Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 293. tölublað 107. árgangur
Stúfur kemur í kvöld
11 dagartil jóla
jolamjolk.is
MIKAEL TORFASON
KAFAR OFAN Í
FORTÍ́ÐINA
MÁLARINN
SEM FÓR
EIGIN LEIÐIR
SMARTLAND 32 SÍÐUR KJARVALSBÓKIN 36
Íhaldsflokkurinn fær hreinan
meirihluta á breska þinginu sam-
kvæmt útgönguspá eftir könnun á
144 kjörstöðum í gærkvöldi. Kosið
var til þingsins í gær. Spáin bendir
til þess að Íhaldsflokkurinn fái 368
þingmenn kjörna, 86 þingsæta
meirihluta. Flokkurinn hefur ekki
verið jafn sterkur í meira en þrjátíu
ár. Verkamannaflokkurinn, sem er
aðalstjórnarandstöðuflokkurinn,
tapar miklu fylgi. Hann fær 191
þingmann kjörinn, 71 færri en hann
hafði á síðasta kjörtímabili. Skoski
þjóðarflokkurinn fær 55 þingmenn,
Frjálslyndir demókratar 13, Græn-
ingjar 1 þingmann og aðrir 22
menn kjörna. Á þinginu sitja 620
fulltrúar.
Endanleg úrslit munu varla
liggja fyrir fyrr en um hádegisbil.
Útgönguspár hafa á liðnum árum
verið mjög nærri lagi í Bretlandi.
Verði þetta úrslitin er ljóst að Brex-
it, útgangan úr Evrópusambandinu,
verður að veruleika snemma á
næsta ári. Verði afhroð Verka-
mannaflokksins jafn mikið og spáin
bendir til er ljóst að mikill þrýst-
ingur mun skapast á afsögn Jeremy
Corbyn, leiðtoga Verkamanna-
flokksins.
AFP
Þingkosningar Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, og Boris
Johnson forsætisráðherra, leiðtogi Íhaldsflokksins, á leið á kjörstað í gær.
Hreinn meirihluti Íhaldsflokksins
Sigur Boris Johnsons Verka-
mannaflokkurinn tapar miklu fylgi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Það gæti tekið allt að 5-6 daga að
koma aftur rafmagni á alla bæi og
staði þannig að kerfið verði komið í
samt lag og það var, að sögn Sig-
urðar Inga Jóhannssonar, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Hann sat fund þjóðaröryggisráðs í
gær vegna þeirra fordæmalausu að-
stæðna sem sköpuðust í ofsaveðrinu
á dögunum. „Það verður hægt að
koma á bráðabirgðarafmagni með
varaaflstöðvum miklu fyrr,“ sagði
Sigurður Ingi. Hann sagði að lögð
yrði áhersla á að fara með rafstöðv-
ar á bæi þar sem er rafmagnskynd-
ing og koma rafmagni á hitaveitur
sem ekki eru með varaafl til að fá
hita í húsin.
Þrjár fjöldahjálparstöðvar Rauða
krossins voru opnar í gær, á Dalvík,
Tjörnesi og Ólafsfirði. Stöðin á Dal-
vík var ein opin í nótt.
Sigurður Ingi sagði að ofsaveðrið
hefði verið fordæmalaust. „Þess
vegna er þetta víðtækasta rafmagns-
leysi sem við höfum séð lengi. Það var
búið að spá þessu og margir tóku það
til sín, undirbjuggu sig og voru lítið á
ferðinni. Þess vegna held ég að við
höfum sloppið með minni áföll en ella,
og er þó nóg samt.“
Allir þjóðvegir lokuðust nema
Reykjanesbraut og Grindavíkurveg-
ur. Í gær var búið að opna alla vegi
nema á milli Hofsóss og Siglufjarðar.
Víða var ekkert símasamband og
hvorki heyrðist í FM útvarpi né sáust
sjónvarpssendingar í rafmagns-
leysinu. „Það er mikið áhyggjuefni,“
sagði Sigurður Ingi. „Það hefur kom-
ið ítrekað í ljós þegar svona hættu-
ástand skapast að það öryggistæki
sem RÚV á að vera virðist detta út.
Það þarf að skoða það sérstaklega.
Varðandi fjarskiptin þá duttu þau
út einmitt vegna rafmagnsleysis.
Þetta er allt orðið svo tengt. Þess
vegna er svo mikilvægt að við skoð-
um hvernig við getum tryggt öryggi
rafmagns betur.“
Hann sagði að ræða þyrfti sérstak-
lega nokkur atriði. Eitt af þeim er
hvort raforka standi til boða í þeim
landshluta þar sem hún er framleidd.
Það sé ákveðið öryggi fólgið í því að
raforka sé nærtæk. Annað er að það
hafa verið ákveðin vandkvæði á að
koma rafmagni á milli landshluta.
„Við þurfum að ræða hvort gera
þurfi breytingar á lögum, hvort
landsskipulag eigi að hafa meiri völd
þegar kemur að meginleiðum hvort
sem er í samgöngum, eins og við
þekkjum í umræðunni um Teigsskóg,
eða við lagningu byggðarlínu til að
mynda fyrir norðan,“ sagði Sigurður
Ingi. „Einnig þurfum við að velta því
fyrir okkur hvort það sé orðinn of lít-
ill mannafli innan hinna ýmsu svæða
hjá opinberum stofnunum sem sinna
þessum þáttum,“ sagði hann. Hann
segir ljóst að varaaflstöðvar þurfi að
vera miklu víðar en nú er, bæði hjá
sveitarfélögum, bændum með kúabú
og mikilvægum stofnunum eins og
hjúkrunarheimilum, öldrunarheimil-
um og heilbrigðisstofnunum.
Víða áfram rafmagnslaust
Taka mun allt að 5-6 daga að
koma rafmagni aftur í samt lag
M EFTIRKÖST ÓVEÐURSINS»4, 6, 10 og 13
Áhersla á að leysa bráðan vanda
fljótt með fleiri varaaflstöðvum
Áhyggjuefni að sími, útvarp og
sjónvarp datt út, segir Sigurður Ingi
Morgunblaðið/Eggert
Rafmagnslaust Unnið var að því í gær og í nótt að tengja ásrafala varðskipsins Þórs við spenni og næstu spennistöð til að koma rafmagni á Dalvík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjóðaröryggisráð Fundað í gær vegna fordæmalausra aðstæðna sem sköp-
uðust vegna ofsaveðursins á dögunum. Ríkisstjórnin ræðir málin í dag.