Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 50
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ryan segir að fólk eigi oft erfitt með að skreppa frá í einhverja daga til að hlaða batteríin
sem hann segir að sé nauðsynlegt
fyrir borgarbúa. „Okkur langaði að
skapa eitthvað sem hefði jákvæð
áhrif á hugann og líkamann á
innan við tveimur tímum. Við
vildum finna eitthvað sem ekki
finnst í íslenskri náttúru, eins og
sölt með lækningamátt úr Dauða-
hafinu og bjóða upp á það hér.
Flotið er svolítið eins og að snúa
aftur til náttúrunnar í ónáttúru-
legum heimi. Við komumst ekki
hjá því að nota myndlíkinguna
að þetta er eins og að fara aftur í
móðurkvið þar sem við höfðum
allt sem við þurftum og vissum
ekki einu sinni að við værum með
líkama,“ segir Ryan.
„Marga skortir djúpsvefn eða
djúpslökun. Mörgum tekst að
ná þessari djúpslökun þegar þau
fljóta í saltvatninu. Fólki finnst það
stundum bara hafa verið í tank-
inum í 15 mínútur þegar það hefur
í raun og veru liðið einn klukku-
tími,“ segir Ryan.
„Sem maður með ADHD þá
finnst mér erfitt að sitja kyrr í
hugleiðslu eða jóga en að fara ofan
í hlýtt vatnið í myrkri og þyngdar-
leysi, það lætur alla truflun virðast
órafjarri,“ bætir Ryan við en hann
segist nota flottankana mjög reglu-
lega.
Fríða segist einnig nota flottank-
ana mikið. „Það er endurnærandi,
og svo hjálpar það mér með svefn
og fótaóværð svo eitthvað sé nefnt.
Flot er alveg tilvalið fyrir hug-
leiðslu. Líkaminn er alveg slakur
og þú þarft ekki einu sinni að finna
góða stellingu.“
Jógakennaranám í Perú
Fríða stundar einnig jóga en hún
fór í shamanískt jógakennaranám
í Perú fyrr á árinu. „Orðið shaman
er upprunnið frá Síberíu og er í dag
notað sem eins konar regnhlífar-
heiti þó svo að hver menning eigi
sitt orð yfir það. Á íslensku væri það
völva eða seiðkona. Shaman þýðir:
sá sem gengur í báðum heimum.
Þetta byggist á þeirri trú að allt hafi
anda; fólk, dýr, plöntur, steinar,
fjöll, ár, tunglið, stjörnurnar. Allt.
Líka það sem er manngert, þar
sem við setjum okkar ásetning í
það sem við sköpum og gefum því
þannig anda,“ útskýrir Fríða.
„Ekkert eitt er mikilvægara en
annað. Shaman er sá eða sú sem
skilur þetta og sér og vinnur með
þessum öndum til að heila sig,
umhverfi sitt og alla sem til hennar
eða hans leita. “
Fríða byrjaði að stunda jóga
þegar hún vann sem flugfreyja og
var með stöðuga bakverki. „Ég fann
að jóga hjálpaði mikið og ég varð
fljótt laus við verkina. Stuttu síðar
veiktist mamma mín alvarlega
og jógað hjálpaði mér að komast í
gegnum það tímabil.“
Fríða og Ryan eru með ýmislegt
á döfinni á nýju ári. „Ég er að fara
á fullt með heilun og seremóníur á
nýju ári og er í hugmyndavinnu um
samstarf með dásamlegu og hæfi-
leikaríku fólki varðandi það. Einnig
viljum við hjónin sameina krafta
okkar og bjóða upp á heilsulind
bæði innanlands og erlendis. Við
ætlum líka að bjóða upp á spenn-
andi heilsumöguleika fyrir stór
sem smá fyrirtæki sem við kynnum
á nýju ári, svo fátt eitt sé nefnt,“
segir Fríða.
„Núna um áramótin ætlum við
að dvelja á jarðhitasvæði í Evrópu
sem er mjög líkt og á Íslandi en það
hefur líka einstaka eiginleika sem
eru ekki hér og okkur langar að
nýta fyrir jógað og heilsulindir bæði
úti og á Íslandi,“ bætir Ryan við.
Allt sem við sköpum hefur anda
Hjónin Fríða Rakel Kaaber og Ryan Patrekur Kevinsson reka saman heilsulind með flottönkum.
Fríða lauk einnig nýlega námi sem shaman. Þau vilja skapa stað fyrir borgarbúa til að slaka á.
Hjónin Fríða og Ryan vildu skapa eitthvað sem hefði jákvæð áhrif á huga og líkama.
20 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA