Morgunblaðið - 13.12.2019, Page 2
Slysstaðurinn
Loftmyndir ehf.
Akureyri
Sö
lv
a d
al
ur
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Dönsk herflutningavél Danir brugðust skjótt við og sneru hingað flugvéll sem flutti björgunarmenn og ýmsan búnað frá Keflavíkurflugvelli norður í land.
Við Núpá Fjöldi björgunarsveitafólks, kafara og fleiri leituðu í ánni og með-
fram henni við erfiðar aðstæður í gær. Leit verður haldið áfram í dag.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Aðgerðastjórn ákvað undir kvöld í
gær að draga úr leit í nótt í Núpá í
Sölvadal í Eyjafirði að pilti sem féll í
ána í fyrrakvöld. Áfram átti að leita
við ána í nótt sem leið og mun leit
hefjast aftur af fullum krafti með
morgninum. Útlit er fyrir betra veður
til leitar í dag en var í gær, að sögn
lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Pilturinn var ásamt öðrum manni
að vinna við stíflu í ánni þegar krapa-
gusa hreif hann með sér. Lögregl-
unni á Norðurlandi var tilkynnt um
slysið laust fyrir klukkan 22 í fyrra-
kvöld. Allt tiltækt lið björgunarsveita
var þegar sent á staðinn ásamt lög-
reglumönnum og lækni. Mikil ófærð
var og fór snjóruðningstæki á undan
björgunarmönnum. Björgunarsveit-
armenn á vélsleðum voru fyrstir á
staðinn.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
(LHG) var strax kölluð út og flutti
fjóra kafara á vettvang. Um nóttina
voru 43 leitarmenn á 17 tækjum að
störfum og einn leitarhundur. Að-
stæður voru erfiðar vegna myrkurs
og veðurs. Gengið var með ánni auk
þess sem kafarar leituðu í henni á
völdum stöðum. Önnur þyrla LHG
kom með tíu manna hóp sem er sér-
hæfður í straumvatnsbjörgun.
Umfangsmikilli leit var haldið
sleitulaust áfram í gær. Björgunar-
sveitarfólk kom akandi á staðinn víða
að af landinu. Þar á meðal voru björg-
unarsveitir af Suðvestur- og Vestur-
landi. Einnig var sérstakur búðahóp-
ur frá íslensku alþjóðabjörgunar-
sveitinni kallaður út. Hátt í 50-60
manns voru við leit á hverjum tíma.
Síðdegis í gær höfðu samtals hátt í
þrjú hundruð manns komið að leit-
inni, að sögn Davíðs Más Bjarnason-
ar, hjá Slysavarnafélaginu Lands-
björg.
Dönsk herflugvél til hjálpar
Landhelgisgæslan óskaði eftir að-
stoð danska flughersins en C130
Hercules-flutningavél hans var
skammt frá landinu. Danir brugðust
strax við og sendu flugvélina til
landsins. Hún fór á loft frá Keflavík-
urflugvelli á fjórða tímanum síðdegis
í gær og flaug norður. Um borð voru
fimm starfsmenn LHG, þar af fjórir
kafarar, um 30 björgunarsveitar-
menn auk starfsmanna frá Rarik og
Landsneti. Einnig var um borð bún-
aður björgunarsveitanna, bíll sérað-
gerðasviðs LHG og rafstrengur til að
tengja varðskipið Þór við land á Dal-
vík. Að sögn lögreglunnar á Norður-
landi eystra var þörf á sérhæfðum
búnaði og sérhæfðum leitarmönnum
til að leysa af þá sem staðið höfðu
vaktina fram að því.
Lögreglan skrifaði á Facebook að
aðstæður á vettvangi væru mjög
krefjandi og lélegt skyggni á köflum.
Vakta þurfti ána að hluta því að hún
hlóð upp krapa sem gat síðan runnið
af stað með stuttum fyrirvara. Þar
með jókst straumurinn í ánni á því
svæði sem leitað var á. „Slíkt gerðist í
eitt skipti rétt fyrir klukkan 18 og
skapaðist þá ákveðin hætta en góð
viðbrögð og viðvaranir urðu til þess
að ekki hlaust slys af,“ skrifaði lög-
reglan.
Óvenjulega krefjandi aðstæður
Viðamikil leit björgunarsveita og kafara að ungum pilti sem féll í Núpá í Sölvadal árangurslaus í gær
Leit hefst að nýju af fullum krafti árdegis Hætta skapaðist um tíma Dönsk herflugvél til hjálpar
Ljósmynd/Landsbjörg
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ellefu dagar eru nú til jóla og hátíð-
arandinn er kominn yfir marga.
Ómissandi liður í jólahaldinu á
mörgum heimilum er Mackintosh-
sælgætið sem fylgt hefur þjóðinni
um áratugaskeið.
Nú ber svo við að breytingar hafa
verið gerðar á innihaldi Mackintosh-
dollunnar. Brúni karamellumolinn
sem notið hefur talsverðra vinsælda
er ekki lengur á boðstólum en í hans
stað er kominn skærgulur
moli. Undir
gulu um-
búð-
unum
leynist
súkkulaðihjúpuð
saltkaramella.
„Við höfum ekki fengið nein við-
brögð enn. Þetta kom bara svona úr
framleiðslunni fyrir jólin. Ég stjórna
þessu ekki,“ segir Ásgeir Magnús-
son, vörumerkjastjóri hjá Danól sem
flytur sælgætið inn.
Ólíklegt má telja að þessar breyt-
ingar hafi mikil áhrif á neyslu Mack-
intosh fyrir jólin, jafnvel þótt flestir
eigi sér uppáhaldsmola og margir
muni sakna þess brúna. Að sögn Ás-
geirs graðga Íslend-
ingar um
hundrað tonn
af Mackin-
tosh í sig
um hver
jól.
hdm@mbl.is
Nýr moli í Mackintosh-
dósunum fyrir jólin
Brúna molanum skipt út fyrir gulan
Kraumsverðlaunin voru afhent í
gær. Fjölbreyttur hópur tónlistar-
manna hlaut verðlaunin fyrir plötur
sínar. Listamennirnir og plöturnar
sem hlutu verðlaun eru:
Between Mountains - Between
Mountains, Bjarki - Happy
Earthday, Gróa - Í glimmer heimi,
Hlökk - Hulduljóð, K.óla - Allt verð-
ur alltílæ og Sunna Margrét - Art of
History.
Þetta var í tólfta sinn sem Kraum-
ur tónlistarsjóður Auroru velgerð-
arsjóðs stóð fyrir afhendingu
Kraumsverðlaunanna fyrir þær ís-
lensku hljómplötur sem þóttu skara
fram úr á árinu hvað varðar gæði,
metnað og frumleika. Verðlaunin
eru ekki bundin ákveðinni tónlist-
arstefnu og þeim fylgja engir und-
irflokkar. Alls hafa 69 hljómsveitir
og listamenn nú hlotið Kraums-
verðlaunin frá því að þau voru fyrst
veitt árið 2008. gudni@mbl.is
Sex plötur unnu til
Kraumsverðlauna