Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Íágúst vargeorgískurmaður skot-
inn til bana á al-
mannafæri í
Berlín. Morðið
bar öll merki af-
töku. Maðurinn
hét Zelimkhan
Khangoshvili og hafði fjór-
um árum áður flúið frá
Georgíu eftir að honum var
sýnt banatilræði þar. Sam-
dægurs var maður frá Téts-
níu handtekinn fyrir morðið
og böndin bárust að Rúss-
um. Þýskir rannsakendur
komu hins vegar að luktum
dyrum í Rússlandi og reynd-
ust rússnesk stjórnvöld sér-
lega ósamvinnuþýð við rann-
sókn málsins. Ráðamönnum
í Berlín var loks nóg boðið
og 4. desember var tveimur
starfsmönnum í rússneska
sendiráðinu í borginni vísað
úr landi. Í vikunni tilkynntu
rússnesk stjórnvöld að
tveimur þýskum stjórnarer-
indrekum yrði vísað úr landi
og nú hóta Þjóðverjar að
„grípa til frekari aðgerða“.
Þessi atburðarás minnir
um margt á kalda stríðið
þegar lönd í austri og vestri
skiptust á að reka sendiráðs-
starfsmenn til síns heima.
Hún minnir ekki síður á til-
ræðið við feðginin Sergei og
Júlíu Skrípal í fyrra og eftir-
mál þess. Tveir menn á mála
hjá leyniþjónustu rússneska
hersins voru grunaðir um að
hafa eitrað fyrir þeim og
sökuðu bresk yfirvöld
stjórnvöld í Rússlandi um að
hafa samþykkt árásina. Þá
var 146 rússneskum sendi-
ráðsmönnum vísað burt í 29
löndum.
Vladimír Pútín, forseti
Rússlands, sagði reyndar á
mánudag að rússnesk
stjórnvöld hefðu hvergi
komið nálægt morðinu og
væru reiðubúin að hjálpa
Þjóðverjum við rannsókn-
ina, myndu meira að segja
gera allt sem í þeirra valdi
stæði. Um leið lýsti hann
Khangoshvili sem „mjög
grimmum og blóðþyrstum
vígamanni“, sem hefði tekið
þátt í aðgerðum aðskiln-
aðarsinna og verið viðriðinn
sprengingar í neðan-
jarðarlestinni í Moskvu.
Khangosvhili hafði reynd-
ar verið neitað um hæli í
Þýskalandi vegna þess að
hann væri hættulegur ísl-
amisti. Ástæðan var fullyrð-
ing Rússa um að hann til-
heyrði
hryðjuverka-
samtökum, sem
kalla sig Kákas-
íska emíratið.
Hins vegar var
ákveðið að snúa
við blaðinu og
veita honum hæli
í júní þar sem eft-
irlit með honum leiddi engar
vísbendingar í ljós um að
hann væri hættulegur.
Kangoshvili er frá
Georgíu. Hann var í hópi
manna, sem fóru um alda-
mótin og börðust við hlið að-
skilnaðarsinna í Tétsníu og
mun hafa notið trúnaðar
Aslans Maskadovs, leiðtoga
þeirra og forseta. Rúss-
neska leyniþjónustan réð
Maskadov af dögum 2005. Í
Der Spiegel kemur fram að
hann hafi veitt upplýsingar
sem hafi bjargað manns-
lífum og jafnvel nýst banda-
rísku leyniþjónustunni,
CIA.
Komið hefur fram að mikil
líkindi séu með morðinu í
Berlín í sumar og bana-
tilræði í Moskvu 2013 þegar
rússneskur kaupsýslumað-
ur, Albert Nasranov, var
myrtur á götu úti. Í báðum
tilfellum kom banamaðurinn
aðvífandi á hjóli, skaut fórn-
arlambið af stuttu færi og
flúði hjólandi af vettvangi.
Þá bendir allt til þess að
morðinginn sé sá sami,
Vadím Krasikov.
Krasikov var reyndar eft-
irlýstur um tíma í Rússlandi
út af morðinu, en 2015 var
hætt að lýsa eftir honum.
Komið hefur fram að
grunur leiki á að hann sé
hluti af sveit á vegum leyni-
þjónustu rússneska hersins
sem fari um og vinni ýmis
skítverk. Þessi leynilega
sveit hafi staðið á bak við
morðið á Alexander Litv-
ínenkó 2006, tilræðið við
Skrípal-feðginin, tvö tilræði
gegn vopnaframleiðanda í
Búlgaríu 2015 og morðið á
Khangoshvili í Berlín í sum-
ar. Auk þess hafi hún staðið
að baki aðgerðum á Krím-
skaga, í Moldavíu, Svart-
fjallalandi og í kringum
sjálfstæðisatkvæðagreiðsl-
una í Katalóníu 2017.
Þessar aðfarir eru ekki til
þess að auka traust í sam-
skiptum austurs og vesturs
og orð Pútíns eru léttvæg
nema aðgerðir fylgi. Aftökur
án dóms og laga í erlendum
ríkjum eru óforsvaranlegar
og viðbrögð Þjóðverja eru
síst of harkaleg.
Aftökur án dóms og
laga í erlendum
ríkjum eru óforsvar-
anlegar og viðbrögð
Þjóðverja eru síst of
harkaleg }
Morð í Berlín
L
ögreglan gegnir mikilvægu hlut-
verki í samfélaginu. Á verksviði
lögreglu er að hafa eftirlit með lög-
brotum og láta þá sem uppvísir
verða að þeim sæta ábyrgð að lög-
um. Til þess að lögreglan geti sinnt þessu hlut-
verki sínu verður hún að hafa yfir að ráða nægi-
legum mannafla og tækjum til starfseminnar.
Gífurleg áhætta
Skýrsla ríkislögreglustjóra frá því í maí í vor
um skipulagða brotastarfsemi dregur upp ófagra
mynd af getu lögreglunnar til að bregðast við
þeim nýja veruleika sem þar blasir við. Þar kem-
ur fram að í þeim fimm brotaflokkum sem skoð-
aðir voru og falla helst undir skipulagða brota-
starfsemi sé áhættan gífurleg eða mjög mikil.
Þessar brotategundir eru innflutningur, sala
og framleiðsla fíkniefna, smygl á fólki, þ. á m. vændi og
mansal, vinnumarkaðsbrot, peningaþvætti og hópar farand-
brotamanna.
Þá segir í skýrslunni að rannsóknir lögreglu leiði í ljós
skipulagða misnotkun tiltekinna erlendra afbrotamanna og
hópa á opinberum þjónustukerfum á Íslandi. Þar er átt við
bótakerfi, vinnumiðlun, móttökukerfi vegna flóttafólks og
umsækjenda um alþjóðlega vernd og þá félagslegu aðstoð
sem þeim stendur til boða. Skaðinn af þessu er marg-
víslegur, ekki einungis fjárhagslegur heldur er þetta fallið til
að draga úr skilvirkni opinberrar þjónustu við þá sem raun-
verulega þurfa á aðstoð að halda.
Skipulögð glæpasamtök finna starfsemi sinni gjarnan
vettvang á nokkrum ólíkum brotasviðum samtímis. Þetta
eru oft þau brot sem geta gefið vel í aðra hönd á
stuttum tíma með lágmarksáhættu fyrir brota-
mennina. Í skýrslunni kemur fram að umsvif er-
lendra glæpahópa fari vaxandi í tilgreindum
brotaflokkum. Hættan sem skapast í samfélag-
inu er mikil og hættan á alvarlegu ofbeldi í
tengslum við starfsemina er oft gífurleg að sama
skapi.
Krafa um markviss viðbrögð
Ein niðurstaða skýrslunnar er að staða lög-
gæslumála hér sé með þeim hætti að geta lög-
reglu til að takast á við og sinna rannsóknum á
skipulagðri brotastarfsemi sé lítil og mönnum
við rannsóknir þessara mála hefur jafnvel
fækkað að undanförnu.
Í ljósi alls þessa er mikilvægt að fyrirliggj-
andi skipulagsbreytingar í lögreglu heppnist
vel og lögreglu verði búið skilvirkt skipulag svo kraftar henn-
ar nýtist sem allra best.
Skipuleg brotastarfsemi er í eðli sínu oft fjölþjóðleg og
kallar því á víðtæka samvinnu lögregluyfirvalda, en einnig
skattyfirvalda og bankastofnana. Þetta eðli brotanna út-
heimtir mikinn mannskap og víðtæka kunnáttu. Við getum
ekki leyft okkur að sitja með hendur í skauti meðan þessari
starfsemi vex fiskur um hrygg.
Nýlegar fréttir af veikleikum í eftirliti og viðbrögðum hér-
lendis á sviði peningaþvættismála og gruns um víðtæk mútu-
mál gera enn fremur skýlausa kröfu um markviss viðbrögð.
Eftir Karl
Gauti Hjaltason
Pistill
Löggæslu þarf að stórefla
Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
kgauti@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Frumvarp Kristjáns ÞórsJúlíussonar landbún-aðarráðherra um breyt-ingar á fyrirkomulagi á út-
hlutun tollkvóta í landbúnaði hefur
tekið verulegum breytingum á ýms-
um sviðum í umfjöllun atvinnuvega-
nefndar Alþingis. Meirihluti nefnd-
arinnar hefur lagt fram tillögur að
breytingum við það.
Í frumvarpinu er m.a. lagt til að
lögfest verði heimild ráðherra til að
úthluta 400 tonna viðbótartollkvóta á
svínasíðum til að mæta þörf á innan-
landsmarkaði en nefndarmeirihlutinn
leggur til að viðbótartollkvótinn verði
felldur brott. Kartöflur og gulrófur fá
fulla tollvernd út allt árið verði breyt-
ingartillaga meirihluta nefndarinnar
samþykkt að sögn Höllu Signýjar
Kristjánsdóttur, framsögumanns
nefndarinnar. Komið er enn frekar til
móts við sjónarmið garðyrkjubænda,
þar sem lögð er til aukin tollvernd á
spergilkál, hvítkál, blómkál og stein-
selju svo dæmi séu nefnd og toll-
verndartímabilunum er breytt skv.
tillögum meirihluta nefndarinnar.
Ein veigamesta breytingin sem
lögð er til í frumvarpi ráðherrans er
að fastsetja árlega úthlutun tollkvóta
á innfluttum búvörum. Eru tímabilin
sem lögð eru til í upphaflegu frum-
varpi byggð á sögulegri úthlutun síð-
ustu tíu ára. Í greinargerð meirihlut-
ans segir að tekið sé undir sjónarmið
sem fram komu í umfjöllun hennar.
Auka þurfi sveigjanleika til að bregð-
ast við óvæntum aðstæðum á markaði
og er lagt til að ráðherra skuli endur-
skoða bæði vörur og tímabil úthlut-
unar tollkvóta á tveggja ára fresti.
Halla Signý segir að breytingar-
tillögur sem snúa að endurskoðunar-
ákvæðum séu mjög þýðingarmiklar
enda eigi sér stað hraðar tæknibreyt-
ingar m.a. kælitækni sem stórbætir
geymsluþol, sem líta beri til auk þró-
unar á innlendri framleiðslu og
neyslu. Er lagt til að strax í upphafi
árs 2021 verði þau tímabil þar sem
árstíðabundnar landbúnaðarvörur
eru á lægri tollum eða án tolla, endur-
skoðuð með hliðsjón af reynslunni.
Lagt er til að ráðherra skipi starfshóp
sem fylgist með þróun tollverndar og
skili niðurstöðum í ársbyrjun 2022 og
er því líka beint til ráðherra að koma
á fót samráðsvettvangi stjórnvalda og
fulltrúa innflytjenda, framleiðenda,
verslunar og neytenda til að bregðast
fyrr við ef útlit er t.d. fyrir að skortur
verði á tilteknum vörum.
„Meirihlutinn leggur áherslu á
mikilvægi þess að lækkun útboðs-
kostnaðar skili sér til neytenda,“ seg-
ir í greinargerð. Við umfjöllun máls-
ins hafi komið fram að land-
búnaðarráðherra sé að vinna að
samningi við ASÍ um að sinna verð-
lagseftirliti í kjölfar þeirra breytinga
sem lagðar eru til. Beinir meiri hlut-
inn því til ráðherra að taka til skoð-
unar að fá Neytendasamtökin með í
slíka vinnu.
Til móts við garð-
yrkjuna um tollvernd
Morgunblaðið/Kristinn
Uppskera Fram kom í þingnefndinni að starfsskilyrði þeirra sem framleiða
útiræktað grænmeti væru erfið og markaðshlutdeild þeirra hefði minnkað.
Athygli vakti þegar ellefu samtök í landbúnaði, viðskiptum og iðnaði
auk Neytendasamtakanna sendu frá sér sameignlega yfirlýsingu 5. des-
ember síðastliðinn þar sem lýst er þeirri skoðun að ekki eigi að sam-
þykkja frumvarpið í núverandi mynd. Nauðsynlegt sé að vinna málið
áfram og finna því heppilegri farveg.
Neytendasamtökin bakka út úr yfirlýsingunni
Ekki er útlit fyrir að farið verði að þessari áskorun. Aðspurð segist Halla
Signý gera sér vonir um að frumvarpið verði afgreitt sem lög fyrir ára-
mótin. Nefndin hafi ákveðið að leggja til þessar breytingar sem náðust í
gegn í góðri samvinnu innan hennar og við ráðherra.
Sl. mánudag sendu Neytendasamtökin frá sér nýja umsögn þar sem
þau segjast hafa ákveðið að athuguðu máli að draga sig út úr þessari
sameiginlegu yfirlýsingu. Draga þurfi verulega úr tollvernd og færa
stuðning til bænda í form styðjandi stuðnings (t.d. beingreiðslu) í stað
hamlandi stuðnings, sem tollverndin er. Þó frumvarpið sé ekki fullomið
þá sé það skref í rétta átt.
Vonar að frumvarpið verði af-
greitt sem lög fyrir áramót
11 SAMTÖK LÝSTU ANDSTÖÐU VIÐ TOLLAFRUMVARPIÐ