Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Opið
alla daga
til jóla
Glæsilegar
jólagjafir
Peysujakki
Kr. 8.900.-
Str. M-XXXL
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárlaganefnd hefur lagt fram
breytingartillögu á fjáraukalögum
svo ráðstafa megi hundruðum
milljóna króna til lögreglunnar.
Um er að ræða 353 milljónir króna
sem ætlað er að efla lögregluna í að-
gerðum hennar
gegn skipulagðri
brotastarfsemi.
Þá kemur rúm-
lega 44 milljóna
króna framlag úr
ríkissjóði, alls um
400 milljónir.
„Tillagan gerir
ráð fyrir að hluta
ávinnings sem
gerður var upp-
tækur í kjölfar
sameiginlegra rannsóknaraðgerða
bandarískra og íslenskra stjórnvalda
í svokölluðu „Silk Road-máli“ verði
ráðstafað til að efla lögregluna, þá
sérstaklega í aðgerðum hennar gegn
skipulagðri brotastarfsemi, og er
þetta framlag fyrst og fremst ætlað
til búnaðarkaupa,“ segir í tillögunni.
Hafa fengið fjármunina
Willum Þór Þórsson, formaður
fjárlaganefndar og flutningsmaður
tillögunnar, segir ríkissjóð þegar
hafa fengið umrædda fjármuni til
ráðstöfunar. Hins vegar hafi skort
fjárfestingarheimild á móti svo ráð-
stafa mætti þessum fjármunum.
Með samþykkt breytingartillögunn-
ar verði sú heimild veitt. Hann segir
aðspurður að framlagið muni renna
til lögreglunnar í landinu í barátt-
unni gegn skipulagðri glæpastarf-
semi, einkum til kaupa á tækjum.
Á forræði ráðherra
Fjárfestingarframlagið sé á for-
ræði dómsmálaráðherra sem muni
væntanlega ákveða í samvinnu við
lögregluna hvert fjármunirnir fari.
Silk Road var alþjóðleg vefsíða
þar sem meðal annars fíkniefni voru
boðin til sölu. Silk Road-netþjónninn
var hýstur hér á landi.
Sagt var frá því á mbl.is í júní 2015
að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
aflaði mikilvægra gagna í rannsókn
sakamáls sem leiddi til þess að
bandaríska alríkislögreglan (FBI)
hafði hendur í hári Ross Ulbricht,
sem stýrði vefsíðunni Silk Road.
Fram kom í dómsorðum yfir Ul-
bricht við rétt í New York-ríki að
vefsíðan hafi verið notuð af nokkur
þúsund eiturlyfjasölum sem hafi
dreift hundruð kílóa af fíkniefnum til
yfir hundrað þúsund kaupenda um
heim allan. Þá hafi vefsíðan verið
notuð til að þvætta hundruð milljóna
dala. Ulbrict hafi haft tugi milljóna
dala í þóknunartekjur vegna við-
skiptanna og reynt að ráða leigu-
morðingja til að ráða þá sem stóðu í
vegi fyrir viðskiptunum af dögum.
Mun færa lögreglunni
hundruð milljóna króna
Tillaga um fjárheimild vegna ávinnings í Silk Road-máli
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Löggæsla efld Lögreglan mun fá fjármuni til tækjakaupa til að efla baráttu
gegn skipulagðri brotastarfsemi. Slík brot hafa færst í vöxt á Íslandi.
Willum Þór
Þórsson
Ross Ulbricht
varð 35 ára í
mars síðast-
liðnum. Hann
var á yngri
árum betur
þekktur undir
dulnefnum sín-
um á netinu.
Ulbricht var
ágætur námsmaður og útskrif-
aðist sem eðlisfræðingur frá Tex-
as-háskóla í Dallas. Síðan lá leiðin
til ríkisháskólans í Pennsylvaníu
en þaðan útskrifaðist hann með
meistarapróf í verkfræði.
Á þessum árum fór hann að að-
hyllast kenningar frjálshyggj-
unnar um takmörkuð ríkisafskipti
og rétt einstaklingsins til athafna
án íþyngjandi afskipta ríkisvalds-
ins. Út frá þessum hugmyndum
stofnaði hann vefsíðuna Silk
Road, eða Silkiveginn, sem ætlað
var að vera vettvangur fyrir ein-
staklinga til að skiptast á vörum
að vild, burtséð frá því hvort þær
væru löglegar. Skyldu viðskiptin
fara fram með rafmyntinni bitco-
in. Buðu notendur meðal annars
eiturlyf til sölu. Vefsíðan var á
djúpvefnum (e. Deep Web), þeim
hluta veraldarvefsins sem er
ómerktur, en almennar leitarvélar
finna ekki ómerktar vefsíður.
Ulbricht var ákærður fyrir pen-
ingaþvætti, tölvuinnbrot og að-
komu að dreifingu fíkniefna.
Hann fékk þungan dóm og mun
að óbreyttu verja því sem hann á
ólifað á bak við lás og slá.
Hugsjón varð
að martröð
FALIN VEFSÍÐA
Ross Ulbricht