Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 29
Með því að ná
stjórn á verkj-
unum getur fólk haldið
sínu striki eða byrjað
aftur hreyfingu eftir hlé.Í upphafi árs setja margir sér markmið um aukna hreyfingu og heilbrigðari lífsstíl. Fyrir þá
sem þjást af gigtar- eða liðverkjum
getur verið erfitt að viðhalda góðri
hreyfingu sökum langvinnra
verkja. Verkir í liðum eru á meðal
algengustu vandamála stoðkerfis-
ins og koma oft í veg fyrir að ein-
staklingar geti stundað hreyfingu.
Það er mikilvægt fyrir þá sem
fást við langvinna verki að hreyfa
sig reglulega því hreyfing er ein
besta leiðin til að draga úr gigtar-
verkjum. Það getur verið krefjandi
þegar verkir eru slæmir og þannig
myndast vítahringur sem er erfitt
að vinna sig út úr.
Jurtalyf til að draga úr
vægum gigtarverkjum
Harpatinum frá íslenska lyfja-
fyrirtækinu Florealis hefur reynst
mörgum vel til þess að draga úr
vægum lið- og gigtarverkjum.
Harpatinum inniheldur útdrátt
úr djöflaklóarrót (Harpagoph-
ytum procumbens) sem er vel
þekkt lækningajurt. „Fjölmargar
rannsóknir liggja að baki verkun
djöflaklóar og sýna rannsóknir
að rótin getur stuðlað að minni
gigtar- og liðverkjum til dæmis
í baki, mjöðmum, öxlum, hálsi
og fingrum,“ segir Ólöf Þórhalls-
dóttir, lyfjafræðingur hjá Florealis.
„Mælt er með samfelldri notkun á
Harpatinum til að ná sem bestum
árangri. Það er mikilvægt að
minnka bólgur í liðum því það
getur dregið úr vöðvastífni og
stirðleika. Fólk á þá auðveldara
með að hreyfa sig og finnur ekki
eins mikið til. Með því að ná stjórn
á verkjunum getur fólk haldið sínu
striki eða byrjað aftur hreyfingu
eftir hlé,“ segir Ólöf. Harpatinum
er framleitt undir ströngum
gæðakröfum til lyfjaframleiðslu
sem tryggja að neytandinn fær
alltaf réttan skammt af jurtalyfinu
sem er mjög mikilvægt fyrir bæði
verkun og öryggi. Sambærileg
jurtalyf hafa verið notuð lengi
víða og er djöflakló eitt mest selda
jurtalyf sem hefð er fyrir í Evrópu.
„Harpatinum þolist almennt vel
og hefur færri og vægari aukaverk-
anir samanborið við bólgueyðandi
gigtarlyf,“ segir Ólöf að lokum.
Gagnlegar upplýsingar
Harpatinum fæst án lyfseðils
í apótekum. Notkun: 2 hylki
tvisvar á dag. Lyfið er ekki ráðlagt
börnum undir 18 ára, þunguðum
konum eða konum með barn á
brjósti. Ekki skal nota lyfið ef ein-
staklingur er með ofnæmi fyrir
jarðhnetum eða soja, sár í maga
eða þörmum. Ávallt skal lesa upp-
lýsingar á umbúðum og í fylgiseðli
vandlega fyrir notkun. Leitið
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu
og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
serlyfjaskrá.is.
Koma liðverkir í veg
fyrir hreyfingu?
Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur hjá Florealis, mælir með samfelldri
notkun á Harpatinum til að ná sem bestum árangri.
Harpatinum er
viðurkennt jurta-
lyf til að draga úr
vægum gigtar-
og liðverkjum
og fæst það án
lyfseðils í apó-
tekum.
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA
Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár í maga eða þörmum er þekkt. Ekki ráðlagt ungmennum undir 18 ára aldri, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi
til að draga úr gigtarverkjum
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is