Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
30-50%
afsláttur af
allri jólavöru
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
LISTHÚSINU
Jólagjafirnar
fást í Kaiu
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarka
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta er algjörlega óþolandi
ástand,“ sagði Ólafur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Ramma hf. í
Fjallabyggð, um aðstæður sem
sköpuðust vegna óveðursins fyrr í
vikunni. „Við höfum ekkert getað
unnið hér í nokkra daga. Það hefur
ekki verið hægt að landa úr skipum.
Við höfum beðið milli vonar og ótta
um ástandið í frystiklefunum. Þar
eru mörg hundruð milljóna króna
verðmæti. Við höldum að afurðirnar
hafi sloppið en hráefnið, óunnin
rækja, er orðið ónýtt vegna þess að
við gátum ekki unnið það,“ sagði
Ólafur. Hann sagði ekki búandi við
þetta ástand.
Rammi hf. er með rækjuvinnslu á
Siglufirði. Þar er líka landað bolfiski
úr frystiskipum og ísfiskskipum.
Fyrirtækið er ekki með varaaflstöð
en var að fá lánaða 400 kW rafstöð til
að tryggja að frost héldist í frysti-
geymslunum. Ólafur kveðst vona að
rafveitukerfið lagist sem fyrst.
Fjárfesta þarf í innviðunum
„Ég held að vinnslur á þessu
svæði hvort sem um er að ræða Dal-
vík, Siglufjörð eða Sauðárkrók, geti
borið vitni um að það er ekki búandi
við þetta ástand,“ sagði Ólafur. En
hvers vegna er þetta svona og hvað
þarf að gera til að bæta úr?
„Ég held að þetta sé að einhverju
leyti skipulagsleysi og líka skortur á
fjárfestingu,“ sagði Ólafur. „Ég held
að það megi hreinlega kenna fyrir-
hyggjuleysi og vanrækslu um bil-
unina sem varð í Skeiðsfossvirkjun.“
Virkjunin er í Fljótum og aflar Siglu-
firði rafmagns.
Voru algjörlega einangruð
„Það þarf að fjárfesta miklu meira í
raforkukerfinu. Svo þurfa að vera
varaaflstöðvar fyrir hitaveituna og
ótrúlegt að svo skuli ekki vera. Einnig
er undarlegt að varaafl á Tetra-kerfinu
séu rafgeymar, ef ég skil þetta rétt.
Þegar þeir tæmast þá er allt úti,“ sagði
Ólafur. „Hér lá allt niðri. Ég er svo
heppinn að eiga gamlan bíl og geta
hlustað í honum á útvarpið á lang-
bylgju, sem þó heyrist ekki vel hér í
Siglufirði. FM-útvarpið datt út, Ríkis-
sjónvarpið, farsímasambandið líka og
landlínan. Við vorum algjörlega ein-
angruð.“ Hann sagði að í fyrradag
hefði komið rafmagn um stund svo
ljósin kviknuðu og hitaveitan komst í
gang svo það hlýnaði í húsunum. Svo
fór rafmagnið af í fyrrinótt þannig að í
gærmorgun var ekkert rafmagn, allt
dimmt og kalt og enginn sími.
Ólafur segist ekki vita hver for-
gangsraðar rafmagninu þegar því er
hleypt aftur á, en atvinnufyrirtækin
séu síðust í röðinni. Það sé skiljan-
legt að fólk þurfi hita og ljós, en hjá
fyrirtækjunum liggi mikil verðmæti
undir skemmdum. Hann segir nokk-
uð borðleggjandi að Rammi hf. þurfi
að koma sér upp varaaflstöð því
reynslan sýni að ekki sé hægt að
treysta á raforkukerfið.
Algjörlega óþolandi ástand
Hundraða milljóna
verðmæti í hættu
vegna rafmagnsleysis
á Siglufirði
Ljósmynd/Mikael Sigurðsson
Siglufjörður Varðskipið Þór kom til Siglufjarðar með rafstöð sem sótt var til Ísafjarðar. Skipið fór svo til Dalvíkur þar sem það verður rafstöð fyrir bæinn.
Eftirköst óveðursins