Morgunblaðið - 13.12.2019, Side 40
Lokatónleikar haustdagskrár djass-
klúbbsins Múlans verða haldnir í
kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Á
þeim kemur fram hljómsveit söng-
konunnar Unu Stef, Una Stef & the
SP74, og flytur jólalög úr ýmsum
áttum. Auk Unu eru í sveitinni Elvar
Bragi Kristjónsson á trompet og
flugelhorn, Sólveig Moravék á saxó-
fón og flautu, Daníel Helgason gít-
arleikari, Baldur Kristjánsson
bassaleikari og Sólrún Mjöll Kjart-
ansdóttir trommuleikari.
Una og hljómsveit
flytja jólalög í Hörpu
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 347. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Aron hefur verið algerlega frábær
og á stóran þátt í þessum árangri.
Hann fékk lítið að spila undir lok
síðasta tímabils og ekki heldur á
undirbúningstímabilinu en svo
blómstraði hann þegar hann fékk
að spila,“ segir Jóhannes Harðar-
son, knattspyrnustjóri Start, um
frammistöðu Arons Sigurðarsonar
á keppnistímabilinu í Noregi. »34
Frábær frammistaða
Arons fyrir Start
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Knattspyrnufélag Framherja og
Smástundar í Vestmannaeyjum,
KFS, er sennilega eina félag heims
sem fjármagnar reksturinn á sölu-
launum getraunaseðla og leggur
auk þess fyrir í varasjóð.
Maðurinn á bak við þessa ótrú-
legu staðreynd er Hjalti Krist-
jánsson læknir. Hann hefur séð um
getraunasöluna frá 1994 eða í aldar-
fjórðung, fyrst fyrir Amor sem síðar
varð Framherji og síðan fyrir sam-
eiginlegt félag Framherja og Smá-
stundar. „Við fáum 26% í sölulaun
og tekjur okkar eru um 2,5 milljónir
króna á ári,“ segir hann. Bætir við
að í byrjun hafi afraksturinn verið
um ein milljón á ári, fljótlega farið í
eina og hálfa, svo tvær og verið
stöðugur í fyrrnefndri tölu í nokkur
ár.
Þegar Hjalti kom til Eyja tók
hann til hendi hjá Amor og hóf fjár-
öflun með þessum hætti. „Ég er
gamalt tölfræðinörd og sá að þetta
væri fjáröflunarleið sem ég kynni á
og væri góður í, en þetta snýst um
vinnu og aftur vinnu, eins og svo
margt annað.“
KFS er með karlalið í 4. deild. 2.
flokkur spilar bæði í nafni ÍBV og
KFS og því geta leikmennirnir spil-
að með KFS í deildinni. ÍBV borgar
þjálfarakostnaðinn en KFS ferða-
kostnað, bolta og búninga auk æf-
ingakostnaðar í Reykjavík, þar sem
sumir leikmannanna eru við nám og
störf. „Við erum ekki með neinn
mann á launum,“ leggur Hjalti
áherslu á.
Liðið hefur leikið í 2. og 3. deild
og þangað er stefnan tekin á ný.
„Þar er margfaldaður kostnaður
samanborið við að vera í 4. deild og
því reynum við að geyma peninga
svo við höfum efni á því að fara upp.
Ætli við séum ekki eina fótbolta-
félagið á Íslandi sem á varasjóð.“
Getraunir ekki fyrir fíkla
Hjalti grúskar í tölfræði, býr til
getraunakerfi og hefur eytt miklum
tíma í getraunastarfið í aldarfjórð-
ung. „Mér finnst þetta mjög
skemmtilegt og gott frávik frá
læknisfræðinni,“ segir hann. Hann
selur um 50 manns „hlutabréf“ í
getraunakerfum og segir að með
þeim hætti hafi hann náð til fleiri en
aðrir. „Konur hafa áhuga á því að
styrkja félögin og vera með en eru
kannski ekki endilega eins spenntar
og karlar fyrir því að mæta og tippa.
Ég hef nýtt mér það og sé um að
tippa fyrir alla hópana.“ Ekki
skemmi fyrir að vinningar detti inn
öðru hverju, það fréttist fljótt og
áhuginn aukist í kjölfarið. „Ég vann
4,7 milljónir um daginn og fannst að
ég ætti það inni því áður hafði ég
unnið níu milljónir fyrir einn hópinn
án þess að fá krónu sjálfur!“
Hópar hjá KFS hafa 11 sinnum
fengið 13 rétta leiki frá áramótum.
„KFS selur 3% af öllum getrauna-
seðlum, er með 40% af hópum í úr-
slitakeppninni, 11 af 26 hópum í öll-
um deildum, þannig að við teljum
okkur vera ókrýnda Íslandsmeist-
ara í árangri í getraunum.“
Töluverð umræða hefur verið um
fjárhættuspil og spilafíkn hérlendis
að undanförnu. Hjalti segist vita af
vandanum og vissulega sé hægt að
misnota getraunir eins og annað, en
hann telji að spilafíklar leiti annað
vegna þess að getraunir séu bara
vikulega og fíklar hafi ekki þolin-
mæði til að bíða svo lengi. „Ég er
tilbúinn að tippa fyrir þá sem ekki
eru spilafíklar,“ segir hann og vísar
á upplýsingar um starfsemina á
heimasíðunni (kfs.is).
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Tipparar Sigríður Gísladóttir, Hjalti Kristjánsson og Haukur Guðjónsson hittast vikulega og tippa fyrir hópa.
Fjármagna reksturinn
með sölu getraunaseðla
KFS í Vestmannaeyjum leggur auk þess fyrir í varasjóð
Darius Zander kemur fram með gít-
arleikaranum Tobias Born á popp-
aðventutónleikum í kvöld kl. 19.30 í
Vídalínskirkju í Garðabæ. Zander er
þekktur þýskur poppsöngvari og
mun rödd hans vera bæði mjúk og
falleg. Auk Zenders og Borns koma
fram nemendur úr Mennta-
skólanum við Sund og
frumflytja lag eftir
Zander. Aðgangur að
tónleikunum er
ókeypis en tekið við
frjálsum fram-
lögum. Tónleik-
arnir eru
haldnir til
styrktar
Slysavarna-
félaginu
Landsbjörg.
Popp-aðventutónleikar
með Darius Zander