Morgunblaðið - 13.12.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu
- Fyrir jólaboðin -
Hangikjöt, hamborgarhryggur,
nautakjöt og villibráð
Gæða
kjötvörur
Þeir sem nú stýra Reykjavík-urborg hafa þann háttinn á að
eiga sem minnst samráð við borg-
arbúa, hlusta ekki á umkvartanir
eða ábendingar og takmarka að-
gengi að borgarstjóra þannig að al-
mennir borgarbúar eigi þess engan
kost að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri. Um þetta eru því miður
fjölmörg dæmi sem ekki verða rak-
in hér enda mörg hver vel þekkt.
Sennilega veit meirihlutinn í borg-
arstjórn af þessu þó að hann viður-
kenni það ekki og ef til vill er það
þess vegna sem hann heldur kosn-
ingar á hverju ári um eitt og annað
smálegt.
Þátttaka í þessum kosningum,sem heita nú Hverfið mitt, hef-
ur verið með fádæmum léleg. Borg-
in birti engu að síður frétt á vef sín-
um í fyrradag þar sem sagði í
fyrirsögn: Besta kosningaþátttakan
til þessa.
Þessi besta kosningaþátttakasögunnar var þegar nánar var
gáð rúm 12% og innan skekkju-
marka sú sama og árið áður. Hún
er að vísu skárri en þegar verst lét
fyrir nokkrum árum þegar hún fór
undir 6%, en auðvitað lýsa þessar
tölur engu öðru en því að áhugi á
kosningunum er nánast enginn.
Væri ekki nær fyrir borgina aðskoða það hvers vegna svo lít-
ill áhugi er á að taka þátt frekar en
að hrósa sér af því að þátttaka auk-
ist um eitt prómill eða svo? Vilji
borgaryfirvöld veg beins lýðræðis
meiri er örugglega ekki rétta leiðin
að umgangast það með þessum
hætti.
Að hrósa sér
fyrir ekki neitt
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kristinn Borgar Indr-
iði Jónsson, fyrrver-
andi óðalsbóndi á
Skarði á Skarðsströnd
og lögreglumaður, lést
á Landspítalanum
laugardaginn 7. desem-
ber, 75 ára gamall, eftir
skammvinn veikindi.
Hann fæddist 28.
nóvember 1944 á
Skarði og var sonur
þeirra Jóns Gunnars
Jónssonar bónda frá
Stykkishólmi og Ingi-
bjargar Kristrúnar
Kristinsdóttur, húsfreyju af Skarðs-
ætt. Ingibjörg var dóttir Kristins
Indriðasonar og Elínborgar Boga-
dóttur Magnusen. Elínborg var
dóttir Boga Magnusen, bónda og
hagleiksmanns í Skarði.
Engin jörð hér á landi hefur verið
lengur í eigu sömu ættar en Skarð á
Skarðsströnd. Heimildir eru um að á
12. öld hafi Húnbogi Þorgilsson,
bróðir Ara fróða, búið á Skarði. Af-
komendur Húnboga hafa búið þar
síðan óslitið, að undanteknum tveim-
ur áratugum í lok 18. aldar. Meðal
þekktustu ábúenda á Skarði er Ólöf
ríka sem bjó þar með bónda sínum,
Birni hirðstjóra. Kristinn var 27. lið-
ur af ætt Skarðsverja.
Kristinn fékk
kennslu í farskóla í
sveitinni og sótti síðar
námskeið fyrir lög-
reglumenn. Kristinn
og Þórunn, kona hans,
voru fjárbændur frá
því að þau tóku við búi
á Skarði ásamt Ólafi
Eggertssyni á Skarði
II. Einnig stundaði
hann skólaakstur í 43
ár og starfaði sem lög-
reglumaður í Búðardal
og síðar sem héraðs-
lögreglumaður í 38 ár.
Hann hafði unun af sjósókn og réri
til fiskjar frá unga aldri ásamt því að
stunda selveiðar og fara í eyjar og
sker til dún- og eggjatekju. Dún-
hreinsistöð var lengi starfrækt á
Skarði og lagði hann þar sitt lið.
Kristinn kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni Þórunni Hilmarsdóttur
(f. 1944) hinn 8. janúar 1967. Þau
eignuðust þrjú börn; Hilmar Jón, ör-
yggisfulltrúa og fyrrverandi lög-
reglumann, Boga Magnusen skipu-
lagsfulltrúa og Ingibjörgu Dögg
tannsmið. Barnabörnin eru níu og
barnabarnabörnin sjö talsins.
Útför Kristins er ráðgerð frá
Skarðskirkju sunnudaginn 22. des-
ember kl. 14.
Andlát
Kristinn Borgar Indriði
Jónsson á Skarði
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum trú á þessari rekstr-
arbreytingu og framhaldið lofar
góðu, segir Elías Guðmundsson, frá-
farandi framkvæmdastjóri bænda-
markaðarins Frú Laugu við Lauga-
læk.
Morgunblaðið greindi frá því fyrir
réttum mánuði að rekstur versl-
unarinnar væri til sölu, að Frú
Lauga væri á lausu. Óhætt er að
segja að þessi uppfærða hjúskap-
arstaða Frúarinnar hafi vakið mikla
athygli og ekki leið á löngu áður en
áhugasamir vonbiðlar fóru að stíga í
vænginn við hana. Nú er Frú Lauga
gengin út.
Rekstur Frú Laugu hefur verið
sameinaður Bændum í bænum.
Samnefnd verslun hefur verið rekin
á Grensásvegi 10 þar sem áhersla
hefur verið lögð á sölu lífræns græn-
metis og lífrænnar þurrvöru. Þegar
er byrjað að flytja Bændur í bænum
inn á Laugalæk og á nýju ári fær
sameinuð verslun nafnið Frú Lauga
og bændurnir.
„Viðskiptavinir hér munu sjá bæði
meira og fjölbreyttara vöruúrval í
kjölfar sameiningarinnar. Við erum
þegar farin að sjá verulega aukningu
í viðskiptum og viðskiptavinir hafa
tekið vel í þessar breytingar,“ segir
Elías.
Frú Lauga var ekki lengi á lausu
Bændur í bænum flytja inn á Frúna við Laugalæk og reksturinn sameinaður
Morgunblaðið/Eggert
Frú Lauga Hefur fest ráð sitt.