Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
5.900,-
19.500,-
7.500,-
13.900,-
19.900,-
Í MIKLU ÚRVALI
FYRIR DÖMUR
OG HERRA
www.frusigurlaug.is
Glæsileg vefverslun
- Frí póstsending -
MJÓDD | S. 774-7377
Föstudagur: ...... 10 - 18
Laugardagur: .... 11 - 18
Sunnudagur: ..... 13 - 18
Velúrsloppur
ll
serur
Heimadress
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16
Misty
CHARM
Spangalaus haldari með
breiðum hlýrum og breiður í
bakið. Efnið í skálinni er létt,
mótar fallega og heldur vel.
Frábært hversdags en líka í
líkamsræktina.
Verð 6.990,-
Húsviðhald
Gera fínt fyrir
jólin?
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Sjómannafélag Íslands
Aðalfundur
Aðalfundur Sjómannafélags Íslands verður
haldinn mánudaginn 30. desember kl. 16.00
í félagsheimili Knattspyrnufélags Þróttar
Engjavegi 7 í Laugardal.
Fundarefni:
Hefðbundin aðalfundarstörf
Kosning um sameiningu Sjómannafélags
íslands og Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
Önnur mál
Trúnaðarmannaráð SÍ
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Zumba
Gold 60+ kl. 10.30. Hreyfisalurinn er opinn milli kl. 9.30-11.30.
AÐVENTUBINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 krónur, veglegir vinn-
ingar. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir vel-
komnir.-
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Leikfimi með Hönnu kl. 9-9.45. . Göngubretti, æfingarhjól með leið-
beinanda kl. 12.30. Línudans kl. 13.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga
6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffi-
sala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi Rósu kl. 10.15 í setustofu.
Dalbraut 27 Upplestur úr kvæði Jóhannesar úr Kötlum um jóla-
sveinana, kl. 11 í setustofu á fyrstu hæð. Vist kl. 14 í bókastofu.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Botsía kl. 10.15-
11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Allir velkomnir
óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10.
Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30.
Jólapeysugerð með Handabandi og Ýrúrarí kl. 13. Jólatónleikar Tón-
menntaskóla Reykjavíkur kl. 14.30. Hádegismatur frá 11.30 til 12.30 og
vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Verið
öll hjartanlega velkomin.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Jólabingó FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl.
14–17. Allir velkomnir.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjónakaffi kl. 10-
12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16.
Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Jólabingó og Ljósmynda-
klúbbur kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl.
13.15. Kaffi kl. 14.30. Sala á ýmsum hannyrða- og smávörum til
söfnunar í styrktarsjóð fyrir Guðrúnu Nönnu.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.-12. Kl. 10.30 línudans, kl.
13 brids, kl. 13.30 botsía.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Brids í handavinnustofu 13. Upplestur frá Hörpu Rún
á nýju bókinni sinni Eddu kl. 13.15.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, Jólabingó kl. 13.30.
Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Spilað í króknum og brids í Eiðismýri kl. 13.30.
Ath. enginn söngur í dag. Athugið að næsta miðvikudag 18. desem-
ber verður SÖNGUR OG SÚKKULAÐI í salnum á Skólabraut kl. 14.30.
Þá syngjum við inn jólin og eigum notalega stund saman. Allir vel-
komnir.
Stangarhylur 4 Dansleikur Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 15.
desember kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum.
Vantar þig
smið?
FINNA.is
✝ Árni Árnasonfæddist í
Reykjavík 2. ágúst
1966. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 3. des-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Árni
Haraldur Guð-
mundsson stýrimað-
ur, f. í Reykjavík 8.
apríl 1928, d. 22.
febrúar 2007, og Ingibjörg Sig-
ríður Stefánsdóttir, f. á Arnar-
stöðum í Núpasveit í N-
Þingeyjarsýslu 9. ágúst 1929, d.
8. febrúar 2002. Systkini Árna
eru Brynjólfur, f. 22. janúar
1949, d. 20. júlí 1994, Guð-
mundur, f. 11. nóvember 1957,
Lára Hrönn, f. 17. janúar 1959,
Sigríður, f. 26. janúar 1961, og
Haraldur, f. 9. febrúar 1964.
Árni kvæntist 5. desember
1992 Aðalheiði Írisi Hjaltadóttur
f. 2. september 1965, þau slitu
nýlega samvistum.
Synir þeirra eru Hjalti Stefán,
f. 19. júlí 1987, sambýliskona
hans er Júlía Björnsdóttir, f. 8.
júlí 1992, búsett í Svíþjóð, og
Þórir Róbert, f. 26. maí 1992, bú-
settur í Hafnar-
firði.
Árni ólst upp í
Geitlandi 3,
Reykjavík, hann
fór snemma að
vinna, byrjaði hjá
Garðyrkjudeild
Reykjavíkurborgar
og hjá Braga móð-
urbróður sínum í
Bifreiðarstilling-
unni ehf.
Árni var á sjó hjá Eimskip í
nokkur ár, keyrði rútu og vann
hjá Slökkviliði Reykjavíkur-
flugvallar.
Vorið 1997 byrjar Árni í
Spartan School of Aeronautics í
Tulsa USA og útskrifaðist í nóv-
ember 1998 sem flugvirki. Hann
hóf feril sinn hjá Icelandair, en
stofnaði svo Flugvélaverkstæði
Reykjavíkur í febrúar 2000 og
rak það í nokkur ár. Árni tók svo
flugvirkjaréttindi á þyrlur og
vann við það fyrir marga á Ís-
landi sem voru í flugrekstri.
Hann vann einnig fyrir ýmis
flugfélög erlendis.
Útför Árna fór fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík 12. desem-
ber 2019.
Nú er hann Árni vinur minn
Árnason fallinn frá, langt fyrir
aldur fram. Okkar leiðir lágu
saman snemma á þessari öld í
gegnum flugið, en á þeim tíma
rak Árni viðhaldsstöð fyrir minni
flugvélar á Reykjavíkurflugvelli.
Þangað var alltaf gott að koma,
ræða við Árna um lífsins gagn og
nauðsynjar og láta hugann reika
um allt mögulegt og ómögulegt
sem hægt væri að gera. Alltaf var
stutt í gamansemina og léttleik-
ann þótt gott hafi líka verið að
ræða alvarlegri málefni við hann.
Árni var góður sálufélagi, traust-
ur og heiðarlegur. Fljótt varð
mjög gott vináttusamband okkar
á milli sem aldrei skyggði á. Allt-
af var Árni allur af vilja gerður að
hjálpa til, úrræðagóður og
lausnamiðaður þótt stutt hafi
verið í prakkaraskapinn og strák-
inn í honum. Ævintýraljóminn yf-
ir þessum glaðhlakkalega dreng
mun seint renna mér úr minni og
ég vona svo innilega að hans bar-
átta sé nú á enda runnin.
Ég sendi Írisi, Hjalta, Þóri og
fjölskyldu Árna mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur á þessum
skrítnu og erfiðu tímum.
Hannes Ástráður
Auðunarson.
Árni Árnason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
Kveðja frá
Sjóstanga-
veiðifélagi Ak-
ureyrar, SjóAk
Það voru sorgarfregnir sem
okkur í SjóAk bárust að kvöldi
23. nóvember sl. að félagi okkar,
Hafþór Viðar Gunnarsson, væri
látinn langt fyrir aldur fram.
Hafþór var einungis 56 ára að
aldri.
Hafþór gekk í félagið árið 1989
og var því búinn að vera félagi í
30 ár þegar hann lést. Hann var
mikill, fengsæll og vinsæll veiði-
maður og vann til fjölda verð-
launa á veiðiferli sínum. Hafþór
varð stjórnarmaður í félaginu
nokkrum árum eftir inngöngu og
var í stjórn SjóAk í hartnær 20
ár. Hann var alltaf reiðubúinn til
að vinna fyrir félagið hvar og hve-
nær sem var og voru þau ófá
Hafþór Viðar
Gunnarsson
✝ Hafþór ViðarGunnarsson
fæddist 6. mars
1963. Hann lést 23.
nóvember 2019.
Útför Hafþórs
fór fram 5. desem-
ber 2019.
handtökin sem hann
gerði fyrir félagið.
Hafþór var
sæmdur silfurmerki
félagsins á 40 ára af-
mæli þess árið 2004
en þá varð hann Ís-
landsmeistari í
stjóstangaveiði.
Árið 2012, þegar
Hafþór lét af störf-
um í stjórn félags-
ins, var hann sæmd-
ur gullmerki SjóAk fyrir vel
unnin störf í þágu félagsins. Það
fór ekki á milli mála við það tilefni
að Hafþóri þótti afar vænt um
þann heiður að vera sæmdur
gullmerki félags síns.
Í þessi 30 ár sem Hafþór var
félagi féll varla úr heimamót hjá
honum enda þótti honum afar
vænt um félagið sitt og sýndi það
í verkum og orðum.
Eftirlifandi eiginkonu Haf-
þórs, henni Önnu Ívarsdóttur,
sonum, móður, systur og fjöl-
skyldum sendum við í SjóAk okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Megi minning um góðan félaga
lifa.
F.h. stjórnar SjóAk,
Sigfús Karlsson formaður.