Morgunblaðið - 13.12.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Byltingarkennd nýjung í
margskiptum glerjum
50–65% stærra lessvæði
Fiskeldisfyrirtæki landsins virðast al-
mennt hafa búið sig vel undir óveðrið
sem gekk yfir landið í vikunni og tjón
af völdum þess varð því óverulegt.
Sigurður Helgi Ólafsson, lands-
stjóri Stolt Sea Farm, sem ræktar
senegalflúru á Reykjanesi, segir að
óveðrið hafi haft óveruleg áhrif á
fyrirtækið. „Við bjuggum okkur vel
undir þetta og fjarlægðum allt laus-
legt. Það varð smávægileg skemmd á
byggingum, en ekkert alvarlegt. Við
teljum okkur hafa sloppið vel og
starfsemin var öll í eðlilegum far-
vegi.“
Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Laxa fiskeldis á Aust-
fjörðum, sem ræktar lax í sjókvíum á
Reyðarfirði, segir að sjóbúnaður fé-
lagsins sé hannaður til að standa af
sér mjög vond veður. „Kvíarnar geta
staðið af sér sjö til átta metra öldu-
hæð, mun meira en það sem gekk á
núna í vikunni. Einu áhrifin sem veðr-
ið hafði var að það var ekki hægt að
fara með fisk til slátrunar frá Reyð-
arfirði og til Búlandstinds á Djúpa-
vogi í tvo daga,“ segir Jens í samtali
við Morgunblaðið.
Alla jafna slátra Laxar 80 tonnum á
fiski á degi hverjum. Sagði Jens að
slátrun myndi hefjast á ný í dag,
föstudag, ef veður leyfði.
Sagði Jens Garðar aðspurður hvort
eitthvert fjárhagslegt tjón hlytist af
þessu að það væru alltaf ákveðnar bú-
sifjar ef sláturdagar dyttu niður, en
við því mætti þó alltaf búast á Íslandi.
Útslættir í rafmagni
Hjá Arctic Fish, sem elur fisk í kví-
um í Dýrafirði, Tálknafirði og Fá-
skrúðsfirði, og slátrar og pakkar fisk-
inum hjá Arnarlaxi á Bíldudal,
fengust þær upplýsingar að einu af-
leiðingar óveðursins hefðu verið smá
útslættir í rafmagni, eins og Sigurður
Pétursson, verkefnastjóri þjónustu-
sviðs, orðar það í samtali við Morg-
unblaðið. „Menn voru vel undirbúnir
og þetta var því bara eitthvað smá-
vægilegt. Veðrið var heldur ekki eins
slæmt og útlit var fyrir. Í raun fór
betur en á horfðist.“
Valdimar Ottósson, svæðisstjóri
Arnarlax á Bíldudal, tók í sama
streng. Allt hefði gengið vel. „Einu
áhrifin voru að við gátum ekki sótt
fisk í slátrun í einn dag. Annars er allt
í flottum málum.“ tobj@mbl.is
Veður Víða varð tjón á landinu vegna óveðursins í vikunni.
Eldisfyrirtæki
vel undirbúin
Slátrun stöðvaðist í tvo daga
13. desember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.6 122.18 121.89
Sterlingspund 159.9 160.68 160.29
Kanadadalur 91.81 92.35 92.08
Dönsk króna 18.025 18.131 18.078
Norsk króna 13.269 13.347 13.308
Sænsk króna 12.884 12.96 12.922
Svissn. franki 123.43 124.11 123.77
Japanskt jen 1.1183 1.1249 1.1216
SDR 167.49 168.49 167.99
Evra 134.72 135.48 135.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.4284
Hrávöruverð
Gull 1468.05 ($/únsa)
Ál 1751.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.0 ($/fatið) Brent
Hlutabréf Saudi Aramco, ríkisol-
íufélags Sádi-Arabíu, sem tekin
voru til skráningar í Tadawul-
kauphöllinni í heimalandinu á mið-
vikudaginn, hækkuðu um 10% í
verði í gær, á öðrum degi viðskipta
með félagið.
Þetta þýðir að markaðsvirði fé-
lagsins er nú komið yfir tvö þúsund
milljarða Bandaríkjadala, en upp-
legg stjórnvalda var að með útboð-
inu fengist einmitt staðfest að fé-
lagið væri 2.000 milljarða dala
virði, sem jafngildir 246 þúsund
milljörðum íslenskra króna.
Fyrirtækið er nú verðmætasta
skráða fyrirtæki í heimi, og
hlutabréfaútboðið, sem ráðist var í
samhliða skráningunni, er hið
stærsta í sögunni. Þar var boðinn til
sölu 1,5% hlutur í félaginu og nam
heildarumfangið 25,6 milljörðum
dala. Stærsta útboðið fram til þess
var útboð hins kínverska Alibaba
árið 2014.
AFP
Olíuverð Upplýsingaskjár í kaup-
höllinni í Riyadh í Sádi-Arabíu.
Olíurisi
hækkar
Breska fjár-
málatímaritið
The Banker
hefur valið
Kviku besta
bankann á Ís-
landi árið 2019.
Í tilkynn-
ingu frá Kviku
segir að verð-
launin séu ein
þau eftirsóttustu í bankageiranum
og hlotnist þeim sem skila góðri af-
komu jafnhliða því að bjóða nýja eft-
irtektarverða þjónustu. „Kvika hef-
ur einbeitt sér að langtímasamstarfi
við viðskiptavini. Í ár tókum við
skref inn á einstaklingsmarkað með
Auði dóttur Kviku í þeim tilgangi að
stækka viðskiptavinagrunn okkar
með því að nýta núverandi innviði
bankans. Áframhaldandi nýting á
innviðum getur leitt til áframhald-
andi tækifæra í rekstri og eflt sam-
keppni á bankamarkaði,“ segir Mar-
inó Örn Tryggvason, forstjóri
Kviku, í tilkynningunni.
Kvika besti
bankinn
Viðurkenning Kvika
hefur verið valin best
tvö ár í röð.