Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019 Þvottur jólasveinsins Sveinki er kominn til byggða og ætlar greinilega að vera snyrtilega til fara þegar hann útdeilir pökkum og pinklum og setur í skóinn hjá yngri kynslóðinni. Kristinn Magnússon Þess var minnst laugardaginn 30. nóv- ember að 80 ár voru liðin frá því að vetr- arstríðið svonefnda hófst milli Sovétmanna og Finna. Þann dag ár- ið 1939 sendi Jósep Stalín, einræðisherra í Rússlandi, alls 450.000 menn í 21 herdeild inn yfir austurlandamæri Finnlands. Skömmu síðar hófust loftárásir sovéska flughersins á Helsinki. Alls var barist í 105 daga. Við upphaf átakanna voru um 300.000 vopnaðir Finnar til varnar landi sínu. Þeir bjuggu við mikinn skort á öllum sviðum, skotfæri, sprengjur og eldsneyti í landinu var talið duga í allt að tvo mánuði. Finn- ar áttu aðeins 32 skriðdreka og af þeim nýttust ekki fleiri en 10 til átaka þegar stríðið hófst. Orrustu- flugvélar þeirra voru 114 og flestar úr sér gengnar. Sovétmenn höfðu með leynd lagt vegi að finnsku landamærunum. Eftir þeim gátu þeir flutt 2.514 skriðdreka og 718 brynvarða bíla. Í krafti alls þessa töldu áætl- anasmiðir sovéska hersins að hann mundi sækja fram af miklum hraða strax á fyrsta degi átakanna. Reynd- in var þó önnur því að Finnar sner- ust til varnar af mikilli hörku. Þeir töfðu fyrir Rauða hernum með dýna- mítsprengjum og Molotov-kokkteil- um auk þess að brenna allt sem kynni að verða sovésku hermönn- unum að gagni. Sovétmenn notuðu flugvelli í Eist- landi til árása á Helskini rétt handan Finnska flóans. Þeir sögu Finna fara með rangt mál þegar þeir lýstu mannskaða og tjóni á mannvirkjum vegna loftárásanna. Sovéskir falsfrétta- smiðir þess tíma sögðu að brauði hefði verið varpað úr sovéskum vélum yfir Helsinki til að létta á hungurs- neyðinni þar. Í frásögn finnska ríkisútvarpsins, YLE, af vetrarstríðinu er minnt á að það hafi ver- ið hluti af valdatafli þess tíma þegar Stalín vildi auka vald sitt í miðhluta Evrópu. Rauðliðar töpuðu í blóðugri borgarastyrjöld í Finnlandi eftir að þjóðin varð sjálfstæð 1917. Árið 1931 var Kommúnistaflokkurinn bann- aður með lögum í Finnlandi. Undir lok fjórða áratugarins kynnti Stalín áform um að end- urheimta landsvæði rússneska keis- aradæmisins. Auk þess óttaðist hann að ráðist yrði inn í Sovétríkin frá Finnlandi eða Finnar lokuðu siglingaleið til Sovétríkjanna um Eystrasalt. Leníngrad (St. Péturs- borg) var aðeins 32 km frá finnsku landamærunum. Stalín gerði griðasáttmálann al- ræmda við Adolf Hitler í ágúst 1939. Þar voru leynileg ákvæði um áhrifa- svæði einræðisherranna í austur- hluta Evrópu. Stalín fékk Finnland sem veitti honum svigrúm til hern- aðar eftir að nasistaher Hitlers réðst inn í Pólland 1. september 1939. Stalín sendi her sinn inn í Pólland 17. september 1939 og lagði svo Eistland, Lettland og Litháen undir sig. Í október 1939 krafðist Stalín þess að finnsku landamærin á Karelíueið- inu yrðu færð til vesturs og finnsk varnarvirki þar eyðilögð. Þá vildi hann einnig ráða yfir finnskum eyj- um á Finnska flóa, landsvæði á Kóla- skaga við Barentshaf og 30 ára her- stöðvarleigusamningi um Hanko- skaga um 120 km fyrir vestan Helsinki. Í staðinn fengju Finnar land í Austur-Karelíu. Finnar höfn- uðu og gerðu gagntilboð sem Stalín hafði að engu. Stalín og hershöfðingjar hans héldu að Finnar gæfust upp á fáum vikum. Þess í stað neyddust þeir til að senda á vettvang meira en 750.000 hermenn og ógrynni vígtóla áður en gerður var friðarsamningur 12. mars 1940. Finnar misstu 11% af landi sínu og 30% af þeim efnahags- lega styrk sem þeir höfðu í stríðs- byrjun. Sovétmenn fengu samning- inn til 30 ára um Hankoskaga. Finnar héldu sjálfstæði sínu. Fjöldastuðningur Íslendinga Andri Jónsson sagnfræðingur birti ritgerð um samúð Íslendinga með Finnum í vetrarstríðinu í tíma- ritinu Sögnum 1. tbl. 2013 og segir: „Viðbrögð Íslendinga við innrás sov- étmanna í Finnland eiga sér fáar hliðstæður.“ Fá dæmi séu „um að Ís- lendingar hafi sýnt slíkan samhug með erlendri þjóð og þeir gerðu með Finnum veturinn 1939-1940. Samúð með Finnum og aðdáun á þeim birt- ist skýrt í orðræðunni um stríðið en afstaða almennings lýsti sér þó best í þátttöku hans í fjöldaaðgerðum sem gengu út á að sýna samhug með finnsku þjóðinni“. Strax daginn eftir innrás rauða hersins í Finnland, fullveldisdaginn 1. desember 1939, lýstu Íslendingar stuðningi sínum við Finna með meiri fjöldaþátttöku í hátíðarhöldum dagsins en áður höfðu sést. Efnt var til sérstaks Finnlandsdags 10. des- ember 1939 og Finnlandssöfnunar. „Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efna- hagslífi varð Finnlandssöfnunin […] bæði umfangsmesta og víðtækasta fjársöfnun sem haldin hafði verið á Íslandi,“ segir Andri. Íslendingar litu á Finna sem sér- staka vinaþjóð af því að þeir voru Norðurlandaþjóð. „Þessi staðreynd ber þess einnig vitni að Íslendingar sáu sjálfa sig sem hluta af bræðra- lagi Norðurlanda. Samúðarhreyf- ingin tengist enn fremur sjálfsmynd Íslendinga sem smáþjóðar sem lifði oghrærðist í orðræðu sjálfstæðis- baráttunnar,“ segir Andri Jónsson. Afstaða kommúnista Óhjákvæmilega hafði vetrar- stríðið pólitísk áhrif hér á landi. Kommúnistar sem fylgdu Stalín að málum kölluðu stríðið „Finnagald- ur“. Vísuðu þeir þar til þess að hart og af ranglæti væri að þeim og öðr- um kommúnistum sótt vegna inn- rásar Stalíns, ákvörðun hans mætti réttlæta. Hefur orðið verið flokkað með öðrum tuggum sem komm- únistar nota sér til varnar eins og „Moggalygi“ og „Rússagrýla“. Inni- haldsleysi þessara upphrópana hef- ur skýrst í áranna rás. Uppgjör innan Sósíalistaflokksins vegna innrásarinnar í Finnland varð til þess að Héðinn Valdimarsson, formaður flokksins, hrökklaðist úr honum þegar kommúnistar neituðu að fordæma innrásina. Í bókinni Sovét-Ísland óskalandið segir dr. Þór Whitehead að hér hefðu menn óttast að innrásin sýndi að Stalín og Hitler hefðu skipt með sér öllum Norðurlöndunum. „Vinstri jafnaðarmenn í Sósíalistaflokknum urðu þess reyndar varir að Brynj- ólfur Bjarnason og aðrir foringjar kommúnista vonuðust til að Stalín hreppti Ísland í landaskiptum við Hitler. Kommúnistar lýstu líka inn- rásum Rauða hersins í Pólland, Finnland og síðar Eystrasaltsríkin sem frelsun undan auðvaldsoki,“ segir Þór. Afstaða alþingismanna Sjálfstæðismaðurinn Pétur Otte- sen stjórnaði fundi sameinaðs þings 4. desember 1939 og tilkynnti að sér hefði borist svofelld yfirlýsing, sem hann las upp: „Vegna þeirrar afstöðu, er komm- únistaflokkurinn, sem hér starfar undir nafninu Sameiningarflokkur alþýðu – sósíalistaflokkurinn –, þing- menn þess flokks og málgögn hafa markað sér til frelsis, réttinda og lýðræðis smáþjóðanna síðustu vik- urnar, og alveg sérstaklega viðvíkj- andi málefnum Finnlands, lýsa und- irritaðir alþingismenn yfir því, að þeir telja virðingu Alþingis misboðið með þingsetu fulltrúa slíks flokks.“ Undir yfirlýsinguna rituðu aðrir þingmenn en kommúnistaflokksins og þegar nöfn þeirra höfðu verið les- in bað kommúnistinn Einar Olgeirs- son um orðið en þingforseti sagði: „Umræður verða ekki neinar um þessa yfirlýsingu, og þar sem fund- arefninu er lokið segi ég fundi slit- ið.“ Eftir Björn Bjarnason » Þess var minnst laugardaginn 30. nóvember að 80 ár voru liðin frá því að vetrar- stríðið svonefnda hófst milli Sovétmanna og Finna. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Íslendingar studdu Finna í vetrarstríðinu fyrir 80 árum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.