Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 07.09.2019, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar stærstu stjórnarand- stöðuflokkanna í Bretlandi sam- þykktu í gær að styðja ekki tillögu Boris Johnsons forsætisráðherra um að efnt yrði til kosninga fyrir leið- togafund ESB-ríkja 17.-18 október. Þeir vilja að kosningarnar verði haldnar síðar til að þeir geti tryggt að Bretland gangi ekki úr Evrópu- sambandinu án samnings 31. októ- ber. Ef marka má nýja skoðana- könnun er líklegt að Íhaldsflokkur- inn fengi meirihluta í neðri deild breska þingsins ef kosið væri nú en enginn flokkur kæmist nálægt því að fá meirihluta ef kosningar færu fram eftir 31. október án þess að landið hefði gengið úr ESB. Tímasetning kosninganna gæti því ráðið úrslitum, samkvæmt könnuninni. Leiðtogar Verkamannaflokksins, Frjálslyndra demókrata, Skoska þjóðarflokksins og Plaid Cymru, flokks sjálfstæðissinna í Wales, sam- þykktu í gærmorgun að greiða at- kvæði gegn tillögu forsætisráð- herrans um að kosningunum yrði flýtt. Johnson vill að kosið verði 15. október, tveimur dögum áður en leiðtogafundur ESB-ríkjanna hefst. Hann lagði tillöguna fyrst fram á miðvikudaginn var eftir að neðri deild þingsins samþykkti frumvarp um að forsætisráðherranum bæri að óska eftir því að útgöngu landsins úr ESB yrði frestað um þrjá mánuði næðist ekki nýtt samkomulag um hana. Tveir þriðju allra þingmanna deildarinnar, eða 434, þurfa að sam- þykkja tillöguna um að flýta kosn- ingunum en hún fékk aðeins 298 at- kvæði. Leiðtogar stjórnarand- stöðunnar höfðu sagt að flokkar þeirra myndu ekki styðja tillöguna fyrr en frumvarpið um frestun brexit yrði að lögum. Neyddur til afsagnar? Johnson ákvað þá að leggja tillög- una fram aftur á mánudaginn kemur, þegar nýja brexit-frumvarp- ið er orðið að lögum. Lávarðadeild þingsins samþykkti frumvarpið í gær og Bretadrottning undirritaði það. Breska blaðið The Guardian segir að ástæða þess að Verka- mannaflokkurinn vilji ekki kosning- ar fyrir leiðtogafund ESB sé sú að þingmenn flokksins hafi áhyggjur af því að Johnson knýi fram útgöngu án samnings, þrátt fyrir nýja brexit- frumvarpið. Afdráttarlaus yfirlýsing forsætisráðherrans í fyrradag hafi kynt undir þessum áhyggjum þing- manna Verkamannaflokksins. John- son sagði þá í ræðu að hann vildi „frekar liggja dauður í skurði“ en að biðja leiðtoga ESB um að fresta brexit í þriðja sinn. Fréttaveitan AFP hefur eftir stjórnmálaskýrendum að leiðtogar stjórnarandstöðunnar vilji tryggja að kosningarnar fari fram eftir að forsætisráðherrann neyðist til að ganga á bak orða sinna og óska eftir því við leiðtoga ESB að brexit verði frestað. Vilji Johnson ekki gera það eigi hann einskis annars úrkosti en að segja af sér. Johnson sagði í gær að leiðtogar stjórnarandstöðunnar væru að gera „stórfurðuleg mistök“. „Aldrei í sög- unni hefur verið stjórnarandstöðu- flokkur sem hefur fengið tækifæri til að fá kosningar og hafnað því.“ Myndi missa forskotið Nýlegar skoðanakannananir benda til þess að fylgi Íhaldsflokks- ins hafi aukist verulega á kostnað Brexit-flokksins frá því að Johnson varð forsætisráðherra í júlí og hann sé nú með sjö til tíu prósentustiga forskot á Verkamannaflokkinn. Í nýrri könnun rannsóknafyrir- tækisins ICM voru þátttakendurnir spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosningar færu fram á morgun. Um 37% þeirra sögðust myndu kjósa Íhaldsflokkinn og 30% Verkamannaflokkinn. Þótt munur- inn sé ekki mikill er talið að Íhalds- flokkurinn fengi meirihluta í neðri deildinni, eða 354 sæti af 650, og að Verkamannaflokkurinnn missti 20 sæti ef þetta yrði niðurstaða kosn- inga, að sögn stjórnmálaskýranda The Telegraph. Í sömu könnun voru þátttakend- urnir spurðir að því hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosningar yrðu haldnar eftir 31. október án þess að Bretland hefði gengið úr Evrópu- sambandinu. Niðurstaðan var þá sú að Íhaldsflokkurinn og Verka- mannaflokkurinn fengju jafnmikið fylgi, 28%, og stuðningurinn við Brexit-flokkinn ykist í 18%. Stjórn- málaskýrandi The Telegraph segir að verði þetta niðurstaðan geti Verkamannaflokkurinn fengið fleiri þingsæti en Íhaldsflokkurinn án þess að fá meirihluta í neðri deild- inni. Þótt ekki sé hægt að fullyrða nokkuð um úrslitin út frá einni könn- un bendi hún til þess að tímasetning kosninganna geti skipt sköpum. Gangi Bretar til kosninga án þess að Johnson hafi tekist að tryggja út- göngu úr ESB sé líklegt að Brexit- flokkurinn auki fylgi sitt á kostnað Íhaldsflokksins. Hefur misst 29 sæti Önnur könnun, sem YouGov gerði á mánudaginn og þriðjudaginn var, bendir til þess að flokkur Johnsons sé með tíu prósentustiga forskot. 35% aðspurðra sögðust myndu kjósa Íhaldsflokkinn ef kosið væri nú, en 25% Verkamannaflokkinn. Frjáls- lyndir demókratar mældust með 16% fylgi og Brexit-flokkurinn 11%. Hafa þarf þó í huga að Íhaldsflokk- urinn var með 10 prósentustiga for- skot þegar Theresa May boðaði til kosninga í apríl 2017 en niðurstaðan varð sú að flokkurinn missti meiri- hluta sinn í neðri deildinni, fékk 317 sæti og missti þrettán. Úrsagnir og brottvikningar úr Íhaldsflokknum vegna brexit-deil- unnar hafa orðið til þess að þing- mönnum hans hefur fækkað í 288. Tímasetningin gæti ráðið úrslitum  Könnun bendir til þess að enginn flokkur fengi þingmeirihluta færu kosningar fram í Bretlandi eftir 31. október án útgöngu úr ESB  Líkur á að Íhaldsflokkurinn fengi meirihluta ef kosið væri nú Greiða ekki atkvæði 3 71 þingmenn Sinn Fein Forseti deildarinnar Varaforsetar Neðri deild þingsins Heimild: parliament.uk Græni fl. ÍhaldsflokkurinnFrjálslyndir demókr.Verkamannafl. Skoski þjóðar- flokkurinn Plaid Cymru í Wales DUP, flokkur sam- bandssinna á N-Írlandi ÓháðirChange UK 35 245 4 2885 101 639 þingmenn geta greitt atkvæði 3516 +/- breyting frá 1. sept.+21 -22 +1 AFP Bolað frá? Boris Johnson (t.h.) reynir að teyma naut í búi nálægt Aberdeen í Skotlandi þar sem breski forsætisráðherrann var í heimsókn í gær. Frumvarpið samþykkt » Lávarðadeild þingsins í Bretlandi samþykkti í gær frumvarp til laga um að skylda forsætisráðherrann til að óska eftir því að útgöngu landsins yrði frestað næðist ekki sam- komulag um hana fyrir 19. október. » Boris Johnson kvaðst í gær vera mjög vongóður um að nýtt samkomulag næðist um brexit á leiðtogafundi ESB. Robert Mugabe, sem var álitinn frelsishetja þegar hann komst til valda í Simbabve en harðstjóri þegar herinn steypti honum af stóli 37 ár- um síðar, lést í gær, 95 ára að aldri. Mugabe var í fangelsi í tíu ár vegna baráttu sinnar gegn stjórn hvíta minnihlutans í landi sínu og lát- inn laus árið 1974. Hann tók þátt í stríðinu gegn stjórninni og þegar því lauk árið 1979 litu margir Afríku- menn á hann sem frelsishetju. Flokkur hans sigraði í þingkosning- um árið 1980 og Mugabe komst til valda. Hann hét því að stuðla að sátt- um milli blökkumanna og hvíta minnihlutans annars vegar og milli flokka blökkumanna hins vegar. Hann kom á umbótum í menntamál- um og heilbrigðiskerfinu í fyrstu en varð seinna þekktari fyrir að valda efnahagshruni í landi sínu og brjóta andstöðu við sig á bak aftur með harðri hendi. T.a.m. er talið að her- sveitir Mugabes hafi orðið 10.000 til 20.000 manns að bana á árunum 1982 til 1985. Mugabe og bandamenn hans beittu öllum brögðum til að halda völdunum; ógnunum, ofbeldi, atkvæðakaupum og kosningasvik- um. Svo fór þó að gamlir bandamenn hans í hernum steyptu honum af stóli í nóvember 2017. „Blendnar tilfinningar“ Mugabe lést í Singapúr þar sem hann hafði dvalið á sjúkrahúsi. Emmerson Mngangagwa, eftirmað- ur hans í embætti Simbabveforseta, lýsti því yfir að Mugabe væri „þjóð- hetja“ eftir að skýrt var frá andláti hans. Cyril Ramaphosa, forseti Suð- ur-Afríku, minntist hans sem frelsis- hetju og „baráttumanns fyrir mál- stað Afríku gegn nýlendustefnu“. Stjórnvöld í Kína sögðu að Mugabe hefði verið „einstakur leiðtogi þjóð- frelsishreyfingar“ og Vladimír Pútín Rússlandsforseti fór lofsamlegum orðum um „mikið persónulegt fram- lag hans“ til sjálfstæðis Simbabve. Bresk stjórnvöld sögðu hins vegar að hans yrði minnst með „blendnum tilfinningum“. „Simbabvebúar hafa þjáðst of lengi vegna einræðisstefnu hans,“ sagði í yfirlýsingu frá breska utanríkisráðuneytinu. bogi@mbl.is Kveðja Mugabe sem „þjóðhetju“  Frelsishetja sem varð að harðstjóra Robert Mugabe

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.