Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
✝ Gunnar Vil-mundarson
fæddist í Efsta-Dal
1, Laugardal, 29.
júlí 1953. Hann
lést í faðmi fjöl-
skyldu sinnar á
heimili sínu Dal-
seli, Laugarvatni
5. desember 2019.
Foreldrar hans
voru Kristrún Sig-
urfinnsdóttir, f. 3.
janúar 1919, d. 17. mars 2019,
og Vilmundur Indriðason, f. 13.
apríl 1916, d. 21. ágúst 1999.
Bræður Gunnars eru Sigur-
finnur, f. 10. maí 1947, og
Theodór Indriði Vilmundarson,
f. 17. september 1950.
Hinn 25. ágúst 1977 kvæntist
Gunnar Jónu Bryndísi Gests-
dóttur, f. 2. september 1954.
Synir þeirra: 1) Gestur, f. 28.
júlí 1976, kvæntur Sigríði
Soffíu Sigurjónsdóttur. Synir
þeirra eru Sverrir Styrkár og
skemmu ásamt bróður sínum.
Árið 1988 flutti fjölskyldan inn
í nýbyggt hús sitt Dalsel á
Laugarvatni. Gunnar flutti síð-
ar verkstæði sitt að Laug-
arvatni en þar byggði hann
myndarlega skemmu fyrir
reksturinn. Þau hjón ráku
tjald- og hjólhýsahverfið á ár-
unum 1988-1996 en árið 1996
hófu þau rekstur Farfugla-
heimilisins á Laugarvatni og
hafa rekið það allar götur síð-
an. Árið 2000 keyptu þau húsið
á Dalbraut 10, gamla pósthús-
ið, undir rekstur farfuglaheim-
ilisins. Gunnar var alla tíð
einstaklega vinnusamur og hóf
hann fljótlega að byggja við
það hús og breyta því til að
sníða það betur að þörfum
gistirekstursins. Síðustu árin
vann Gunnar eingöngu við far-
fuglaheimilið.
Gunnar var um tíma í
slökkviliði staðarins og félagi í
björgunarsveitinni Ingunni en
áhugi hans var alla tíð mestur
á skákinni sem hann æfði stíft
og keppti í undir flaggi
Ungmennafélags Laugdæla.
Útför hans fer fram frá
Skálholtskirkju í dag, 13. des-
ember 2019, klukkan 14.
Styrmir Steinn. 2)
Rúnar, f. 7. febr-
úar 1979, kvæntur
Evu Hálfdanar-
dóttur. Börn þeirra
eru Ásta Rós,
Gunnar Geir og
Þórhildur Eva. 3)
Arnar, f. 27. maí
1987, kvæntur
Helgu Björtu
Bjarnadóttur.
Gunnar ólst upp
í Efsta-Dal 1 og sótti sína
skólagöngu á Laugarvatni og í
Iðnskólanum í Reykjavík. Hann
fluttist til Reykjavíkur og vann
hjá Vélamiðstöð Reykjavíkur
þar sem hann lærði vélvirkjun
og lauk sveinsprófi 12. nóvem-
ber 1975 og meistararéttindum
12. febrúar 1979.
Árið 1981 flutti fjölskyldan
að Laugarvatni þar sem hún
hefur búið síðan. Gunnar rak
verkstæði í Efsta-Dal 1 í nokk-
ur ár en þar byggði hann
Það eru blendnar tilfinningar
sem bærast innra með mér þar
sem andstæður lífsins mæta nú
af fullum þunga. Sorg og gleði.
Sorgin kemur upp þar sem pabbi
er ekki lengur til staðar, en
gleðin og spennan er vegna
ófæddrar dóttur minnar sem von
er á í kringum jólin.
Mér finnst það sorglegt að
dóttir mín fái ekki að kynnast
þeim góða manni sem afi hennar
var. Hún mun aldrei fá að kynn-
ast því hvað afi hennar var
hjartahlýr og heill maður. Pabbi
var metnaðarfullur og vinnusam-
ur í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur. Ef eitthvað bjátaði á var
hann mættur til að aðstoða, þrátt
fyrir að hann hefði ekki alltaf
tíma til þess.
Pabbi var einstaklega uppá-
tækjasamur, því fengum við
bræðurnir að kynnast. Ég mun
aldrei fá nóg af því að heyra sög-
ur af uppátækjunum hans. Þær
eru mér dýrmætar. Þar sem
pabbi verður ekki lengur til að
segja frá þeim sjálfur mun ég sjá
til þess að halda þeim lifandi.
Pabbi var skemmtilegur mað-
ur sem fólki fannst gaman að
vera í kringum. Það var alltaf
stutt í húmorinn og stríðnin var
aldrei langt undan. Það sýndi sig
best í því hvað hann var vin-
margur og gestagangurinn mik-
ill hér heima í Dalseli síðustu
vikurnar í veikindum hans.
Pabbi hafði gaman af að hitta allt
þetta fólk, sem voru bæði ætt-
ingjar og vinir frá nýjum og
gömlum tíma, og ljómaði hann
upp við heimsóknirnar.
Mamma og pabbi voru vön að
fara til Kanarí á hverju ári í des-
ember og janúar og dvelja þar
yfir jól og áramót í sælureitnum
sínum. Um jólin í fyrra varð hins
vegar breyting á og eyddu þau
áramótunum hér heima á Íslandi
vegna 100 ára afmælis ömmu
Rúnu, mömmu hans pabba.
Gamlárskvöldi eyddu mamma og
pabbi hjá okkur Helgu Björtu,
ásamt Rúnari bróður og fjöl-
skyldu, og fórum við öll saman á
áramótabrennuna þar sem nýju
ári var fagnað. Enginn vissi hvað
það ár átti eftir að bera í skauti
sér. Aldrei datt mér í hug að
þetta yrðu síðustu áramót pabba
en ég er þakklátur fyrir þetta
kvöld þar sem var hlegið og
sungið langt fram á nótt.
Ég er einnig þakklátur fyrir
tímann sem við fengum saman í
Perú árið 2013 þegar við allir
feðgarnir, ásamt Einari Rúnari
frænda, ákváðum að ferðast á
mótorhjólum um þetta magnaða
land í þrjár vikur. Ég man hvað
ég var þakklátur að fá að upplifa
þessa ferð með pabba, bræðrum
mínum og frænda og ég get svo
svarið að það var ekki þurrt auga
á svæðinu í allri þessari dýrð.
Það var einnig ótrúlega magn-
að hversu hraustur karlinn hann
pabbi var. Á meðan við urðum
allir lasnir á ferðalagi okkar í
Perú, hvort sem það var vegna
háfjallaveiki eða matareitrunar,
var pabbi sá eini sem ekki veikt-
ist og virtist standa allt af sér.
Þannig var pabbi, hann stóð allt
af sér. Það voru þó ein veikindi
sem pabbi náði ekki að standa af
sér en það var heilaæxlið sem
hann greindist með í mars sl.
Hann barðist þó sem hetja allan
tímann og það var alltaf stutt í
húmorinn og hjartahlýjuna hans
pabba. Ég mun sakna þess að
geta ekki labbað upp götuna og
kíkt í kaffi og hlegið með þessum
besta vini mínum sem pabbi var.
Pabbi, þín verður sárt saknað.
Hvíldu í friði.
Arnar Gunnarsson.
Meira: mbl.is/andlat
Mig langar ekki að vera að
skrifa þessi orð. Minningarorð
um tengdapabba sem ennþá átti
fullt eftir af fjöri. Fullt eftir til að
gera og græja og fixa og leika og
sóla sig og spila mínígolf og
kljúfa við og svona mætti halda
lengi áfram. Það er svo sárt til
þess að hugsa að hann muni aldr-
ei aftur taka á móti manni með
hlýlega glettna brosinu eða fara
með börnin í stórhættulega bíl-
túra. Ekki koma til Noregs og
koma sér í vandræði þegar hann
ráfar inn á lóðir hjá ókunnugu
fólki til að skoða ruslageymslur,
en honum fannst þær fádæma
skemmtileg listasmíð og ætlaði
að smíða eins.
Á sama tíma skilur hann eftir
sig svo mikið af góðum minning-
um, fyndnum sögum og fólki sem
elskar hann. Það eru ekki til nein
orð sem eru nógu góð eða ná ut-
an um hver þessi einstaki maður
var. En við sem elskum hann
munum halda minningu hans á
lofti í orðum og verkum.
Sigríður Soffía
Sigurjónsdóttir.
Pabbi kvaddi okkur hinn 5.
desember síðastliðinn eftir harða
baráttu við heilakrabbamein.
Síðustu og sorglegustu orr-
ustuna háði hann á heimavelli í
faðmi fjölskyldunnar.
Þetta voru langir og erfiðir
dagar þar sem við bræðurnir
gátum lítið annað gert fyrir
pabba en að vera til staðar. Það
var erfitt að sjá þessar sterku
grófu hendur sem höfðu gert svo
mikið til þess að passa upp á okk-
ur nánast líflausar liggjandi
þungt á sænginni og geta ekkert
gert til þess að breyta því. Þó var
ómetanlegt fyrir okkur að fá að
fylgja honum þennan síðasta
spöl. Það var ómetanlegt að sjá
hversu vel mamma og pabbi
unnu saman. Hversu stöðug og
sterk þau fóru saman gegnum
þessa síðustu sameiginlegu orr-
ustu. Þessa löngu daga fengum
við góðan tíma saman. Saman
upplifðum við þær erfiðu tilfinn-
ingar sem fylgja því að missa allt
of snemma eiginmann og lífs-
förunaut, hlýjan og sterkan
pabba og undarlegan og uppá-
tækjasaman afa. Við bræður
fengum tíma til að tala saman og
ræða hvernig við upplifðum
pabba gegnum árin. Það runnu
mörg tár og það var mikil sorg.
Það var líka mikið brosað og
mikið hlegið því eins og við urð-
um sammála um bræðurnir þá er
honum pabba best lýst sem góð-
hjörtuðum, hjálpsömum, dugleg-
um manni og einstökum húmor-
ista. Pabbi var þannig maður að
þótt maður sé í djúpri sorg er
ekki hægt að minnast hans án
þess að brosa út í annað og
kannski hlæja svolítið gegnum
tárin.
Þegar við vorum litlir gaurar
og pabbi ennþá ungur maður var
stemningin í þjóðfélaginu mikið
ólík því sem nú er. Pabbi vann
alla tíð allt of mikið og þegar við
vorum smápattar var lítill tími til
leiks.
Samband okkar bræðranna
við pabba varð sterkara með ár-
unum og varð hann virkilega
góður vinur okkar allra. Enda
varð það svo að þegar við bræð-
urnir skipulögðum strákaferð,
mánaðar mótorhjólatúr til Perú,
buðum við sextugum „gamlingj-
anum“ með. Þar sýndi það sig
enn og aftur þvílíkur nagli hann
pabbi var. Hann var sá eini sem
aldrei varð veikur! Háfjallaveik-
in sem herjaði á okkur alla nokk-
uð oft beit ekki á hann frekar en
matareitranirnar. Já nagli var sá
gamli og ein minningin er að
koma heim eftir skóla og sjá
pabba sitjandi í eldhúsinu að
bjástra við að draga málmflís úr
auganu með flísatöng. Það gekk
eitthvað erfiðlega svo hann bað
um hjálp. Ekki lækni, heldur
Rúnar.
Pabbi var vinmargur, átti ótal
góða vini sem fylgdu honum
gegnum lífið. Pabbi var mikil fé-
lagsvera og með vinum sínum
geislaði hann. Þá runnu út úr
honum hinar undarlegustu setn-
ingar, hljóð, já og jafnvel nokkur
búkhljóð af meira óviðeigandi
taginu. Það var á slíkum stund-
um sem eftirherman Gunni kom
vel í ljós. Hann hafði einstaka
hæfileika til að líkja eftir fólki.
Hann gerði hreyfingum, talanda
og röddum oft svo góð skil að
persónurnar urðu ljóslifandi fyr-
ir framan mann, en með örlitlu
kómísku ívafi.
Hann pabbi var yndislegur
maður og það er hræðilega sorg-
legt að hann skuli hafa þurft að
yfirgefa sviðið svona snemma.
Hans verður sárt saknað en við
munum halda áfram að brosa út í
annað og skella upp úr þegar við
rifjum upp sögur um pabba okk-
ar.
Gestur Gunnarsson,
Rúnar Gunnarsson.
Í Spámanninum eftir Kahil
Gibran segir þetta um sorgina:
Þegar þú ert sorgmæddur skoð-
aðu þá huga þinn og þú munt sjá
að þú grætur vegna þess sem var
gleði þín.
Þessi orð koma upp í hugann
þegar við þurfum að kveðja
Gunnar Vilmundarson. Hann
kom inn í líf okkar eins og hvítur
stormsveipur eftir útihátíðina
Vor í dal sem haldin var um
hvítasunnu í Þjórsárdal árið
1973. Þarna hittust þau Jóna og
Gunnar fyrst og hoppuðu og
skoppuðu í stórum svörtum
ruslapoka alla helgina í kulda og
rigningu. Síðan þá hafa þau Jóna
gengið samstiga gegnum lífið,
eignast þrjá yndislega syni og
samheldna fjölskyldu.
Við minnumst samverustunda
þar sem Gunnar var hrókur alls
fagnaðar, syngjandi og dansandi.
Hann hafði unun af að tefla og
spila. Hann var sífellt til í glens
og grín, vinmargur og traustur
drengur. Hann var harðdugleg-
ur, samviskusamur og afar
hjálpsamur.
Í nokkur ár fór hópur vina
með þeim hjónum í Tungnarétt-
ir. Þetta voru ógleymanlegar
ferðir. Þá var gist á Laugarvatni
og svo ekið á milli bæja eftir
réttirnar. Þarna nutu allir sín í
botn við söng og glens og gaman.
Gunnar lærði vélvirkjun í
Reykjavík og rak síðar eigið
verkstæði á Laugarvatni þar til
hann sneri sér alfarið að rekstri
farfuglaheimilisins sem þau Jóna
höfðu byggt upp frá grunni af
miklum dugnaði og elju.
Gunnar fékk stundum að
heyra það að hann gerði við alla
bíla nema sína eigin og þau Jóna
þyrftu að vita hvernig ætti að
keyra til að komast heil að heim-
an og aftur heim. Kannski var
afturábakgírinn óvirkur eða
stýrið eitthvað að stríða. Oft var
hlegið að aksturslagi hans og
hann gerði óspart grín að sjálf-
um sér.
Jóna og Gunnar fengu sér
mótorhjól og þeystu um á þeim í
nokkur ár og síðar húsbíl sem
var talsvert notaður.
Síðustu árin létu þau drauma
sína rætast og höfðu vetursetu á
Kanarí og eignuðust þar fjölda
góðra vina.
Að leiðarlokum kveðjum við
kæran vin, þakklát fyrir frábær
kynni, samfylgd og samveru-
stundir sem aldrei bar skugga á.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Elsku Jóna, Gestur, Rúnar,
Arnar og fjölskyldur. Hugurinn
dvelur hjá ykkur á þessum erfiða
tíma. Við biðjum allt gott að
styðja ykkur og styrkja. Minn-
ingin um yndislegan dreng mun
lifa í hjörtum okkar sem þekkt-
um hann.
Arndís Ásta, Garðar,
Margrét, Sigrún Gests-
börn og makar.
Mig langar í fáum orðum að
minnast vinar míns, Gunnars
Vilmundarsonar, sem féll frá
langt fyrir aldur fram eftir stutta
en erfiða baráttu við illvígan
sjúkdóm. Ég kynntist Gunnari
fyrir 22 árum þegar ég hóf störf
sem framkvæmdastjóri Far-
fugla, en Gunnar og Jóna höfðu
nokkru áður gengið í samtökin
og hafið rekstur Farfuglaheim-
ilis á Laugarvatni. Ég vissi
reyndar af þeim hjónum en ég
hafði áður stundað nám í
Íþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni.
Óhugsandi er að skrifa minn-
ingargrein um Gunnar án þess
að Jónu sé getið um leið, svo
samheldin voru þau í öllu sem
þau tóku sér fyrir hendur. Fljót-
lega tókst með okkur góður vin-
skapur sem hefur haldist æ síð-
an. Meðan ég var að koma mér
inn í starfið leitaði ég mikið í
smiðju þeirra hjóna til að fá góð
ráð. Ég fann fljótt að í þeim ætti
ég öfluga bandamenn og þau
voru oftast þau fyrstu sem ég
leitaði til þegar sett voru af stað
verkefni, t.d. á sviði umhverfis-
og/eða gæðamála eða þegar
skipulagðir voru fundir og ráð-
stefnur innan samtakanna. Þau
voru afar metnaðarfull í rekstri
sínum og voru meðal frumkvöðla
í umhverfisvænni ferðamennsku
hér á landi. Þessi vinskapur
minn við Gunnar og Jónu hefur
gefið mér mikið og margsinnis
hef ég og fjölskylda mín dvalið
hjá þeim á Laugarvatni.
Í stuttri facebookfærslu þar
sem synir Gunnars tilkynntu
andlát föður síns segja þeir m.a.:
Pabbi var yndislegur maður,
góðhjartaður, réttsýnn og sam-
viskusamur dugnaðarforkur. Ég
vil gera þessi orð þeirra bræðra
að mínum og bæta við að auk
þess var hann bóngóður,
skemmtilegur, mikill fjölskyldu-
maður og ekki síst mikill húm-
oristi. Þannig þekkti ég Gunnar
vin minn.
Sem dæmi um húmorinn og
einstakt samband þeirra hjóna
er eftirfarandi saga. Eitt sinn er
við Gunnar vorum að ræða sam-
an sagði hann mér að hann væri
starfsmaður Jónu sem bæri
ábyrgð á öllum rekstrinum. Þeg-
ar talið barst að laununum hans
sagðist hann ekki vita hver þau
væru. Hann sagði að Jóna legði
launin inn á lokaðan reikning
sem hann hefði ekki aðgang að
og síðan skammtaði hún honum
pening eftir þörfum. Við rædd-
um oft um hugsanlega stöðu á
reikningnum og þetta varð til-
efni til margra skemmtilegra
sagna og hláturs.
Vinskapur minn við Gunnar
og Jónu hefur vaxið gegnum árin
og ég hef mikið lært af þeim
hjónum. M.a. hvernig samheldni,
traust og trúnaður og virðing
milli fólks skapar góðan árangur.
Með þessum orðum kveð ég
Gunnar vin minn. Ég sendi Jónu,
sonum þeirra, tengdadætrum og
öðrum ættingjum innilegustu
samúðarkveðjur.
Markús.
Það er margt sem fer í gegn-
um hugann þegar náinn vinur,
Gunnar Vilmundarson, er hrifinn
á brott langt fyrir aldur fram.
Minningarnar birtast hver af
annarri, minningar þar sem
glettnisbrosið lýsir upp andlit
vinar okkar með hnyttin tilsvör á
vörum, sem kom okkur alltaf í
gott skap. Það er ljóslifandi fyrir
okkur þegar við hittum Jónu og
Gunnar saman í fyrsta sinn á
hvítasunnusamkomunni „Vor í
dal“. Þar náði okkar maður í
hana Jónu sína sem alla tíð stóð
sem klettur við hlið hans. Þeirra
samvinna var ætíð náin og ást-
kær og skiluðu þau saman miklu
og árangursríku lífsstarfi.
Byggðu þau upp öfluga ferða-
þjónustu á Laugarvatni og
sýndu svo um munaði hve kraft-
mikil þau voru og forsjál í upp-
byggingu hennar, enda gestrisin
og hjúasæl. Þrjú sl. ár hafa þau
hlotið viðurkenninguna „framúr-
skarandi fyrirtæki“ hjá Credit-
info.
Gunnar lærði vélvirkjun í
Reykjavík og bjuggu þau þar
fyrstu sambúðarár sín. Síðan
fluttu þau á Laugarvatn þar sem
þau byggðu sér íbúðarhús, Dal-
sel. Gunnar byrjaði verkstæðis-
starfsemi sína í Efstadal þar sem
hann ólst upp. Hann reisti síðar
vélaverkstæði á Laugarvatni og
þjónustaði sveitunga sína og
ferðamenn. Þegar ferðaþjónust-
unni óx fiskur um hrygg sneri
hann sér alfarið að henni með
Jónu.
Hugur Gunnars hneigðist ekki
til búskapar, en hann hafði
sterkar taugar til æskuslóðanna.
Því miður entist honum ekki ald-
ur til að njóta þess lands sem í
hans hlut kom við landskipti í
Efstadal.
Dalselshjónin voru samrýnd
og áttu mörg sameiginleg áhuga-
mál. Þau nutu þess að dansa
saman og taka lagið í góðra vina
hópi. Þau fengu sér bæði mót-
orhjól og þeystu um á góðviðr-
isdögum. Gunnar fór með sonum
sínum og vini um fjalllendi Perú
á vélhjólum. Það var honum
ógleymanlegt ævintýri. Hann
var afbragðsbílstjóri þótt oft
þætti hann fara geyst, en hann
slapp vel frá sínum bílstjóraferli
þótt tæpt hafi staðið stundum.
Hann var sleipur skákmaður og
tefldi reglulega lengi vel. Buðu
hjónin sveitungum og vinum til
skákmóts í „Pósthúsinu“ einu
sinni að vetri um skeið. Skák-
borðið fylgdi á ólíklegustu staði
og einn sá eftirminnilegasti í
okkar huga er sandströnd Dóm-
iníska lýðveldisins.
Ferðalög voru þeim kær. Þau
eignuðust húsbíl sem hentaði vel
því ferðþjónustan útheimtir
mikla yfirlegu og gott að geta
skotist fyrirvaralítið frá þegar
færi gafst. Þau hjónin létu
draum sinn rætast með kaupum
á íbúð á Kanarí, Ólátagarði, þar
sem þau áttu saman sælustundir.
Það var einstaklega fallegt að
sjá vináttu og virðingu þeirra
hjóna hvors fyrir öðru í sjúk-
dómsbaráttu Gunnars en Jóna
annaðist hann heima til hinstu
stundar af miklu öryggi og alúð.
Vinmargur var Gunnar enda
búinn eftirsóknarverðum mann-
kostum. Synir þeirra, Gestur,
Rúnar og Arnar, eru ekki eft-
irbátar foreldra sinna, skemmti-
legir, klárir og góðir drengir.
Þegar litið er um farinn veg
og áratuga samskipti okkar
stendur upp úr heiðarleikinn,
tryggðin, hlýjan og glettnin sem
alltaf fylgdi Gunnari.
Stórt skarð er höggvið í Ár-
túns 8-fjölskylduna.
Við hjónin kveðjum góðan vin
með söknuði og sendum fjöl-
skyldunni samúðarkveðjur.
Sigríður og Hrafnkell.
Kynni okkar Gunnars hófust
þegar við gengum saman í
Barnaskólann á Laugarvatni. Í
fyrstu virtist hann frekar hlé-
drægur og feiminn en fljótt
færðist glettni og líf í augun, sem
fylgdi honum alla tíð. Vel gerður,
glaðvær og hvers manns hug-
ljúfi. Síðan lágu leiðir okkar sam-
an í Héraðsskólanum, þótt hann
væri ári eldri, því hann var einn
vetur heima eftir barnaskóla-
gönguna að hjálpa foreldrum
sínum við bústörfin. Sveitabörn-
in þurftu stundum að komast á
Laugarvatn ef eitthvað var um
að vera þar eftir skóla og þá kom
fyrir að ég fékk far með Gunnari
á gamla Land Rovernum og við
heldur betur ánægð á eigin veg-
um. Ekki læt ég getið um aldur
eða ökuleyfi á þessum tíma en
allt gekk þetta eins og í sögu.
Okkar var síðan getið við skóla-
slit, þar sem við vorum einu
nemendurnir sem höfðu verið
fjögur ár í Héraðsskólanum án
þess að falla. En svo skildi leiðir.
Hann fór til Reykjavíkur, lauk
þar sínu námi og hóf sambúð
með Jónu sinni í Dalselinu í
Reykjavík. Síðar fluttu þau á
Laugarvatn og þá hófust kynni
okkar á ný og fljótlega kom í ljós
hve konan hans var mörgum
kostum búin og honum mikils
virði. Þau eignuðust þrjá syni og
við Tommi þrjár dætur og urðu
þau öll bestu félagar. Tvær
dætra okkar, þær Dagný og
Veiga, voru svo heppnar að fá
vinnu hjá þeim og voru alsælar
með yfirmenn sína. Gunnar og
Veiga náðu sérstaklega vel sam-
Gunnar
Vilmundarson