Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 44
Lagerstjóri í Garðabæ
Við hjá Kælismiðjunni Frost ehf. óskum eftir lagerstjóra
í starfstöð okkar í Garðabæ.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Skilyrði að viðkomandi hafi mikla þjónustulund og
framúrskarandi vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
(vald á öðrum tungumálum er kostur).
Starfssvið:
• Dagleg umsjón með lager
• Móttaka og afhending á vörum
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Hæfniskröfur:
• Búi yfir skipulagshæfileikum, sjálfstæðum
vinnubrögðum og frumkvæði.
• Úrræðagóður starfsmaður, jákvæður og lipur í
mannlegum samskiptum.
• Hafi þjónustulund og sé laghentur.
• Góð tölvufærni.
• Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er æskileg.
• Þekking á búnaði fyrir kælikerfi er kostur en
ekki skilyrði.
Umsóknir sendist á frost@frost.is
• Auglýst er laust til umsóknar starf
forstöðumanns tæknideildar Faxaflóahafna sf.
Leitað er eftir tækni- eða verfræðimenntaðri manneskju sem hefur eftirfarandi til að bera:
• Háskólamenntun í tækni- eða verkfræði sem nýtist í starfi.
• Reynslu af verklegum framkvæmdum og mannvirkjagerð,
sem jafna má til verkefna á sviði hafnarmála.
• Skipulagshæfni og hagnýtri reynslu af áætlanagerð.
• Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.
• Góða tölvukunnáttu og færni í ensku.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Í starfinu felst m.a.:
• Umsjón og eftirlit hönnunar og hafnarframkvæmda
• Eftirlit með hafnarmannvirkjum Faxaflóahafna sf.
• Áætlanagerð um skilgreindar viðhalds- og nýframkvæmdir
• Umsjón og uppfærsla tæknigagna í eigu Faxaflóahafna sf.
• Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla innan eðlilegs
starfsviðs forstöðumanns tæknideildar
Umsóknarfrestur er til og með föstudag 10. janúar n.k.
Umsókn og ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila skal skilað til Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, Reykjavík
eða þær sendar mannauðs- og launafulltrúa Faxaflóahafna sf. á netfangið olafur@faxafloahafnir.is .
Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri gislig@faxafloahafnir.is eða í síma 5258900.
Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis.
Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Forstöðumaður tæknideildar Faxaflóahafna sf.
Aventura er ný íslensk ferðaskrifstofa sem hefur rekstur nú í janúarmánuði og mun
bjóða Íslendingum spennandi ferðaframboð og nýta nýjustu tækni í þróun bókunarkerfa
til að finna hagkvæmustu ferðirnar fyrir viðskiptavini sína.
Aventura leitar að starfsfólki til að vinna með reynsluboltum úr íslenskri ferðaþjónustu
við að byggja upp kraftmikið og leiðandi fyrirtæki, bjóða Íslendingum framúrskarandi
þjónustu og bestu kjör sem hægt er að finna á íslenskum ferðamarkaði.
Við leitum að:
Sölustjóra á Íslandi
Við leitum að kraftmiklum, drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á ferðaiðnaðinum
sem getur leitt framleiðslu á fjölbreyttu ferðaframboði okkar fyrir íslenskan markað.
Leitað er að einstaklingi með reynslu af sölu og markaðssetningu, starfsreynslu í
ferðaþjónustu og af framleiðslu pakkaferða. Sölustjóri mun hafa afgerandi áhrif
á vöruframboð á hverjum tíma. Góð tölvukunnátta og þekking á bókunarkerfum
flugfélaga er nauðsynleg auk reynslu af markaðssetningu á netinu, en viðkomandi mun
vinna með teymi sérfræðinga á því sviði.
Sölufulltrúum
Við leitum að sölufulltrúum til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina. Umsækjandi
þarf að hafa framúrskarandi þjónustulund, gleði og ánægju af því að sinna
viðskiptavinum, reynslu af sölu, þekkingu á helstu áfangastöðum Íslendinga, góða
tölvuþekkingu og gott vald á ritaðri og talaðri ensku.
Starfsumsóknir sendist á netfangið: vinna@aventura.is
Öllum umsóknum verður svarað.