Fréttablaðið - 09.12.2002, Side 10
10 9. desember 2002 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
INNLENT
TRYGGINGAMÁL „Meginlínan í þessu
frumvarpi er aukin neytenda-
vernd,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra um
frumvarp til laga um vátrygg-
ingastarfsemi. Gildandi lög eru
frá árinu 1954 og er löngu tíma-
bærri endurskoðun laganna lokið.
Ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt fram-
lagningu frum-
varpsins og verður
það nú sent þing-
flokkum ríkis-
stjórnarinnar til
umfjöllunar.
„Það er gífurleg
vinna sem liggur
að baki endurskoð-
uninni. Neytendum er tryggð
ákveðin lágmarksvernd með frum-
varpinu. Til dæmis er bætt staða
þeirra sem eiga kröfu á hendur fé-
lagi vegna ábyrgðartrygginga. Þá
eru sett inn ákvæði um hóptrygg-
ingar sem ekki er að finna í gild-
andi lögum. Sömuleiðis er mein-
ingin að lögfesta ákvæði um skjót-
virk úrskurðarúrræði ef ágrein-
ingsmál rísa,“ sagði Valgerður.
Rík upplýsingaskylda verður
lögð á herðar tryggingafélaga
gagnvart tryggingatökum, en
fram til þessa hefur þótt skorta á
skyldur félaganna í þeim efnum.
„Þetta er mjög mikilvægt at-
riði. Menn hafa stundum nefnt
þetta smáa letrið en við reynum
að taka á því með skilvirkum
hætti. Réttur neytenda gagnvart
tryggingafélagi batnar því til
muna. Norska löggjöfin, sem höfð
var til hliðsjónar við endurskoð-
unina, byggir mjög á þessu,“ sagði
Valgerður.
Reglur um upplýsingagjöf vá-
tryggingartaka og takmarkanir á
heimildum vátryggingafélaga til
þess að afla upplýsinga í persónu-
tryggingum er að finna í frum-
varpinu og tengjast þau umræðu
um hagnýtingu upplýsinga, meðal
annars gagnagrunnum um heilsu-
far fólks.
Tryggingafélögin telja að
breytingarnar kalli á aukna vinnu,
sem hafi aukinn kostnað í för með
sér. Þann kostnað verði einhver að
greiða.
„Auðvitað er þetta eitt þeirra
atriða sem þarf að skoða í nefnd-
arstarfinu. En það má líka velta
því fyrir sér hvort það sé ekki
réttlætanlegt að kaupa einhverju
verði aukinn rétt og öryggi. Það er
þó mikilvægt að þetta leiði ekki til
mikillar hækkunar iðgjalda,“
sagði Valgerður og bætti við að
hún legði mikla áherslu á að málið
yrði afgreitt á vorþingi þannig að
ný lög um vátryggingasamninga
geti tekið gildi í byrjun árs 2004. ■
SKIPULAG Nýtt glerhýsi mun
tengja saman Aðalstræti 2 og
Vesturgötu 1. Höfuðborgarstofa,
sem annast mun þjónustu við
ferðamenn, mun flytja í húsið í
byrjun næsta árs.
Borgaryfirvöld hafa samþykkt
breytingu á deiliskipulagi vegna
hinnar nýju tengibyggingar, en
þar verður aðalinngangur og and-
dyri að húsunum báðum. Bygg-
ingin verður byggð úr gleri og
stáli. Auk Höfuðborgarstofu er
gert ráð fyrir fjölþættum atvinnu-
rekstri í húsunum, veitingasölu,
verslun og skrifstofum. Minja-
vernd hf. mun standa að fram-
kvæmdunum og er ætlunin að
taka tillit til upprunalegrar gerð-
ar gömlu húsanna við endurbygg-
ingu þeirra.
Húsið Aðalstræti 2, gamla
Geysishúsið, stendur á elstu
verslunarlóð í Reykjavík. Fram-
húsið, sem þegar hefur verið end-
ursmíðað að utan, er að stofni til
frá árinu 1855, en pakkhúsið var
byggt á árunum 1896 og 1907. Á
milli þeirra voru reistar skúr-
byggingar, sem voru stækkaðar í
áföngum uns úr varð tengibygg-
ing milli húsanna. Um miðja 20.
öld var útliti húsanna breytt mik-
ið og meðal annars gerðir stórir
verslunargluggar á götuhæð.
Húsin skemmdust í eldi árið
1977 og eftir það var millibygg-
ingin endurnýjuð, að mestu leyti
úr stáli og timbri. Hún verður nú
rifin. ■
FRÁ SUÐUREYRI
Áformað er að greiða niður helming lang-
tímaskulda bæjarsjóðs á næstu þremur
árum.
Ísafjarðarbær:
Tugmilljóna
fjárlagagat
ÍSAFJÖRÐUR „Hlutur hafnarsjóðs í
framkvæmdum er 40 milljónir
króna, það verður fjármagnað
með lántökum og skýrir gatið í
áætlun næsta árs,“ segir Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar.
Heildartekjur bæjarsjóðs og
stofnana eru áætlaðar 1.880 millj-
ónir króna á næsta ári en heildar-
gjöld 1.917 milljónir. Fjárhags-
áætlun verður því lokað með 37
milljóna króna gati.
Alls er gert ráð fyrir 153 millj-
ónum í fjárfestingar og meirihátt-
ar viðhaldsverkefni, meðal ann-
ars verður lokið við endurbætur
og viðgerðir á Safnahúsinu við
Eyrargötu eða Gamla sjúkrahús-
inu, lokið verður við utanhúss-
framkvæmdir á íbúðum aldraðra
að Hlíf og lokið við hönnun nýs
skólahúsnæðis Grunnskólans á
Ísafirði.
Langtímalán verða greidd nið-
ur um 149 milljónir króna á næsta
ári eða nálægt 10% af heildar-
skuldum bæjarins og stofnana.
„Samkvæmt þriggja ára áætlun
ætlum við hins vegar að greiða
langtímaskuldir bæjarsjóðs og
stofnana niður um 700 milljónir.
Heildarskuldir bæjarsjóðs og
stofnana eru 1.500 milljónir
þannig að nærri lætur að við
greiðum helming skuldanna á
næstu þremur árum,“ sagði Hall-
dór Halldórsson. ■
HÆKKUNUM MÓTMÆLT Stjórn
Eflingar – stéttarfélags mótmælir
harðlega þeim verðlagsákvörðun-
um sem ríkisstjórn, sveitarfélög
og fyrirtæki, sérstaklega trygg-
ingafélög, hafa kynnt að undan-
förnu. Efling telur ljóst að með
þeim sé kynt undir verðbólgu og
góðri stöðu efnahagslífs sé stefnt
í voða. Auk þess auki verðhækk-
anirnar skuldabyrði heimilanna,
sem séu allt of skuldsett fyrir. ■
Dagskrá Litlu jólanna á Hressó er að finna á www.reykjavik.is
Mánudagur 9. desember
Opið frá kl 14 - 18
Upplestur úr jólabókum kl. 16:15
Steinunn Sigurðardóttir
Thor Vilhjálmsson
Ólafur Ragnarsson
/ T
ei
kn
in
g:
H
al
ld
ór
B
al
du
rs
so
n
GLERHÝSI Á ELSTU VERSLUNARLÓÐ BORGARINNAR
Húsið Aðalstræti 2 stendur á elstu verslunarlóð í Reykjavík. Ný tengibygging milli hússins
og Vesturgötu 1 verður úr gleri og stáli.
Höfuðborgarstofa flytur í byrjun nýs árs:
Nýtt glerhýsi í
Grjótaþorpi
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Segir réttindi tryggingataka aukast til muna með nýrri löggjöf um vátryggingasamninga.
Neytendavernd tryggð
Frumvarp um vátryggingasamninga kveður á um ótvíræða
upplýsingaskyldu tryggingasala. Ekki hægt að vísa í smáa letrið.
Tryggingafélögum settar skorður við öflun persónuupplýsinga.
„Menn hafa
stundum
nefnt þetta
smáa letrið en
við reynum að
taka á því
með skilvirk-
um hætti.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SKRÁÐ ATVINNULEYSI
EFTIR ALDRI Í ÁGÚST ’02*
15-19 ára 93
20-24 ára 557
25-29 ára 527
30-39 ára 897
40-49 ára 676
50-59 ára 375
60+ ára 442
Alls 3.567
*Heimild: Hagstofan
SVONA ERUM VIÐ
ATVINNULEYSI
Samkvæmt gögnum vinnumiðlana voru
3.567 manns skráðir atvinnulausir í lok
ágúst 2002 samanborið við 1.755 í ágúst
2001. Af skráðum atvinnulausum í ágúst
2002 voru 1.300 einstaklingar eða 18,2%
á aldrinum 15-24 ára en 15,2% í ágúst
2001. Fjöldi þeirra sem höfðu verið 6
mánuði eða lengur á atvinnuleysisskrá var
í lok ágúst 869 einstaklingar eða 24,4%
miðað við 24,0% í lok ágúst 2001.
LEIÐTOGI KOSINN Herbert Haupt
var í gær kosinn leiðtogi austur-
ríska Frelsisflokksins, tveimur
vikum eftir að flokkurinn beið af-
hroð í kosningum. Jörg Haider,
fyrrverandi leiðtogi flokksins,
mætti ekki á flokksþingið í gær.
Haupt er náinn samstarfsmaður
hins umdeilda Haiders.
SAMIÐ UM FRIÐ Stjórnin á Indó-
nesíu ætlar í dag að undirrita frið-
arsamning við uppreisnarmenn í
héraðinu Aceh, sem hafa barist
fyrir sjálfstæði áratugum saman.
FORSETI ÍSRAELS Í ÞÝSKALANDI
Moshe Katzav, forseti Ísraels, var
í opinberri heimsókn í Þýskalandi
í gær. Hann sagðist sannfærður
um að Ísraelsmenn gætu náð
samningum við Palestínumenn.
Jafnframt baðst hann afsökunar á
mannfalli óbreyttra borgara og
sagði það „slys“.