Morgunblaðið - 13.12.2019, Blaðsíða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Evrópudeild UEFA
A-RIÐILL:
APOEL Nikósía – Sevilla ........................ 1:0
Qarabag – Dudelange .............................. 1:1
Lokastaðan: Sevilla 15, APOEL 10,
Qarabag 5, Dudelange 4.
B-RIÐILL:
FC Köbenhavn – Malmö.......................... 0:1
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn
og sigurmark Malmö kom þegar hann
skallaði í varnarmann og inn.
Dynamo Kiev – Lugano ........................... 1:1
Lokastaðan: Malmö 11, FC Köbenhavn
9, Dynamo Kiev 7, Lugano 3.
C-RIÐILL:
Getafe – Krasnodar................................. 3:0
Jón Guðni Fjóluson var ekki í leik-
mannahópi Krasnodar.
Basel – Trabzonspor ................................ 2:0
Lokastaðan: Basel 13, Getafe 12, Kras-
nodar 9, Trabzonspor 1.
D-RIÐILL:
LASK Linz – Sporting Lissabon ............ 3:0
PSV Eindhoven – Rosenborg.................. 1:1
Lokastaðan: LASK Linz 13, Sporting 12,
PSV 8, Rosenborg 1.
E-RIÐILL:
CFR Cluj – Celtic..................................... 2:0
Rennes – Lazio ......................................... 2:0
Lokastaðan: Celtic 13, CFR Cluj 12, La-
zio 6, Rennes 4.
F-RIÐILL:
Eintracht Frankfurt – Guimaraes.......... 2:3
Standard Liege – Arsenal ....................... 2:2
Lokastaðan: Arsenal 11, Eintracht 9,
Standard Liege 8, Guimaraes 5.
G-RIÐILL:
Porto – Feyenoord ................................... 3:2
Rangers – Young Boys ............................ 1:1
Lokastaðan: Porto 10, Rangers 9, Young
Boys 8, Feyenoord 5.
H-RIÐILL:
Espanyol – CSKA Moskva ...................... 0:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson
kom inná sem varamaður á 78. mínútu.
Ludogorets – Ferencváros...................... 1:1
Lokastaðan: Espanyol 11, Ludogorets 8,
Ferencváros 7, CSKA Moskva 5.
I-RIÐILL:
Gent – Oleksandriya ................................ 2:1
Wolfsburg – Saint-Étienne ..................... 1:0
Lokastaðan: Gent 12, Wolfsburg 11, Sa-
int-Étienne 4, Oleksandria 3.
J-RIÐILL:
Mönchengladbach – I. Basaksehir ......... 1:2
Roma – Wolfsberger ................................ 2:2
Lokastaðan: Istanbul Basaksehir 10,
Roma 9, M’gladbach 8, Wolfsberger 5.
K-RIÐILL:
Slovan Bratislava – Braga....................... 2:4
Wolves – Besiktas .................................... 4:0
Lokastaðan: Braga 14, Wolves 13, Slovan
Bratislava 4, Besiktas 3.
L-RIÐILL:
Partizan Belgrad – Astana..................... 4:1
Rúnar Már Sigurjónsson lék í 85 mín-
útur með Astana.
Manchester Utd – AZ Alkmaar ............. 4:0
Albert Guðmundsson hjá AZ er frá
keppni vegna meiðsla.
Lokastaðan: Manchester United 13, AZ
Alkmaar 9, Partizan Belgrad 8, Astana 3.
KNATTSPYRNA
Annað árið í röð
er Arnór Ingvi
Traustason kom-
inn í 32ja liða úr-
slit Evrópudeild-
arinnar í
knattspyrnu með
sænska liðinu
Malmö. Arnór og
félagar mættu
þar Chelsea í
febrúar á þessu
ári og á mánudag kemur í ljós
hverjir mótherjar liðsins verða í
febrúar 2020.
Arnór Ingvi á drjúgan þátt í sigri
Malmö í B-riðli keppninnar því liðið
vann sætan útisigur á nágrönnum
sínum FC Köbenhavn á fullum Par-
ken-leikvanginum í dönsku höfuð-
borginni í gærkvöld, 1:0, þar sem
Arnór átti heiðurinn af sigurmark-
inu. Eftir fyrirgjöf frá hægri kast-
aði hann sér fram og skallaði að
marki, boltinn hefði farið framhjá
en fór í mótherja og af honum í net-
ið. Þetta var hreinn úrslitaleikur
liðanna um sæti í 32ja liða úrslit-
unum en FCK slapp áfram því Dy-
namo Kiev mistókst að vinna Lug-
ano frá Sviss á heimavelli á sama
tíma.
Tvö efstu lið í hverjum riðli fara
áfram en úrslit og lokastöður má
sjá hér fyrir ofan. vs@mbl.is
Arnór og
Malmö end-
urtóku leikinn
Arnór Ingvi
Traustason
NOREGUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Þetta var sjúk upplifun,“ sagði
Skagamaðurinn Jóhannes Þór
Harðarson, knattspyrnustjóri Start
í Noregi, þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í gær. Start vann sér
sæti í úrvalsdeildinni á næsta
keppnistímabili eftir lygilega at-
burðarás í umspili við Lilleström en
síðari leikur liðanna fór fram á mið-
vikudagskvöldið. Liðsmenn Start
stöldruðu við í höfuðstaðnum Osló
og fögnuðu úrvalsdeildarsætinu þar
að leiknum loknum. Þegar blaðið
spjallaði við Jóhannes í gær var
hópurinn í rútu á leið heim til
Kristiansand en þar beið þeirra
móttaka til að fagna árangrinum
sem náðst hefur.
Start vann fyrri leikinn gegn
Lilleström 2:1 á heimavelli. Lille-
ström vann síðari leikinn 4:3 og
Start komst því áfram á fleiri mörk-
um skoruðum á útivelli. Segir það
alls ekki alla söguna því Lilleström
komst í 4:0 í síðari leiknum.
„Þetta var eiginlega fáránlegt.
Ramminn í kringum leikinn var
mjög skemmtilegur. Margir stuðn-
ingsmenn voru á leiknum frá báðum
liðum og brjáluð stemning. Við vor-
um jú í ágætri stöðu eftir fyrri leik-
inn en í gær (á miðvikudag) þá
skoruðu þeir á 2. mínútu og allt fór
á hvolf. Þeir skoruðu annað fyrir hlé
og þá varð auðvitað allt vitlaust hjá
þeirra stuðningsmönnum. Þeir
skoruðu þriðja og fjórða markið til-
tölulega snemma í síðari hálfleik. Þá
gerðum við breytingar sem heppn-
uðust. Við höfðum sett upp
ákveðnar áætlanir ef við þyrftum að
skora á lokakaflanum eða ef við
þyrftum að verjast. En 4:0 var ekki
eitthvað sem við höfðum séð fyrir.“
Lilleström var í úrvalsdeild en
fellur nú úr henni í fyrsta skipti í 45
ár. Mikil pressa var því á leik-
mönnum liðsins og þegar niður-
staðan lá fyrir varð allt gersamlega
vitlaust hjá stuðningsmönnum liðs-
ins. Leikmenn þurftu lögreglufylgd
en í þeim hópi er Arnór Smárason,
sveitungi Jóhannesar. Í fyrri leikn-
um skynjaði Jóhannes að mótlæti
færi illa í leikmenn Lilleström eftir
slæmt gengi og fyrsta markið í síð-
ari leiknum gaf von.
Stöðva þurfti leikinn
„Við vissum að tækist okkur að
skora þá yrðu þeir brothættir. Sál-
ræna hliðin hefur verið veik hjá
þeim ef maður má orða það þannig
enda höfðu þeir ekki unnið í síðustu
ellefu eða tólf leikjum. Í fyrri leikn-
um tækluðu þeir ekki mótlætið vel.
Raunin varð sú að þegar við skor-
uðum þá fylgdu tvö önnur á næstu
fimm mínútum.“
Jóhannes spilaði sjálfur sem at-
vinnumaður bæði í Hollandi og Nor-
egi auk þess að leika Evrópuleiki
með ÍA en segist ekki hafa kynnst
öðru eins andrúmslofti og á mið-
vikudagskvöldið.
„Þegar staðan var orðin 4:3 þá
trylltist lýðurinn. Flugeldum var
skotið á loft og einhverjum bombum
eða reyksprengjum var kastað inn á
völlinn. Stöðva þurfti leikinn til að
fjarlægja þetta og ýmislegt sem
gekk á. Stemningin sem myndaðist
í þessum tiltekna leik var mjög sér-
stök. Ég hef aldrei kynnst öðru
eins,“ sagði Jóhannes en stuðnings-
menn Vålerenga létu sig ekki vanta.
Mikill rígur er á milli Lilleström og
Vålerenga. Komu stuðningsmenn
Vålerenga því gagngert á leikinn til
að styðja Start og sjá Lilleström
fara niður. „Já, þeir voru þarna.
Þegar staðan var 4:0 þá hraunuðu
einhverjir þeirra yfir okkur og yfir-
gáfu svæðið. Misstu því af öllu fjör-
inu þegar við tryggðum okkur upp,“
sagði Jóhannes.
Frábært tímabil Arons
Aron Sigurðarson hefur leikið
virkilega vel fyrir Start á tímabilinu
og Jóhannes fer fögrum orðum um
hans frammistöðu en Aron virtist
ekki vera inni í myndinni hjá for-
vera Jóhannesar.
„Aron hefur verið algerlega frá-
bær og á stóran þátt í þessum ár-
angri. Hann fékk lítið að spila undir
lok síðasta tímabils og ekki heldur á
undirbúningstímabilinu en svo
blómstraði hann þegar hann fékk að
spila. Hann hefur verið frábær í
gegnum allt tímabilið,“ sagði Jó-
hannes en Aron er samningsbund-
inn Start sem og Guðmundur Andri
Tryggvason sem í sumar var lán-
aður til Víkings. „Eins og staðan er
núna þá á ég von á þeim báðum á
æfingar eftir jólafríið. Það verður
spennandi að sjá hvernig það þróast
hjá Guðmundi. Frammistaða Arons
hefur gert það að verkum að lið
hafa sýnt honum áhuga sem er
ósköp eðlilegt.“
„Hef aldrei kynnst öðru eins“
Jóhannes og Aron léku nánast eftir Hollywood-handriti í umspilinu í Noregi
Unnu sig upp í úrvalsdeild eftir lygilega atburðarás Allt brjálað á pöllunum
Ljósmynd/Start/Tobias Svensson
Ótrúlegt Jóhannes Harðarson fagnar með sínum mönnum eftir að Start tryggði sér úrvalsdeildarsætið í fyrrakvöld.
Spretthlauparinn Tiana Ósk Whit-
worth setti nýtt Íslandsmet í 60 metra
hlaupi utanhúss á skólamóti í San
Diego í Bandaríkjunum þegar hún
hljóp vegalengdina á 7,64 sekúndum.
Hún sló þar met Hafdísar Sigurð-
ardóttur frá árinu 2013 en það var
7,68 sekúndur. Tinna og Guðbjörg
Jóna Bjarnadóttir eiga saman Ís-
landsmetið innanhúss í greininni en
það er 7,47 sekúndur. Áður hafa
Sunna Gestsdóttir, Svanhildur Krist-
jónsdóttir, Svafa Grönfeldt og Sigrún
Helga Hólm hlaupið 60 metra utan-
húss undir 8 sekúndum.
Tiana sló sex ára
met í San Diego
Ljósmynd/ÍSÍ
Methafi ÍR-ingurinn Tiana Ósk
Whitworth er ein sú fljótasta.
Ólafur Andrés Guðmundsson og
Teitur Örn Einarsson fóru á kost-
um þegar lið þeirra Kristianstad
vann fjögurra marka heimasigur
gegn Helsingborg í sænsku úrvals-
deildinni í handknattleik í gær.
Leiknum lauk með 29:25-sigri
Kristianstad en Íslendingarnir
skoruðu báðir 9 mörk hvor fyrir
Kristianstad sem fer með sigrinum
upp í fjórða sæti deildarinnar í 24
stig. Liðið er með jafn mörg stig og
Ystads sem er í þriðja sætinu með
18 stig en Kristianstad á tvo leiki til
góða á Ystads. bjarnih@mbl.is
Íslendingarnir
fóru á kostum
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliði Ólafur Guðmundsson fór
fyrir sínu liði gegn Helsingborg.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí
byrjaði vel í undankeppninni fyrir
Vetrarólympíuleikana í gær og vann
öruggan sigur á Asíuríkinu Kirg-
istan í miklum markaleik. Ísland
sigraði 9:4 en þjóðirnar eru með Ísr-
ael og Rúmeníu í riðli sem leikinn er
í Brasov í Rúmeníu.
Ólafur Hrafn Björnsson var at-
kvæðamikill og skoraði fjögur mörk
fyrir Ísland en hann kom liðinu á
bragðið með marki strax í upphafi
leiks. Hafþór Sigrúnarson skoraði
tvívegis og þeir Egill Birgisson, Jó-
hann Leifsson og Heiðar Kristveig-
arson gerðu sitt markið hver.
Miðað við árangur þjóðanna á HM
á undanförnum árum ættu heima-
menn að vera sigurstranglegastir í
riðlinum og undirstrikuðu það með
því að rótbursta Ísrael 15:0 í gær.
Leikur Íslands og Kirgistan
markaði þáttaskil því Ingvar Þór
Jónsson fyrirliði var ekki leikfær. Er
það fyrsti A-landsleikurinn sem
Ingvar missir af frá því A-landsliðið
var sett á laggirnar árið 1999. Ingv-
ar missti því ekki úr landsleik í tvo
áratugi sem er með ólíkindum. Í
fjarveru hans var Róbert Freyr
Pálsson fyrirliði Íslands og sá fyrsti
fyrir utan Ingvar til að fara fyrir ís-
lenska landsliðinu í fjöldamörg ár.
„Okkur gekk vel að opna þá en
þeir eru góðir margir hverjir. Geta
spilað hratt og skoruðu fjögur mörk.
En við fengum hins vegar mikið
pláss og áttum að vinna þennan leik
eins og við gerðum,“ sagði Ólafur
Hrafn Björnsson meðal annars í
samtali við mbl.is í gær.
Liðið sem vinnur riðilinn heldur
áfram á næsta stig undankeppn-
innar og fer þá í sterkari riðil.
kris@mbl.is
Níu mörk skoruð í fyrsta leik
Morgunblaðið/Ómar
4 Ólafur Hrafn Björnsson var mark-
sækinn gegn Kirgistan í gær.