Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Þvottur jólasveinsins Sveinki er kominn til byggða og ætlar greinilega að vera snyrtilega til fara þegar hann útdeilir pökkum og pinklum og setur í skóinn hjá yngri kynslóðinni.
Kristinn Magnússon
Þess var minnst
laugardaginn 30. nóv-
ember að 80 ár voru
liðin frá því að vetr-
arstríðið svonefnda
hófst milli Sovétmanna
og Finna. Þann dag ár-
ið 1939 sendi Jósep
Stalín, einræðisherra í
Rússlandi, alls 450.000
menn í 21 herdeild inn
yfir austurlandamæri
Finnlands. Skömmu síðar hófust
loftárásir sovéska flughersins á
Helsinki. Alls var barist í 105 daga.
Við upphaf átakanna voru um
300.000 vopnaðir Finnar til varnar
landi sínu. Þeir bjuggu við mikinn
skort á öllum sviðum, skotfæri,
sprengjur og eldsneyti í landinu var
talið duga í allt að tvo mánuði. Finn-
ar áttu aðeins 32 skriðdreka og af
þeim nýttust ekki fleiri en 10 til
átaka þegar stríðið hófst. Orrustu-
flugvélar þeirra voru 114 og flestar
úr sér gengnar.
Sovétmenn höfðu með leynd lagt
vegi að finnsku landamærunum.
Eftir þeim gátu þeir flutt 2.514
skriðdreka og 718 brynvarða bíla.
Í krafti alls þessa töldu áætl-
anasmiðir sovéska hersins að hann
mundi sækja fram af miklum hraða
strax á fyrsta degi átakanna. Reynd-
in var þó önnur því að Finnar sner-
ust til varnar af mikilli hörku. Þeir
töfðu fyrir Rauða hernum með dýna-
mítsprengjum og Molotov-kokkteil-
um auk þess að brenna allt sem
kynni að verða sovésku hermönn-
unum að gagni.
Sovétmenn notuðu flugvelli í Eist-
landi til árása á Helskini rétt handan
Finnska flóans. Þeir sögu Finna fara
með rangt mál þegar
þeir lýstu mannskaða
og tjóni á mannvirkjum
vegna loftárásanna.
Sovéskir falsfrétta-
smiðir þess tíma sögðu
að brauði hefði verið
varpað úr sovéskum
vélum yfir Helsinki til
að létta á hungurs-
neyðinni þar.
Í frásögn finnska
ríkisútvarpsins, YLE,
af vetrarstríðinu er
minnt á að það hafi ver-
ið hluti af valdatafli þess tíma þegar
Stalín vildi auka vald sitt í miðhluta
Evrópu. Rauðliðar töpuðu í blóðugri
borgarastyrjöld í Finnlandi eftir að
þjóðin varð sjálfstæð 1917. Árið 1931
var Kommúnistaflokkurinn bann-
aður með lögum í Finnlandi.
Undir lok fjórða áratugarins
kynnti Stalín áform um að end-
urheimta landsvæði rússneska keis-
aradæmisins. Auk þess óttaðist
hann að ráðist yrði inn í Sovétríkin
frá Finnlandi eða Finnar lokuðu
siglingaleið til Sovétríkjanna um
Eystrasalt. Leníngrad (St. Péturs-
borg) var aðeins 32 km frá finnsku
landamærunum.
Stalín gerði griðasáttmálann al-
ræmda við Adolf Hitler í ágúst 1939.
Þar voru leynileg ákvæði um áhrifa-
svæði einræðisherranna í austur-
hluta Evrópu. Stalín fékk Finnland
sem veitti honum svigrúm til hern-
aðar eftir að nasistaher Hitlers réðst
inn í Pólland 1. september 1939.
Stalín sendi her sinn inn í Pólland
17. september 1939 og lagði svo
Eistland, Lettland og Litháen undir
sig.
Í október 1939 krafðist Stalín þess
að finnsku landamærin á Karelíueið-
inu yrðu færð til vesturs og finnsk
varnarvirki þar eyðilögð. Þá vildi
hann einnig ráða yfir finnskum eyj-
um á Finnska flóa, landsvæði á Kóla-
skaga við Barentshaf og 30 ára her-
stöðvarleigusamningi um Hanko-
skaga um 120 km fyrir vestan
Helsinki. Í staðinn fengju Finnar
land í Austur-Karelíu. Finnar höfn-
uðu og gerðu gagntilboð sem Stalín
hafði að engu.
Stalín og hershöfðingjar hans
héldu að Finnar gæfust upp á fáum
vikum. Þess í stað neyddust þeir til
að senda á vettvang meira en
750.000 hermenn og ógrynni vígtóla
áður en gerður var friðarsamningur
12. mars 1940. Finnar misstu 11% af
landi sínu og 30% af þeim efnahags-
lega styrk sem þeir höfðu í stríðs-
byrjun. Sovétmenn fengu samning-
inn til 30 ára um Hankoskaga.
Finnar héldu sjálfstæði sínu.
Fjöldastuðningur Íslendinga
Andri Jónsson sagnfræðingur
birti ritgerð um samúð Íslendinga
með Finnum í vetrarstríðinu í tíma-
ritinu Sögnum 1. tbl. 2013 og segir:
„Viðbrögð Íslendinga við innrás sov-
étmanna í Finnland eiga sér fáar
hliðstæður.“ Fá dæmi séu „um að Ís-
lendingar hafi sýnt slíkan samhug
með erlendri þjóð og þeir gerðu með
Finnum veturinn 1939-1940. Samúð
með Finnum og aðdáun á þeim birt-
ist skýrt í orðræðunni um stríðið en
afstaða almennings lýsti sér þó best
í þátttöku hans í fjöldaaðgerðum
sem gengu út á að sýna samhug með
finnsku þjóðinni“.
Strax daginn eftir innrás rauða
hersins í Finnland, fullveldisdaginn
1. desember 1939, lýstu Íslendingar
stuðningi sínum við Finna með meiri
fjöldaþátttöku í hátíðarhöldum
dagsins en áður höfðu sést. Efnt var
til sérstaks Finnlandsdags 10. des-
ember 1939 og Finnlandssöfnunar.
„Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efna-
hagslífi varð Finnlandssöfnunin […]
bæði umfangsmesta og víðtækasta
fjársöfnun sem haldin hafði verið á
Íslandi,“ segir Andri.
Íslendingar litu á Finna sem sér-
staka vinaþjóð af því að þeir voru
Norðurlandaþjóð. „Þessi staðreynd
ber þess einnig vitni að Íslendingar
sáu sjálfa sig sem hluta af bræðra-
lagi Norðurlanda. Samúðarhreyf-
ingin tengist enn fremur sjálfsmynd
Íslendinga sem smáþjóðar sem lifði
oghrærðist í orðræðu sjálfstæðis-
baráttunnar,“ segir Andri Jónsson.
Afstaða kommúnista
Óhjákvæmilega hafði vetrar-
stríðið pólitísk áhrif hér á landi.
Kommúnistar sem fylgdu Stalín að
málum kölluðu stríðið „Finnagald-
ur“. Vísuðu þeir þar til þess að hart
og af ranglæti væri að þeim og öðr-
um kommúnistum sótt vegna inn-
rásar Stalíns, ákvörðun hans mætti
réttlæta. Hefur orðið verið flokkað
með öðrum tuggum sem komm-
únistar nota sér til varnar eins og
„Moggalygi“ og „Rússagrýla“. Inni-
haldsleysi þessara upphrópana hef-
ur skýrst í áranna rás.
Uppgjör innan Sósíalistaflokksins
vegna innrásarinnar í Finnland varð
til þess að Héðinn Valdimarsson,
formaður flokksins, hrökklaðist úr
honum þegar kommúnistar neituðu
að fordæma innrásina.
Í bókinni Sovét-Ísland óskalandið
segir dr. Þór Whitehead að hér
hefðu menn óttast að innrásin sýndi
að Stalín og Hitler hefðu skipt með
sér öllum Norðurlöndunum. „Vinstri
jafnaðarmenn í Sósíalistaflokknum
urðu þess reyndar varir að Brynj-
ólfur Bjarnason og aðrir foringjar
kommúnista vonuðust til að Stalín
hreppti Ísland í landaskiptum við
Hitler. Kommúnistar lýstu líka inn-
rásum Rauða hersins í Pólland,
Finnland og síðar Eystrasaltsríkin
sem frelsun undan auðvaldsoki,“
segir Þór.
Afstaða alþingismanna
Sjálfstæðismaðurinn Pétur Otte-
sen stjórnaði fundi sameinaðs þings
4. desember 1939 og tilkynnti að sér
hefði borist svofelld yfirlýsing, sem
hann las upp:
„Vegna þeirrar afstöðu, er komm-
únistaflokkurinn, sem hér starfar
undir nafninu Sameiningarflokkur
alþýðu – sósíalistaflokkurinn –, þing-
menn þess flokks og málgögn hafa
markað sér til frelsis, réttinda og
lýðræðis smáþjóðanna síðustu vik-
urnar, og alveg sérstaklega viðvíkj-
andi málefnum Finnlands, lýsa und-
irritaðir alþingismenn yfir því, að
þeir telja virðingu Alþingis misboðið
með þingsetu fulltrúa slíks flokks.“
Undir yfirlýsinguna rituðu aðrir
þingmenn en kommúnistaflokksins
og þegar nöfn þeirra höfðu verið les-
in bað kommúnistinn Einar Olgeirs-
son um orðið en þingforseti sagði:
„Umræður verða ekki neinar um
þessa yfirlýsingu, og þar sem fund-
arefninu er lokið segi ég fundi slit-
ið.“
Eftir Björn
Bjarnason » Þess var minnst
laugardaginn 30.
nóvember að 80 ár voru
liðin frá því að vetrar-
stríðið svonefnda hófst
milli Sovétmanna og
Finna.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Íslendingar studdu Finna
í vetrarstríðinu fyrir 80 árum