Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Lariat Sport
Litur: Magnetic/ Svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque
Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up-
phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart
og trappa í hlera, Driver alert og distronic,
Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél.
VERÐ
10.129.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö,
togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi-
tanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology
pakki. 35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn-
davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í
öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat
Litur: Platinumhvítur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang &
Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum,
hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6),
10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsnet telur að styrkja þurfi
flutningskerfi raforku á Norðurlandi
og fjölga varaleiðum. Uppbygging
kerfisins, til dæmis byggðalínunnar
á Norðurlandi, hefur tafist. Ástæðan
er óskilvirkt leyfisveitingakerfi og
óskýrar reglur, að sögn Guðmundar
Inga Ásmundssonar forstjóra.
„Það er alltaf skynsamlegt eftir
svona hamfarir að fara yfir áætlanir
og breyta áherslum ef það sýnist til
bóta. Við gerum það alltaf við svona
áföll,“ segir Guðmundur Ingi þegar
hann er spurður hvort von sé á
áherslubreytingum við uppbyggingu
flutningskerfisins vegna þeirra
miklu skemmda sem urðu í óveðrinu
og þeirra afleiðinga sem það hafði.
Guðmundur segir aðstæður hafa
um margt verið óvenjulegar. Trufl-
anir hafi orðið stöðum sem ekki séu
þekktir fyrir það. „Við fengum gríð-
arlegan vind og mikla ófærð og svo
hlóðst saltmengaður ís á línurnar
sem liggja með ströndinni. Á Norð-
ur- og Austurlandi var afar slæmt
veður en í raun fengum við útleys-
ingu rafmagns um allt land. Þetta
reyndi mikið á raforkukerfið. Það
stóðst mjög vel á Suður- og Vest-
urlandi en það sama er ekki hægt að
segja um stöðuna á Norðurlandi þar
sem verulegar skemmdir urðu og á
tímabili á Austurlandi.“
„Við höfum lengi bent á að styrkja
þurfi raforkuflutningskerfið á þess-
um svæðum og fjölga flutningsleið-
um til þess að hafa varaleiðir til að
koma rafmagninu eftir, þegar á þarf
að halda. Hefur þetta gengið hægar
en við vildum,“ segir Guðmundur.
Spurður um ástæður þess segir
hann: „Það er fyrst og fremst vegna
þess hversu hægt
hefur gengið að
fá leyfi til fram-
kvæmda. Undan-
farin þrjú ár höf-
um við ekki geta
framkvæmt nema
ríflega helming-
inn af því sem við
höfum áætlað.“
Leyfisveitinga-
kerfið er að hans
sögn óskilvirkt og reglurnar sem
fyrirtækinu er ætlað að fara eftir
óskýrar. Allt ferlið taki lengri tíma
en vera þyrfti. „Það þarf að endur-
skoða allt ferlið, einfalda það og hafa
reglur skýrari. Síðan þarf að setja
mannskap og fjármagn inn í þær
stofnanir sem um þetta fjalla.“ Hann
nefnir umhverfismat og skipulags-
mál í þessu efni.
Byggðalínan í forgangi
Landsnet áætlar að framkvæma
fyrir 8-9 milljarða á ári næstu tíu ár-
in. Raunar hefur það einnig verið
áætlað síðustu árin en ekki gengið
eftir nema að hluta.
Spurður hvað brýnast sé að gera
segir Guðmundur Ingi að unnið hafi
verið að því að byggja upp kerfið um
land allt. „Ef við förum yfir lands-
hlutana sem mesta álagið var á
núna, Norðurland og Vestfirði, þá
höfum við lagt áherslu á að endur-
nýja byggðalínuna með því að
byggja línu af nýrri kynslóð við hlið-
ina á þeirri gömlu.“ Hann nefnir að
línan frá Fljótsdalsstöð um Akureyri
og að Blöndustöð sé í forgangi.
Henni er skipt í þrennt. Fram-
kvæmdir eru þegar hafnar við lagn-
ingu Kröflulínu 3 úr Fljótsdal í
Kröflu. Hann segir að vonandi hefj-
ist framkvæmdir við Hólasandslínu
3 frá Hólasandi til Akureyrar á
næsta ári. Þá sé Blöndulína 3 sem
liggur frá Akureyri til Blöndu í um-
hverfismati öðru sinni og samráðs-
ferli.
„Við erum einnig með minni fram-
kvæmdir í gangi til að tryggja af-
hendingaröryggi byggðanna út frá
sterku miðlægu flutningskerfi. Við
erum að byggja tvær nýjar spenni-
stöðvar í Varmahlíð og á Sauðár-
króki og jarðstreng á milli þeirra
sem bæta mun stöðuna á Sauðár-
króki. Við höfum haft þá stefnu að
byggja hús yfir allar nýjar spenni-
stöðvar, meðal annars til að losna við
áhrif veðurs á rekstur þeirra. Slíkar
stöðvar verða á nýju byggðalínunni
og í Skagafirði. Við erum þegar bún-
ir að byggja tvær slíkar stöðvar á
Snæfellsnesi, eina á Hvolsvelli og
nýjan afhendingarstað við Þjórsá.“
Tvöföldun línunnar til Dalvíkur er
á tíu ára áætlun en hefur ekki verið
tímasett og endurnýjun Kópaskers-
línu er ekki inni í áætlunum, að sögn
Guðmundar, en báðar þessar línur
skemmdust í óveðrinu.
Hvalá hefði hjálpað
Vestfirðir eru aðeins tengdir við
meginflutningskerfið með einni línu.
Hún fór í óveðrinu, eins og oft áður,
en Vestfirðingar fengu rafmagn frá
Mjólkárvirkjun og varaflsstöðvum
sem reknar eru með dísilolíu. Af-
hending var þó skert. Guðmundur
segir að unnið sé að ýmsum verk-
efnum á Vestfjörðum, meðal annars
hringtengingu. Spurður um áhrif
aukinnar raforkuframleiðslu frá
Hvalá eða virkjunum í Djúpi segir
Guðmundur Ingi að ef Hvalárvirkj-
un hefði verið komin í gagnið hefði
dregið mjög úr truflunum á Vest-
fjörðum í þessu óveðri.
Morgunblaðið/Eggert
Raforka Starfsmenn RARIK unnu í gær að viðgerðum víða um land, m.a. við spennuvirki í Hrútafirði.
Óskilvirkt leyfisveit-
ingakerfi tefur fyrir
Forstjóri Landsnets segir að áætlanir verði endurskoðaðar
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Tilkynningar um tjón í kjölfar veður-
ofsa á þriðjudag eru farin að berast
tryggingafélögum. Er helst um að
ræða tjón á ökutækjum og húsum,
s.s. rúðubrot, þakskemmdir og
skemmdir á klæðningum. Hjá einu
tryggingafélagi sem Morgunblaðið
ræddi við í gær voru langflestar til-
kynningar frá Vestmannaeyjum, en
þar fóru vindhviður upp í 52 m/s.
„Við erum að fá til okkar tilkynn-
ingar af öllu landinu, flestar þeirra
hafa þó komið frá Vestmannaeyj-
um,“ segir Sigurjón Andrésson,
markaðsstjóri hjá Sjóvá, en alls
höfðu 30 tilkynningar um tjón borist
Sjóvá í gær og voru 20 frá Eyjum.
„Það koma eflaust fleiri tilkynn-
ingar á morgun. En fólk er auðvitað
bara enn að reyna að ganga frá því
sem hægt er og svo fer það að huga
að tryggingunum,“ segir Sigurjón.
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sér-
fræðingur í forvörnum hjá VÍS, seg-
ir tilkynnt tjón vera um 30.
„Þetta eru skemmdir á húseign-
um, bílum og bátum. Einnig erum
við að fá tilkynningar vegna afleið-
inga rafmagnsleysis,“ segir hún.
Björk Viðarsdóttir, hjá tjónaþjónustu
TM, segir tilkynningar um tjón fara
fremur rólega af stað, en í gær voru
tilkynnt tjón 26 talsins.
„Okkur hafa nú ekki borist mjög
mörg símtöl, en auðvitað hafa ekki
allir haft tækifæri á að kanna sína
stöðu mjög náið. Það má því búast við
fleiri tilkynningum á næstu dögum,“
segir hún og bætir við að þær tilkynn-
ingar sem þó hafi borist séu frá fólki
um allt land. Er um að ræða marg-
þætt tjón, að hennar sögn.
„Þetta eru hin hefðbundnu foktjón
þar sem klæðningar losna, gluggar
brotna og dót fýkur á ökutæki. Þetta
er af ýmsum toga,“ segir hún.
Matvæli skemmast í kælum
Víðtækar truflanir hafa verið á
dreifikerfi rafmagns, einkum á Norð-
urlandi. Björk segir fólk hafa sett sig
í samband við tryggingafélagið vegna
þessa eftir að matvæli í frysti- og
kæligeymslum tóku að skemmast í
rafmagnsleysinu. Aðspurð segir hún
innbústryggingar einstaklinga geta
náð yfir þess háttar tjón. Eins geta
kaupmenn fengið tjón sitt bætt, séu
þeir tryggðir.
Tilkynningar
berast um tjón
Um 90 tilkynningar borist og von á
fleirum Margar koma frá Eyjum
Eftirköst óveðursins
Blaðamaður og ljósmyndari Morg-
unblaðsins og mbl.is voru á ferð um
hamfarasvæðið fyrir norðan í gær
og halda áfram ferð sinni í dag.
Auk þess sem afrakstur ferð-
arinnar birtist hér í blaðinu í dag
og á morgun eru fjölmargar fréttir
og frásagnir af ástandinu og viðtöl
við fólk á svæðinu á mbl.is. Þar er
meðal annars rætt við kúabændur á
Bessastöðum við Miðfjörð sem
lentu illa í rafmagnsleysinu og
þurftu að hella niður yfir 2.000 lítr-
um af mjólk.
Fleiri fréttir
á mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hvammstangi Gífurlegum snjó hefur kyngt niður síðustu daga.