Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
✝ Þóra Þ. Björns-dóttir fæddist í
Geirhildargörðum í
Öxnadal hinn 10.
mars 1936. Hún lést
á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 28. nóv-
ember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurlína
Guðný Jónsdóttir, f.
13. maí 1900, d. 28.
júní 1983, og Stefán
Nikódemusson, f. 14. september
1899, d. 13. febrúar 1988. Systk-
ini Þóru samfeðra eru Zóphoní-
as Sigfús Stefánsson, sem er lát-
inn, og Monika Margrét Stefáns-
dóttir.
Þóra giftist hinn 20. júní 1956
Aðalsteini Halldórssyni frá
Hvammi í Eyjafjarðarsveit, f. 16.
nóvember 1931, d. 22. janúar
1995. Börn þeirra eru: 1) Jón
Ágúst, f. 1956, maki Halla
Sveinsdóttir, eiga þau þrjú börn:
a) Andri Sveinn, f. 1981, maki
Guðrún Björnsdóttir, b) Þóra
Guðrún, f. 1985, maki Emil K.
Sævarsson, c) Sigurlína Guðný,
f. 1991. 2) Guðný, f. 1958, maki
Sigurður Þór Ákason, eiga þau
fimm börn: a) Aðalsteinn Þór, f.
bandi eru: a) Ásta Björg, f. 1982,
maki Fredrik Ideborg, b) Daníel,
f. 1984, Guðrún átti fyrir þrjú
börn. Alls eru langömmubörnin
orðin 33.
Fyrstu æviárin var Þóra hjá
móður sinni sem var vinnukona í
Geirhildargörðum í Öxnadal,
fimm ára gömul fluttist hún með
móður sinni að Tréstöðum í
Hörgárdal, þar sem móðir henn-
ar gerðist ráðskona. Átta ára
gömul fór hún í fóstur til móð-
ursystur sinnar Guðrúnar Jóns-
dóttur og eiginmanns hennar,
Stefáns Benjamínssonar sem
voru búsett á Hrísum í Saurbæj-
arhreppi. Ólst hún þar upp með
fósturbróður sínum Benjamín
Stefánssyni. Lauk hún barna-
skólagöngu í Saurbæjarhreppi
og þaðan lá leiðin að Héraðsskól-
anum á Laugum og síðar í Hús-
mæðraskólann á Löngumýri. Að
skólagöngu lokinni hóf hún störf
á Kristnesi sem gangastúlka þar
sem hún kynntist Aðalsteini, eig-
inmanni sínum. Bjuggu þau alla
sína hjúskapartíð á Akureyri.
Síðar vann hún á Heklu frá 1969
til 1976 og Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri frá 1979 til 1994
þegar hún þurfti frá að hverfa
vegna veikinda.
Þóra hafði ætíð mikinn áhuga
á lestri, ættfræði og handavinnu
ýmiss konar.
Útför Þóru fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 13. desem-
ber 2019, klukkan 13.30.
1975, maki Stein-
unn K. Bjarnadótt-
ir, b) Sigurður Áki,
f. 1979, maki Guð-
rún E. Jakobs-
dóttir, c) Heiða
Björk, f. 1980, maki
Sigurður Hjart-
arson, d) Ómar Örn,
f. 1983, d. 2014, e)
Birkir Freyr, f.
1985. 3) Sigrún, f.
1960, maki Stefán
Geir Pálsson, eiga þau þrjár
dætur: a) Tinna, f. 1981, maki
Heiðar I. Helgason, b) Sigurlína,
f. 1983, maki Jón S. Jónsson, c)
Hulda Rún, f. 1988, maki Aron
M. Böðvarsson. 4) Stefán, f.
1961, maki Þuríður Túrit
Þorláksdóttir, eiga þau fimm
börn: a) Páll Valþór, f. 1986, b)
Anna Bryndís, f. 1987, c) Halldór
Baldvin, f. 1992, maki Helga K.
Jónsdóttir, d) Berglind, f. og d.
1998, e) Steinþór Jan, f. 1998. 5)
Halldór, f. 1962, maki Helga Sig-
ríður Steingrímsdóttir, eiga þau
þrjá syni: a) Baldur, f. 1989, b)
Aðalsteinn, f. 1991, c) Halldór
Mikael, f. 2000. 6) Hlynur, f.
1964, maki Guðrún Þ. Ásmunds-
dóttir, börn Hlyns úr fyrra sam-
Elsku amma, í dag kveðjum
við þig í hinsta sinn. Er þér
þakklátur fyrir svo margt og
mun ég kveðja þig með þakk-
læti efst í huga í dag. Margar
minningar sem hafa komið upp
undanfarna daga um svo góða
tíma sem maður átti með þér og
í kringum þig.
Eiðsvallagatan er þar helst
þar sem maður lék sér mikið
sem barn. Alltaf var gaman að
koma til ykkar þangað og stað-
ur sem maður á bara góðar
minningar frá. Jóladagur þar
sem öll fjölskyldan kom saman
og átti góða stund. Eins áramót-
in sem voru alltaf lífleg og
skemmtileg.
Minningar frá góðum tíma en
svo breytist þessi hefð þegar
fjölskyldan stækkaði og afi féll
frá. Þú hefur samt alltaf verið
hluti af jólunum hjá mér þar
sem ég og stelpurnar mínar höf-
um kíkt í smá heimsókn á að-
fangadag og svo hefur þú nú átt
jóladag með okkur fjölskyld-
unni. Jólahefð sem ég á eftir að
sakna og munu jólin verða öðru-
vísi og hálftómleg þetta árið
Svo eru það allar sögurnar
sem þú hefur sagt okkur og það
sem þú kenndir er eitthvað sem
ég er afskaplega þakklátur fyr-
ir. Þú áttir stóra fjölskyldu og
þegar maður kom til þín varstu
alltaf með nóg af góðum sögum
af fólkinu þínu sem þér þótti svo
vænt um og varst svo stolt af.
Heimsótti þig á spítalann með
dætrum mínum fyrir skömmu
en þann dag hafði afi minn í
hinn legg yfirgefið þennan heim.
Þú gafst mér styrk þennan dag
og talaðir um hversu góður
maður hann hefði nú verið. Tal-
aðir svo um hversu heppinn ég
væri með stelpurnar mínar. Þær
væru svo fallegar og góðar að
ég væri heldur betur heppinn
með þær sem er svo satt og
dýrmætt að þú skulir hafa sagt.
En svona varstu alltaf og talaðir
alltaf svo fallega um allt og alla.
Jákvæðni þín var alltaf svo mik-
il þrátt fyrir mótlæti og veik-
indi. Alltaf sástu það jákvæða í
öllu.
Daginn sem þú kvaddir þenn-
an heim áttum við fjölskyldan
saman eða allir sem áttu heima-
gengt. Það sem þetta er góður
hópur af fólki sem þú áttir og
samkenndin þennan dag var
óaðfinnanleg. Fékk þarna að
þakka þér fyrir allt sem þú hef-
ur gert fyrir mig og mína sem
mér þykir vænt um að hafa
fengið að gera. Mikið afskaplega
á ég eftir að sakna þín og þess
að geta ekki kíkt til þín í góðar
sögur. Afa karlinn hefur verið
farið að lengja eftir þér og tekið
á móti þér með opnum örmum.
Nú eruð þið sameinuð á ný og
komið til með að taka fallega á
móti okkur hinum þegar okkar
tími verður liðinn. En þar til þá,
hafið þið það sem allra best.
Hvíldu í friði og takk fyrir
allt.
Páll, Helga Berglind
og Tinna Ósk.
Elsku amma mín. Undan-
farnir dagar hafa verið afar erf-
iðir og oft þurft ótrúlega lítið til
að tárin byrji að trítla niður
kinnarnar.
Á sama tíma hafa líka ófá
brosin sprottið fram við að rifja
upp yndislegar minningar,
skoða myndir og eyða tíma með
fjölskyldunni. Það er eiginlega
ekki hægt að lýsa því með orð-
um hversu frábær einstaklingur
þú varst og hversu mikið ég leit
upp til þín. Það var alltaf hægt
að leita til þín og mér fannst þú
vita gjörsamlega allt.
Hafðir upplifað margt og
miklar breytingar, lesið mikið
og alltaf tilbúin að miðla þessari
þekkingu til okkar barna-
barnanna.
Það gerðist oft þegar eitt-
hvað hrjáði okkur systur að
leitað var til þín. Þú bjóst yfir
mikilli þekkingu þegar kom að
heilsufari og varst mjög hjálp-
söm t.d. þegar þurfti að taka
lausar tennur eða flísar og það
var sko ekki að ástæðulausu
sem þú varst kölluð amma
skottulæknir af frændum mín-
um. Það var ekki fyrr en ég
varð eldri og lærði sjálf hjúkrun
að ég hætti að leita til þín
vegna hinna ýmsu krankleika.
Nú í seinni tíð breyttist þetta í
að ég færi að hjálpa þér og er
það mér afar dýrmætt að hafa
getað hjálpað þér í þínum veik-
indum og þú hafir leitað til mín
þegar eitthvað bjátaði á. Eydd-
um við ófáum tímunum saman
bíðandi á bráðamóttökunni og
brást það ekki að þú styttir
okkur stundir með ýmsum sög-
um af sjúkrahúsinu, bæði frá
því þú starfaðir þar sem og frá
öllum veikindunum sem þú
hafðir upplifað gegnum tíðina.
Aldrei brást minnið og mundir
þú eftir nánast hverjum einasta
lækni, hjúkrunarfræðingi og
sjúkraliða sem þú hafðir komist
í kynni við og er ég viss um að
þau eiga sér mörg hver líka
góðar minningar frá ykkar
kynnum enda varstu hvers
manns hugljúfi.
Jafnaðargeðið og æðruleysið
sem þú bjóst yfir var engu líkt.
Ævi þín var langt frá því að
vera auðveld, þú tókst á við
mikla erfiðleika og áföll strax
frá unga aldri og lést aldrei
neitt buga þig, ótrúlega hug-
rökk og glaðlynd og tókst því
sem lífið hafði upp á að bjóða,
jafnt gleði sem sorgum. Þú
varst límið í fjölskyldunni og
áttir einstaklega dýrmætt sam-
band við börnin þín og aðra af-
komendur þína.
Fylgdist vel með öllum og
varst svo einstaklega stolt af
öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur. Alltaf jafn jákvæð og
glöð, hugsandi um aðra og gef-
andi af þér. Var það einkenn-
andi fyrir þig að síðasta daginn
sem þú lifðir vorum við flest
samankomin hjá þér til að
kveðja, líkaminn var orðinn
þreyttur og lungun endanlega
búin að gefa sig en þú varst
sjálfri þér lík, þakklát okkur
fyrir að vera hjá þér og hafðir
meiri áhyggjur af því að fólk
skyldi vera að leggja það á sig
að mæta á sjúkrahúsið til þín.
Þessi dagur var virkilega erf-
iður en um leið svo ótrúlega gef-
andi, það var dásamlegt að fá að
kveðja þig og ná að hvísla að
þér hvað við strákarnir mínir
elskuðum þig mikið og hvað þú
hefur reynst okkur vel.
Takk fyrir allt saman elsku
amma mín, ég mun reyna mitt
besta við að tileinka mér dásam-
lega lífsviðhorfið þitt og vona að
þú njótir þín í sumarlandinu
með Alla afa og hinu fólkinu
þínu. Þín
Sigurlína (Sísí).
Elsku amma, þá er komið að
kveðjustund. Ég næ því ekki
enn að þú sért farin og við eig-
um ekki eftir að kíkja til þín aft-
ur í kaffi til að spá í bolla og fá
að heyra sögurnar þínar. Katrín
Emma á sérstaklega eftir að
sakna þess þar sem þetta voru
einar af hennar bestu stundum
að kíkja ein til þín í heimsókn
og heyra þig segja allar þessar
sögur sem voru að hennar mati
alveg ótrúlegar. Ég veit að
mamma á eftir að halda uppi
heiðri þínum og segja börnunum
mínum þessar sögur og atburði.
Við systur vorum svo heppn-
ar að koma mikið í heimsókn til
ykkar afa bæði í Hamarstíginn
og í Eiðsvallagötuna þegar við
vorum yngri og eigum svo sann-
arlega góðar minningar þaðan
þó að maður hafi stundum verið
svolítið hissa á látunum í afa og
öllum systkinum mömmu enda
gilti svolítið sú regla að sá sem
talaði hæst hafði orðið.
Eftir því sem ég eltist og fór
að eignast börn var svo gaman
að heyra þig tala um allt fólkið
þitt. Þú varst svo sannarlega
með alla þína rúmlega 60 af-
komendur á hreinu og sannar-
lega stolt af okkur öllum og
dugleg að bera fréttir á milli.
Ég var svo heppin að fá að taka
þig í heimasjúkraþjálfun fyrir
nokkrum árum og fékk þá að
kynnast þér enn betur og fá
betri innsýn í líf þitt sem barn
og ung kona. Sem ég er þakklát
fyrir í dag.
Líf þitt var svo sannarlega
ekki dans á rósum en alltaf
hélstu í jákvæðnina sem mér
fannst svo aðdáunarvert. Já-
kvæðnin er líklega ástæðan fyr-
ir því að þú fórst langt fram yfir
síðasta söludag eins og þú sagð-
ir svo oft. Enda búin að eiga við
erfið veikindi að etja í um 20 ár,
mikið er nú gott fyrir þig að
hlaupa um sumarlandið laus við
rörið úr nefinu eins og Viktor
Orri og Arney Rún kölluðu
þetta alltaf.
Ég mun svo sannarlega fara
eftir síðustu orðunum sem þú
sagðir við mig rétt áður en þú
kvaddir, en ég spurði hvernig
þú færir að því að vera alltaf
svona jákvæð. Þú sagðir mér að
breyta því sem ég gæti breytt
en sætta mig við það sem ég
gæti ekki breytt og öðlast þann-
ig ró og njóta þess sem lífið hef-
ur upp á að bjóða.
Við lífsins stiga ætlum að þramma
og þar með okkur verður þú
okkar elsku besta amma.
Okkur þykir lífið svo skrýtið
og margt er svo flókið í heiminum
nú.
Þá er alltaf gott að vita
að okkur getur hjálpað þú.
Þú alltaf í huga okkar ert.
Þú hjörtu okkar hefur snert
með góðmennsku og hjartavernd.
Hér og nú ertu heimsins besta amma
nefnd.
Þú ert sem af himnum send.
(Katrín Ruth)
Takk fyrir allt elsku amma
mín og knúsaðu afa frá mér.
Þín dótturdóttir,
Tinna Stefánsdóttir.
Þóra Þ.
Björnsdóttir
✝ Ólína BjörkKúld Péturs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 13. des-
ember 1956. Hún
lést á sjúkrahúsi á
Spáni 4. júlí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhanna
Guðrún Davíðs-
dóttir og Pétur
Hafliði Ólafsson
sem bæði eru látin.
Systkini Ólínu Bjarkar: Dav-
íð, látinn; Hrefna; Hafliði, lát-
inn; Hugrún; Pétur K. Ólína
Björk var yngst þeirra systkina.
Ólína eignaðist þrjá syni, þeir
eru: 1) Hafliði Þór Kúld Krist-
insson, sambýlis-
kona hans er Sædís
Kristinsdóttir. Haf-
liði á eina dóttur,
Gabríelu Rós. 2)
Davíð Ágúst Kúld
Kristinsson, sam-
býliskona hans er
Áslaug Theodóra
Smáradóttir og
eiga þau eina dótt-
ur, Elvu Björk. 3)
Ólafur Alex Kúld
Kristinsson.
Sambýlismaður Ólínu Bjark-
ar var Sveinn Brynjar Sveinsson
Diego.
Bálför og minningarathöfn
hafa farið fram.
Mín ástkæra systir, Ollý. Í
dag, 13. desember, hefði þessi
elska orðið 63 ára og fær hvílu
hjá foreldrum okkar, bræðrum
og ömmu. Ollý okkar var
hjartahlý og góð manneskja.
Hún kenndi okkur svo margt um
lífið.
Fordómaleysi þó sérstaklega.
„Allir eiga rétt á tilveru“ voru
hennar einkunnarorð.
Dýravinurinn. Mannvinurinn.
Náttúrubarnið, sem sá og hlust-
aði á náttúruna.
Listræna fallega persónan,
skemmtilegi húmoristinn. Gull-
kornin hennar eru fallegu og
dýrmætu minningarnar okkar.
Fallega barnið. Fallega kon-
an.
Við eigum líka hinar minning-
arnar sem eru ekki eins bjartar
og sýndu hlið sem ekki var henn-
ar grunnur. Þar kom persónan
sem fíknsjúkdómurinn stýrði og
skapaði.
Þá var hún veik.
Við dveljum líka við þær
minningar. Við lærðum margt
um sjúkdóminn og hvað hann
getur gert fólki.
Vilji er allt sem þarf, segir sá
sem ekki veit og í þá gryfju hef
ég oft fallið. Það óskar enginn
eftir því að veikjast. Fíknsjúk-
dómurinn tekur stjórnina. Tekur
yfir allt. Ekkert af ofantöldu
breytir þeirri staðreynd að elsku
Ollý, litla systir mín, var elskuð
af okkur öllum og við eigum
henni svo margt að þakka.
Hún opnaði augu okkar fyrir
því að það eru ekki allir eins.
Góðu tímarnir voru fleiri og
innihaldsríkari en veikindatíma-
rnir. Fyrir það erum við þakklát.
Hnyttni hennar, fallegra hugs-
ana og manngæsku er sárt sakn-
að og fylgir okkur um ókomin ár.
Hún skildi eftir sig svo mikið í
drengjunum sínum, sem okkur
þykir svo óendanlega vænt um.
Elsku Hafliði Þór, Davíð Ágúst
og Ólafur Alex, ykkar missir er
mikill.
Hún elskaði ykkur svo mikið.
Hún vakir yfir ykkur og fjöl-
skyldum ykkar. Þið búið að því
að hafa fengið mörg gullkorn frá
mömmu ykkar með ykkur út í
lífið. Varðveitið þau. Takið með
ykkur allt það djúpa og fallega
sem hún kenndi ykkur og okkur
öllum. Berið áfram með ykkur
skemmtilega húmorinn hennar
til afkomenda ykkar, berið með
ykkur alla tónlistina hennar,
berið með ykkur allt sem hún
stóð fyrir og hvernig hún sá
heiminn. Horfið á alla mynd-
listina hennar, sjáið og heyrið
hvað hún var að segja okkur með
myndunum. Umfram allt: verið
áfram og alltaf þeir góðu drengir
sem hún var svo stolt af.
Binni minn, þinn missir er
mikill. Samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Ollý okkar var falleg og góð
manneskja. Ég sakna hennar
elsku litlu systur minnar. Takk
fyrir allt.
„Kærleikur er allt, kærleikur
ert þú.“
Hugrún Pétursdóttir.
Hún Ollý mín var yngst af sex
systkina hóp. Davíð, f. 1940, d.
1973. Hrefna, f. 1943. Hafliði, f.
1945, d. 1982. Hugrún, f. 1950.
Pétur Kúld. f. 1953.
Ollý var mikil listakona, mál-
aði fjölda mynda um ævina.
Elskaði dýr og var heimilið
hennar oft með ansi mörg dýr
sem áttu engan annan samastað.
Ollý átti þrjá syni, þeir eru:
Hafliði Þór, Davíð Ágúst og Óli
Alex, og tvær ömmustelpur átti
hún, þær eru Gabríela og Elva
Björk, en Elva Björk er fædd í
ágúst, á þessu ári. Við systur
höfum oft átt góðan tíma saman,
ferðalag okkar saman vestur á
firði 2008 ber hæst í mínum
huga. En við fórum ásamt pabba
okkar til að skoða fæðingarstað
mömmu, sem er Patreksfjörður,
og svo fórum við í Stykkishólm,
en þar fæddist pabbi. Dásamlegt
og skemmtilegt ferðalag.
En nú ert þú farin, litla systir,
ég efast ekki um, mín kæra, að
þú fáir góðar móttökur á næsta
áfangastað þínum.
Elsku strákarnir mínir, Haf-
liði, Davíð og Óli, innilega samúð
til ykkar, ykkar missir er stærst-
ur, og elsku fjölskylda mín, inni-
lega samúð.
Farðu í friði, elsku systir mín.
Þín stóra systir,
Hrefna.
Ólína Björk Kúld
Pétursdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Boðahlein 5, Garðabæ,
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk Bylgjuhrauns á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir frábæra
umönnun.
Sigurður Helgason
María Lovísa Ragnarsdóttir
Helgi Sigurðsson
Sólrún Sigurðardóttir Sigfús Helgason
Guðmundur F. Sigurðsson Ágústa Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, dóttir,
systir, mágkona, frænka og afasystir,
GUÐLAUG BJÖRGVINSDÓTTIR
kennari,
Laufengi 23, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 10. desember.
Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 23.
desember klukkan 13.
Þorgeir Örn Tryggvason Hulda Ósk Bergsteinsdóttir
Þ. Björgvin Kristjánsson Matthildur Gestsdóttir
Kristján Björgvinsson Hrefna Gunnarsdóttir
Matthildur Gunnarsdóttir Jóhann Vignir Gunnarsson
Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir
Gunnhildur Kristjánsdóttir
Hekla Sóley, Snædís Lilja og Friðrik Hrafn