Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 16
Ég held að það verði sterkari áhersla á gott hráefni, einfalda og sjálf bæra matargerð sem meðal annars felst í að nota meira af því
sem vex villt í náttúrunni,“ segir
Böðvar Darri Lemacks, yfirkokk-
ur og eigandi Krösts, og Osteria
Emiliana á Hlemmi um strauma
og stefnur í matargerð á næsta ári.
„Einnig að við munum hér á
Íslandi reyna að rækta meira sjálf
af því sem við notum. Við höfum
framúrskarandi aðstæður með
allt þetta rafmagn, ennþá frekar
óspillt land sem gott er að beita
búfé á og besta matreiðslufólk
í heimi. Fólk sem kann á þetta
frábæra hráefni,“ bætir hann við.
Böðvar segist hafa matreitt fjöl-
breyttan mat yfir hátíðarnar. „Ég
er sjálfur hrifnastur af tvíreyktu
hangikjöti með laufabrauði,“ segir
hann og segist einnig hrifinn af því
að reiða fram humarsúpu og sívin-
sælan hamborgarhrygg á þessum
árstíma.
Böðvar deilir með lesendum
uppskrift að sósu með hátíðar-
steikinni sem er í uppáhaldi hjá
honum. – kbg
Góð sósa með hátíðarsteikinni
Kjúklingasoð 1 lítri
Rauðvín 300 ml
Laukur 1 stykki
Sellerí 50 g
Gulrætur 150 g
Tómat-paste 20 g
Beikon 50 g
Salt / pipar
Skalottlaukur fínskorinn, 1 stykki
2 appelsínur, safinn og hýði, rifið
Púðursykur 120 g
Sérríedik 2 msk.
Smjör 40 g
Grænmeti og beikon brúnað og
sett í kjúklingasoðið og rauðvínið
sem er soðið niður um 2/3. Kryddi
og tómatpaste sett út í (allt nema
appelsínan, sykurinn og smjörið).
Grænmetið sigtað frá, smjöri, sykri
og appelsínu bætt við. Soðið í 5
mínútur.
Villt og
sjálfbært
Böðvar Darri Lemacks matreiðslumaður
spáir enn sterkari áherslu á einfalda og
sjálfbæra matargerð á árinu 2020.
Böðvar Lemacks við sósugerðina. Hann spáir miklum vexti í matargerð þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni og gott hráefni sem vex villt í náttúrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á síðasta ári voru gríðarvinsæl-ar svokallaðar búddha-skál-ar, sriracha og súrsað græn-
meti. Kyrrahafs- og grænmetisfæði
var í deiglunni og meiri áhersla á
sjálf bærni.
Matarspekúlantar víða um heim
eru sammála um það að áherslurnar
verði dramatískari með hverju
árinu. Þá muni einnig verða vin-
sælt fæði sem er á mörkum matar
og fæðubótarefni.
Reyktar kolkrabbapylsur?
BBC nefnir áframhaldandi vinsæld-
ir lúxus sjávarfæðis og að þróun á
slíkum vörum í matargerð verði
framandi. Sjávarfæði verði reykt og
súrsað og verði í sífellt meira mæli
verkað eins og kjöt.
CBD-kokteilar og kökur
Matarspekúlantar BBC nefna einn-
ig CBD í matargerð til sögunnar.
CBD-olía er extrakt eða útdráttur
úr kannabisplöntu og inniheldur
efnið kannabídíól. Efnið hefur öðl-
ast gríðarlegar vinsældir, einn af
hverjum tíu Bretum
var talinn hafa
notað einhvers
konar vöru sem
inniheldur CBD
í október á þessu
ári. Efnið er notað
í alls kyns krem, te
og olíur til að bera á
líkamann en nú er
því spáð að það verði
notað í f leiri drykki,
kökur og almennt í
matargerð. „Kannabis er hið nýja
grænkál,“ hefur BBC eftir Rich
Woods, öðrum eiganda London
Scout-barsins.
Eldheitt og kóreskt: Gochujang
Aðdáendur eldheitra chili-sósa geta
líka tekið gleði sína. Vefsíðan Eat-
this.com segir frá því að árið 2020
verði vinsæl kóresk sósa,
Gochujang, chilimauk sem
er gert úr gerjuðum soja-
baunum. Maukið er mjög
vinsælt að nota
til mar-
i n e r -
ingar, í
súpur og
fleira.
Hvað borðum við árið 2020?
2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN