Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
✝ Árni MarHaraldsson
fæddist í Reykja-
vík hinn 18. jan-
úar 1979. Hann
lést 2. desember
2019.
Foreldrar
hans eru Har-
aldur Ragn-
arsson, f. 18. maí
1962, d. 3. janúar
2018, og Kristín
Þóra Sigurðardóttir, f. 2. júlí
1963.
Systkini Árna Mars eru 1)
Ívar Örn, f. 1985, eiginkona
hans er Lára Björk Bragadótt-
ir, f. 1988. Þau eiga tvö börn,
Emblu, f. 2015, og Harald
Braga, f. 2017.
2) Sigurður Ragnar, f. 1987,
unnusta hans er Margrét Eva
grímur Bragi Steinarsson, f.
23. júlí 1996.
Eftirlifandi unnusta Árna
Mars er Ágústa Sigurlaug Guð-
jónsdóttir, f. 10. júní 1976.
Dætur Ágústu og stjúpdætur
Árna Mars eru Emma Ósk, f.
2011, og Sunna Karen, f. 2013.
Árni Mar ólst upp í Hafnar-
firði og gekk í Öldutúnsskóla
og Setbergsskóla.
Hann kláraði stúdentspróf
frá Verslunarskóla Íslands og
lagði stund á viðskiptafræði-
nám í fjarnámi við New York
Institute of Technology.
Árni Mar vann við smíðar
frá unga aldri með föður sínum
og öðrum fjölskyldumeðlimum.
Hann lærði einkaþjálfun og
starfaði sem slíkur um árabil
samhliða smíðunum.
Síðustu fimm ár starfaði
hann einnig sem deildarstjóri
fasteignadeildar Símans.
Árni Mar verður jarðsung-
inn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði í dag, 13. desember
2019, og hefst athöfnin klukk-
an 13.
Einarsdóttir, f.
1988. Þau eiga tvö
börn, Kristínu Eme-
líu, f. 2009, og Hlyn
Dór, f. 2011.
3) Arnór Gauti, f.
1998. Maki hans er
Vífill Harðarson, f.
1998.
4) Salóme Kristín,
f. 2004. Maki hennar
er Patrik Snæland
Rúnarsson, f. 2004.
Synir Árna Mars og Re-
bekku Guðleifsdóttur eru
Bjarki Freyr, f. 26. maí 1998,
og Haukur Smári, f. 19. nóv-
ember 1999.
Synir Árna Mars og Ragn-
heiðar Arngrímsdóttur eru
Kristinn Logi, f. 29. apríl 2003,
og Alexander Hrafn, f. 25. júní
2006. Stjúpsonur Árna er Arn-
Elsku hjartans Árni Mar
minn.
Ég veit ekki hvernig ég á að
byrja að skrifa til þín og kveðja
þig. Þetta er svo óraunverulegt
og við nýlega búin að kveðja
pabba þinn. Ég vildi að ég hefði
knúsað þig aðeins fastar og að-
eins lengur þegar ég kvaddi þig
fyrir helgina og þakkaði þér fyrir
hjálpina heima hjá mér eftir
framkvæmdir.
Það var ekki sjálfgefið að við
pabbi þinn eignuðumst svona
góðan og dásamlegan dreng að-
eins 15 og 16 ára gömul. Þú varst
alltaf svo góður vinur okkar. Þú
varst líka svo góður við alla sem
þú hittir á þinni lífsleið. Vildir allt
fyrir alla gera og gerðir það.
Dugnaðurinn í þér og hvað þú
varst klár, það var alveg sama
hvað var, þú reddaðir öllu. Held
að það eina sem þú varst ekkert
sérstaklega góður í hafi verið
karíókí eins og pabbi þinn en
samt höfðuð þið báðir mjög gam-
an af því og voruð yfirleitt fyrstir
á svið.
Birnu vinkonu dreymdi í nótt
að pabbi þinn væri kominn í bún-
ing eins og hann var frægur fyrir
og búinn að setja upp gráa hár-
kollu, axlabönd og í bláköflóttri
skyrtu, tilbúinn að taka á móti
þér. Það er huggun harmi gegn
að hann, amma þín og afar taka á
móti þér og þið eigið eftir að
bralla margt saman í sumarland-
inu, veiða, byggja hús og fleira.
Við fjölskyldan höldum vel
hvert utan um annað og yljum
okkur við góðar minningar og
reynum að komast saman í gegn-
um sorgina.
Ástar- og saknaðarkveðjur
elsku Árni Mar minn.
Þín
mamma.
Það eru ekki einfaldar tilfinn-
ingarnar sem ég finn fyrir þessa
dagana, en þakklæti er mér of-
arlega í huga þegar ég hugsa til
Árna Mars, pabba drengjanna
minna, fyrrverandi eiginmanns
og vinar.
Ég er þakklát fyrir drengina
okkar, Arngrím Braga, sem Árni
ól upp með mér frá fimm ára
aldri, Kristin Loga, sem fæddist
nokkrum vikum fyrir tímann og
leyfði okkur að hafa mjög mikið
fyrir sér fyrstu árin með enda-
lausri orku, spurningaflóði, orð-
heppni sinni og ferðum á slysó, og
Alexander Hrafn, ungann okkar
mjúka sem er svo líkur pabba sín-
um á margan hátt, rólegur, yfir-
vegaður og skarpur.
Leiðir okkar skildi árið 2015 og
okkur tókst ekki að gera það á
góðan hátt en fyrir rúmu ári náð-
um við að fá ráðgjöf og leiðbein-
ingar varðandi drengina okkar og
hvernig við gætum verið sam-
stiga sem foreldrar.
Við náðum að byggja aftur upp
vináttu, áttum góðar stundir
saman í sumar og haust við að
koma nýju heimili mínu og
drengjanna okkar í stand, rifja
upp fyndin atvik frá uppvaxtarár-
um þeirra og hlæja saman. Síð-
ustu stundir okkar allra með
Árna voru fyrir nokkrum dögum
þegar hann kom á tónleika þar
sem Kristinn Logi spilaði á saxó-
fóninn sinn.
Ég er þakklát Árna fyrir að
leggja inn nýjar góðar minningar
og fyrir að hafa endalausa trú á
mér sem mömmu, en leið yfir að
geta ekki deilt með honum stolti
og gleði yfir flottu strákunum
okkar áfram. Þetta verður öðru-
vísi án hans þar sem við tvö vor-
um þeirra stærsti aðdáendahóp-
ur en þakklát fyrir alla sem við
eigum að.
Ef við fengjum að hitta hann
einu sinni enn myndum við segja
við hann: Við munum ávallt
geyma þig í hjarta okkar og huga,
halda góðu stundunum okkar lif-
andi og óskum þess að þú hafir
fundið frið.
Alexander Hrafn myndi líka
segja honum að hann sakni hans
af öllu hjarta og segja við hann:
ég elska þig pabbi.
Alltaf elskaður, aldrei gleymd-
ur.
Ragnheiður, Arngrímur
Bragi, Kristinn Logi og
Alexander Hrafn.
Með sorg í hjarta kveðjum við í
dag yndislegan dreng, Árna Mar
Haraldsson.
Frá fyrstu kynnum af Árna
okkar fundum við þessa góðu
nærveru sem hann hafði. Við nán-
ari kynni var hann alltaf að gefa
af sér, hlýr í samskiptum, hjálp-
samur, skemmtilegur, gott að
tala við hann og vera í návist
hans.
Hann hugsaði vel um ástina
sína hana Ágústu og stelpurnar
hennar þær Emmu og Sunnu.
Hann var hlýr og góður og stelp-
urnar voru mjög hændar að hon-
um
Árni hafði stórt hjarta og
hugsaði vel um fólkið sitt. Hann
sýndi fólki áhuga og var alltaf
boðinn og búinn að hjálpa til við
ýmislegt enda mjög fær iðnaðar-
maður, hvort sem það var smíði,
múrvinna eða flísalögn, hann
kunni skil á öllu þessu.
Enn erum við ekki búin að
meðtaka að elsku Árni okkar sé
farinn. En við eigum góðar minn-
ingar um yndislegan mann sem
hafði bætandi áhrif á alla og erum
þakklát fyrir árin sem við áttum
með honum.
Við biðjum góðan Guð um
styrk og von til allra sem eiga um
sárt að binda við fráfall Árna og
sendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur til Ágústu okkar, til
sona hans og til Kristínar og fjöl-
skyldu.
Minning um góðan dreng og
vin lifir í hugum okkar allra.
Guðjón, Guðrún, Ragnheið-
ur og Eyrún og fjölskyldur.
Þegar við hittumst fyrst fann
ég strax að þú varst hlaðinn gæð-
um á mörgum sviðum. Ekki nema
tvítugur varstu að þjálfa í Hress
og hafðir 100% tök á því sem þú
varst að vinna við. Þú hélst mér
við efnið og ég náði árangri sem
ég hefði aldrei náð nema fyrir það
hvað þú varst áræðinn í þínu
starfi. Leiðir skildi úr ræktinni en
við héldum áfram að vera í sam-
bandi.
Ekki leið á löngu þar til þú
fórst að vinna við smíðar, enda
fékkstu það í vöggugjöf að vinna
við það erfiðasta sem smiðir
reyna við, að steypa upp bygg-
ingar. Aftur sýndir þú hversu
glæsilega allt lék í höndunum á
þér, allt upp á 10! Fyrirtækið
Síminn fékk þig til að sjá um
verklegar framkvæmdir. Þú lyft-
ir grettistaki þar og sýndir enn og
aftur hvers þú ert megnugur. Þú
hélst á þessu öllu og sýndir okkur
hinum hversu flottur þú varst í
öllu sem þú tókst þér fyrir hend-
ur. Við stunduðum veiðar saman
og alltaf varst þú með 10 sinnum
fleiri gæsir, rjúpur, tófur eða
hvað sem við stunduðum veiðar á.
Fyrir utan eitt skipti á Skarf ;).
Ég hefði ekki trúað að þú
mundir fara svona snemma.
Þakklætið er mér efst í huga.
Þakklætið fyrir að hafa kynnst
þér og átt þig fyrir vin. Dugnaður
og góðmennska voru þér í blóð
borin. Allir vinir sem leituðu til
þín og þurftu á hjálp komu ekki
að tómum kofunum. Þú vildi allt
gera til að leggja lóð á vogarskál-
ina í von um að geta aðstoðað eða
hjálpað, eins og sannur vinur ger-
ir. Þú varst dulur á þína líðan. Ég
mun sakna þín og varðveita minn-
inguna um góðan félaga og vin.
Elsku Ágústa og fjölskylda,
Kristín og fjölskylda, synir Árna
og fjölskyldur þeirra. Ég sendi
ykkur mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Björgvin Sigmar Stefánsson.
Árni Mar er fallinn frá. Þetta
er eitthvað svo óraunverulegt.
Drengurinn sem var alltaf í góðu
skapi og vildi allt fyrir alla gera
er ekki lengur meðal okkar.
Árna kynntist ég þegar fram-
kvæmdagleðin hafði borið mig of-
urliði í húsinu mínu og mig bráð-
vantaði hjálp við að byggja upp á
nýtt það sem ég hafði rifið niður.
Árni mætti á staðinn og gekk í
verkið eins og honum einum var
lagið, engin vandamál, bara
lausnir og fyrr en varði var húsið
orðið búsetuhæft. Með okkur tók-
ust góð kynni og þar eignaðist ég
góðan vin. Það var ekki langt að
sækja sameiginleg áhugamál eins
og snjósleða og skotveiði og
ræddum við oft lengi um þessi
áhugamál. Nokkrum árum síðar
náði ég að plata Árna í vinnu hjá
Símanum þar sem hann sá um öll
fasteignamál fyrirtækisins með
bravör. Eftir Árna liggja mörg
verk hjá Símanum eins og end-
urbygging á öllum verslunum
Símans, ótal breytingar innan-
húss og ómetanleg aðstoð við
starfsmenn við alls konar fram-
kvæmdir. Öll hans verk voru unn-
in af fagmennsku og umfram allt
fljótt og vel. Árni var mjög lausn-
armiðaður og hann gekk í öll verk
fljótt og vel. Hann var sannkall-
aður „doer“ og duglegri mann var
ekki hægt að finna. Hjá Símanum
unnum við hlið við hlið í mörg ár
og kynntist ég honum þar enn
betur. Góða skapið og jákvæðnin
var alltaf innan seilingar og það
voru ófáir brandararnir sem hann
sagði, reyndar mátti ekki segja
stelpunum þá alla en oft fór það
þó svo að þær heyrðu og höfðu
einnig gaman af.
Með Árna fór ég marga vél-
sleðatúra sem voru eftirminnileg-
ir. Við vorum m.a. á fullu að
skipuleggja hvað við ættum að
fara í vetur nokkrum dögum fyrir
fráfall hans. En því miður verða
vélsleðatúrarnir með Árna ekki
fleiri í þetta skiptið. Einnig verð
ég að nefna áhorf á fótboltaleiki
en að sjálfsögðu höldum við Árni
með aðalliðinu í enska boltanum,
Liverpool. Ástríðan skein oft í
gegn og það var stutt í stríðnina
þegar erkifjendunum gekk ekki
eins vel og okkur Liverpool-
mönnunum gengur þessa dagana.
En það var líka allt vel meint.
Með Árna er farinn mætur
drengur og góður félagi. Mikið
sakna ég þess að geta ekki hitt
hann aftur og notið félagsskapar
hans og nærveru. Vonandi sjá-
umst við aftur á öðrum stað.
Fyrir hönd okkar Krissu og
vinnufélaga okkar hjá Símanum
votta ég strákunum hans, Ágústu
og dætrum, Stínu, systkinum og
fjölskyldum þeirra innilega sam-
úð. Megi guð vera með ykkur.
Kristján Jónsson.
Árni Mar
Haraldsson✝ Helgi BrynjarÞórisson fædd-
ist á Akureyri 19.
janúar 1942. Hann
lést á Landspítal-
anum 18. nóv-
ember 2019. For-
eldrar hans voru
Dýrleif Sigur-
björnsdóttir frá
Grímsey og Þórir
Guðjónsson frá
Finnastöðum í
Eyjafirði. Margrét alsystir
Helga lifir bróður sinn.
Eiginkona Helga var Sonja
Lúðvígs, fyrrverandi kaup-
maður. Þau gengu í hjónaband
4. nóvember 1969 og áttu því
gullbrúðkaup tveimur vikum
áður en Helgi lést. Börn
þeirra Sonju eru þrjú: Anna
María, Andrea og Ómar Sig-
urður. Barnabörnin eru Karit-
as, Ísak Helgi og Elín Ylfa.
Barnabarnabörnin eru Alex-
andra og Lúkas.
Helgi ólst upp á
Akureyri, lauk
gagnfræðaprófi
frá Gagnfræða-
skóla Akureyrar
og seinna prófi
sem matreiðslu-
maður. Hann
fékkst á ævinni við
margvísleg störf;
var lengi krana-
maður við virkj-
anir á hálendinu, var sendi-
ferðabílstjóri á eigin bíl í
Reykjavík um langt árabil.
Hann starfaði síðast í mörg ár
sem birgðavörður á Borgarspít-
alanum, bæði á lager og í apó-
teki. Helgi var stuðningsmaður
KA, Knattspyrnufélags Akur-
eyrar, og tók ævinlega þátt í
KA-klúbbnum.
Útför Helga fer fram frá
Neskirkju í dag, 13. desember
2019, klukkan 13.
Fyrst kynntumst við á til-
raunadagheimilinu Ósi við
Dugguvog. Þar var dóttir þeirra
Sonju Andrea og strákarnir okk-
ar Nínu Benni og Gestur. Svo
urðu það hestar sem tengdu okk-
ur saman, síðan margvísleg verk-
efni og skemmtun, einkum ódýr-
ar heimagerðar skemmtanir.
Helgi var allra manna greiðvikn-
astur. Þegar þurfti að flytja fyrst
af Brekkustíg á Holtsgötu, svo
þaðan í Drápuhlíð og svo seinna í
Ártúnsblett og austur á Eyrar-
bakka þá var Helgi þar að flytja,
bera, mála, tengja og setja í sam-
band. Þegar það þurfti að und-
irbúa veislur eða jól þá var Helgi
þar að hátta rjúpurnar og gera
þeim til góða. Þegar þurfti að
sækja kjöt af heimaslátruðu út á
land þá mætti hann og við keyrð-
um saman náttlangt. Þá var
margt rætt, til dæmis hestar. Við
fórum saman á landsmót hesta-
manna í Skógarhólum 1978 og
horfðum stóreygir að ekki sé
meira sagt á Náttfara frá Ytra-
Dalsgerði liggja flatan á skeiði.
Um það var oft rætt mikið og
lengi með viðeigandi hlátrum,
kumri og gleði. Þegar við urðum
matarlaus og veðurteppt að drep-
ast úr kulda í hestaferð uppi á
Kaldadal þá ók bíll framhjá okk-
ur og ég lét bílstjórann hafa miða
með símanúmeri Helga og Sonju.
Ótrúlega skömmu seinna kom
rauður sendiferðabíll með mat,
föt og lífsvökva. Helgi og Sonja.
Helgi Þórisson var allra
manna skemmtilegastur. Á
löngum ferðum okkar sagði hann
sögur úr Grímsey en ég af Fells-
ströndinni. Endaði með því að
okkur fannst báðum að við þekkt-
um þessi pláss utan að og mund-
um ekki alveg hvor okkar var frá
Grímsey og hvor af Fellsströnd-
inni. Hitt man ég hvað okkur
fannst báðum að við værum of-
boðslega skemmtilegir. Þegar
sögurnar þraut var sungið; er
ekki viss um að við hefðum verið
teknir í Metrópólitan en tilþrifin
voru gríðarleg. Ekki síst var það
fyrsta plata Megasar sem varð
fyrir barðinu á þessum geigvæn-
legu hljóðum. Sumir gagnrýn-
endur hefðu kannski talað um
óhljóð; skilningslausir á inntakið
sem var gleðin. Stuðið. Aðallega
voru það samt hestarnir. Venus
og Perla og Stóri-Blesi sem Sonja
átti. Þvílíkt fólk, þvílíkir hestar.
Og krakkarnir þeirra Sonju:
Andrea snemma skýr blandaði
sér í umræður og vildi tafarlaus
svör:
Ertu hommonisti Svavar? og
Ómar lagði gjörva hönd á margt,
til dæmis minkabú í Flóanum
sem hann vildi opna eins og eðli-
legt var fyrir innilokuðum dýrun-
um.
Svavar Gestsson.
Helgi Þórisson
Yfir bænum heima
mun bláfuglinn sveima
á morgun, – þú mátt
treysta því.
Og á vanga þína
mun vorsólin skína
á morgun, – gegn um gullin ský ...
Og um kollinn þinn mjúka
mun kvöldsólin strjúka
á morgun, – hugulsöm og hlý.
(Jónas Árnason)
Kvöldsólin er búin að strjúka
vanga þinn í síðasta sinn og leiða
þig inn í morgunroðann.
Það var enn bjartur dagur þeg-
ar við réðumst til uppgöngu upp á
fjall og komumst alla leið. Þá var
hoppað hátt og mikið glaðst. Þeir
voru margir björtu dagarnir sem
við áttum saman sumar eftir sum-
ar þegar ég fékk ömmudrenginn
minn í sumarheimsókn. Hug-
Sigmar Örn
Pétursson
✝ Sigmar ÖrnPétursson
fæddist 6. nóv-
ember 1982. Hann
lést 18. nóvember
2019.
Útför hans fór
fram 2. desember
2019.
myndaflugið og
framkvæmdasemin
fór oft á flug og ekki
skemmdi að hafa
frænku þína hana
Ástu Sóleyju með í
uppátækjunum. Nú
þegar jólin nálgast
minnir skreytingin á
jólatrénu á sig. Ég
var búin að skreyta
tréð þegar þið Ásta
komuð að sunnan.
Þið horfðuð gáttuð á jólatréð og
spurðuð hvort það ætti ekkert að
skreyta þetta tré! Það var ekki
beðið með framkvæmdir, eftir
smástund sást ekki í grænan lit og
tvö börn yfir sig ánægð.
En lífið er ekki eintómt sólskin,
hjá þér voru djúpir skuggar
margra ára veikinda og enda-
lausrar baráttu. Nú er því stríði
lokið og ekki fleiri heimsóknir í
nýrnaskiljuna þar sem frábærar
konur snerust um þig. En bláfugl-
inn okkar mun sveima yfir börn-
unum þínum og vorsólin birtist á
ný. Þú mátt treysta því. Koss á
kinn og ein strákasaga sem þú
einn átt. Takk fyrir allt elsku Sig-
mar minn.
Ásta amma og
afi þinn Sigmar.
Minningarvefur á mbl.is
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningar
og andlát