Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 61
Bára Sigurborg Ólafsdóttir og Helga Margrét Clarke taka vel á móti öllum sem koma í Heilsuborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Auðvelt er að fylgjast með árangrinum á líkamsgreiningartækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Í Heilsuborg sér fagfólk um alla þætti þjálfunar. Hér er almenn skynsemi og gagnreyndar aðferðir hafð-ar leiðarljósi og nálgunin er uppbyggileg. Hún byggir á hvatn- ingu og þeirri staðreynd að fólk er ólíkt. Mikill meirihluti þeirra sem til okkar leita hefur áhuga á því að léttast og/eða styrkja líkamann. En ástæðurnar geta verið f leiri, svo sem vöðvabólga eða verkir, þreyta, streita, andleg vanlíðan, óhollt mataræði og f leira. Það sem hentar einum hentar ekki endi- lega næsta manni,“ segir Helga Margrét Clarke, forstöðumaður heilbrigðisþjónustu hjá Heilsu- borg. „Oft veit fólk ekki hvernig best er að byrja á því að bæta heilsu og líðan. Það er t.d. svo mikið af mis- vísandi upplýsingum um næringu sem á að henta öllum. Töfralausnir sem eiga að leysa málin í hvelli dúkka upp reglulega. Vandinn við þessar töfralausnir er að oftar en ekki næst ekki sá árangur sem til var ætlast. Margir kannast við að byrja af krafti en verða svo svangir og þreyttir og uppgjöfin á næsta leiti með niðurrifspúkann á öxlinni,“ segir Bára Sigurborg Ólafsdóttir, fagstjóri líkamsræktar hjá Heilsuborg. Aðstoðum fólk að taka fyrstu skrefin „Hér í Heilsuborg vinnum við öðruvísi. Við vitum að töfralausn- ir eru ekki líklegar til árangurs til lengdar. Við leggjum áherslu á að fólk er ólíkt og að það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum. Þess vegna skoðum við einstaklinginn, skoðum líkams- samsetningu og lífsstíl og metum með honum hvaða leiðir séu lík- legastar til að skila honum þeim árangri sem hann sækist eftir,“ segir Helga. „Við höfum sniðið þjónustuna að því að margir sem leita til okkar þurfa stuðning við að taka fyrstu skrefin að betra lífi, bæði hvað varðar hreyfingu og mataræði. Ýmsir möguleikar eru í boði, bæði einstaklingsþjónusta og grunnnámskeið í hreyfingu og mataræði,“ bætir Bára við. Hvernig léttumst við? „Að svelta líkamann er ekki góð leið. Þess vegna eru megrunarkúr- ar ekki efst á óskalistanum hér í Heilsuborg. Þetta er samt ótrúlega lífseigt viðhorf, eitthvað gamalt og inngróið í þjóðarsálina. Ástæðan er sú að þegar líkaminn er sveltur þá skrúfar hann niður starf- semina og kerfið fer í hægagang. Eins erum við líklegri til að leita í skyndiorku og að velja kyrrsetu við þessar aðstæður,“ segir Helga, en í Heilsuborg er lögð áhersla á að léttast á heilbrigðan hátt með því að borða hollan og hreinan mat. „Hjá okkur er ekkert bannað og við leggjum til að gera breytingar á mataræðinu skref fyrir skref með því að bæta inn hollum mat sem okkur finnst góður. Þann- ig dettur óholli maturinn smám saman út. Margir verða forviða á að til að léttast þurfi þeir að borða mun oftar og stundum jafnvel meiri mat en þeir gerðu áður. Og það er mikilvægt að fólk finni hollan mat sem því finnst góður. Enginn endist til lengdar í því að borða eitthvað sem honum líkar ekki. Við gefum fólki margvíslegar hugmyndir að hollum og ljúf- fengum mat, kennum því jafnvel að elda, leyfum því að smakka og gefum uppskriftir. Við erum með tvo ástríðukokka á okkar snærum sem hafa sjálfir fundið nýtt líf með hollari mat,“ segir Helga. Aukinn styrkur og þol Hjá Heilsuborg býðst margvísleg líkamsrækt og þjálfun, bæði í hópum og sem einstaklingsþjón- usta. „Hér er afar vel búin aðstaða til líkamsræktar, vel búinn tækja- salur og salir fyrir hópþjálfun. Við gætum þess að viðskiptavinir Heilsuborgar hafi greiðan aðgang að fagfólki í salnum, þar sem hægt er að fá ráðgjöf íþróttafræðinga, sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræð- inga á auglýstum tímum,“ segir Bára, en þetta fyrirkomulag hefur reynst sérlega vel. „Við höfum einlægan áhuga á því að fólk nái árangri hjá okkur. Þess vegna bjóðum við leið til að fylgjast með árangrinum. Í líkamsræktarkortum Heilsuborg- ar, einstaklings- og hópþjálfun er innifalinn aðgangur að mælingum á líkamsgreiningartæki. Þar eru m.a. grunnbrennslan, vöðvamassi, innri kviðfita og önnur fitudreif- ing mæld. Hægt er að skella sér í mælingu á auglýstum tímum, eins oft og fólk kýs,“ greinir Bára frá. Taktu fyrsta skrefið hjá Heilsuborg Er erfitt að komast af stað og breyta lífsstíln- um? Í Heilsuborg getur þú tekið fyrsta skrefið, enda einstakt heilsufyrirtæki þar sem fagfólk tekur höndum saman til að aðstoða fólk við að ná markmiðum sínum, hvort sem það vill við- halda góðri heilsu eða bæta hana. Frí ráðgjöf Fyrir þá sem eru ekki vissir um næstu skref býður Heilsuborg fría símaráðgjöf (15 mínútur). Hægt er að skrá sig á heimasíðu Heilsu- borgar eða hafa samband við móttöku Heilsuborgar í síma 560 1010 eða senda póst á radgjof@heilsuborg.is Nánari upplýsingar: Heilsuborg, Bíldshöfða 9, sími 5601010 - www.heilsuborg.is Ef þú kannast við eitthvert einkenni hér að neðan er góð hugmynd að óska eftir frírri ráðgjöf í Heilsuborg. n Vöðvabólga n Kyrrseta/hreyfingarleysi n Löngun til að breyta lífsstílnum n Stöðug þreyta n Að elda sjaldan og kaupa í staðinn skyndibita n Kaffi eða orkudrykkir notaðir til hressingar oft á dag n Þörf fyrir að vera nartandi yfir daginn n Löngun í sætindi n Löngun til að fara út og hreyfa sig en gera ekkert í málinu n Að byrja af krafti í ræktinni en hætta fljótt aftur n Að vera óánægð(ur) með sjálfa(n) sig n Löngun til að styrkjast n Að hafa prófað ýmsa kúra en bara í stuttan tíma KYNNINGARBLAÐ 31 L AU G A R DAG U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 HEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.