Morgunblaðið - 07.09.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2019
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ógeðslega gaman og eðli-legt, aðallega. En getur auð-vitað reynt á líka eins og öll
þriggja manna hjónabönd!“ Þannig
svaraði mér Haraldur Þorsteinsson,
bassaleikari Náttfara, þegar ég
spurði hann út í hvernig það væri að
búa til list annað slagið með æsku-
vinum sínum. Náttfari er enda upp-
runalega hljómsveit æskuvina úr
Bústaðahverfinu sem byrjuðu að
fikta við lagasmíðar saman í kenn-
araverkfallinu ’95, fyrir nærfellt
kvartöld. Hefur
einhver annars
rannsakað hinn já-
kvæða menningar-
auka sem þessi
kennaraverkföll
virðast einatt bera
með sér?
Hljómsveitin var nokkuð áber-
andi í tónleikahaldi um 2000, er síð-
rokkið svokallaða reið röftum, og til
er ansi mögnuð prufuplata („demo“)
frá þeim tíma. Eiginleg plata kom
síðan ekki út fyrr en 2011 og bar
hinn glettna titil Töf. Platan sú er
giska vel heppnuð, síðrokksleg um
margt en samt ekki. Á sínum tíma
skrifaði ég: „Í öllu falli heyrir maður
að tilgangurinn var ekki að næra
fortíðarþrá og það er kannski mik-
ilvægasti lykillinn að plötunni. Með-
limir eru einfaldlega að vinna áfram
Frjálsbornir menn
Skaparar Þeir Haraldur Þorsteinsson, Andri Ásgrímsson og Nói Steinn Einarsson skipa Náttfara.
með efni sem var gott, bæði þá og
greinilega nú líka.“ D-Sessions inni-
heldur níu lög, tekin upp á fimm ára
tímabili í stúdíó FinnLandi í Hafn-
arfirði. Upptökustjórn og hljóð-
blöndun annaðist Finnur Há-
konarson. Nafnið er kankvís útúr-
snúningur á „Decisions“ og átti
platan á tímabili að heita Ákvarð-
anirnar en fallið var frá því, sökum
óþjálleika. Í opinberri fréttatilkynn-
ingu segir að „frá upphafi til enda
krefst gerð tónlistarinnar sameig-
inlegrar ákvarðanatöku og sköp-
unar þriggja aðila“. Pistilritari spyr
Harald kíminn hvort þessi útskýring
eigi að gefa til kynna að allt hafi ver-
ið vitlaust í hljóðverinu þegar lögin
voru sett saman? Ekki vill hann
meina það, hér sé bara réttilega ver-
ið að vísa í það ákvarðanatökuferli
sem einkennir alltaf samvinnuverk-
efni.
En að plötunni sjálfri. Hún er
án söngs, eins og Náttfara er siður,
en hér er samt um mun óræðara
verk en Töf að ræða. Þar voru
áhrifavaldar greinilegri, síðrokkið
blasti við, þó að Náttfari væri að
setja sinn snúning á það. Hér er hins
vegar annað og meira í gangi,
hljómavefurinn mun fjölskrúðugari
og það er erfitt að pinna plötuna nið-
ur á köflum. Aðspurður tekur Har-
aldur undir þetta: „Þessi plata er til-
raun til að stíga aðeins í átt frá
síðrokki og móta meira okkar eigin
stíl,“ lýsir hann. „Við vildum s.s.
hafa hana minna „póstaða“, með
minni „ambient“ síðrokksgíturum
en um leið með meiri raftónlist. Raf-
tónlistin kemur þarna inn í tveimur
lögum, og svo eru náttúrulega
hljómborð þarna úti um allt.“
Lög eins og „Hrynjandi keðja“
og „Næsarinn“ (góður titill!) eru fín
dæmi um það hvernig Náttfari er
farinn að verða líkari sjálfum sér.
Fyrra lagið opnar plötuna með
skruggu-riffi og í „Næsarinn“ er
ekkert verið að byggja sig upp í ein-
hverju rólegu svifi, það er ráðist í
dæmið með látum frá fyrsta tón;
bassi, trommur og gítarar í hama-
gangi miklum. „Sonic“ vottar þá
bestu rokksveit heims virðingu sína
og annar meistari fær viðlíka
skammt í lögunum „Serge“ og
„Gainsbourg“.
Ég segi kannski ekki að platan
sé léttari en sú síðasta. Og þó? Meira
sprell? Minna um að menn séu að líta
niður á gólf, nú stara menn beint
fram með rokkglóð í augum. Í hel-
berum fíflagangi okkar á milli segir
Haraldur „minna post-rokk, meira
grunge!“ og er að vísa kerknislega í
að hér er sannarlega meira um ríf-
andi gítara og meira um lög sem
ganga upp og niður, fremur en að
þau dvelji í þessu mínímalíska
streymi (og svo með hávaðauppbroti
í bláendann) sem er þessi síðrokks-
formúla. En að gríni slepptu, Bú-
staðapiltar hafa snarað út öðrum vel
stöndugum rokkgrip og megi þeir
skapa og taka ákvarðanir saman
lengi enn!
» Lög eins og„Hrynjandi keðja“
og „Næsarinn“ (góður
titill!) eru fín dæmi um
það hvernig Náttfari er
farinn að verða líkari
sjálfum sér
Hljómsveitin Náttfari
dælir kannski ekki út
plötunum en allar eru
þær markverðar og
gott betur, þegar þeim
er loks landað. Önnur
plata sveitarinnar,
D-Sessions, kom
út fyrir stuttu.
Styrktartón-
leikaröð hefur
göngu sína í Há-
teigskirkju í dag
kl. 17 og er
markmiðið að
safna fyrir nýju
orgeli í kirkjuna.
Haldnir verða
tónleikar fyrsta
laugardag hvers
mánaðar og á
þeim fyrstu koma fram Gunnar
Kvaran sellóleikari og Guðný Ein-
arsdóttir, organisti Háteigskirkju.
Þau munu leika verk eftir Bach, Vi-
valdi, Schubert og Mendelssohn.
„Fjölmargir listamenn og velunn-
arar kirkjunnar vilja leggja sitt af
mörkum til átaksins og munu
syngja á spila á tónleikum fyrsta
laugardag hvers mánaðar kl. 17 í
allan vetur. Aðgangur verður
ókeypis en tekið verður við frjáls-
um framlögum í orgelsjóðinn,“ seg-
ir í tilkynningu. Á tónleikunum
verður hægt að kaupa geisladiska
til styrktar sjóðnum.
Safnað fyrir orgeli
í Háteigskirkju
Guðný
Einarsdóttir
200 ár eru nú lið-
in frá fæðingu
Jóns Árnasonar,
landsbókavarðar
og þjóðsagna-
safnara, og verð-
ur þess minnst í
dag með dagskrá
í Þjóðarbókhlöð-
unni. Hún hefst
kl. 13 með ávarpi
Lilju Alfreðs-
dóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, og afhjúpun á lág-
mynd af Jóni í anddyri hússins. Að
henni lokinni hefst málþing um Jón
með ávarpi landsbókavarðar, Ingi-
bjargar Steinunnar Sverrisdóttur,
og í kjölfarið verða flutt nokkur er-
indi. Meðal flytjenda eru Soffía
Auður Birgisdóttir, Arndís Hulda
Auðunsdóttir, Hólmfríður K. Gunn-
arsdóttir og Helga Kress.
Að loknu málþingi, kl. 15.30,
verður opnuð sýning um ævi og
störf Jóns. Á henni má sjá handrit,
bréf og prentaðar bækur.
Dagskrá til minning-
ar um Jón Árnason
Jón
Árnason
Rauðir sunnudagar, sýning á ljós-
myndum Atla Más Hafsteinssonar,
verður opnuð í dag kl. 17 í gall-
eríinu Ramskram á Njálsgötu 49.
Sýningin samanstendur af ljós-
myndum sem Atli tók í smábænum
Marinaleda á Spáni fyrir þremur
árum og segir í tilkynningu að skil-
greina megi sýninguna sem heim-
ildarverk. „Marinaleda byggir
stjórnarfar sitt á grunni anarkó-
kommúnisma en það var sett var á
laggirnar stuttu eftir dauða ein-
ræðisherrans Franco. Hér er þó
ekki um að ræða pólitíska hug-
myndafæði einvörðungu heldur
hafa íbúar endurskipulagt lífið allt
á nýjum forsendum,“ segir m.a. í
tilkynningu og að ljósmyndarinn
geri tilraun til þess að fanga bar-
áttuanda Marinaleda eins og hann
birtist í hversdeginum.
Ljósmyndir teknar í
Marinaleda á Spáni
Baráttuandi Hluti einnar ljósmynda
Atla Más á sýningu hans í Ramskram.
Myndlistarkonan Magdalena Mar-
grét Kjartansdóttir opnar sýningu
hjá Ottó, Hafnarbraut 2 á Höfn
Hornafirði, í dag kl. 14. „Meginvið-
fangsefni Magdalenu síðustu ára-
tugina hefur verið konan og lífs-
hlaup hennar. Hún vinnur út frá
eigin reynsluheimi, þar sem æskan,
sakleysi, þroski og öldrun fléttast
saman. Listsköpun sinni líkir hún
við ljóðagerð eða frásögn. Verk-
unum er ætlað að vekja tilfinningar
áhorfandans fyrir áreiti umhverf-
isins í samfélagi nútímans,“ segir í
tilkynningu. Magdalena lauk námi í
grafík frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands og fæst aðallega
við grafíska miðla, tré- og dúkrist-
ur handprentaðar á japanskan
pappír.
Magdalena Margrét
sýnir hjá Ottó
Grafíklærð Magdalena Margrét.