Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 54
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Auka blóðflæði og súrefnisupptöku | Styðja við vöðva og liðamót| Hraða endurheimt | Draga úr líkum á meiðslum
Henta vel í
• Hjólreiðar
• Hlaup
• Íþróttir
• Útivist TRÖNUHRAUNI 8 | 220 Hafnarfirði
www.stod.is | 565 2885
Ýmsir litir í boði
Telma er virk á Instagram og Snapchat þar sem hún leyfir fólki að fylgjast með
lífsstíl sínum. Hún hefur alltaf
haft mikinn áhuga á heilsu þótt
hún hafi ekki sinnt henni alla tíð,
eftir því sem hún segir. Í dag er
Telma lífsglöð, jákvæð og örugg.
Þegar hún er spurð um góð ráð
til að koma sér af stað í hreyfingu
eftir áramótin, svarar hún: „Drífa
sig af stað. Röskur göngutúr er
til dæmis ekkert f lókinn. Við
þurfum ekki að vera í formi til að
byrja að æfa, en við verðum að
æfa til að komast í betra form og
það krefst vinnu, tíma, skuld-
bindingar og þolinmæði. Að
byrja daginn á hreyfingu sem þú
hlakkar til að stunda gerir daginn
þinn miklu betri, þú verður orku-
meiri og mataræðið í meira jafn-
vægi,“ segir hún.
Telma segir að breytingar eigi
ekki að valda kvíða, vanlíðan eða
orkuleysi. Best sé að kunna sér
hóf og bera virðingu fyrir eigin
líkama. „Það er heljarinnar vinna
að byggja heilsuna upp aftur ef
hún hrynur,“ nefnir Telma sem
segist þekkja það á eigin skinni.
„Ég veiktist fyrir 12 árum og hef
síðan þá þurft að fórna mörgu
úr mataræðinu því ég kýs að lifa
lífinu full af orku og í andlegu
jafnvægi. Það er frábært að vakna
ferskur á morgnana og hlakka til
að takast á við verkefni dagsins,
eitthvað sem allir eiga að upp-
lifa. Það tekur ekki nema eitt ár
að rústa heilsunni en það tekur
þrisvar sinnum lengri tíma að
vinna hana til baka,“ segir hún.
Margir setja sér heit um áramót.
Telma segist kannast við það.
„Það vilja allir vera hraustir og
sterkir. Allt of margir æða af stað
án undirbúnings en oftast endar
slíkt kapphlaup við rásmarkið.
Ekki enn einn kúrinn. Heilbrigt
líferni er lífsstíll sem hefst á því
að fylla ísskápinn af hollustu, elda
mest frá grunni og drekka vatn.
Fyrsta skrefið er að setja sér mark-
mið, finna rétta hreyfingu, borða
mat sem þér finnst góður og er
nærandi. Það verða allir að taka
skynsamlega ákvörðun áður en
farið er af stað í breytingar. Allt of
margir gera illt verra. Betra er að
fá faglega aðstoð.“
„Það er aldrei of seint að byrja
og aldur skiptir ekki máli. Það
hefur verið mikil vakning meðal
eldra fólks að hreyfa sig en yngri
kynslóðin er áhyggjuefnið, með
þessu áframhaldi verður hún
fyrsta kynslóðin til að deyja á
undan foreldrum sínum vegna
lífsstílssjúkdóma, streitu, hreyf-
ingar- og næringarleysis.
Íslendingar eru margir virkir
í hreyfingu en það vantar upp á
þekkinguna. Það er ekki nóg að
hreyfa sig og liggja svo í gosi og
skyndibita með nammipoka á
milli fótanna. Það er svakalegt
álag á líkamann ef hann fær ekki
rétta næringu, góðan svefn og
hugarró. Heilsan er svo miklu
meira en holdafar, við erum 90%
bakteríur sem þarf að huga að,“
segir Telma.
Telma segist alltaf hafa haft
áhuga á heilsu og var virk í
íþróttum sem barn og unglingur.
„Skíðaganga var mín keppnis-
íþrótt á veturna og fótbolti á
sumrin, ásamt öllum öðrum
íþróttum sem hægt var að stunda
í mínum heimabæ. Ég ólst upp
á Ólafsfirði og í kringum 17 ára
aldur þá hætti ég að hreyfa mig.
Ég var ekki við góða heilsu þegar
ég f lutti suður 1997, þá 21 árs. Ég
byrjaði f ljótlega að æfa í Hress og
eignaðist mitt fyrsta barn 23 ára,“
segir hún. „Þegar ég sá hvert líf
mitt stefndi, orðin 30 kg of þung á
líkama og sál, setti ég mér skrif leg
markmið og fékk faglega hjálp.
Ég held að það hafi sett punktinn
yfir i-ið að hafa þjálfara á hliðar-
línunni sem hrósaði mér og hvatti
mig áfram,“ segir hún.
„Heilsan yfirtók huga minn,“
upplýsir Telma. „Síðan þá hef ég
unnið við það að hjálpa öðrum
í gegnum Netþjálfun og er með
Hópþjálfun í Hress þar sem konur
æfa saman undir minni leiðsögn.
Til að ná að sinna öllum sem
til mín leita hannaði ég Heilsu-
pakkann sem er ódýr kostur til
að halda sér á tánum. Nýtt plan
fyrir hreyfingu og næringu kemur
mánaðarlega til að bæta heilsuna.
Það verðskulda allir að vera í
góðu formi og það á enginn að
fara á mis við þau lífsgæði að búa
í hraustum líkama. Það er bara
þessi líkami og þetta líf, núna.“
Nokkur góð ráð frá Telmu
n Góður svefn, vatn og bros er
ódýrasta og besta leiðin til lifa
góðu lífi.
n Að borða ferskan og hreinan
mat og matreiða hann sem mest
sjálfur.
n Tyggja matinn vel því meltingin
byrjar í munninum.
n Hugsa lengra en bara um útlitið,
ertu að fara vel með það sem við
sjáum ekki, meltingarveginn og
líffærin, allt sem húðin felur?
Að vera grannur þýðir ekki að
þú sért heilbrigður.
n Borða sem mest af grænu, allt
sem kemur frá plöntum, þar er
að finna töframeðalið.
n Að minnka einföld og unnin
kolvetni, þá helst sykur og
hveiti.
n Vera meira úti og fá næringuna
sem þar er að finna, súrefnið og
sólina.
n Vera jákvæð og koma fram við
náungann eins og þú vilt að
hann komi fram við þig.
n Sleppa reykingum og neyta
áfengis í hófi.
n Hlæja og hlæja aftur og hlæja
meira. Hlátursköst og gleði er
ein besta næring sem ég upp-
lifi og eitt það heilbrigðasta
og skemmtilegasta, sagt er að
hláturinn lengi lífið.
Heilsa er meira en holdafar
Telma Matthíasdóttir hefur verið vinsæll einkaþjálfari um árabil. Hún er alltaf á fullu, 43 ára, móð-
ir, þjálfari og eigandi fitubrennsla.is. Að auki rekur hún Bætiefnabúlluna ásamt unnusta sínum.
Telma Matthíasdóttir lumar á ýmsum góðum ráðum fyrir þá sem vilja taka sig í gegn á nýju ári.
Þegar ég sá hvert
líf mitt stefndi,
orðin 30 kg of þung á
líkama og sál, setti ég
mér skrif leg markmið
og fékk faglega hjálp. Ég
held að það hafi sett
punktinn yfir i-ið að
hafa þjálfara á hliðar-
línunni sem hrósaði mér
og hvatti mig áfram.
24 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA