Morgunblaðið - 13.12.2019, Síða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Heill frumskógur af gæludýrum...
Í fiskana mig langar svo
að setja í búrið stóra
mamma segir þú færð tvo
en pabbi segir fjóra.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18
L i f and i v e r s l un
kíktu í heimsókn
Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Langt og torvelt verkefni verður
þess virði þegar þú kemur að leiðarlokum.
Reyndu að sjá það besta í öllum að-
stæðum sem mæta þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Treystu innsæi þínu fyrir alla muni,
það hefur oft reynst þér vel. Reyndu að
skynja hvað er að hrjá makann.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú reynir verulega á hæfni þína í
vandasömu verkefni. Láttu niðurstöður úr
prófum ekki koma þér á óvart, þú átt þetta
skilið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Farðu eftir eigin sannfæringu og
óttastu ekki því heilladísirnar vaka yfir þér.
Þú færð boð í veislu sem þú ert efins um
að þú eigir að fara í.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Misstu ekki sjónar á takmarkinu,
þótt einhverjir smámunir séu að vefjast
fyrir þér. Sköpunargleði og vinna með
börnum, ást og rómantík munu setja svip
sinn á komandi ár.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft helst að vera í einrúmi í
dag. Álagið á þér undanfarið hefur verið
allt of mikið. Þú hefur mikla persónutöfra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Farðu varlega í innkaupum í dag, þú
freistast til þess að kaupa meira en þú
hefur efni á. Gefðu þér tíma til þess að
kynnast kostum þess og göllum að deila
íbúð með öðrum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þín bíður óvænt ánægja í dag
svo þér er fyrir bestu að reyna að vera á
réttum stað á réttum tíma. Allir hafa gam-
an af hrósi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það bætir og kætir að grípa til
nýstárlegra vinnuaðferða, þótt einhvern
tíma taki að komast upp á lagið með þær.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það sem þú veist ekki getur
ekki skaðað þig. Farðu eftir sannfæringu
þinni og þá mun þér farnast vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt rekast á einhver um-
mæli, sem hafa mikil áhrif á þig. Hrein-
skilni þín er oft til vandræða. Teldu stund-
um upp að tíu áður en þú tjáir þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Frestaðu því ekki til morguns sem
þú getur klárað í dag. Það mætti halda að
allar heilladísirnir hafi safnast saman í
kringum þig, þú munt sjá það fljótlega.
70 ára Sigríður er frá
Kringlu í Grímsnesi en
býr í Kópavogi. Hún var
bóndi á Kringlu og síð-
ar saumakona hjá RB
rúmum og fleirum.
Maki: Sigurður Helgi
Haraldsson, f. 1948, fv.
bóndi og bensínafgreiðslumaður hjá
Skeljungi.
Börn: Hannes Guðbjörn, f. 1968, María
Dröfn, f. 1970, Þorkatla Elín, f. 1977, Þor-
björg Hlín, f. 1979, og Helena Ósk, f.
1984. Barnabörnin eru orðin tíu.
Foreldrar: Hannes Guðmundsson Hann-
esson, f. 1913, d. 1984, og Þorkatla
Hólmgeirsdóttir, f. 1908, d. 1977,
bændur á Kringlu.
Sigríður Margrét
Hannesdóttir
40 ára Ásgeir ólst
upp í Grindavík og á
Vopnafirði en býr í
Reykjavík. Hann er
að klára vélvirkjanám
frá Borgarholtsskóla
og er bílstjóri hjá
Heklu.
Maki: Ástrós Hera Guðfinnsdóttir, f.
1993, tækniteiknari og einkaþjálfari.
Börn: Kristófer Jökull, f. 2015, og Þór-
hildur Freyja, f. 2019.
Foreldrar: Guðmundur Þór Ármanns-
son, f. 1961, vörubílstjóri, búsettur í
Keflavík, og Guðbjörg Pétursdóttir, f.
1961, vinnur í Bláa lóninu, búsett í
Reykjavík.
Ásgeir Davíð
Guðmundsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Þórhildur Freyja Ásgeirs-
dóttir fæddist 6. ágúst 2019 kl. 18.00.
Hún vó 3.292 g og var 49 cm löng. For-
eldrar hennar eru Ásgeir Davíð
Guðmundsson og Ástrós Hera
Guðfinnsdóttir.
Nýr borgari
sveitarfélaga sér mjög vel. Ég hef
alltaf haft gaman af þeim störfum
sem ég verið í. Það er mikilvægt.“
Á sveitarstjórnarárunum fylgdu
ýmis félagsstörf hjá Ólafi, bæði á
vettvangi Samtaka sveitarfélaga á
útibússtjóri hjá Kaupþingi banka
2003-2007. Frá 2007 hefur Ólafur ver-
ið framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Rarik. „Fyrirtækið er með sinn
rekstur á landsbyggðinni og því kem-
ur þekking á mönnum og málefnum
Ó
lafur Hilmar Sverrisson
er fæddur 13. desember
1959 í Reykjavík og ólst
upp í Háaleitishverfi.
Hann gekk í Hvassaleit-
isskóla og Álftamýrarskóla, varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík og lauk cand. oecon.-gráðu
í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands
árið 1984.
„Ég var í sumarvinnu eins og tíðk-
aðist. Það var yfirleitt venjuleg vinna
sem unglingar fengu á þessum árum
nema sumarið þegar ég var 16 ára fór
ég til sjós, nánar tiltekið með loðnu-
bátnum Hilmi SU 171, sem fór þá í
tveggja mánaða úthald á Nýfundna-
landsmið. Ég hafði aldrei verið á sjó
en ætlaði að þéna vel til þess að
kaupa mér sportbíl. Þetta þótti ekk-
ert tiltökumál og gekk það vel að ég
fór tvo eða þrjá túra á loðnuveiðar
fyrir Norðurlandi þegar heim var
komið. Það var ekki fyrr en mínir
strákar voru komnir undir tvítugt að
ég áttaði mig á því að þetta hafði ver-
ið frekar sérstakt. Það veiddist
reyndar frekar lítið þannig að við
fengum bara „tryggingu“ fyrir sum-
arið og sportbíllinn varð að bíða betri
tíma og bíður reyndar enn.“
Ólafur var skrifstofustjóri hjá Líf-
eyrissjóði verslunarmanna 1984-
1986, sveitarstjóri í Grundarfirði
1986-1990, bæjarritari í Kópavogi
1990-1991, bæjarstjóri í Stykkishólmi
1991-1999, síðan forstöðumaður hjá
Áburðarverksmiðjunni í stuttan tíma.
„Ríkið hafði nýlega selt svæðið fjár-
festum sem ætluðu að hefja upp-
byggingu þar, sem ekki varð af og er
ekki hafin enn.“ Ólafur var eftir það
verkefnisstjóri hjá Flugmálastjórn
við endurnýjun á Reykjavíkur-
flugvelli. „Ég var þar líka stutt og var
sjanghæjaður yfir í að vera fram-
kvæmdastjóri Stáltaks, sem var sam-
einað fyrirtæki Stálsmiðjunnar í
Reykjavík, Slippstöðvarinnar á
Akureyri og Kælismiðjunnar Frost.
Á þessum árum upp úr 2000 áraði illa
í málmiðnaði og fyrirtækið fór í gegn-
um nauðasamninga en einingarnar
urðu síðan aftur að sjálfstæðum fyrir-
tækjum.“
Ólafur var síðan tæpt ár skrifstofu-
stjóri í samgönguráðuneytinu og var
Vesturlandi svo sem í stjórn samtak-
anna, setu í fræðsluráði Vesturlands,
stjórn ferðamálasamtaka Vestur-
lands. Hann sat í stjórn og launanefnd
Sambands íslenskra sveitarfélaga, var
fulltrúi í stjórn Fasteignamats ríkis-
ins og Námsgagnastofnunar. Þá
fylgdu einnig ýmis félagsstörf tengd
Sjálfstæðisflokknum í Vesturlands-
kjördæmi.
„Meðan ég var í sveitarstjórnar-
málunum fór lítið fyrir frítíma eða
öðrum áhugamálum, vinnan og
áhugamálin voru eitt. Eftir að ég
hætti í sveitarstjórnarmálum hef ég
lagt stund á útivist, einkum göngur og
skíði.“
Fjölskylda
Sambýliskona Ólafs er Brynhildur
Kristín Kristinsdóttir, f. 14.4. 1966,
viðskiptastjóri. Þau eru búsett í
Reykjavík. Foreldrar hennar: Fjóla
Steingrímsdóttir, f. 23.8. 1927, d. 4.8.
1993, og Kristinn Jónsson, f. 20.9.
1937. Þau voru gift og búsett í Hafn-
arfirði.
Fyrrverandi eiginkona Ólafs er
Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 2.9.
1960, hjúkrunarfræðingur.
Börn Ólafs og Ragnheiðar eru 1)
Gunnar Dofri, f. 13.4. 1988, lögfræð-
ingur Viðskiptaráðs, býr í Reykjavík.
Sambýliskona hans er Stella Rún
Guðmundsdóttir læknanemi; 2)
Sverrir Ingi, f. 21.2. 1993, viðskipta-
stjóri hjá Öryggismiðstöðinni, býr í
Garðabæ. Unnusta hans er Bryndís
Ósk Birgisdóttir, B.S. í sálfræði. Dótt-
ir þeirra er Heiðdís María Sverris-
dóttir, f. 3.11. 2019; 3) Kjartan, f. 12.1.
1997, starfsmaður á vinnustofu
Styrktarfélagsins Áss, býr í Reykja-
vík.
Alsystkini Ólafs eru Anna Gunn-
hildur, f. 29.7. 1950, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík; Oddný Guðrún, f.
27.8. 1956, prófessor í þýsku við HÍ,
býr í Reykjavík; Pétur Örn, f. 14.3.
1969, lögmaður, býr í Garðabæ. Hálf-
systkini, samfeðra, eru Kristinn
Ágúst, f. 23.12. 1932, d. 9.5. 1957,
verslunarmaður í Keflavík; Sigurður
Júlíus, f. 14.8. 1934, d. 16.2. 1953, nemi
við VÍ, bjó í Keflavík og Reykjavík;
Alma Valdís, f. 18.1. 1943, lögfræð-
ingur í Garðabæ; Gunnar Axel, f. 19.1.
Ólafur Hilmar Sverrisson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rarik – 60 ára
Í Friðlandi að Fjallabaki Ólafur og Brynhildur í göngu að Grænahrygg.
Haft ánægju af öllum störfunum
Synirnir Sverrir Ingi, Kjartan og Gunnar Dofri, við útskrift Kjartans frá
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, vorið 2017.