Morgunblaðið - 13.12.2019, Page 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Undir fána lýðræðis eftirHallgrím Hallgrímssoner merkileg heimild.Hallgrímur var einn
þriggja Íslendinga sem börðust í al-
þjóðasveitum kommúnista lýðræð-
ishernum gegn sveitum Franciscos
Francos í borgarastyrjöldinni á
Spáni á fjórða
áratug liðinnar
aldar. Endur-
minningar hans
frá þeim hild-
arleik komu fyrst
út árið 1941 og
eru nú endur-
útgefnar.
Frásögn Hall-
gríms frá veru
sinni á Spáni 1937-38 er greinargóð
og grípandi. Lýsingar hans eru oft og
tíðum magnaðar. Hann gefur innsýn
í þau áhrif, sem átök hafa á sálarlífið,
og lýsir einnig óvissunni, biðinni og
þeim skrítna hversdagsleika, sem
meira að segja getur fundið sér leið
inn í stríð og blóðsúthellingar.
„Á örlagastund skal manninn
reyna,“ skrifar hann, „en ekki þegar
lífið leikur við hann.“
Á einum stað lýsir hann því þegar
loftárás hefst og hann er staddur á
berangri þar sem hvorki er skotgröf
né holu að finna þannig að hann
stansar undir ólífutré við veginn um
leið og sprengjunum fer að rigna nið-
ur: „Ég klessi mér öllum niður svo
sem framast er hægt … Það heyrist
veikur súgur í lofti … Á þessu augna-
bliki, sem ekki er nema brot úr sek-
úndu, er maður aðeins handviss um
eitt í þessum heimi og það er það að
sprengjan hæfi mann þráðbeint í
hnakkann.“
Síðan segir hann að hann hafi aldr-
ei rekist á „neina lýsingu á sálarlífi
manns sem liggur undir sprengju-
kasti úr loftinu, þannig að nokkur lif-
andi mynd fáist af því lífi“, aðeins af-
burðamönnum myndi takast að
draga upp slíka mynd og yrðu þá að
styðjast við eigin reynslu. Það kann
að vera rétt, en sú mynd sem Hall-
grímur dregur upp er ansi áhrifarík.
Sú spurning vaknar hins vegar
hvort hann segi alla söguna. Hvort
hann hafi tekið meiri þátt í átökunum
en þarna kemur fram.
Hallgrímur kemur víða við á víg-
stöðvunum og oft virðist sem hann sé
að miklu leyti frjáls ferða sinna. Þá
virðist hann vart hleypa af vopni. Í
fróðlegum eftirmála eftir Einar Kára
Jóhannsson og Styrmi Dýrfjörð, sem
bjuggu endurminningar Hallgríms til
endurútgáfu, er vikið að hvoru
tveggja. Er getum leitt að því að það
hvað hann er mikið á ferðinni bendi
til að hann hafi ekki aðeins verið
óbreyttur hermaður.
Hallgrímur var einn af stofnendum
Kommúnistaflokksins. Hann fór til
Sovétríkjanna í nám og hlaut þar
þjálfun í vopnaburði og bylting-
arstarfsemi. Spurningin er aðeins
hversu mikil sú þjálfun var. Þegar
hann kom heim þjálfaði hann Varn-
arlið verkalýðsins.
Borgarastyrjöldin á Spáni skildi
eftir sig djúp ör í spænsku samfélagi
og þau eru enn ekki gróin. Hún átti
sér stað þegar öfgar tókust á í álf-
unni, fasisminn og kommúnisminn.
Franco naut stuðnings Þjóðverja og
Ítala. Lýðræðisöflin voru hins vegar
hikandi í stuðningi sínum við and-
stæðinga hans, líkt og þau áttu eftir
að vera í andstöðu sinni við Adolf Hit-
ler og Þjóðverja í aðdraganda seinni
heimsstyrjaldar. Endurminningar
Hallgríms hafa orðið mörgum efni-
viður eins og fram kemur í eftirmála
bókarinnar og má þar helst nefna
skáldsöguna Yfir Ebrofljótið eftir
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. Hún
fjallar um eina helstu orrustu borg-
arastyrjaldarinnar og þar var Hall-
grímur í fremstu víglínu. Óður til
Katalóníu eftir George Orwell um
þátttöku hans í borgarastyrjöldinni
er ein þekktasta bók hans og senni-
lega hefur engin bók haft jafnmikil
áhrif á túlkun á átökunum, í það
minnsta utan Spánar. Bók Orwells
kom út þremur árum á undan Undir
fána lýðveldis og þessar bækur verða
ekki lagðar að jöfnu, en endurminn-
ingar Hallgríms eru engu að síður
merkileg frumheimild og endur-
útgáfa þeirra þarft verk.
Æðrulaus á örlagastund
Hallgrímur Lýsingar hans eru „oft
og tíðum magnaðar,“ skrifar rýnir.
Endurminningar
Undir fána lýðveldisins: Endur-
minningar frá Spánarstyrjöldinni
bbbmn
Eftir Hallgrím Hallgrímsson.
Una útgáfuhús, 2019 (1. útgáfa 1941).
219 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
Jóhannes Sveinsson Kjarvalvar merkilegur karl, langurog mjór og gekk oftast ummeð hatt á höfðinu,“ segir í
öðrum kafla þessarar athyglisverðu
og mikilvægu bókar, þegar höfund-
urinn, Margrét Tryggvadóttir, byrj-
ar að skýra út fyr-
ir lesendum
hvaða málari það
er sem búið er að
lýsa þar sem hann
stendur einn úti í
hrauni daginn
langan og málar
mynd í vondu
veðri, „eins og
hann eigi lífið að
leysa“. Jóhannes þessi „var listmál-
ari og einn sá virtasti sem fæðst hef-
ur á Íslandi fyrr og síðar. Hann hafði
ekki bara áhrif á samtíma sinn held-
ur líka síðari kynslóðir. Honum tókst
að skapa eitthvað alveg nýtt og birta
Íslendingum nýja sýn á landið sitt“.
Og svo skrifar höfundur að í bókinni
verði sögð saga hans og myndanna.
Ég segi að þetta sé mikilvæg bók,
því hún fjallar um einn merkilegasta
listamann okkar á síðari öldum og er
skrifuð fyrir börn og unglinga; hún
er skrifuð til að kynna myndheim
Kjarvals fyrir nýjum kynslóðum og
við það er farin sú eðlilega leið að
segja söguna gegnum manninn –
þennan hæfileikaríka, flókna, mót-
sagnakennda og afskaplega tragíska
mann.
Og það er staðreynd að hér á landi
vex úr grasi fjöldi fólks sem fer á mis
við nauðsynlega fræðslu um okkar
helstu listamenn, og þar með kjarn-
ann í íslenskri menningu og tilveru
okkar. Fyrir nokkrum árum var
kona að leysa af í safnaleiðsögn á
Listasafni Íslands og tók á móti ung-
lingum í sal þéttskipuðum mynd-
verkum frumherja íslenskrar mynd-
listar, þar á meðal lykilverkum
Kjarvals. Í byrjun bað hún ung-
lingana að nefna einhverja íslenska
myndlistarmenn. Það var þögn og
sumir tvístigu vandræðalega. Loks
braut einn ísinn og svaraði hikandi:
„Halldór Laxness?“
Að Íslendingar sem komnir eru
áleiðis í grunnskólagöngu og lengra
þekki ekki Kjarval eða Laxness er
fáránlegt og bæði við foreldra og
skóla að sakast – en bók eins og þessi
getur komið þar til hjálpar.
Margrét segir sögu Kjarvals og
listsköpunar hans í nær fjörutíu
stuttum köflum. Textinn er knappur
og lipurlega skrifaður, hann rennur
vel og er í senn skemmtilegur og
upplýsandi. Hann er líka heiðarlegur
og fegrar ekki mydina; til að mynda
kemur fram hvað listamaðurinn var
grimmur og tillitslaus við sína nán-
ustu. Og lykilatriði er að lesandinn
finnur fyrir áhuga og ástríðu sögu-
manns fyrir efninu. Textinn er nægi-
lega einfaldur svo auðvelt er að lesa
hann með talsvert ungum börnum en
unglingar og alveg eins fullorðnir
geta notið hans, um leið og þeir
skoða verk eftir meistarann og ljós-
myndir frá ævi hans. Því bókin er
ríkulega myndskreytt, eins og vera
ber. Í henni eru um sex tugir mynd-
verka frá öllum ferli Kjarvals; frá
teikningum sem hann gerði ungur á
Borgarfirði eystra að hinu tóma lita-
spjaldi sem hann skildi í lokin eftir á
trönunum. Þá eru í bókinni tugir
upplýsandi og forvitnilegra ljós-
mynda og hefur höfundur leitað
fanga víða. Sakna ég þess helst að sjá
þar ekki einhver hinna meistaralegu
portretta eftir Jón Kaldal.
Bókin er skrautlega hönnuð og um
brotin. Málverkin sitja á ólíkum lit-
flötum og hallast ekki, hins vegar
hallast ljósmyndir undantekninga-
lítið, settar eru á þær sumar horn
eins og úr albúmum, þá eru síður
skreyttar með höttum og öðrum
hlutum úr eigu Kjarvals, tjaldhæl-
um, litatúpum, kössum undir myndir
og slíku.
Ég heyri að það eru skiptar skoð-
anir um þetta skrautlega útlit. Sum-
um finnst það við hæfi fyrir yngri
lesendur en mér finnst of mikið
ganga á, halli mynda á síðum ekki
virka og ólíkir litagrunnar vera
óreiðukenndir, í bland við handgerða
upphafsstafi kafla og losaralegt letur
sem valið er í myndatexta.
En hvað sem þeim útlitslegu að-
finnslum líður, þá er þetta mikilvæg
og vel skrifuð bók, sem minnir á
merka arfleifð eins okkar mestu
listamanna, og á heim myndverka
sem okkur ber öllum að þekkja.
Kjarval fyrir fjölskylduna
Morgunblaðið/Eggert
Margrét Þetta er „mikilvæg og vel
skrifuð bók, sem minnir á merka
arfleifð eins okkar mestu lista-
manna“, skrifar gagnrýnandi.
Ævisaga fyrir ungmenni
Kjarval – Málarinn sem
fór sínar eigin leiðir bbbbn
Eftir Margréti Tryggvadóttur.
Iðunn 2019. Innb. 96 bls., í stóru broti,
með fjölda myndverka og ljósmynda.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 13. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 14.sýn
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Lau 28/12 kl. 19:30 20. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 21.sýn
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Sun 29/12 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Fim 2/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Engillinn (Kassinn)
Fös 20/12 kl. 19:30 aðalæfing Lau 4/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6.sýn
Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Sun 5/1 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5.sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Leitin að jólunum (Brúðuloftið)
Lau 14/12 kl. 11:00 365.
sýn
Sun 15/12 kl. 13:00 369.
sýn
Lau 21/12 kl. 14:30 373.
sýn
Lau 14/12 kl. 13:00 366.
sýn
Sun 15/12 kl. 14:30 370.
sýn
Sun 22/12 kl. 11:00 374.
sýn
Lau 14/12 kl. 14:30 367.
sýn
Lau 21/12 kl. 11:00 371.
sýn
Sun 22/12 kl. 13:00 375.
sýn
Sun 15/12 kl. 11:00 368.
sýn
Lau 21/12 kl. 13:00 372.
sýn
Sun 22/12 kl. 14:30 376.
sýn
Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Mán 23/12 kl. 13:00
aðalæfing
Lau 4/1 kl. 19:30 3. sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums Sun 5/1 kl. 19:30 4. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Eyður (Stóra Sviðið)
Mið 15/1 kl. 19:30 Frums Mán 20/1 kl. 19:30 2. sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Dansandi Ljóð - Leikhúslistakonur 50+ (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 18/1 kl. 20:00 Fös 24/1 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 16:00 Sun 26/1 kl. 16:00
Kynngikraftur kvenna birtist í leiklist, ljóðum og tónlist
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 13/12 kl. 20:00 30. s Fös 27/12 kl. 20:00 34. s Lau 4/1 kl. 20:00 37. s
Lau 14/12 kl. 20:00 31. s Lau 28/12 kl. 20:00 35. s Sun 5/1 kl. 20:00 38. s
Lau 21/12 kl. 20:00 33. s Fös 3/1 kl. 20:00 36. s
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 14/12 kl. 13:00 74. s Lau 28/12 kl. 20:00 79. s Lau 18/1 kl. 13:00 83. s
Sun 15/12 kl. 13:00 75. s Sun 29/12 kl. 13:00 80. s Sun 19/1 kl. 13:00 84. s
Sun 22/12 kl. 13:00 76. s Sun 5/1 kl. 13:00 81. s
Fim 26/12 kl. 13:00 77. s Sun 12/1 kl. 13:00 82. s
Allra síðustu aukasýningarnar í janúar.
Eitur (Litla sviðið)
Fös 13/12 kl. 20:00 21. s Fös 27/12 kl. 20:00 24. s Sun 29/12 kl. 20:00 26. s
Fim 19/12 kl. 20:00 22. s Lau 28/12 kl. 20:00 25. s
Takmarkaður sýningartími, sýningum lýkur í desember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Lokasýning!
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 18. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s Sun 29/12 kl. 20:00 20. s
Allra síðustu sýningar.
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 14/1 kl. 20:00 5. s Þri 21/1 kl. 20:00 6. s
Kvöldstund með listamanni.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Lokasýning!
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Þri 11/2 kl. 20:00 4. s
Kvöldstund með listamanni.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 14/12 kl. 13:00 18. s Lau 21/12 kl. 13:00 20. s
Sun 15/12 kl. 13:00 19. s Sun 22/12 kl. 13:00 21. s
Aðeins sýnt á aðventunni.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Fim 16/1 kl. 20:00 4. s Fim 23/1 kl. 20:00 7. s
Sun 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 19/1 kl. 20:00 5. s Fim 30/1 kl. 20:00 8. s
Mið 15/1 kl. 20:00 3. s Mið 22/1 kl. 20:00 6. s Sun 2/2 kl. 20:00 9. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Kraumsverðlaunin voru afhent í
gær og hlaut fjölbreyttur hópur
listamanna verðlaunin í ár enda
mikil gróska í íslensku tónlistarlífi.
Kraumsverðlaunin hlutu Between
Mountains fyrir fyrstu breiðskífu
sína samnefnda sveitinni, Bjarki
fyrir plötuna Happy Earthday,
Gróa fyrir Í glimmer heimi, Hlökk
fyrir Hulduljóð, K.óla fyrir Allt
verður alltílæ og Sunna Margrét
fyrir Art of History.
Þetta er í tólfta sinn sem
Kraumur tónlistarsjóður Auroru
velgerðarsjóðs stendur fyrir af-
hendingu Kraumsverðlaunanna
fyrir þær íslensku hljómplötur sem
þykja hafa skarað fram úr á árinu
hvað varðar gæði, metnað og
frumleika.
Sex plötur hlutu Kraumsverðlaunin