Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Eftirköst óveðursins
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mest seldu fjórhjól
á Íslandi síðastliðin 4 ár!
Verð frá
1.480.000
með vsk.
Jólaföt, skór
og jólagjafir
DIMMALIMM
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Mán.-fös. 10-18, lau. 10-20, sun. 13-17
5.795 kr.
Frá 6.795 kr.
8.895 kr.
6.595 kr.
Frá 8.895 kr.
til í svörtu
Fjöldi hrossa hefur grafist í snjó í vonskuveðri í Þingeyjarsýslu. Björg-
unarsveitin Brák í Borgarfirði bjargaði í gær 11 hrossum sem höfðu grafist
í snjó. Björgunarsveitarmenn unnu einnig að því að brjóta ísingu af spennu-
línum til að koma rafmagni á aftur á Norðurlandi í gær. Þeir fóru norður
yfir heiðar til að veita félögum sínum liðsinni. Matvælastofnun brýnir fyrir
hrossaeigendum að koma heyi til útigangshrossa og huga vel að ástandi
þeirra nú þegar rofað hefur til víða um land. Í kjölfar norðanáhlaups er
spáð frosthörku víðast hvar á landinu. Þetta kallar á aukið eftirlit og meiri
umhirðu hrossa á útigangi. Bent er á að nauðsynlegt geti verið að moka
leið að hrossum til að koma til þeirra heyi þar sem skaflar eru miklir.
Grófu upp 11 hross í Þingeyjarsýslu
Þrátt fyrir að veðurofsinn sé geng-
inn niður á Hvammstanga er allt á
kafi í snjó í bænum og nágrenni.
Þegar blaðamaður mbl.is var á ferð-
inni í Kaupfélagi Vestur-Húnvetn-
inga síðdegis í gær var Jóhanna Erla
Jóhannsdóttir, starfsmaður Kaup-
félagsins, að fylla körfuna fyrir
pöntun.
Matarpöntunin kom frá einum
sveitabæ á Vatnsnesi en þangað er
næstum því ófært og tók því björg-
unarsveitin á svæðinu að sér að
keyra út matarsendingar bæði fyrir
íbúa á sveitabæjum í nágrenni og
alla sem þurfa á að halda í bænum.
Aðspurð segir Jóhanna að talsvert
hafi verið um slíkar útkeyrslur í dag
og allir hjálpist að þegar svona af-
takaveður skelli á. thorsteinn@mbl.is
Björgunar-
sveitin keyrði
út matinn
Starfshópur um nauðsynlega inn-
viðauppbyggingu raforkukerfis
verður skipaður í dag. Frá þessu
greindi Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra í samtali við mbl.is
eftir fund í þjóðaröryggisráði í gær-
kvöldi. Hópnum er ætlað að fara yfir
og forgangsraða þeim aðgerðum
sem ráðast ber í til að koma í veg fyr-
ir að viðlíka rafmagnsleysi og varað
hefur víða á landsbyggðinni frá því á
þriðjudag geti komið fyrir á ný.
„Þetta er umfangsmesta raf-
magnsleysi sem við höfum séð á síð-
ari árum,“ segir Katrín og bætir við
að samfélagsbreytingar hafi gert
það að verkum að fjarskiptakerfi séu
sífellt háðari rafmagni.
Katrín áætlar að skipan hópsins
verði samþykkt á ríkisstjórnarfundi í
fyrramálið, en aðspurð segir hún að
„lykilfólk úr ráðuneytum“ muni
skipa hópinn. Honum er ætlað að
skila tillögum til fjögurra ráðherra,
forsætis-, fjármála-, iðnaðar- og
samgönguráðherra, sem muni fara
yfir þær.
Fundi þjóðaröryggisráðs lauk um
klukkan sex. Þar voru samankomnir
fulltrúar helstu viðbragðsaðila og
segir Katrín að tilgangur fundarins
hafi fyrst og fremst verið að sam-
ræma aðgerðir, „til að tryggja að all-
ir séu á sömu blaðsíðu“. Samkvæmt
heimildum blaðsins hyggst Katrín í
dag heimsækja þau svæði norðan-
lands þar sem aðstæður hafa verið
verstar í kjölfar óveðursins.
Auk forsætisráðherra og annarra
fulltrúa í ráðinu sátu fundinn í gær
ráðherrarnir Þórdís Kolbrún Reyk-
dal Gylfadóttir og Sigurður Ingi Jó-
hannsson. Þá voru þar fulltrúar al-
mannavarnadeildar
Ríkislögreglustjóra ásamt fulltrúa
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og Rauða kross Íslands og gerðu
þeir grein fyrir stöðu mála, hver á
sínu sviði, og samvinnu fjölmargra
aðila um land allt. Staða mála verður
rædd enn frekar á vettvangi ríkis-
stjórnarinnar á morgun þar sem
fjallað verður um nauðsynlegar að-
gerðir til skemmri og lengri tíma.
Vinnuhópur forgangsraðar
aðgerðum í raforkumálum
Forsætisráðherra heimsækir hamfarasvæðin í dag
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Ekkert rafmagn, ekkert net, eng-
inn sími, ekkert Tetra-samband og
ekkert varasamband. Þetta voru að-
stæðurnar á sjúkrahúsinu og heilsu-
gæslunni á Hvammstanga frá
þriðjudegi og þangað til í gærmorg-
un þegar rafmagn kom aftur á. Al-
dís Olga Jóhannesdóttir, svæðis-
fulltrúi heilbrigðismála á
Hvammstanga, segir að í raun hafi
það aðeins verið tilviljun að allt hafi
bjargast, en að bregðast þurfi við
svo álíka sambandsleysi við sjúkra-
stofnun geti ekki komið upp að
nýju.
Eins og víðar á Norðvesturlandi
datt rafmagn út á Hvammstanga á
þriðjudaginn í ofsaveðrinu. Í kjöl-
farið datt út nettenging og síma-
kerfi sem og farsímakerfið og
Tetra-fjarskiptakerfið, sem notað er
af viðbragðsaðilum. Á stofnuninni
starfa í heild á bilinu 50-60 manns,
en auk heilsugæslunnar eru á
sjúkrahúsinu 18 rúm og 2 hjúkr-
unarrými.
„Við í rauninni höfðum
ekkert til að taka við“
Aldís segir að þau hafi reynt að
hafa vaðið fyrir neðan sig og heyrt í
Rarik fyrir óveðrið. Þar hafi þau
svör fengist að ólíklegt væri að raf-
magnið myndi fara af og ef svo færi
yrði það í stutta stund. En svo datt
rafmagnið út og lítið sem tók við.
„Við í rauninni höfðum ekkert til að
taka við,“ segir Aldís, en engin
aukarafstöð er hjá stofnuninni eða
hjá sveitarfélaginu.
Höfuðljós urðu því að duga í
myrkrinu, en Aldís segir að sem
betur fer hafi ástand sjúklinganna
ekki verið þannig að rafmagnsleysið
hafi haft mikil áhrif. Þá var ekki
hægt að reka eldhúsið, en sjúkra-
húsið er í raun heimili þess fólks
sem þar er inni. Fyrr á þriðjudag-
inn hafði heilsugæslunni verið lok-
að, en til að tryggja mönnun á
sjúkrahúsinu segir Aldís að þau hafi
þurft að treysta á björgunarsveitir
til að sækja og skutla heim starfs-
fólki. Það hafi í heildina tekist mjög
vel.
„Ekki hægt að ná í lækni“
„Það var margt sem vann með
okkur, til dæmis útköll,“ segir Aldís
og bætir við að lítið hafi verið um
þau meðan rafmagnið var úti. „En
það datt allt út, við náðum ekki
símasambandi né sambandi við
Tetra-stöðvarnar. Það var því ekki
hægt að ná í lækni,“ segir hún, en
björgunarsveitir voru látnar vita að
þær þyrftu að koma með fólk á
staðinn ef þau vissu af einhverjum
sem þyrfti að komast undir lækn-
ishendur.
„Það var í raun bara heppni að
það var ekki eitthvað stórkostlegt
sem gerðist á þessum tíma,“ segir
hún. „Þetta bjargaðist í raun alveg
ótrúlega, en er langt í frá að vera
eðlilegt ástand eða vinnuumhverfi.“
Aldís segir að bregðast þurfi við
þessu ástandi sem fyrst og þar þurfi
fyrst og fremst að horfa til þess að
hafa vararafstöð. Segir hún að þeg-
ar sé komin upp umræða bæði inn-
an Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands og innan sveitarfélagsins um
það hvort hægt sé að koma upp
slíkri varaaflstöð.
Kerfin sem áttu að
virka duttu út
Þá segir hún mikilvægt að
tryggja betur að Tetra-kerfið virki.
„Það er kerfi sem á að virka í þess-
um aðstæðum.“ Nefnir hún líka
vandamál sem komu upp varðandi
að geta nálgast eldsneyti, en flestar
eldsneytisdælur eru rafmagnsdæl-
ur. „Þetta er alveg galið,“ segir hún.
Aldís segir að fólk hafi verið
viðbúið veðrinu að miklu leyti, en
skerðingin á innviðunum hafi verið
eitthvað sem kom öllum á óvart.
„Það var ekki hægt að ná fréttum
RÚV til dæmis,“ segir hún og játar
því aðspurð að bæjarfélagið hafi í
raun verið einangrað frá umheim-
inum.
Rafmagn komst aftur á Hvamms-
tanga í gærmorgun, en þegar mbl.is
ræddi við Aldísi var það enn flökt-
andi og hafði dottið tímabundið út
nokkrum sinnum yfir daginn.
Sjúkrastofnanirnar einangraðar
Án rafmagns, nets og síma á sjúkrahúsinu á Hvammstanga í tvo daga Ekkert varasamband var til
staðar Ómögulegt að ná í lækni Tetra-kerfið sem átti að virka í slæmum aðstæðum datt einnig út
Morgunblaðið/Eggert
Óveðrið Aldís Olga Jóhannesdóttir, svæðisfulltrúi heilbrigðismála á Hvammstanga, segir að kerfin sem áttu að
virka hafi brugðist. Sem betur fer var ástand sjúklinga ekki þannig að rafmagnsleysið hefði mikil áhrif.