Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
GOTT
VERÐ
ALLA DAGA
Úlpukápa
kr. 16.990
Jakki
kr. 7.990
Gerið verðsamanburð
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í gær á samfélagsmiðl-
inum Twitter að Bandaríkin væru
komin á fremsta hlunn með að ná
fram viðunandi lausn á tolladeilum
sínum við Kína. Sagði Trump í tísti
sínu að samkomulagið yrði stórt og
að bæði ríki vildu ná fram samkomu-
lagi. Markaðir vestanhafs tóku nokk-
urn kipp upp á við eftir tilkynningu
forsetans.
Nýir tollar á milli ríkjanna eiga að
taka gildi á sunnudaginn, og sagði
viðskiptaráðuneyti Kína að ríkin
ættu í stöðugum samskiptum vegna
þess tímafrests. Samkvæmt heimild-
um Wall Street Journal hafa Banda-
ríkjamenn boðist til að hætta við
þessa nýjustu tollahækkun, en hún
nemur um 15% á fjölda vinsælla kín-
verskra neysluvara á Bandaríkja-
markaði, þar á meðal raftæki og föt.
Þá verði fyrri tollar sem lagðir hafa
verið á í tollastríði ríkjanna lækkað-
ir, en innflutningsverðmæti þeirra
vara sem þar eru undir eru metnir á
um 380 milljarða bandaríkjadala.
Ekki er hins vegar ljóst hvað
Bandaríkjastjórn fái í staðinn, náist
samkomulag á milli ríkjanna. Talið
er líklegt að kínversk stjórnvöld
muni einnig hætta við fyrirhugaðar
hækkanir sínar, en þau höfðu hótað
því að mæta hækkunum Bandaríkj-
anna með 25% tolli á bandarískar
bifreiðar og 5% tolli á varahluti í bíla.
Trump hefur lýst því yfir að lang-
tímamarkmið sitt sé að fá aukinn að-
gang fyrir bandarískar vörur á Kína-
markaði, auk þess sem kínversk
stjórnvöld eigi að láta af mismunun
sinni gegn erlendum fjárfestum. Þá
vill Trump að Kínverjar virði alþjóð-
leg hugverkaréttindi.
Talið er hins vegar að Bandaríkja-
stjórn muni sætta sig við í „fyrsta
fasa“ samkomulagsins að Kínverjar
skuldbindi sig til að kaupa meira af
bandarískum landbúnaðarvörum,
áður en rætt verður um frekari íviln-
anir af þeirra hálfu.
Segir lausnina í sjónmáli
Trump segir Bandaríkin á barmi samkomulags við Kína í tollastríði ríkjanna
AFP
Bandaríkin Trump lýsti því yfir að
samkomulag við Kína væri í nánd.
Kosið var í Bretlandi í gær, og bentu síðustu skoð-
anakannanir til þess að mjótt gæti orðið á mununum.
Skipti því öllu máli fyrir flokkana að fá kjósendur sína
á kjörstað með öllum ráðum, og létu þessir tveir kjós-
endur í Chiddingstone Hoath í suðausturhluta Eng-
lands ekki deigan síga, heldur fóru með fákum fráum
til þess að láta sína lýðræðislegu rödd heyrast. Ekki
fylgdi þó sögunni hvert atkvæði knapanna lentu.
AFP
Haldið á kjörstað með öllum ráðum
Aung San Suu
Kyi, leiðtogi
Búrma og frið-
arverðlaunahafi
Nóbels, hvatti
Alþjóðadómstól-
inn í Haag í gær
til þess að vísa
frá kærumálinu
á hendur Búrma
vegna meintra
ofsókna yfir-
valda þar gegn Róhingjum. Sagði
Suu Kyi að málið gæti kveikt á ný
undir krísunni sem varð til þess að
nærri 750.000 Róhingjar hröktust
frá heimkynnum sínum á árunum
2016-2017 og „grafið undan“ því
sáttaferli sem nú þegar væri hafið.
Stjórnvöld í Búrma eru sökuð
um að hafa staðið að þjóðarmorði
á Róhingjum, og kærðu stjórnvöld
í Afríkuríkinu Gambíu málið til
dómstólsins. Hafa þau óskað eftir
því að dómstóllinn kveði á um
neyðarúrræði til þess að koma í
veg fyrir frekara ofbeldi gagnvart
þjóðflokki Róhingja, en talið er að
það geti tekið marga mánuði áður
en dómstóllinn kemst að niður-
stöðu.
Segir dómsmál
ógna sáttaferlinu
Aung San
Suu Kyi
BÚRMA
Kvikmyndaframleiðandinn Har-
vey Weinstein náði í gær sáttum í
skaðabótamáli sem höfðað var á
hendur honum af um þrjátíu af
þeim fjölmörgu leikkonum og
fyrrverandi starfsfólki Weinsteins
sem hafa sakað hann um að hafa
beitt sig kynferðislegu ofbeldi.
Munu sækjendur málsins deila
25 milljónum bandaríkjadala sín
á milli. Weinstein mun ekki þurfa
að viðurkenna sök í málinu eða
borga skaðabæturnar sjálfur,
heldur munu þær koma frá
tryggingafélögum sem tryggðu
framleiðslufyrirtæki hans, sem nú
er gjaldþrota. Weinstein er þó
ekki laus allra mála, heldur bíður
hans opinbert sakamál í janúar,
sem gæti lyktað með því að hann
yrði dæmdur í fangelsi fyrir lífs-
tíð.
Þarf ekki að viður-
kenna sekt sína
BANDARÍKIN
Hellamálverk sem fannst í helli í
Indónesíu fyrir tveimur árum gæti
verið elsta varðveitta listaverk
heimsins, samkvæmt nýrri rannsókn
sem kynnt var í tímaritinu Nature á
miðvikudaginn. Er hellamálverkið
talið vera um 44.000 ára gamalt.
Málverkið er um 4,5 metrar á
lengd og sýnir veiðimenn með spjót
og reipi elta villt dýr. Vísindamenn
við Griffith-háskólann í Ástralíu
segja að aldursgreining sýni að
verkið sé að minnsta kosti 43.900 ára
gamalt. Fjöldi hella er á Indónesíu
og finnast þar reglulega forsögu-
legar minjar.
Veiðimennirnir sem sýndir eru í
hellamálverkinu eru í mörgum til-
fellum málaðir með dýrahöfuð, og
segja vísindamennirnir það vera
mögulega vísbendingu um að verkin
tengist þjóðsögum eða jafnvel trúar-
brögðum þeirra sem gerðu verkið.
Listaverkið sé því ekki eingöngu
elsta málverkið, heldur einnig elsta
vísbendingin um þróun frásagn-
argáfu, sem gjarnan er litið á sem
lokastig þróunar tungumáls.
Elsta þekkta listaverkið
fannst í helli í Indónesíu
AFP
Hellamálverk Þetta listaverk er talið um 44.000 ára gamalt.
Átta af þeim tuttugu sem danska
lögreglan handtók í fyrradag voru
ákærðir í gær vegna gruns um að
þeir hefðu ætlað að fremja hryðju-
verk. Hinum tólf var sleppt án
ákæru.
Af þeim sem enn eru í haldi lög-
reglunnar eru sex karlmenn og tvær
konur. Þrír af hinum ákærðu eru
sakaðir um að hafa ætlað að fram-
leiða eina eða fleiri sprengjur með
sprengiefninu TATP, en ekki er tek-
ið fram í ákærunni hvar hópurinn
hugðist gera árás.
Hin fimm eru ákærð fyrir að hafa
reynt að verða sér úti um byssur,
hljóðdeyfa og skotfæri til þess að
fremja hryðjuverk.
Í dönskum fjölmiðlum í gær kom
fram að einn hinna ákærðu hefði ná-
in tengsl við danska vígamenn, sem
börðust fyrir Ríki íslams í Sýrlandi.
Þá voru tveir aðrir úr hópnum einnig
handteknir í apríl síðastliðnum og
færðir í fangelsi fyrir íkveikju.
Átta ákærð-
ir vegna
hryðjuverka
Tvær konur meðal
hinna grunuðu