Fréttablaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 60
Við getum boðið
upp á allt það sem
fólk þarfnast þegar það
er komið á efri árin, til
dæmis regluleg innlit eða
aðstoð við hvers konar
hluti, eins og böðun eða
aðstoð við matmálstíma.
Ásdís Halldórsdóttir
Ásdís Halldórsdóttir íþrótta-fræðingur er forstöðumaður Heilsu og vellíðunar hjá
Sóltúni Heima sem sérhæfir sig í
heimaþjónustu og heilsueflingu
eldri borgara. Ásdís segir að
heilsuefling hafi mikið að segja
fyrir fólk sem er farið að eldast,
sérstaklega er mikilvægt að gera
styrktar- og jafnvægisæfingar þar
sem jafnvægisskynið minnkar
með aldrinum. „Við erum búin að
byggja upp mjög öfluga heilsuefl-
ingu og höfum verið að þjálfa hópa
sem hefur gefist mjög vel. Með
styrktarþjálfun getur fólk aukið
styrk sinn og jafnvægi auk þess að
minnka hættu á falli. Þetta er eitt
það besta sem fólk getur gert til að
halda góðri heilsu og lífsgæðum.
Við erum með flottan tækjasal þar
sem boðið er upp á æfingar undir
leiðsögn þjálfara,“ segir Ásdís.
Hún bendir á að einn hópurinn,
Kraftajötnar, samanstandi af
hressum körlum á aldrinum 67-92
ára. „Konur eru í öðrum hópi sem
nefnist Kjarnakonur og þær hittast
tvisvar í viku eins og karlarnir og
gera styrktar- og jafnvægisæfingar
ásamt góðum teygjum. Síðan erum
við með þriðja hópinn, Morgun-
hana, sem er blandaður hópur
karla og kvenna. Að síðustu má
nefna Vatnaliljur sem eru í vatns-
leikfimi. Það hentar sumum mun
betur að gera æfingar í vatni. Það
er til dæmis auðvelt að hoppa í
sundi,“ segir Ásdís og bætir við að
allir hóparnir kynnist vel og með
þeim skapist skemmtilegur félags-
skapur sem mörgum er dýrmætur.
„Þetta eru litlir hópar og við
höldum vel utan um hvern og einn.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir
að vera með okkur,“ segir hún.
„Eftir hvern tíma sest fólkið niður,
spjallar saman og fær sér kaffi.“
Anna Þóra Árnadóttir sem er
sjötug hefur stundað æfingar hjá
Kjarnakonum. „Þessar æfingar
hafa sannarlega verið til bóta bæði
andlega og líkamlega,“ segir hún.
„Þetta er annar veturinn minn í
þessum hópi og það eru ekki bara
æfingarnar sem hafa gert mér gott
heldur einnig félagsskapurinn.
Hópurinn samanstendur af
skemmtilegum konum og ég get
mælt hundrað prósent með þessu.
Ég hef alltaf stundað leikfimi og
útiveru en ég þurfti að styrkja
bakið og þessar æfingar með
Kjarnakonum hafa hjálpa mér
mikið.“
Sóltún Heima býður einnig
víðtæka heimaþjónustu. „Við
getum boðið upp á allt það sem
fólk þarfnast þegar það er komið á
efri árin, til dæmis regluleg innlit
eða aðstoð við hvers konar hluti,
til dæmis böðun eða aðstoð við
matmálstíma. Við höfum fengið
frábær viðbrögð og ánægju með
þjónustuna okkar. Allt okkar
starfsfólk talar íslensku,“ segir
Ásdís og bendir á að Sóltún Heima
bjóði einnig upp á heimahreyf-
ingu. „Þá förum við heim til þeirra
sem eiga erfitt með að fara úr húsi.
Kerfið er byggt á einstöku æfinga-
kerfi frá Danmörku með mark-
vissum styrktaræfingum sérstak-
lega fyrir aldraða. Reynslan hefur
sýnt að þær skila auknum styrk og
bættu jafnvægi.“
Sóltún Heima býður upp á
fjóra líkamsræktarhópa, þeir
nefnast Morgunhanar, Krafta-
jötnar, Kjarnakonur og Vatna-
liljur. Styrktarþjálfunin fer fram
í íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14, en
vatnsleikfimin í Mörkinni við
Suðurlandsbraut.
Heilsuhóparnir fara af stað
7. janúar og skráning er hafin.
Upplýsingar og skráning á heima-
síðunni www.soltunheima.is,
soltunheima@soltunheima.is eða
síma 5631400.
Öflug heilsuefling eldri borgara
Sóltún Heima er sérsniðin þjónusta fyrir eldri borgara og aðstandendur þeirra. Áhersla er lögð á
hreyfingu með styrktarþjálfun sem styrkir vöðva og bein ásamt því að bæta jafnvægið.
Anna Þóra og Ásdís en sú fyrrnefnda er ákaflega ánægð með heilsuræktina hjá Sóltúni Heima. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sabína Steinunn Halldórsdóttir.
Teikningar: Auður Ýr Elísabetardóttir
Útivist er alls konar, útivera er alls konar og náttúran alls konar, iðandi af lífi og nær-
ingu. Náttúran er alltaf opin öllum
sem vilja sækja hana heim, hún
gerir engan mannamun en eina
kröfu: að þú gangir vel um hana og
af virðingu,“ segir Sabína Steinunn
Halldórsdóttir sem í vetur gaf
út bókina Útiveru með 52 hug-
myndum sem nota má til að fjölga
gæðastundum fjölskyldunnar í
náttúrunni allan ársins hring.
„Hugmyndirnar má leika með
hvar sem er í heiminum hvort
sem búið er í borg, bæ, þorpi eða
sveit; það geta allir nýtt þær og
eflt hugmyndaflug sitt jafnt og
þétt. Að fá tækifæri og tíma til að
leika og læra í náttúrunni hefur
jákvæð áhrif á allan þroska barna
og forspárgildi um virkni þeirra og
heilsu á efri árum. Með því að velja
það að verja tíma úti með barni og
börnum er sáð fræi til frambúðar,“
segir Sabína Steinunn.
Ævintýrin gerast hvar sem er og
hvenær sem er.
„Aðalatriðið er að vera í núinu
og njóta staðar og stundar og helst
skilja snjalltækin eftir heima. Þitt
hlutverk í þessum ævintýrum er
að leiða leikinn, ekki stjórna, leyfa
barninu að læra af reynslunni, vera
farþeginn sem spyr spurninganna,
hvetja til könnunnar, hlusta eftir
viðbrögðum, aðstoða barnið við
að ná þroskaáföngum og umfram
allt: njóta gæðastunda með þínum
dýrmætasta fjársjóði.“
Hósíkósí og næturbrölt með börnum
Leikur í náttúrunni hefur jákvæð áhrif á allan þroska barna og forspárgildi um virkni þeirra og
heilsu á efri árum. Sabína Steinunn Halldórsdóttir er viskubrunnur góðra hugmynda að útiveru.
Næturbrölt
Hvenær:
Skemmtilegast þegar það er farið
að dimma, hvort sem er snemma
að morgni eða seint á daginn.
Áhöld:
Vasaljós, eitt eða fleiri, og bók.
Hvernig:
Mikilvægast er að eiga vasaljós og
rafhlöður fyrir gönguna. Vasa-
ljósagöngu þarf ekki að skipu-
leggja heldur er best að leyfa ævin-
týrunum að gerast. Skemmtilegt
að hafa fleiri en eitt vasaljós.
Tillögur:
Skiptist á að hafa vasaljós og leiða
gönguna. Feluleikur – felið ykkur
en blikkið ljósinu við og við. Einn
í einu vísar veginn og stjórnar
þrautakóngi. Leggist á góðan stað
og segið sögu. Hafið bók meðferðis
og lesið á góðum stað. Útbúið
dulmál með vasaljósinu, eitt blikk
táknar til dæmis hæ, eða tvö blikk
tákna komdu. Þykist vera leyni-
lögregla, læðist um og reynið að
komast óséð frá A til B.
Úðarar
Áhöld:
Úðabrúsi, matarlitur og vatn.
Hvernig:
Það er gaman að hafa nokkra úða-
brúsa til að hafa marga liti. Það má
nota ýmiss konar brúsa sem hafa
klárast, svo sem undan glerúða
eða öðru sem fellur til á heimilinu.
Byrjið á að blanda liti í úðabrúsa
með matarlitum áður en farið er út
að skreyta en það er skemmtilegast
að skreyta þegar það er snjór úti.
Tillögur:
Búið til snjókarl eða furðuverur og
skreytið með litum. Gaman er að
búa til risaorm með mörgum snjó-
kúlum í röð sem síðar má ganga
á og gera færniæfingar. Spreyið
línur í snjó og vinnið með jafn-
vægi og hoppæfingar. Spreyið línu
sem upphafspunkt, hnoðið bolta
til að kasta og setjið merki með lit
þar sem hann lendir. Endurtakið
og reynið að kasta lengra næst.
Teiknið myndir í snjó með litunum.
Skrifið í snjóinn, til dæmis nafnið
ykkar eða annað sem þið viljið.
Útbúið reikningsdæmi í snjó með
einum lit og leysið með öðrum lit.
Skiptist á að gera reikningsdæmi.
Hósíkósí
Áhöld:
Kerti, krús og eldfæri.
Hvernig:
Það er gaman að byggja upp eftir-
væntingu áður en haldið er af stað
og fara út að kvöldi til þegar það er
farið að skyggja og er sérstaklega
huggulegt í góðu veðri á aðvent-
unni eða í jólaljósum jólahátíðar-
innar. Mjög gaman er að fara í
náttfötum undir kuldagallann því
það eykur enn á ævintýraljómann
að fara út eftir háttatíma.
Tillögur:
Finnið kósí stað og hafið teppi
meðferðis. Hugmyndirnar eru
endalaust skemmtilegar. Til
dæmis að lesa bók við kertaljós
úti. Syngið við kertaljós úti í garði.
Borðið kvöldmat úti í skógi við
kertaljós. Útbúið snjóhús fyrir
ykkur eða bara lítið snjóhús fyrir
kerti. Takið nokkrar kertakrukkur
með og setjið upp ratleik, við
hverja krukku er eitt verkefni.
Klárið heimalesturinn utandyra
við kertaljós.
30 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHEILSA