Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Sähkökitarakv-
artetti nefnist
finnsk-íslenskur
rafgítarkvartett
sem kemur
fram í Mengi
við Óðinsgötu í
kvöld. Kvart-
ettinn sérhæfir
sig í flutningi á
nýrri tónlist á
jaðri djass, nú-
tímatónlistar og anarkískrar rokk-
tónlistar. „Markmið kvartettsins
er að brjóta niður ímyndaða múra
á milli mismunandi stíltegunda
tón- og hljóðlistar,“ segir í til-
kynningu. Tónleikarnir í Mengi
eru hluti af verkefninu The String
Network og á efnisskránni verða
ný verk samin fyrir kvartettinn,
verk eftir Tytti Arola og Þorkel
Nordal, Hafdísi Bjarnadóttur og
Daníel M. Karlsson. Gestagít-
arleikari verður Hafdís Bjarna-
dóttir. Húsið verður opnað kl.
20.30.
Gestagítarleikari
Hafdís Bjarnadóttir.
Sähkökitarakvart-
etti leikur í Mengi
Viðburðurinn
Jólaseiður fer
fram í portinu að
baki Brynju við
Laugaveg 29 í
dag kl. 18.30.
Verður þar boðið
upp á ljúfa tóna,
heita drykki og
súpu. Dead Gall-
ery mun fara í
sparifötin og Prentminjasafnið
opnar í fyrsta sinn dyrnar fyrir al-
menningi, skv. tilkynningu. Kl. 20
færist gleðin inn í Dead Gallery þar
sem Þórgnýr Inguson les ljóð og
Kristín Anna Valtýsdóttir flytur
tónlist og Teitur Magnússon jóla-
lög, svo fátt eitt sé nefnt en Teitur
er einnig kynnir kvöldsins.
Jólaseiður í porti
Teitur Magnússon
Bandaríski leikstjórinn RianJohnson hefur gertnokkrar afbragðskvik-myndir á ferli sínum og
eru Brick og Looper þær eftir-
minnilegustu. Í þeirri fyrrnefndu lék
hann sér með rökkurmyndaformið
og þeirri síðarnefndu tímaflakk. Nú
bætir hann í safnið Knives Out,
kvikmynd sem skartar mörgum
þekktum leikurum og er í anda sí-
gildra morðgátusagna og -kvik-
mynda. Áhrif hinnar ensku Agöthu
Christie eru alltaf mikil í þeirri grein
eða tegund kvikmynda, eðlilega, og
hennar þekktasta persóna, Hercule
Poirot, er skemmtilega spegluð í
einkaspæjaranum Benoit Blanc sem
Daniel Craig leikur. Nafnið eitt er
vísun í Poirot þótt Blanc sé að vísu
bandarískur. Craig nýtur sín einkar
vel í hlutverkinu og er með hlægileg-
an suðurríkjahreim, eins og forvitnir
geta sannreynt með því að horfa á
kynningarstiklu fyrir kvikmyndina.
Johnson leikur sér hér með morð-
gátuformið og fylgir að mestu for-
skriftinni. Sögusviðið lengst af er
glæsilegt sveitasetur. Þar finnst
frægur og forríkur glæpasagnahöf-
undur, Harlan Thrombley, látinn á
skrifstofu sinni. Thrombley, leikinn
af Christopher Plummer, hefur
blætt út og í fyrstu er talið að hann
hafi skorið sig sjálfur á háls. Blanc
telur það þó heldur ólíklegt enda
heldur sjaldgæf sjálfsvígsaðferð.
Hann segist hafa verið fenginn til að
rannsaka andlát Thrombleys en veit
ekki hver réð hann til verksins sem
hann fékk greitt ríkulega fyrir með
nafnlausri peningasendingu.
Thrombley lést eftir að hafa hald-
ið upp á 85 ára afmæli sitt með nán-
ustu fjölskyldu og tengdabörnum en
eftir því sem fleiri eru teknir í yfir-
heyrslu af Blanc og lögreglumönn-
um sem eru honum til aðstoðar kem-
ur í ljós að fleiri en einn vildu eflaust
Thrombley feigan. Meðal hinna
grunuðu er einkahjúkrunarkona
Thrombleys, skemmtilega leikin af
hinni sakleysislegu Önu de Armas,
sú sem sá hann seinast á lífi.
Líkt og verða vill í góðum morð-
gátum vindur sagan hratt og örugg-
lega upp á sig en spæjarinn virðist
hafa alla þræði í hendi sér og leikur
sér að hinum grunuðu eins og köttur
að músum. En þá tekur leikstjórinn
og handritshöfundurinn Johnson
óvæntan snúning á formúluna og
kemur áhorfendum í opna skjöldu.
Kann það að styggja þá sem vilja
enga slíkar viðbætur í uppskriftina
en styggði þó ekki ofanritaðan.
Leikaravalið er einstaklega gott í
myndinni og greinilegt að leik-
ararnir hafa notið sín í tökum. Craig
er kostulegur sem Blanc og Jamie
Lee Curtis, Don Johnson, Michael
Shannon og Toni Collette, sem leika
börn og tengdabörn hins látna, sýna
að sama skapi góða takta, misjafn-
lega illa innrætt, fordómafull, gráð-
ug og vanþakklát. De Armas er í erf-
iðasta hlutverkinu og leikur bráðvel
hjúkrunarkonuna Mörtu sem allir
þykjast líta á sem eina af fjölskyld-
unni en geta ómögulega munað
hverrar þjóðar hún er. Ekvador,
Brasilía og Mexíkó koma þar við
sögu. Marta er grunsamlega sak-
leysisleg og ljúf og áhorfendur velta
því ábyggilega flestir fyrir sér hvort
geðshræring hennar sé raunveruleg
sem og barnsleg einlægnin. Plumm-
er er dásamlega djöfullegur í hlut-
verki Thrombleys í endurlitum sem
varpa eiga ljósi á hvað hafi gerst.
Rian Johnson gætir þess að afvega-
leiða áhorfendur með reglulegu
millibili, eins og nauðsynlegt er
góðri morðgátu, þannig að þeir haldi
að þeir séu búnir að leysa gátuna en
komist svo að því að svo er ekki.
Hvort lausnin er á endanum fyrir-
sjáanleg og spennan nægileg verður
hver að meta fyrir sig en gagnrýn-
andi var í það minnsta sáttur.
Hér er vandað til verka í alla
staði. Samtöl eru skemmtileg, bún-
ingar, sviðsmynd og lýsing full-
komlega í anda hefðarinnar sem og
tónlist og myndataka. Í fyrstu er
óljóst hvort sagan á sér stað í sam-
tímanum eða á síðustu öld en þegar
barnabarn Thrombleys, unglings-
piltur sem sagður er nýnasisti, dreg-
ur upp snjallsíma kemur í ljós að
sagan á sér stað á okkar tímum. Þá
er bráðfyndin sú uppfinning John-
son að láta eina persónuna þjást af
þeim veikleika að kasta upp í hvert
sinn sem hún lýgur. Þann veikleika
nýtir Blanc sér auðvitað með
skondnum hætti. Ekki svo að skilja
að þetta sé gamanmynd, hún er það
aðeins að hluta en er í grunninn
klassísk morðgáta í anda Christie,
sem fyrr segir, með nútímalegum og
léttleikandi súningi á formið.
Eflaust má koma auga á ýmis
smáatriði við annað áhorf á mynd-
ina, hún er þess eðlis og líka prýði-
leg kynning á gamla morðgátuform-
inu fyrir þá sem ekki þekkja til.
Líklega er það fólk undir tvítugu eða
jafnvel þrítugu, ég skal ekki segja.
Hafa ber þó í huga að aldraður mað-
ur sést skorinn á háls í myndinni og
annað atriði gæti farið fyrir brjóstið
á viðkvæmum og því er myndin eðli-
lega bönnuð börnum undir 12 ára
aldri.
Knives Out er nostalgísk bíóupp-
lifun, minnir mann á hversu gaman
er að vel heppnuðum morðgátum af
gamla skólanum og ánægjulegt að
sjá vinsælan Hollywood-leikstjóra
vinna vel með formúluna. „Brytinn
gerði það“ er stundum sagt í gríni
um endinn á slíkum gátum en þann-
ig er það ekki í tilfelli Knives Out því
þar er enginn bryti.
Köttur og mýs
Uppgjör Einkaspæjarinn Benoit Blanc, leikinn af Daniel Craig, fer yfir snúna morðfléttuna í lok Knives Out.
Ana de Armas, sem leikur hjúkrunarkonuna Mörtu, sést í bakgrunni í hásæti búnu til úr ógrynni hnífa.
Laugarásbíó, Borgarbíó,
Smárabíó og Háskólabíó
Knives Out bbbbm
Leikstjóri og handritshöfundur: Rian
Johnson. Aðalleikarar: Ana de Armas,
Chris Evans, Christopher Plummer,
Daniel Craig, Don Johnson, Edi Patter-
son, Frank Oz, Jaeden Lieberher, Jamie
Lee Curtis, Katherine Langford, Lakeith
Stanfield, Michael Shannon, Riki Lind-
home og Toni Collette. Bandaríkin,
2019. 130 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
ICQC 2020-2022
Nánari
upplýsingar um
sýningartíma
á sambíó.is