut 58, sem lést 26. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á FAAS (Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga). Minningarreikningur FAAS er: 0515-26-24303. Kennitala FAAS: 580690-2389. Ásdís Jónasdóttir Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir Jónas Gauti Friðþjófsson Ragnhildur Georgsdóttir Kristin Helene Kjartansdóttir Bergtun Kjetil Andreas Kjartansson Bergtun Birta Marlen Lamm Maximilian Klimko Mamma okkar, tengdamamma og amma, Aðalheiður Bóasdóttir Skúlagötu 40, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Hringinn. Anna Jakobína Hilmarsdóttir Guðjón Þór Guðjónsson Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir Gunnfríður Ingimundard. Hjörleifur Heimir Hilmarsson Diðrik Hilmar og Trygve Heimir Davíð Örn Guðjónsson Marija Guðjónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Kristjánsson kennari, Blásölum 22, Kópavogi, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þann 21. október sl., verður jarðsunginn miðvikudaginn 4. nóvember kl. 13 frá Digraneskirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð Krabbameinsfélagsins. Aðalheiður Edilonsdóttir Kristján G. Sveinsson Sigríður Hjörleifsdóttir Edda Lilja Sveinsdóttir Páll Árnason Ingibjörg A. Sveinsdóttir Þröstur Magnússon Stefán Jökull Sveinsson Sjöfn Sigurgísladóttir Kolbrún Sveinsdóttir afabörn og langafabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Örn H. Steingrímsson vélstjóri, Rjúpnasölum 12, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. október síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15. Örn Hans Arnarson Gústaf Arnarson Johanna Friberg Arnarson Arnar Hans og Eydís Alice Christina. „Þær eru búnar að vinna þvílík afrek, þessar stúlkur,“ segir Jón Stefánsson organ isti stoltur um dömukórinn Gradu­ ale Nobili sem fagnar 15 ára afmæli sínu á morgun, 1. nóvember, klukkan 17 með sérstökum tónleikum í Langholtskirkju. Þar munu fyrrverandi kórfélagar slást í hópinn með núverandi og rifja upp gamla takta. „Þær taka eiginlega uppá­ haldslögin frá upphafi og þegar þær fá að velja sjálfar verða lögin oft í erfiðari kantinum,“ segir Jón kátur. „Við erum með fullt af músík sem stúlkurnar hafa notað í keppnum og verk sem hafa verið samin fyrir þær af íslenskum tónskáld­ um.“ Jón rifjar upp að kórinn hafi marg­ oft staðið á verðlaunapalli í alþjóðlegum keppnum og einnig hafi breska tímaritið BBC Music Magazine valið diskinn Cere­ mony of Carols / Dancing Day einn af níu áhugaverðustu jóladiskum heims, útgefnum árið 2012. Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn á Langholtskirkju. Þeir kosta 2.500 og 1.500 krónur fyrir með­ limi listafélags kirkjunnar, eldri borgara og námsmenn. gun@frettabladid.is Uppáhaldstónlistin verður á efnisskránni Dömukórinn Graduale Nobili heldur upp á 15 ára afmæli sitt með sérstökum tónleikum í Langholtskirkju á morgun, sunnudag. Jón Stefánsson stjórnar. Graduale Nobili fagnar sigursælum fimmtán ára ferli með tónleikum á morgun. MyNd/Úr eiNkasafNi Útgáfa dagblaðsins Þjóðviljans hófst þennan dag árið 1963. Áður hafði komið út tímarit með sama nafni á árunum 1887 til 1915 í ritstjórn Skúla Thoroddsen. Ritstjóri hins nýja dagblaðs í upphafi var Einar Olgeirsson. Þjóðviljinn studdi Kommúnistaflokkinn og á fyrstu forsíðu hans var ávarp frá miðstjórn Þjóðviljans til lesenda. Þar var einnig fjallað um straum- hvörf í spænsku borgarastyrjöldinni, stjórnarherinn  sagður sækja fram á öllum vígstöðvum, enda réði hann yfir voldugum hernaðartækjum. Síðar studdi Þjóðviljinn Sósíalistaflokkinn og Alþýðubandalagið. Hann var lengst af dagblað en hætti að koma út í janúar 1992. Þ etta G e r ð i St : 3 1 . o któ B e r 1 9 6 3 Dagblaðinu Þjóðviljanum hleypt af stokkunum t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 47L a U G a R D a G U R 3 1 . o k t ó B e R 2 0 1 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.