Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
● Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs
(VNV) hækki um 0,4% á milli mánaða. Spá bankans er 0,1%
lægri en í síðustu spá frá nóvember. Hagstofan mun birta desem-
bermælingu VNV 19. desember. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða
verðbólga minnka úr 2,7% í 2,3%. Bankinn gerir ráð fyrir hækkun
á flugfargjöldum til útlanda á milli mánaða sem og m.v. desem-
bermánuð í fyrra. Þá býst deildin við að reiknuð húsaleiga hækki
um 0,5% á milli mánaða. Samkvæmt verðkönnum hækkar árs-
hækkun því um 0,3% og í 3,3%. Samkvæmt verðkönnun bank-
ans hefur verð á bensíni og dísilolíu lækkað á milli mánaða, og farið lækkandi síðan í
maí. Vegur það þungt í nýrri spá ásamt styrkingu krónu í desember.
Spá því að verðbólga muni minnka
Verðbólga Olíu-
verð lækkar.
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tek-
ið í notkun nýjan eftirlitshugbúnað,
Scila Surveillance, og mun hann
sinna markaðseftirliti í þeim til-
gangi að sporna við markaðsmis-
notkun og innherjaviðskiptum.
Hugbúnaðurinn sem fylgist með
mörkuðum í rauntíma er frá
sænska fyrirtækinu Scila AB sem
starfrækt er í Stokkhólmi og sér-
hæfir sig í gerð eftirlitshugbún-
aðar. „Við seljum hugbúnaðinn
okkar til eftirlitsaðila, kauphalla og
ýmissa aðila á fjármálamarkaði svo
sem banka,“ segir Lars Gräns,
sölustjóri Scila, og bætir við að
fyrirtækið sinni nú um 50 við-
skiptavinum í um 20 löndum.
Sjálfvirk greining
„Kerfið tengist svokölluðum
frumkerfum sem framleiða gögn
eins og kauphallirnar. Þannig fáum
við upplýsingar um öll viðskipti
sem eiga sér stað og í ýmsum til-
vikum tengjumst við fleiri kerfum í
einu til að mynda fleiri kauphöllum.
Við tökum þessi gögn og keyrum
þau í gegnum algrím sem kort-
leggja hreyfingar á markaði. Við
erum með um hundrað algrím sem
greina markaðshegðun sem getur
gefið vísbendingar um innherjavið-
skipti, markaðsmisnotkun eða
sýndarviðskipti (e. layering/spoof-
ing),“ útskýrir Gräns.
Þegar kerfið greinir óeðlilega
hegðun á markaði sendir það frá
sér tilkynningu til notandans sem
þá getur séð tilefni til þess að rann-
saka málið frekar, að sögn Gräns.
Sé ástæða til þess að hefja skoðun
er stofnuð málaskrá og safnast þau
gögn sem tengjast umræddu máli í
hana og er hún aðgengileg fyrir þá
starfsmenn sem sinna umræddu
eftirliti, sem um sinn auðveldar
samskipti innan og milli deilda.
Persónuvernd tryggð
Spurður hvernig sé tryggt að
hugbúnaðurinn uppfylli ströng per-
sónuverndarskilyrði laga, svarar
Gräns að flestir eftirlitsaðilar, eins
og í tilfelli FME, hýsi hugbúnaðinn
í eigin kerfum og að fyrirtækið hafi
ekki aðgang að þeim. „Það eru til-
felli þar sem við hýsum eftirlits-
kerfið fyrir viðskiptavin, en þá
liggja fyrir samningar sem varða
meðal annars skilyrði GDPR (per-
sónuverndartilskipun ESB).“
„Fjármálaeftirlitið hefur í nokk-
urn tíma verið að skoða að fá svona
kerfi og var farið í útboð sem lauk
sumarið 2018 og síðan þá hefur átt
sér stað mikil vinna við að innleiða
kerfið frá Scila. Það er síðan nýlega
sem við innleiddum það að fullu,“
segir Páll Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri markaða og við-
skiptahátta hjá Fjármálaeftirlitinu.
Nýttu heimasmíðuð tól
„Öll fjármálafyrirtæki sem fram-
kvæma viðskipti með fjármálagern-
inga sem eru í viðskiptum í kaup-
höllinni þurfa að tilkynna þau til
okkar. Þetta er töluvert mikið af
gögnum sem fara inn í kerfið. Við
erum að fá á hverjum degi mörg
hundruð eða jafnvel yfir þúsund
færslur. Það er mjög erfitt að nýta
þessi gögn nema maður hafi kerfi
sem greinir gögnin á kerfisbundinn
hátt og getur með sjálfvirkum
hætti látið okkur vita ef einhver
viðskipti virðast grunsamleg eða
óeðlileg með einhverjum hætti,“
segir Páll.
„Þetta breytir töluverðu fyrir
okkur, við höfum ekki haft neitt
sambærilegt kerfi,“ svarar hann er
blaðamaður spyr hvort hugbúnað-
urinn muni hafa mikil áhrif á eft-
irlit stofnunarinnar. Páll segir að
Fjármálaeftirlitið hafi til þessa
stuðst við heimasmíðuð tól til þess
að greina þau gögn sem berast.
Viðskiptagögn hafa meðal annars
verið færð inn í excel til greiningar
á mögulegum markaðssvikum. Í
nýja kerfinu er þó ekki aðeins
stuðst við tilkynningar heldur einn-
ig upplýsingar um viðskipti frá
Kauphöllinni sem og tilboðsbækur,
fréttastrauma og innherjalista.
„Hérna erum við komin á allt ann-
an stað. Við erum komin með öflugt
kerfi sem greinir með sjálfvirkum
hætti og […] erum komin með
miklu betra tæki.“
Hugbúnaður eflir starf FME
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sjálfvirkni FME hefur tekið í gagnið sænskan hugbúnað sem mun greina háttsemi aðila á verðbréfamarkaði.
Ferlið tók 18 mánuði
» Í apríl 2018 hóf FME útboðs-
ferli vegna verðbréfaeftirlits-
kerfis. Í ársskýrlu FME 2019
segir að „markmiðið með út-
boðinu var að kaupa hugbúnað
sem merkir á sjálfvirkan hátt
grunsamleg viðskipti á mark-
aði, aðstoðar við greiningu á
viðskiptagögnum og getur
haldið utan um mál í rann-
sókn“.
» Þegar útboðinu lauk var
gengið frá samningum við
Scila AB og var gert ráð fyrir
því að kerfið yrði tekið í notkun
á öðrum fjórðungi þessa árs,
en það kom í gagnið í október.
» Kerfið er talið auðvelda Fjár-
málaeftirlitinu að greina hvers
kyns markaðsmisnotkun og
innherjasvik á íslenska verð-
bréfamarkaðnum.
Fyrsta kerfi sinnar tegundar við eftirlit hér á landi Um hundrað algrím greina viðskiptahætti á
markaði til að greina markaðssvik Talið hafa í för með sér töluverðar breytingar á eftirlitsstarfi FME
Páll FriðrikssonLars Gräns
Ómissandi á
veisluborðið
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland búðir, Samkaup Kjörbúðir,
Samkaup Krambúðir,Melabúðin, Nettó verslanir út um land allt.
Reyktur
og lax
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.