Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019 ✝ Tryggvi Brandr Jóhannsson fæddist á Húsavík 10. apríl 1949. Hann lést á HSN á Húsavík 28. ágúst 2019. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Sigurbjörg Tryggvadóttir, f. 17. október 1923, d. 29. apríl 2010, og Jóhann Hermannsson, f. 6. októ- ber 1921, d. 16. október 2005. Systkini Tryggva eru Hermann, f. 1954, d. 19. ágúst 2017, Óskar, f. 1962, og Hjördís, f. 1956 (sam- feðra). Hinn 15. september 1973 kvæntist Tryggvi Guðlaugu Sig- marsdóttur hjúkrunarfr., f. 14. júlí 1948. Börn Tryggva og Gull- ýjar eru: 1) Sigmar, f. 18. sept- ember 1968. Maki Þorbjörg Björnsd. Börn Sigmars: Sölvi Fannar, Ágúst Örn, Birta Guð- laug og Dagur. 2) Guðrún, f. 28. skóla Húsavíkur. Á sumrin vann hann við mælingar hjá Húsavík- urkaupstað. Tryggvi var kjör- inn í bæjarstjórn árið 1994 fyrir G-listann. Aftur 1998 fyrir H- lista og sat allt til ársins 2007. Á þeim tíma gegndi hann embætti forseta bæjarstjórnar í átta ár, sinnti formennsku og sat sem aðalmaður í fjölda nefnda og tók að sér ýmis embættis- og trún- aðarstörf fyrir sveitarfélagið. Árið 2007 tók hann við starfi framkvæmda- og þjónustufull- trúa hjá Norðurþingi sem hann sinnti allt til ársins 2018 er hann fór á eftirlaun. Árið 1987 tók Tryggvi þá ákvörðun að skilja við Bakkus og varð virkur í AA- samtökunum. Tryggvi sótti mik- ið í að prófa eitthvað nýtt. Hann lærði esperanto af kassettum í bílnum sínum, tók kaþólska trú árið 2004, fékk sér mótorhjól og lærði á það 2007 og eitt það síð- asta sem hann náði glottandi í gegn var að koma skemmtilegri nafnabreytingu í gegnum mannanafnanefnd. Helstu von- brigðin voru hve auðfús nefndin var á breytinguna. Útför Tryggva Brands fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 7. sept- ember 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. febrúar 1974. Maki Jón Ragnars. Barn: Tryggvi Karl, f. 26. maí 2014, d. 26. maí 2014. 3) Ágústa, f. 4. ágúst 1978. Maki Jóhann Kristinn Gunnarsson. Börn: Bergdís Björk, Tryggvi Grani, Gunnar Friðrik og Baldvin Ási. Tryggvi ólst upp á Húsavík. Útskrifaðist sem stúdent frá MA 1969 og vann á ýmsum stöðum á sumrin, m.a. í Sandgerði á Barðanum, við vegagerð á Kísilveginum, í byggingarvinnu hjá Varða, við beitningu, í síldarverksmiðju á Raufarhöfn. Reyndi fyrir sér í lögfræði við HÍ haustið 1970 en leiðin lá svo til Árósa í Dan- mörku þar sem hann lagði stund á arkitektanám árin 1972-1976. Tryggvi kenndi grunnteikningu við Iðnskóla Húsavíkur og stærðfræði o.fl. við gagnfræða- Elsku pabbi. Síðustu dagar hafa verið óraunverulegir, ég bíð eftir því að þú hringir og spyrjir hvernig allir hafi það. Ég er að reyna að hugsa um allt sem ég er þakklát fyrir. Ég er þakklát fyrir að vera dóttir þín og það góða samband sem við áttum. Við gátum talað um allt og ekkert og þú varst minn helsti ráðgjafi. Ég er búin hugsa mikið um það af hverju þín skoðun varð oft mín skoðun, ég held með Tottenham eins og þú, er Samfylkingarmanneskja eins og þú og svo mætti lengi telja. Ég er búin að komast að þeirri niðurstöðu að það er af því að ég treysti því að þú værir bú- inn að kynna þér málið vel og ég treysti þinni dómgreind. Ég er þakklát fyrir facebook, þú varst einstakur þar, allir statusarnir og myndirnar sem þú settir þar inn munu gera mikið fyrir okkur í framtíðinni. Þú varst einstakur pabbi og afi, og það sem ég er þakklát fyrir stundina sem við áttum öll saman, ég, Jói, þú og mamma við fæðingu Gunnars Friðriks. Þú hafðir aldrei verið viðstaddur fæðingu og varst mjög ánægður með að fá vera það. Þetta er lýs- andi fyrir okkar samband, við vorum svo náin. Ég er þakklát fyrir að ná að segja þér hversu stolt ég er af því að vera dóttir ykkar mömmu og að hafa það í veganesti í lífinu er ómetanlegt. Þegar ég kynni mig fyrir fólki og það þekkir þig og mömmu finn ég að fólk gefur mér strax ákveðið forskot. Ég fann líka að þú varst stoltur af mér og mínu fólki. Elsku pabbi, ég mun halda áfram að gera þig stoltan því ég veit að þú fylgist með okkur. Ég lofa þér því að styðja við börnin mín eins og þú studdir við mig. Ég lofa þér því að styðja við mömmu, Guðrúnu og Sigmar. Þín dóttir, Ágústa. „Hamingjan er að sætta sig við að vera óhamingjusamur annað slagið,“ sagði Tryggvi eitt sinn aðspurður um þetta marg- slungna fyrirbæri. Svarinu fylgdi hlýlegt glott eins og endranær. Ég kynntist Tryggva 1987 þegar vatnaskil urðu í lífi okkar beggja. Síðan höfum við, eins og fleiri, leitast við að feta hinn mjóa stíg. Að eiga slíka göngu- félaga er ómetanlegt því vegur- inn mjói er misbrattur og húmor og vinátta eitt besta veganestið á lífsgöngunni. Þó ég hafi fyrir löngu flutt frá Húsavík hef ég haldið sambandi við gamla vini og kíkt við öðru hverju. Þá var gott að hitta Tryggva, fá þétt faðmlag og spjalla um málin, spá í stóru spurningarnar og bera saman bækurnar. Tryggvi var, eins og nafnið bendir til, tryggur vinur, aðlað- andi persónuleiki, stutt í góðlát- legt grín, orðaleiki og vísnagerð. Gaman var að lesa hugrenningar hans í bundnu sem óbundnu máli á Facebook og skoruðum við hvort á annað í yrkingum. Tryggvi sá jákvæðu hliðar mál- anna sem kom vel í ljós í sjúkra- legunni þegar jafnvel „sóttar- sæng“ hans varð í einni ferskeytlunni „fyrirtak“. Þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið sagðist hann ekki stunda vísna- gerð nema þegar honum liði vel, „því ég er ekki harmkvæla- skáld,“ bætti hann við og kímdi. Við ræddum almættið, trúar- brögð og þá ákvörðun hans að taka kaþólska trú. Gott var að heyra hugrenningar hans um Guð, smæð okkar og þörf á æðri leiðsögn. Ég gaf honum litla bók um lífsspeki þá sem við aðhyllt- umst bæði. Fáum dögum síðar kom kallið. Það hefur sjálfsagt vantað hlýjan, vitran og hlátur- mildan engil í himnaríki og efast ég ekki um að honum hefur ver- ið vel tekið þar efra af gömlum vinum okkar. Við hin söknum og syrgjum en þakklæti og góðar minningar eru mér efst í huga. Ég og fjölskylda mín sendum Gullý og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Tryggva kveð ég með minni uppáhalds tilvitn- un í Sókrates: „Góðum manni getur ekkert grandað, hvorki lífs né liðnum“. Ingunn Sigmarsdóttir. Margar góðar minningar á ég um Tryggva Jóhannsson, þann góða dreng sem við kveðjum í dag með sorg í hjarta. Frum- bernska okkar mótaðist á Hringbrautinni, sem nú heitir Laugarbrekka. Þarna voru ómælisvíddir fyrir okkur krakk- ana enda ekki aðrar brekkur byggðar þá. Þar voru tún sem nýtt voru fyrir búsmala bæjar- búa og leik okkar barna. Börn voru þar mörg enda fjölskyldur margar stórar. Sú minning sem ég man fyrst eftir og tengist Tryggva var þegar við vorum 5 og 6 ára gamlir. Þetta var gönguferð út á Bakka og var í boði Tryggva, en þar bjuggu afi hans og amma, Hermann Stefánsson og Friðný Óladóttir. Munu þau hafa verið síðustu ábúendur á þessum um- talaða stað. Kaldir og svangir og göngumóðir mjög komumst við loks á leiðarenda. Eftir stuttar Jesúseringar Bakkahjóna og smá umvöndun, foreldrum okk- ar var jú ekki kunnugt um ferða- lagið, var okkur boðið upp á rjúkandi kakó og brauðmeti af bestu gerð. Löngu seinna stund- uðum við reglubundnar göngu- ferðir með góðum vinum. Það voru skemmtilegar göngur. Nú hefur þín hinsta ganga farið fram og söknuður okkar og eft- irsjá er mikil. Tryggvi var góðum kostum búinn. Hann var prúðmenni í framgöngu, fríður sýnum, skarpgreindur og vandvirkur í öllum störfum sínum. Hann var rökfastur mjög og flutti mál sitt af festu og yfirvegun á málþing- um svo eftir var tekið. Hann var bókhneigður í besta lagi, vel les- inn og hafði gaman af alls konar fróðleik. Átti létt með að setja saman vísur, þótt eigi flíkaði hann því. Hann var afbragðs- góður íslenskumaður og húmor- isti frábær. Tryggvi hafði alltaf áhuga á pólitík var annt um samfélag sitt. Því var enginn hissa þegar hann gaf kost á sér í framboð til sveitarstjórnarkosn- inga. Hann var kjörinn í bæj- arstjórn Húsavíkur í fyrsta sinn 1994 af hálfu Alþýðubandalags- ins. Hann var síðast kjörinn í sveitarstjórn Norðurþings af hálfu Samfylkingarinnar árið 2010. Hann sagði af sér tveimur árum seinna og því sat hann samfellt í sveitarstjórn í 14 ár. Tryggvi lét mjög til sín taka í sveitarstjórnarmálum og gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum með glæsibrag. Seinustu minningar um horfin vin eru tengdar leikfimiklúbbi, „Gym brödrene“, sem við nokkr- ir félagar á líku reki komum á fót og „stunduðum“ æfingar yfir haust- og vetrarmánuði. Margar góðar stundir áttum við saman bæði í gönguferðum og hinsvegar í „gymminu“ í íþróttahöllinni. Þar gafst líka tækifæri til að tjá sig um ýmis þjóðþrifamál. Tryggvi nálgaðist málin oft með öðrum og vitlegri hætti en við félagarnir og var því niðurstaðan gjarnan að segja amen eftir lokaræðu hans. Tryggvi var gæfumaður í einkalífi. Ungur að árum eign- aðist hann yndislega kærustu, Guðlaugu Sigmarsdóttur, sem síðar varð eiginkona hans. Hjónaband þeirra var einstak- lega farsælt. Gullý og Tryggvi voru sérlega samrýnd hjón. Væntumþykjan var gagnkvæm, afar sýnileg og falleg. Elsku Gullý, þú hefur misst mikið, elskulegan eiginmann og góðan dreng. Ég votta þér börn- um ykkar, barnabörnum og öðru skyldfólki mínar innilegustu samúðarkveðjur. Mannorð lifir þó maðurinn deyi. Þorkell Björnsson. Tryggvi Brandr Jóhannsson ✝ Sigríður Pét-ursdóttir, Sísí, fæddist í Keflavík 19. apríl 1968. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Keflavík 18. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar eru Kristín Guðmundsdóttir, f. 5. janúar 1945, og Pétur Guðmunds- son, f. 17. ágúst 1945. Sammæðra er yngri systir hennar, Hrefna Magnea. Sam- feðra eru þau Eva Péturs- dóttir, Sólrún Pétursdóttir og Óskar Pétursson. Sigríður lætur eftir sig eina dótt- ur, Kristínu Leu Sigríðardóttur, f. 18. febrúar 1988. Eiginmaður henn- ar er Vigfús Þor- mar Gunnarsson. Eiga þau tvo drengi, Jökul Þor- mar Vigfússon, f. 23. júlí 2012, og Frosta Gunnar Vigfússon, f. 1. júní 2014. Útför Sigríðar fór fram frá Keflavíkurkirkju 29. ágúst 2019. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst svona stórkostlegri manneskju eins og þér, mamma mín. Ég hef verið að hugsa und- anfarið hvað lífið var ekki alltaf sanngjarnt við þig, en aldrei kvartaðir þú, bara beist á jaxl- inn eins og hetjan sem þú varst. Lærðir að ganga, tala og allt upp á nýtt eftir slysið og áratug eftir það að fá viðurkennda eft- irmála þess. Það var ekki ein- falt, en þú gafst ekki upp. Þú gafst mér líf og heimili og allt sem þú áttir. Ég dáist svo að þér. Alltaf varstu jákvæð. Alveg sama hvað var, þá skrifaðirðu í bókina að dagurinn í dag væri yndislegur. Ég hugsa um æskuna. Við heima að spila eða spá og drekka kakó og hlusta á Bylgj- una. Oft áttum við stefnumót og fórum út að borða og á rúntinn. Það voru okkar augnablik. Bara við tvær, þurftum ekkert annað. Mér fannst svo gott að kúra í mömmu holu. Alltaf þegar ég kom til þín þá kúrði ég mig hjá þér í sófanum og þú straukst lappirnar mínar með blíðu höndunum þínum. Þar með talið í síðasta skiptið sem við komum til þín. Dásam- leg stund. Alltaf sungum við og döns- uðum saman. Í kjallaranum hjá Sísí ömmu að dansa við Sálina eða Smokie og Abba. Tónlistin var aldrei langt undan og húm- orinn ekki heldur. Mér og Hrefnu fannst ekkert leiðinlegt að fíflast í ykkur ömmu og fá ykkur til að hlæja, þú varst svo auðtrúa. En alltaf grétum við saman úr hlátri. Þú vast alltaf til í að vera með í fíflalátunum. Ofarlega í minningunni er þegar við klæddum okkur upp og sungum í karaókí heima. Það var svo fyndið. Þú varst ekki beint þekkt fyrir að vera besta söngkonan í bænum, og skrækirnir sem komu upp og brosið og hlát- urinn er það besta sem ég veit um. Sem betur fer var Hrefna með myndavél og við getum hlegið með þér um ókomna tíð. Það er svo gott að þú áttir svo björt síðustu árin í lífi þínu. Þú varðst amma og kynntist Einari þínum. Varst dugleg í ræktinni og alger skvísa með bleika varalit- inn og sólgleraugu á höfðinu, þó að úti væri engin sólin, við gát- um nú hlegið að því. Ég er svo þakklát fyrir sam- band þitt og ömmustrákanna þinna. Þeir elska ömmu afar heitt og skilja ekki alveg að þeir fá ekki að hitta þig aftur. Ég segi þeim að amma sé orðin engill sem lifir í hjartanu okkar. Þegar þú komst í heimsókn þá fóruð þið alltaf að leika inni í herbergi. Þeir skemmtu sér ekkert minna en þú. Nóg af knúsum og alltaf vildi amma halda í höndina á strákunum sínum. Ekki bara þeim, heldur mér líka, svo straukstu með þuml- inum á handarbakið og sagðir „ástin mín“. Dásamlega nær- veran þín nær engri átt. Mömmuhjartað var svo stórt. Þú kenndir mér að faðma og elska. Allt það góða í mér kem- ur frá þér. Ég ætla að kenna strákunum allt sem þú kenndir mér og heiðra þessa fallegu sál. Sálin sem er núna í blíðum höndum hjá Sísí ömmu að spila olsen með kaffi og sígó. Þú trúðir á það að endurfæð- ast. Ég trúi að þú fáir annað tækifæri þar sem lífið leikur við þig eins og þú ein átt skilið ljós- ið mitt. Ég veit að þú ert með mér í hverju skrefi. Elska þig, dýrka og dái fallega drottningin mín. Takk fyrir allt, mamma. Þín einkaprinsessa, Kristín Lea Sigríðardóttir. Meira: mbl.is/minningar Það var þungt símtal sem kom á sunnudegi, sem fram að þessu hafði verið ljúfur. Sísí systir er látin. Fyrir mér er Sísí systir ein- stök manneskja. Verkefnin sem hún fékk í lífinu voru ekki smá, og þau voru ekki auðveld. Henni tókst ekki allt, en hún gerði alltaf það sem hún gat, og hún átti alltaf orku í bros fyrir fólkið í kringum sig og um- hverfið. Sem betur fer eru þær ófáar minningarnar af mér og börn- unum mínum að heimsækja Sísí frænku. Alltaf voru móttökurn- ar hlýjar, faðmlag og koss á kinn og ef þú vissir að ég væri á leiðinni varstu búin að hella upp á þegar ég kom. Það þurfti eng- ar stórfréttir eða mikil um- ræðuefni. Við eigum svo margt og við erum svo rík, elsku Sísí. Kristín var stoltið í lífi þínu, og er það enn, en þegar þú varðst amma þá rifnaðir þú af stolti. Þú elsk- aðir ömmustrákana svo mikið og er missir þeirra mikill. Börn- in mín munu alltaf muna þig, elsku systir. Þig þekkja þau einna best af systkinum mínum. Þitt skarð verður aldrei fyllt. Elsku Sísí mín. Yndislega, ljúfa fallega systir mín. Að hafa þig sem systur mína er ein besta gjöf sem Guð gat gefið mér. Ég veit ekki hvaða verkefni var svona mikilvægt að fá þig í strax en ég veit að það snýst um það sama og þú gerðir hér. Þú dreifðir ást, hlýju og góðvild og einhver staður þarf á þessari góðvild að halda núna. Einhvern tímann næ ég að sætta mig við það. Ég verð! Mér finnst þessi heimur þurfa á þér að halda og ég þarf á þér að halda. Við ætluðum að fara að hitt- ast oftar eins og gengur og ger- ist, því auðvitað hélt ég að við hefðum tíma. Sumarið var bara erfitt og við ætluðum að hittast með haustinu. Á sama tíma og ég er fullur þakklætis fyrir tímann okkar þá á ég enn eftir að sætta mig við að byrjunin og endirinn af lífi mínu voru og verða án þín. Sísí systur heyrði ég aldrei tala illa um neinn. Hún tók öll- um eins og þau voru og hafði alltaf bros að gefa. Sama hve illa gekk hjá mér, sama hve miklu mér fannst ég hafa klúðr- að í lífinu þá sagði hún alltaf eitthvað eins og „Æææ, láttu ekki svona Óskar. Þú ert svo frábær. Þú ert svo flottur. Þetta verður allt í lagi.“ Hún tók ekki þátt í að tala illa um fólk og sá alltaf það fallega í hverjum Við hittumst ekki nógu oft en nú verður þú alltaf hjá okkur og yfir okkur, elsku systir. Þakka þér mín elsku systir. Minning þín mér er kær. Sorgin þó augu mín syrtir Þó minning, sé falleg og tær. Nú bíð ég að við hittumst að nýju. Nýtt þakklæti fyllir mig hlýju. Því þó okkur finnist guð þig taka þá lætur hann þig yfir okkur vaka. Ég er ekki skáld en þú kenndir mér að skammast mín aldrei fyrir að vera ég og þetta er það besta sem ég gat samið fyrir þig og ég veit þú munt sjá þetta. Takk fyrir heimsóknir þínar í drauma mína undanfarið, elsku systir mín. Ég veit þú munt passa upp á Kristínu Leu, Jök- ul, Frosta og Vigfús. Ég veit þú munt líka passa upp á mig, Yngva, Svandísi og Birni. Þú ert einstök manneskja og að fá sem bróðir að minnast þín eru endalaus forréttindi. Elsku Kristín Lea, Jökull, Frosti, Kristín, pabbi og Hrefna. Guð styrki ykkur í sorginni. Ást og friður. Óskar Freyr Pétursson. Í dag kveðjum við elsku ynd- islegu og hjartahlýju vinkonu okkar sem kvaddi allt of fljótt. Reglulega erum við minnt á hversu lífið getur verið hverf- ult. Við eigum yndislegar minn- ingar um Sísí okkar en trúum því vart að samveru okkar sam- an hér á þessari jörð sé lokið. Loksins þegar tími fór að gef- ast til að hittast oftar, þar sem börnin hafa vaxið úr grasi og kærleikurinn og væntumþykjan sem er okkar á milli kallaði á frekari samveru. Jákvæðni þín skein alltaf í gegn sama hvað, aldrei kvart- aðir þú, alltaf var gott að frétta af þér. Kristín Lea var þér allt, þú ljómaðir þegar þú sagðir okkur frá henni enda hafðir þú ríka ástæðu til, svo komu drengirnir hennar tveir sem fengu ömmu- hjartað þitt til að slá hraðar. Hér sitjum við tárvotar og minningarnar eru ótal margar, elsku amma þín sem elskaði þig út af lífinu, elsku mamma þín sem á svo um sárt að binda. Elsku Sísí, við elskuðum brosið þitt Þú sagðir: Kristín Lea, er stoltið mitt Barnabörnin áttu þitt fallega hjarta. Nú fylgist þú með þeim fram í framtíðina bjarta. Elsku vinkona okkar, takk fyrir allt Kvartaðir aldrei, þú færð það til baka alveg margfalt. Í Sumarlandinu þar sem gleðin ríkir Þú, í gegnum skýin, á okkur kíkir. Fylgist vel með Kristínu Leu þinni. Þú vilt að hún og börnin finni að þú fylgist með úr englaheimi. Þau sjá þig fyrir á himinsveimi Guð gefi þér fagra góða nótt. Englarnir hafa nú þegar þig sótt. Megir þú geisla, brosa og dreyma. Við munum aldrei, Sísí, þér gleyma. (Höf. Kristbjörg Eyjólfsdóttir) Þínar vinkonur, Ásdís Erla, Elva Björk, Eygló, Heiður Huld, Kristín og Linda. Sigríður Pétursdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.