Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Finnur Freyr Stefánsson og læri-
sveinar hans í danska körfuknatt-
leiksliðinu Horsens unnu sinn
þriðja leik í röð í dönsku úrvals-
deildinni þegar liðið fékk Randers í
heimsókn í toppslag deildarinnar í
gær. Leiknum lauk með 75:65-sigri
Horsens sem leiddi með tveimur
stigum í hálfleik, 31:29.
Þetta var tíundi sigurleikur Hor-
sens á tímabilinu sem er í þriðja
sæti deildarinnar með 20 stig, líkt
og Randers og topplið Bakken Be-
ars. Horsens hefur leikið 12 leiki,
Randers 13 og Bakken Bears 10.
Horsens hafði
betur í toppslag
Morgunblaðið/Hari
Þjálfari Finnur Freyr Stefánsson er
að gera frábæra hluti í Danmörku.
Alexander Petersson skoraði fjög-
ur mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen
þegar liðið tapaði óvænt 30:25 á úti-
velli fyrir Bjarka Má Elíssyni og
liðsfélögum hans í Lemgo í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gær.
Bjarki Már, sem er markahæsti
leikmaður þýsku deildarinnar,
komst ekki á blað hjá Lemgo en
Kristján Andrésson er þjálfari Lö-
wen. Ljónin eru í fjórða sæti deild-
arinnar með 24 stig, líkt og Hann-
over og Kiel, en Flensburg er í efsta
sætinu með 26 stig. Þá eru tvö lið
með 22 stig í fimmta og sjötta sæti.
Baráttan harðnar
í Þýskalandi
Ljósmynd/@tbvlemgolippe
Markahæstur Bjarki Már Elísson
komst ekki á blað í óvæntum sigri.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – Stjarnan ................ 18.30
Mustad-höllin: Grindavík – Þór Ak..... 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Keflavík ................. 20.15
1. deild karla:
Hveragerði: Hamar – Breiðablik........ 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Vestri .................. 19.15
Í KVÖLD!
Dominos-deild karla
KR – Valur ............................................ 87:76
Fjölnir – Njarðvík ................................ 81:88
ÍR – Tindastóll ...................................... 92:84
Staðan:
Keflavík 9 7 2 806:754 14
Tindastóll 10 7 3 871:823 14
Stjarnan 9 7 2 837:756 14
Njarðvík 10 6 4 831:735 12
ÍR 10 6 4 845:854 12
KR 10 6 4 826:816 12
Haukar 9 5 4 804:773 10
Þór Þ. 9 4 5 710:733 8
Grindavik 9 4 5 768:777 8
Valur 10 3 7 804:863 6
Fjölnir 10 1 9 857:933 2
Þór Ak. 9 1 8 707:849 2
1. deild karla
Höttur – Álftanes ................................. 87:76
Skallagrímur – Snæfell .................... 101:110
Staðan:
Höttur 11 10 1 962:853 20
Hamar 10 9 1 967:864 18
Breiðablik 10 9 1 1007:812 18
Vestri 9 5 4 802:713 10
Selfoss 10 4 6 783:810 8
Álftanes 11 4 7 882:942 8
Snæfell 11 2 9 865:1037 4
Skallagrímur 11 2 9 921:1066 4
Sindri 9 1 8 726:818 2
Evrópudeildin
Khimki Moskva – Alba Berlín.......... 104:87
Martin Hermannsson skoraði 4 stig fyrir
Alba, átti 4 stoðsendingar og tók 2 fráköst
en hann lék í 20 mínútur.
Danmörk
Horsens – Randers .............................. 75:65
Finnur Freyr Stefánsson þjálfar Hor-
sens sem er í þriðja sæti deildarinnar.
NBA-deildin
Orlando – LA Lakers ........................... 87:96
Toronto – LA Clippers....................... 92:112
Cleveland – Houston ........................ 110:116
Indiana – Boston............................... 122:117
Brooklyn – Charlotte ....................... 108:113
Minnesota – Utah ............................. 116:127
Chicago – Atlanta ............................. 136:102
Phoenix – Memphis .......................... 108:115
Milwaukee – New Orleans............... 127:112
Sacramento – Oklahoma City ............. 94:93
Golden State – New York ........ (frl) 122:124
KÖRFUBOLTI
HANDBOLTI
Grill 66 deild kvenna
FH – Stjarnan U................................... 33:17
Grótta – ÍBV U ..................................... 29:26
Staðan:
Fram U 11 11 0 0 375:252 22
FH 11 9 1 1 309:238 19
Selfoss 11 7 2 2 253:236 16
Grótta 11 7 1 3 276:255 15
ÍR 11 7 0 4 286:266 14
Valur U 11 6 1 4 301:277 13
ÍBV U 11 4 1 6 275:276 9
Stjarnan U 11 3 1 7 267:309 7
Fylkir 11 3 0 8 214:244 6
Fjölnir 11 3 0 8 262:303 6
HK U 11 2 1 8 262:326 5
Víkingur 11 0 0 11 247:345 0
Þýskaland
Füchse Berlín – Kiel............................ 29:28
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla.
Lemgo – RN Löwen ............................ 30:25
Bjarki Már Elísson skoraði ekki fyrir
Lemgo en Alexander Petersson skoraði 4
mörk fyrir Löwen. Kristján Andrésson
þjálfar lið Löwen.
Flensburg – Balingen ......................... 32:25
Oddur Gretarsson skoraði ekki fyrir
Balingen.
Stuttgart – Melsungen........................ 31:28
Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir
Stuttgart.
Svíþjóð
Kristianstad – Helsingborg................ 29:25
Ólafur Guðmundsson skoraði 9 mörk
fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 9.
Sävehof – Lugi ..................................... 27:25
Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í
marki Sävehof.
Alingsås – Redbergslid....................... 25:27
Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Alingsås.
Danmörk
Skjern – Holstebro .............................. 33:36
Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyr-
ir Skjern og Björgvin Páll Gústavsson
varði 2 skot í markinu. Patrekur Jóhann-
esson þjálfar liðið.
Í BREIÐHOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
ÍR vann sterkan 92:82-heimasigur á
Tindastóli í 10. umferð Dominos-
deildar karla í körfubolta í gær-
kvöldi. Með sigrinum stoppaði ÍR
sex leikja sigurgöngu Tindastóls.
ÍR-ingar hafa verið á fínni siglingu
að undanförnu og unnið sex af síð-
ustu átta leikjum sínum. Margir ótt-
uðust það versta fyrir ÍR, þar sem
liðið missti nánast alla þá leikmenn
sem fóru í úrslitaeinvígið gegn KR á
síðustu leiktíð.
Í þeirra stað eru komnir leikmenn
sem eru alls ekki síðri. Georgi Boya-
nov er virkilega góður og hefur hann
komist betur inn í liðið eftir því sem
liðið hefur á mótið. Gott er að hafa
mann eins og Collin Pryor, Evan
Singletary sem er ólíkindatól á góð-
an hátt og Danero Thomas sem skil-
ar alltaf sínu. Þá er Sæþór Elmar
Kristjánsson enn hjá liðinu, en hann
vex með hverju árinu. Þeir skipa
býsna sterkt byrjunarlið hjá ÍR og
sannaði liðið í gær að það getur unn-
ið hvaða lið sem er á góðum degi og
þá sérstaklega í gryfjunni sem
heimavöllurinn er orðinn. ÍR fékk
ekki eitt einasta sig af bekknum í
gær og þar getur liðið helst bætt sig.
ÍR-ingar voru ófeimnir við að ráð-
ast á körfuna og hvað eftir annað
náðu þeir í vítaskot. Singletary, Coll-
in Pryor og Boyanov skoruðu allir
níu stig af vítalínunni og nýttu ÍR-
ingar 27 af 30 vítaskotum sínum,
sem er gríðarlega sterkt.
ÍR sparkar alltaf frá sér
ÍR er sennilega ekki með nægi-
lega gott lið til að geta orðið meist-
ari, en það fer enginn í Breiðholtið í
auðveldan leik. ÍR sparkar alltaf frá
sér og á Borche Ilievski hrós skilið
fyrir að leggja ekki árar í bát, heldur
búa til nýtt sterkt lið.
Tindastólsmenn voru ólíkir sjálf-
um sér og voru þeir snöggir að láta
mótlætið hafa áhrif á ákvarðanir sín-
ar í sóknarleiknum. Hvað eftir ann-
að fóru þeir í erfitt einstaklings-
framtak sem ÍR-ingar áttu ekki í
miklum erfiðleikum með að stöðva.
Leikmannahópur Tindastóls er
mjög sterkur, en of fáir náðu sér á
strik í gær. Jaka Brodnik, Pétur
Rúnar Birgisson og Sinisa Bilic voru
sterkir, en aðrir náðu sér ekki á
strik. Tindastóll saknar Jasmin
Perkovic sem er meiddur, en hann
gerir mikið fyrir liðið á báðum end-
um vallarins.
Tindastóll gat ekkert æft tvo daga
fyrir leik, þar sem rafmagnslaust
var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
eftir veðráttu vikunnar. Gæti það
haft sitt að segja, enda leikmenn
ekki eins undirbúnir og ekki eins vel
nærðir, þar sem þeir áttu í erfið-
leikum með að elda. Það hefur allt
áhrif í íþrótt eins og körfubolta, þar
sem smáatriðin skipta sköpum.
Takist Keflavík og Stjörnunni að
vinna í kvöld, skilja þau Tindastól
eftir í þriðja sæti, tveimur stigum á
eftir sér. ÍR er með tólf stig, eins og
Njarðvík og KR í 4.-6. sæti. ÍR-ingar
verða væntanlega áfram í þeirri bar-
áttu. Haldi þeir áfram að spila eins
og í gær gætu þeir jafnvel nælt sér í
heimavallarrétt í úrslitakeppninni.
Tindastóll verður að jafna sig fljótt í
mikilli baráttu um deildarmeist-
aratitilinn.
Kærkominn sigur hjá KR
KR gat loks fagnað sigri eftir
þrjú töp í röð í öllum keppnum og
fimm töp í sex leikjum. KR hafði
betur gegn Val á heimavelli, 87:76,
þrátt fyrir fjarveru Kristófers Acox
og Jón Arnórs Stefánssonar. Helgi
Már Magnússon skoraði 21 stig fyrir
KR en Frank Aron Booker gerði 22
fyrir Val, sem hefur tapað síðustu
sex deildarleikjum.Valsmenn eru að-
eins fjórum stigum frá fallsæti, sem
eru mikil vonbrigði þar á bæ, en Val-
ur ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu.
Njarðvík vann sinn fimmta sig-
ur í röð og Fjölnir tapaði sínum átt-
unda leik í röð er liðin mættust í
Grafarvogi. Njarðvík hefur spilað
gríðarlega vel síðan félagið samdi
við Chaz Williams og hann skoraði
25 stig í gærkvöldi og var stigahæst-
ur hjá Njarðvíkingum. Srdan Stoj-
anovic skoraði 26 stig fyrir Fjölni,
sem er í slæmum málum með aðeins
einn sigur.
ÍR ætlar sér í toppbaráttu
ÍR vann sterkan heimasigur á Tindastóli Sex leikja sigurganga Tindastóls á
enda Loksins unnu sexföldu meistararnir Njarðvíkingar á mikilli siglingu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umkringdur ÍR-ingurinn Evan Singletary umkringdur leikmönnum Tindastóls í Breiðholtinu í gær.
Ljósmynd/ÍF
Heiðruð Bergrún Ósk, Ásta Katrín og Már voru verðlaunuð á hófi ÍF.
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir og Már
Gunnarsson voru útnefnd íþróttafólk
ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra á
árlegri hátíðarathöfn ÍF sem fram fór
á Hótel Sögu í gær.
Hinn 20 ára gamli Már vann til
bronsverðlauna í 100 metra baksundi
á HM í London í september, setti 28
Íslandsmet á árinu og synti undir
gildandi heimsmeti í þremur greinum
á Íslandsmótinu í sundi í 25 metra
laug í nóvember.
Bergrún Ósk, 19 ára, gerði sér
lítið fyrir og hafnaði í fimmta sæti í
langstökki á HM í Doha í frjálsum
íþróttum sem fram fór í nóvember.
Bergrún stökk lengst 4,26 metra
sem er hennar besta stökk frá
upphafi. Þetta er annað árið í röð
sem Bergrún er valin íþróttakona
ÍF.
Þá fékk íþróttakennarinn Ásta
Katrín Helgadóttir Hvataverðlaun
ÍF fyrir áratuga starf innan ÍF.
Bergrún Ósk og Már
sköruðu fram úr í ár